Morgunblaðið - 12.04.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 C 3
ÍÞRÓTTIR
^LSARINN Atli Helgason var ekki lengi að leigja sér vespu og kunni
greinilega vel til verka. Atli gekk til liðs við Val á ný nú í vetur.
innbyrðis leiki heldur gæfist kær-
komið tækifæri fyrir þjálfarana til
að bera saman bækur sínar. „Við
höfum um svo margt að ræða og
gaman og fræðandi er að spá sam-
an í hlutina, vega þá og meta.“
Stelpurnar himinlifandi
Sigurlás Þorleifsson jijálfar
meistaraflokk kvenna hjá IBV en
hann tók við stjórninni í fyrra.
Fyrir ári kom til tals að draga lið-
ið úr keppni vegna áhugaleysis
stúlknanna - oft voru ekki nema
átta til 10 stelpur á æfingu - en
í kjölfar fundar var blásið til nýrr-
ar sóknar og svo fór að liðið varð
í 6. sæti í fyrstu deild sem er
besti árangur kvennaliðs Eyja-
manna.
„Erfitt hefur verið að halda
kvennafótboltanum gangandi hjá
okkur og sennilega er helsta
ástæðan sú að margar stelpurnar
eru í vaktavinnu með skólanum,
vinna á kvöldin og eiga því erfitt
með að mæta á æfingar,“ sagði
Sigurlás. „Vegna þessa var oft
fámennt á æfingum í fyrra en
þegar \ alið stóð á milli þess að
hætta eða halda áfram á fullu
varð breyting til batnaðar. I fyrra-
sumar var því slegið upp í gríni
að stefna skyldi á æfingaferð til
útlanda í ár en kvennalið ÍBV í
knattspyrnu hafði aldrei farið til
útlanda. Þessu var ekki tekið svo
alvarlega en engu að síður vatt
hugmyndin upp á sig, fjáröflun
fór í gang og þegar Þórir sagði
mér frá aðstöðunni í Algarve var
ferðin ákveðin."
Sigurlás var m.a. atvinnumaður
í Svíþjóð auk þess sem hann hefur
verið þjálfari um árabil. „Ég hef
kynnst mörgu á löngum ferli og
veit hvað þarf að vera til staðar.
M.
mx:
W&
■
annars er ekki hægt að kvarta
yfir neinu - reyndar var þetta
mjög gott.“
Gaman og alvara
Pétur Ormslev, þjálfari 2. deild-
ar liðs FH frá því á liðnu hausti,
var á öðru máli varðandi máltíðirn-
ar. „Þetta fyrirkomulag hentaði
okkur mjög vel. Strákarnir fengu
sér morgunmat í íbúðunum og síð-
an borðuðum við saman góðan mat
í hádeginu en oft var fótbolti í
beinni útsendingu sjónvarps á
kvöldin og þá fengu menn sér það
sem þeir vildu þar sem þeir vildu
eftir síðdegisæfinguna því ekki
vantar veitingastaðina. Ákveðin
dagskrá var í gangi en þess á
milli höfðu strákarnir visst frjáls-
ræði sem er nauðsynlegt.“
Liðin æfðu yfirleitt tvisvar á dag
samkvæmt fyrirfram ákveðinni
tímatöflu og spiluðu tvo leiki. „Að-
alatriðið er að vera saman og æfa
og það er mikill munur að geta
farið yfir atriði við svona aðstæður
og þurfa ekki að hafa áhyggjur
af veðrinu,11 sagði Pétur. „Auðvitað
er gott að fá leiki en æfingarnar
skipta mestu máli. Strákarnir tóku
á á daginn og gátu síðan slappað
af á kvöidin, oft yfir knattspyrnu-
leik í beinni útsendingu sjónvarps.
Ekki er hægt að hugsa sér það
betra; tiltölulega stutt flug, gott
veður, allar aðstæður til fyrir-
myndar, gaman og alvara, enda
eru FH-ingar þegar búnir að panta
á sama tíma að ári.“
Athyglivert er að íjórir fyrrver-
andi fyrirliðar íslenska landsliðsins
voru í ferðinni; Pétur, Sigurður og
bræðurnir Atli og Jóhannes Eð-
valdssynir. Pétur sagði það kost
að hafa mörg lið í sömu ferð því
þá væri ekki aðeins hægt að leika
Þegar ég var með Eyjastrákana
fórum við í æfingaferðir til Hol-
lands, Belgíu og Þýskalands og
þó um hafi verið að ræða skemmti-
legar ferðir sem skiluðu miklu
gerðu menn lítið annað en æfa
og sofa. Við vorum yfirleitt
óheppnir með veður en samt má
segja að þegar við fórum í fyrsta
sinn fórum við út með gemlinga
en komum með góðan hóp til baka.
Hugsunin með þessari ferð var
meðal annars að efla hópinn og
framhaldið er í höndum stelpn-
anna. Hér kynntust þær því besta
sem völ er á, fyrsta flokks hóteli,
góðum völlum, æfingum við ákjós-
anlegustu skilyrði og erfiðum
mótherjum. Yfirleitt getum við
æft á mölinni heima allan veturinn
og hlaupið á götunum en það jafn-
ast ekki á við þessar aðstæður.
Þetta var erfitt en frábært í alla
staði og stelpurnar eru himinlif-
andi.“
Kjörin íslendinganýlenda
Atli Eðvaldsson hefur kynnst
mörgu á löngum og glæstum ferli
og var ekki lengi að ákveða sig
þegar boðið var upp á æfingaferð
til Portúgals. „Þegar ég heyrði að
Stuttgart hefði verið þarna þurfti
ég ekki að hugsa mig um tvisvar.
Lið eins og Stuttgart velur aðeins
það besta og ekki er til betri stað-
festing á ágæti staðar en val slíks
liðs.“
Atli var ráðinn þjálfari Fylkis í
haust sem leið. Hann sagði að
félagið hefði ekki bolmagn til að
greiða æfingaferð til útlanda „en
strákarnir vildu fara út og borga
fyrir sig. Þeir hófu fjáröflun í
nóvember og hún heldur áfram
en ég er sannfærður um að starf-
ið verður mun léttara eftir þessa
reynslu. Þetta er það fullkomnasta
sem völ er á og menn eru tilbúnir
að leggja mikið á sig til að geta
komist í svona umhverfi."
Fylkismenn féllu úr 1. deild á
liðnu tímabili og hafa fullan hug
á að endurheimta sætið en Atli
sagði of snemmt að spá í sumar-
ið. „Ómögulegt er að segja til um
hvernig gengur en strákarnir eru
áhugasamir og vilja standa sig.
Aðeins knattspyrnumenn vita
hvernig það er að æfa heima fimm
sinnum í viku í bijáluðu veðri yfir
veturinn. Innigreinarnar búa við
bestu hugsanlegu aðstæður en
knattspyrnumenn geta étið það
sem úti frýs. Erlendir knatt-
spyrnumenn trúa ekki því sem við
þurfum að ganga í gegnum en
þótt þeir hafi allt til alls fara þeir
í æfingaferðir. Toppliðin í Evrópu
leggja áherslu á æfingabúðir og
það segir sig sjálft að við þurfum
miklu frekar á æfingaferðum í
sólina að halda. Menn líta á svona
ferð sem uppbót sem endist langt
fram á sumarið. Þetta styttir und-
irbúningstímann, menn gleyma
aðstöðuleysinu heima um stund
og eru tilbúnir að gera það sem
þeir geta - nýta tímann sem best.“
Atli er jafnframt þjálfari ung-
mennaliðs íslands, sem er í bar-
áttu við Rúmeníu um efsta sætið
í riðlakeppni Evrópumótsins. Liðið
fer til Lúxemborgar eftir helgi og
leikur tvo æfingaleiki, við 3. deild-
ar lið í Belgíu á mánudag og við
landslið Lúxemborgar á miðviku-
dag. „Til þessa hefur lítið verið
hugsað um undirbúning liðsins
fyrr en rétt fyrir Evrópuleiki en
æfingaferðir eru æskilegar og
kjörið er að fara með það hingað.
Hér er allt sem menn þurfa sem
sést best á því að allir eru ánægð-
ir. Dæmið hefur gengið einstak-
lega vel upp og ég er sannfærður
um að þessi staður á eftir að njóta
æ meiri vinsælda hjá stórklúbbum
Evrópu. Hér eru menn sem vilja
allt fyrir okkur gera og við eigum
að nýta okkur það áður en við
missum af lestinni. Það gerum við
best með því að koma hingað
reglulega, gera þetta að íslenskri
fótboltanýlendu.“
Fyrsti Evrópu-
leikur Leifturs
gegn þýsku liði
Knattspyrnusamband Evrópu
sendi í gær frá sér riðla-
skiptinguna í UEFA-Intertoto
keppninni í sumar og er Leiftur
í 6. riðli ásamt liðum frá Þýska-
landi, Tyrklandi, Danmörku og
Litháen.
Leiftur byrjar á heimaleik 20.
eða 21. júní og fær þá þýska
liðið í heimsókn. 28. eða 29.
júní á Leiftur að leika í Dan-
mörku, 5. eða 6. júlí eiga norð-
anmenn heimaleik á móti liði frá
Litháen og 12. eða 13. júlí á
Leiftur að leika í Tyrklandi.
Ekki liggur fyrir hvaða liðum
Leiftur mætir vegna þess að
deildarkeppni í löndunum stend-
ur enn yfir. Knattspyrnusam-
bönd hafa frest til 2. júní til að
tikynna hvaða lið taka þátt í
keppninni en sú regla gildir að
ekki má tilkynna lið sem á
möguleika á að vinna sér sæti
í annarri Evrópukeppni.
Vegna leiks Leifturs í Tyrk-
landi verður að fresta viðureign
liðsins á móti Skallagrími í Is-
landsmótinu og verður leikurinn
væntanlega færður aftur um
viku til 10 daga.
Isiand í 76. sæti
á FIFA-listanum
ÍSLAND er í 76. sæti á nýjasta
styrkleikalista Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins sem kom út
um síðustu helgi. Um síðustu
áramót var Island í 60. sæti og
hefur því fallið niður um 16 sæti
á þremur mánuðum. Þess má
geta að íslenska Iandsliðið hefur
ekki leikið neinn landsleik á þess-
um tíma. ísland er með 35,16 stig.
Brasilía er sem fyrr í efsta
sæti listans með 65,51 stig.
Þýskaland (63,60) og Frakkland
(61,94) eru í öðru og þriðja sæti.
Spánn (61,53) er í fjórða sæti
og hefur fært sig upp um fjögur
sæti frá áramótum. Danir
(61.36) eru í fimmta sæti, Tékkar
(60,64) í sjötta og ítalir (60,18)
í sjöunda en voru í 10. sæti um
síðustu áramót. Kolumbía
(59,56) er í 8. sæti, Rúmenía
(59.37) í 9. sæti og Holland
(59,03) í 10. sæti. England (56,21)
er í 14. sæti.
Meðal þeirra þjóða sem eru í
svipuðum styrkleika og ísland
samkvæmt listanum eru: Kúba
(númer 73. - 35,44 stig), Angóla
(74. - 35,28), Qatar (75. - 35,23),
E1 Salvador (77. - 34,72) og Kýp-
ur (78. - 34,57), Mósambík (79. -
34,32) og Makedónía (80. - 34,23).
Alls eru 188 þjóðir á listanum.
Kaupa enskir
spænsk lið?
NOKKUR ensk knattspyrnulið
hafa áhuga á að kaupa lið á
Spáni og hafa falið fyrirtæki í
Barcelona að kanna hvaða
möguleikar kunni að liggja fyrir
í þeim efnum. Þetta fullyrðir
Josep Lluis Nunyes, forseti
spænska knattspyrnuliðsins
Barcelona.
Nunyes sagði á fundi með blaða-
mönnum í Barcelona að um
væri að ræða knattspyrnulið í Eng-
landi sem störfuðu
Ásgeir sem opin hlutafélög.
Sverrisson Þar sem gengi
skrifar hlutabréfa í liðum
fráSpáni þessum væri skráð
rétt eins og gengi hlutabréfa í öðr-
um fyrirtækjum þyrftu þau stöðugt
að leita leiða til að auka hagnaðar-
von eigendanna. Því væru nokkur
ensk lið tekin að horfa út fyrir land-
steinana í þessum tilgangi. Þessi lið
eða réttara sagt fyrirtæki vildu
kanna vaxtarmöguleikana erlendis,
rétt eins og önnur fjölþjóðafyrirtæki
og hefðu því ákveðið að kynna sér
möguleikana á Spáni. Nunyes vildi
ekki gefa upp um hvaða lið í Eng-
landi væri að ræða.
Ráðamenn Barcelona hafa leitað
til ráðgjafarfýrirtækis til að kanna
hvort fýsilegt væri að fara á al-
mennan hlutabréfamarkað. Að mati
þessa fyrirtækis væri markaðsvirði
Barcelona nú um 40 milljarðar
króna á opnum markaði. Nunyes
sagði hins vegar að ekki væri vilji
fyrir því að breyta Barcelona í al-
menningshlutafélag. „Við viljum
viðhalda liðsandanum".
Sérfróðir segja að Barcelona og
enska liðið Manchester United séu
þau lið í Evrópu sem einna mestuin
rekstrarhagnaði skili. Nunyes sagði
hins vegar að hagnaðarmöguleikar
Manchester-liðsins mættu heita
fullnýttir en það sama gilti ekki um
Barcelona. Forsetinn ítrekaði hins
vegar að hann væri andvígur því
að spænskum knattspyrnuliðum
yrði breytt í opin hlutafélög.
Hins vegar er ljóst að alþjóðlegt
fjármagn streymir nú inn í knatt-
spyrnuheiminn í Evrópu og veltan
eykst sífellt, m.a. vegna ofursamn-
inga um sendingarrétt frá knatt-
spyrnuleikjum. Þróunin kann því
að verða sú að knattspyrnulið verði
ekki lengur staðbundin fyrirbrigði,
fulltrúar borga, héraða og bæja,
heldur réttnefnd fjölþjóðleg fyrir-
tæki.