Morgunblaðið - 18.04.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.04.1997, Blaðsíða 2
2 B FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF að talað sé um duttl- unga tískunnar. Þeir sem elta koma ekki að tómum kofanum á ís- landi. Hanna Katrín Friðriksen fór á tísku- T ískuliðið í frystihúsa- og sjógalla Poppstjama í flotvinnu- búningi og tískuspekúl- antar í frystihúsagöll- um. Það er ekki að furða sýningu og svo beina leið í Sjóklæðagerðina. Morgunblaðið/Kristinn KRISTIN Halldórsdóttir hönnuður og Markús Þórarinsson fjármálastjóri Sjóklæðagerðarinnar. „JOE Boxer goes to Iceland" var yfirskrift á glæsilegri en óvenjulegri tískusýningu sem haldin var í flug- skála 4 við Reykjavíkurflugvöll síðastliðið laugardagskvöld. Það var bandaríski fataframleiðandinn Nicholas Graham, eigandi Joe Box- er, sem stóð á bak við sýninguna, en fyrirtækið hefur getið sér gott orð fyrir framleiðslu á undirfötum, náttfötum og sundfötum. Fjölmiðla- fólki frá helstu tískublöðum og þátt- um í Bandaríkjunum, alls um 160 manns, var boðið til leiks. Markmið- ið var að setja með eftirminnilegum hætti endapunktinn á tískusýningar- viku New York borgar þar sem hönnuðir sýndu hausttískuna 1998. Eldsmíði þar sem tæknin er lifandi Morgunblaðið/Kristinn SIGRÚN Guðmundsdóttir hamrar járnið. AXARBLÖÐ, hamar, mótunarskeiðar og hnífar HJARTALAGA grilltöng að hætti úr smiðju Sigrúnar. MAÐUR verður svolítið svartur," segir Sigrún Guðmundsdóttir myndhöggvari, og vill síður taka í höndina á gestum í Vogasel þar sem kyrrðin ræður ríkjum. At- hygli vekur skringilegur og ijúk- andi reykháfur sem teygir sig upp eftir framhlið hússins og er jafnframt lykill að leyndardóminum. Innandyra og niðri hef- ur Sigrún hitað upp í aflinum fyrir við- stadda. Hún er eld- smiður. Gestirnir hósta svo- lítið en Sigrún kveikir á ryksug- unni og byijar að hamra heitt járnið. Eldsmíði byggir á fornri hefð og hér áður fyrr voru nytja- hlutir í eldhús og neðan á hests- hófa smíðaðir með þeim hætti, sem og skartgripir. Sigrún byijaði að velta fyrir sér eldsmíði fyrir 5-6 árum og ætlaði að leita fyrir sér utanlands með leiðsögn. „Þetta hafði blundað lengi í mér því ég hafði áhuga á að vinna með járn og sameina skúlptúrn- um.“ Fyrir fjórum árum fékk Mynd- höggvarafélag Reykjavíkur danska eldsmiðinn Tómas Norregaard til þess að halda tveggja daga námskeið, sem var hvalreki á fjörur Sigrúnar og ann- arra myndlistarmanna segir hún. Tómas hélt þijú vikunámskeið í kjölfarið sem Sigrún hefur sótt líka. Víkingatól og tæki Eldsmíði er lifandi starfsgrein í Englandi, Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum og hefur Norre- gaard látið nemendur sína smíða að fyrirmynd verkfæra frá vík- ingaöld. Sigrún hefur smíðað sér axir, hnífa og mótunarskeiðar fyr- ir leir, tangir, afhögg og meitla. Þá hefur hún smíðað beltissylgjur og grilltöng, svo eitthvað sé nefnt. „Það er góð æfing að smíða hnífa, bæði vegna formsins og þess að þeir eru soðnir saman úr mörgum lögum. Ég sjóast af þessu því í smíðinni þarf að glíma við ýmsan vanda sem kemur að góðum notum þegar út í skúlptúrinn er komið.“ Sigrún kenndi við Myndlistaskólann í Reykjavík 1972-95 og Myndlista- og hand- íðaskóla íslands 1983-95 og byij- aði á því að taka nokkra nemend- ur í skúlptúr heim til þess að sýna þeim handtökin. Fræðsludeild MHI bauð síðan upp á námskeið í eldsmíði í fyrsta skipti í liðnum mánuði og Sigrún kenndi. Fræðsludeildin er ný stofnun sem skipuleggur námskeið fyrir al- menning og sérhæfir sig í nám- skeiðum, endurmenntun og sí- menntun fyrir fólk sem starfar að sjónlistum. Sigrún vinnur á neðri hæð húss síns við Vogasel og tekur á móti heimsókn í grænum hlífðarslopp og gönguskóm. Gestir verða ann- að hvort svartir af sóti eða hvítir af gifsi eða bara gráir. Einn steðja átti hún en fékk síðan að láni afl- inn, sem hitaður er með koksi eða smíðakolum, og annan steðja til. Fýsibelgurinn bíður betri tíma en á meðan suðar ryksugan á fullu og blæs. Ein og ein blaðra í fyrra var Afl, félag áhuga- manna um eldsmíði, stofnað og mættu um 20 manns á stofnfund að Sigrúnar sögn. Þar er að fínna járniðnaðarmenn, handiðnarkenn- ara, stelpur og stráka. Nýliðnu námskeiði luku sjö, fimm stelpur og tveir strákar. „Það þarf lagni og útsjónarsemi, ekki endilega krafta," segir hún. Sigrún hefur búið til hnífa úr þjölum sem tennurnar eru slípaðar af og smíðað úr fjaðrastáli, bílöxl- um og -gormum. „Eldsmíðin var deyjandi grein og mér finnst vinnuferlið allt mjög heillandi. Þetta er lifandi tækni.“ Auk þess að helga járninu meiri tíma í list- sköpun sinni hefur Sigrún í hyggju að smíða sér fýsibelg. Lamirnar eldsmiðsins. eru tilbúnar. „Það er auðveldara að stjórna blæstrinum með fýsi- belg sem nauðsynlegt er til að smíða fínlegri hluti.“ Loks er Sigrún spurð hvort hún hafi aldrei brennt sig á glóandi járninu. „Maður hefur kannski fengið eina og eina blöðru.“ ■ hke logni og útsjón- nrsemi kemur í kroftn stnð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.