Morgunblaðið - 18.04.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.04.1997, Blaðsíða 6
6 B FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF HÚSASMIÐUR OG SAFNARIÁ AKUREYRI MEÐ AUGUM LAIMDAIMS ;J íbúðaleit o Þórunn Stefánsdóttir er mannlífs- grúskari sem býr tímabundið í Barcelona á Spáni. GAMLI, fallegi stiga- i 1 gangurinn hafði lifað feoSSS tímana tvenna. Nú var ^ __ málningin upphleypt tJ og bólgin, eins og húð, haldin torkennilegum, ólæknandi sjúkdómi. Ferð mín upp eftir jr þessum stigagangi var ) ein af mörgum slíkum, í leit minni að íbúð tií leigu í Barcelona. íbúðin er óhrein, sagði j . Igor, maðurinn frá ijSáífal leigumiðluninni. Mjög óhrein, endurtók hann um leið og hann 4jP*\ renndi augunum upp eftir veggjunum. Eg 1 var að hugsa um að Msegja honum að við skyldum bara gleyma þessu. En þá vorum við allt í einu komin af ganginum, út á hvítar flísalagðar svalir, skrýddar fegursta blómaskrúði. Þaðan var gengin inn í íbúðina. Meðfram öllum húsunum í kring lágu svona svalir, og þær mynduðu einnig brýr á milli húsa. Feitir kettir lágu í sólbaði á þökunum fyrir neðan og allt í einu var ég stödd í friðsamri sveit í miðri stórborg- inni. Igor opnaði dyrnar afsakandi. Sagðist um leið hafa verið búinn að vara mig við. Það eina sem mér datt í hug að segja var „Guð minn góður, bjó virkilega einhver hér?“ Ekkert hefði getað búið mig undir sjónina sem mætti mér. Orð eins og óhreinindi og ólykt fengu aðra og nýja merk- ingu. En við öllum þessum dapur- leika brosti sólin inn í stofurnar, herbergin fjögur voru mín fyrir aðeins 23 þúsund krónur á mán- uði, fritt í einn mánuð, ef ég vildi taka að mér að hreinsa og mála. Eftir að hafa gengið um íbúðina, málað hana skjannahvíta í hugan- um og fyllt hana blómum sló ég til. Alltaf svolítið veik fyrir máln- ingarpenslinum. Það hafði smám saman síast inn í kollinn á mér, þessar vikur sem ég hafði verið að leita að íbúð, að kona eins og ég væri martröð barselónískra íbúðareigenda. Útlendingur, með enga karlkyns fyrirvinnu, ekki einu sinni í föstu starfi. _____ Á Spáni eru leigusamn- ingar gerðir til fimm ára og á þeim tíma er nær ómögulegt fyrir íbúðareigandann að rifta samningnum. Þeir vilja því vanda valið. En hátíðleg skjöl frá íslandi, löglega þýdd yfir á spænska tungu, sem staðfestu andlegan og veraldlegan status minn, leystu málið. Ég, leigjandi, Pepi, starfsmaður leigumiðlunar- innar og Ana Maria, sálfræðingur og íbúðareigandi, hittumst til samningsgerðar og undirskriftar. Allt fór friðsamlega fram, þrátt fyrir þref og efasemdir Önu Mar- íu um nauðsyn þess að hafa heitt rennandi vatn í eldhúsinu, en það fór svo að hún lét sannfærast. Síðan las Pepi upp leigusamning- inn, tvær blaðsíður, þar sem með- al annars kemur fram að bannað sé að kveikja á flugeldum inni i íbúðinni og að ég sé bótaskyld ef einhver slasast ef blómapottur dettur fram af svölunum hjá Hátíðleg skjöl frá ’lslandi leystu málið mér. Ég kvittaði undir og lykillinn var minn. Og þá var bara að hefjast handa. Það tók svolítinn tíma að safna kjarki og geði til þess að taka saman hlutina sem fyrir voru í íbúðinni og tilheyrðu fyrrum leigjanda. Og það er lík- lega vandfundið það hreinsiefni á heimsmarkaðnum sem ekki er búið að fá að spreyta sig á íbúð- inni á Calle Carretes. Eftir tveggja daga nokkuð sleitulausa vinnu með stálull og skordýra- drepandi Ajax sást í frumgerð eldhússgólfsins. En þá voru öll hin gólfin eftir. Það var þá sem Jesus kom til skjalanna með gólfslípirokkinn sinn. Hann sagði nákvæmlega sama og ég hafði sagt: Guð minn góður. Byijaði á því að rífa alla glugga upp á gátt, hljóp svo út á svalirnar og teygaði að sér frískt útiloftið. Sagði svo að rokkurinn leysti svona vandamál á stundinni, gólf- in yrðu kannski ekki eins og ný, en alla vega yrðu þau hrein. Hrein, endurtók hann, hristi höf- uðuð og signdi sig í bak og fyrir. Það komu fleiri góðir menn í heimsókn, nú til að leggja heitt vatn í eldhúsið. Ég var farin að venjast þessum áköllunum til Guðs almáttugs, skelfingarsvip og grettum og var nú komin í varnarstöðu, farin að veija íbúð- ina. Var búin að mála aðra stof- una skjannahvíta, þvo glerin í gluggunum og það stirndi á ný- þvegið og bónað gólfið. Ólyktina var ég búin að rekja til ónýts rörs í eldhúsinu og með glöðu geði gerðu þeir við það, svona í leið- inni. Þegar hann fór, suðræni sjarmörinn sem stjórnaði verkinu, tók hann í hendina á mér, þrýsti hana með báðum sínum, horfði svörtum augum í augu mér og óskaði mér velfamaðar i erfiðu starfi. Erfiðu, já, en skemmtilegu. Á þessum dögum hef ég kynnst hverfinu mínu, afgreiðslumönn- unum í málningarvöruverslun- inni, sem líklega aldrei hafa selt eins mikið af hvitri málningu á jafn skömmum tíma, konunni í járnvöruversluninni og síðast en ekki síst kaupmönnunum á horn- inu. í þessari stórborg lifa þeir góðu lífi, spjalla við kúnnana eins _________ og gamla vini og draga svo blýant og blaðstúf upp úr vasanum til þess að reikna saman verð- ið. Ég er hætt að kreppa hnefana í jakkavasanum af óþolinmæði yfir þessum útreikningum og meira að segja farin að ganga i sama rólega taktinum og Spánveijarn- ir, njóta góða veðursins og skrautlegs mannlífsins í hverfinu, þar sem býr fólk úr öllum heims- hornum. Og eftir því sem dagarnir líða minnkar ólyktin í íbúðinni. Vegg- imir og fallegu bogadregnu Ioftin verða hvítari og hvitari, sólin skín inn í herbergin og blómin á svöl- unum út af stofunni vaxa og blómstra í pottunum, sem eru tryggilega festir. Mig dauðlangar til að mála stigaganginn, en kann ekki við það. Og það verður að segjast eins og er, að ég er lukku- leg yfír því að vera loksins orðin leigjandi í Bareelona. af ótrúlegum hlutum Sverrir Hermannsson er kunnur hagleiks- smiður en færri vita að í gömlu gripa- húsi á Akureyri hefur hann komið sér upp býsna merkilegu safni. Hrönn Mar- inósdóttir og Krístján Kristjánsson ljósmyndari skoðuðu munina sem eru um 10.000 og ótal blaðaúrklippur Sverris, ____m.a. um íslendinga sem náð hafa 100 ára aldursmarkinu. ÓTAL verkfæri og áhöld. UM100 möppur eru fullar af úr- klippum. „ERTU ekki forviða,“ spyr Sverr- ir þegar við blasir sægur af hreint ótrúlegum munum; hundrað teg- undir af gömlum tréheflum, átta misvelfarnar hakkavélar, sú elsta frá því um aldamót, herðatré í tuga- tali, tréskautar og rakhrífur, fjöldi bilnúmera og fornt jólaskraut, bús- áhöld, skráargöt og lásar. Ýmis konar sundgleraugu og eldgamlir símar. Sverrir safnar öllu. Ég viður- kenni að þetta var heldur meira en ég átti von á. Við erum stödd uppi á háalofti bakhússins að Aðalstræti 38 á Ak- ureyri. í gamla daga var þar hest- hús og fjós en Sverrir sem er gam- all smiður endurgerði húsið og kom fyrir smíðaverkstæði á jarðhæðinni og safni á háaloftinu. Sökum pláss- leysis geymir hann hluta safnins í þvottahúsi í kjallara fremra hússins þar sem hann bjó til margra ára en einkadóttir hans býr þar nú ásamt fjölskyldu sinni. Árið 1993 missti eiginkona hans Auður Jóns- dóttir heilsuna og er nú í hjólastól. Þau fluttu því í félagsíbúðir aldr- aðra að Lindarsíðu 4. ,Ég er því talinn þorpari þótt í hjarta mínu verði ég alltaf innbæingur.“ Sverrir er Akureyringur í húð og hár. Hefur aldrei búið annars stað- ar ef undan eru skilin sumrin sem hann dvaldi í sveit sem barn og unglingur. „Ég var sendur í sveit fyrir hrekki „sem líklega myndu kallast ofvirkni í dag“. Aldrei hefur Sverrir farið til útlanda né tekið sér sumarfrí „enda ekki nema tæplega sjötugur að aldri“. Á stúfana eftir safnhúsnæði NOTUÐ strokleður, blekbyttur og skriffæri. Heldur er farið að þrengjast um hlutina hans Sverris, hvergi sér í auðan blett í þessu 150 fermetra rými en hlutirnir hans eru nú um 10.000 talsins. „Mig bráðvantar pláss og ég er tilbúinn til að gefa allt dótið ef einhver býður gott húsnæði á móti.“ Lítið hefur borið á safninu enda hefur það aldrei verið auglýst. „Fréttir hafa þó kvis- ast út og menn hafa komið og feng- ið að skoða, meðal annars Þór Magnússon þjóðminjavörður.“ Það er líka gaman að skoða safnið hans Sverris en ef vel á að vera tekur það minnst tvo daga, magnið er svo gífurlegt. Öllu er þó raðað eftir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.