Morgunblaðið - 18.04.1997, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1997 B 5
DAGLEGT LÍF
Ljósmynd/Skarphéðinn Þórisson
• ELSTU leifar hreindýra eru aðeins 440 þúsund ára
gamlar. Þegar hlýnaði í lok ísaldar og heppilegur
gróður tók að spretta þar sem áður var jökull, færðust
norðurmörk hreindýranna norður á bóginn og þau námu
lönd á nyrstu eyjum Kanada, á Grænlandi og Novaya
Zemlya, þangað sem þau komust til Svalbarða
um Frans Jósefsland. Hreindýrið er eitt hjartar-
dýra loðið á snoppunni sem er dæmi um aðlög-
un að fimbulkulda norðurhjarans.
Þau eru nánast hvít á veturna þótt þau séu að mestu
brúnleit á sumrin. Hvítur feldur þeirra er svartur í útfljóu-
bláu ljósi eins og hvítabjarna.
Ekkert annað klaufdýr er með hlutfallslega jafnbreiðar
klaufar og hreindýrið. Þyngd íslenskra hreinkúa er um 100
kg en fullvaxnir tarfar geta vegið yfir 200 kg. A Svalbarða
lifir hinsvegar hreindýr sem hefur þurft að gera ýmsar
aðlaganir sökum meiri kulda og minni frumframleiðni:
Útlimir eru styttri, trýnið styttra og er helmingi minna en
hreindýr á meginlandi Skandinaviu. Kýrnar vega að jafn-
aði um 50-60 kg og tarfarnir um 100 kg. Þessi hreindýr
eru því með smæð sinni og sparneytni ákaflega vel aðlöguð
þeim litla gróðri sem finnst í heimkynnum þeirra.
Minnstu hreindýr sem menn hafa nokkurntíma fundið
merki um voru á Grænlandi, þau lifðu lengst í SA-Græn-
landi og dóu líklega út á 15. öld um það leyti er eskimóar
settust þar að. A V.-Grænlandi eru ennþá stór hreindýr
en forfeðurnir komu þangað fyrir 4-6 þúsund árum.
HVITABJORN
3 * % 4
y- a: jff fe 1
Ljósmynd/L.David Mech
• ELSTU leifar af hvítabirni eru innan við 250 þúsund
ára gamlar en hann er nánasti ættingi skógarbjarnar-
ins. Nýlegar DNA-rannsóknir benda til þess að sameiginleg-
ur forfaðir þeirra hafi verið uppi fyrir um 2 milljónum ára
eða við upphaf fyrstu ísaldarinnar. Skógarbjörn og hvíta-
björn hafa átt fijó afkvæmi saman í dýragörð-
um. ísland markaði nánast syðri mörk sam-
fellds hafiss á ísöld og því ekki ólíklegt að
hvítabirnir hafi verið mjög tíðir gestir hérlendis. Páll Her-
steinsson bendir á athyglisverðar lagagreinar í Grágás frá
12. öld um bann við innflutningi skógarbjarna og reglur um
meðferð alibjarna: „Ef maður á alibjörn hvítan . . .“ Draga
má þá ályktun að hvítabirnir í eldi hafi verið þokkajega al-
gengir meðan ferðir voru tíðar milli Grænlands og Islands.
Þó er ljóst að villtir hvítabirnir ættu ekki auðvelt uppdráttar
á íslandi þar sem þeir veiða seli á hafís og slíkar aðstæður
eru sjaldgæfar hér.
Hvítabjörninn ber nafn með rentu og er hvítur eða nán-
ast hvítur allt árið enda eyðir hann ævinni úti á hafísbreið-
unum, sumar sem vetur.
En er ekki ókostur fyrir hvítabjörninn að vera hvítur
vegna endurkasts sólarljóssins? Hvít hárin eru hol innan og
virka sem ljósleiðari þannig að broti af sólarljósinu er ekki
endurkastað heldur leitt eftir hárunum inn að svartri húð-
inni sem dregur það til sín. Feluliturinn er ekki dýru verði
keyptur og honum tekst að nýta hluta sýnilegs sólarljóss til
að verma húðina.
Fyrir tæpum tveim áratugum uppgötvaðist að í útfjólubláu
jjósi eru hvítabirnir svartir sem táknar að feldurinn dregur
í sig sólarljós af þeirri tíðni sem kallað er útfjólublátt og
dýrin nýta það til að verma húðina. Húðhiti hvítabjarna
getur við bestu aðstæður hækkað um allt að 10 gráður á
Celsíus vegna áhrifa sólarljóss og getur það skipt miklu
máli fyrir dýr sem sífellt er að blotna.
Bjarndýrið eitt norðurhjaradýra leggst í dvala yfir kald-
asta tíma ársins og aðeins birnan. Hitastig hennar lækkar
samt aðeins um 3-7 gráður.
• TÓFAN er þurftalítil vegna stærðar sinnar og getur
lifað við mjög lágt hitastig hafi hún nóg að éta. Hin
mikla einangrun feldsins gerir henni kleift að spara orku og
vega upp á móti smæð sinni í svo miklum kulda sem ríkir víða
á útbreiðslusvæði hennar. Feldur refsins hefur mest einangr-
unargildi allra spendýra og refurinn þolir
35-40 gráðu frost áður en efnaskiptahraði
líkamans eykst. Einangrunargildið er nánast
jafnmikið og á sauðnautum. Flest hárin eru fíngerð þelhár,
3-4 sm að lengd en þau skipa sér í þyrpingu kringum vindhár-
in, sem eru 5-6 sm að lengd en feldurinn er þykkastur á
hálsinum og skottinu en þynnstur á leggjum og í andliti.
Þéttleiki háranna er gífurlegur. Tófan er loðin á þófunum.
Hún fer ekki að skjálfa fyrr en hitastigið fer undir 70 gráðu
frostið. Tófan safnar spiki að vetrarlagi, bæði spikþykkt og
þyngd ná hámarki á tímabilinu nóvember-febrúar en minnkar
eftir það. Steggir geta verið um 600 g þyngri að vetrarlagi
en að sumri til. Tófan skiptist í tvö litaafbrigði, annað þeirra
verður hvítt á vetuma en hitt er dökkt allt árið. Á V.- Græn-
landi og Islandi, þar sem hún sækir mikið af fæðu sinni að sjó
er mórauða litaafbrigðið algengara. Á freðmýram N.-Ameríku
og Evrasíu eru hvítar tófur hinsvegar í yfirgnæfandi meiri-
hluta. Tófan er með mun minni eyru, styttra trýni, háls og
skott en frændi hennar rauðrefurinn, skottið u.þ.b. þriðjung-
ur af heildarlengd dýrsins en 40% á rauðref.
• RAUÐREFURINN er útbreiddasta refategund í heimi,
finnst allt frá 30. norðurgráðu í Norður-Afríku og
sunnarlega í Ameríku og allt norður á freðmýrar meginland-
anna. Efnaskiptahraðinn hjá honum í Alaska byijar að auk-
ast þegar hitastig umhverfis fer niður fyrir 13 gráðu frost
á celsíus. Rauðrefurinn getur vel þrifist á svæð-
um þar sem fimbulkuldi ríkir á vetrum. Þegar
grannt er skoðað er það sumarhitinn og frum-
framleiðni svæðisins sem jurtaæturaar lifa á, bráð refanna,
sem skiptir máli. Því hlýrra sem er á sumrin og meiri frum-
framleiðni, því meira er um bráð fyrir refina. Rauðrefurinn
getur aukið efnaskiptahraðann að vetrarlagi svo framarlega
sem hann hefur nóg að éta. Hann er 50% stærri og sterkari
en tófan og sigrar tófuna í beinni samkeppni. En á svæðum
þar sem sumarhiti er minni og að jafnaði minna um fæðu
fyrir refina kemst tófan betur af. Norðurmörk útbreiðslu
rauðrefsins takmarkast því af fæðuframboði en ekki kulda.
Það er engin spurning að rauðrefir gætu þrifist á íslandi.
Ef það hlýnar enn er líklegt að hann komist fyrst til Græn-
lands og svo á hafís til Islands og festi hér rætur.
Ljósmynd/Páll Hersteinsson
Ljjósmynd/Páll Hersteinsson
M Morgunblaðið/Þorkell
HLJÓMPLÖTUSAFN Reynis Þórs geymir m.a. gamalt lag með
Selene Dijon úr Eurovisionkeppninni.
Botnlaus
áhugi á Eurovision
REYNIR Þór Eurovision aðdáandi
og fjölmiðlafulltrúi Páls Óskars.
REYNIR Þór Sigurðsson,
ósköp venjulegur kenn-
aranemi á þriðja ári er
viskubrunnur hvað Euro-
vision varðar. Algjör heili,
eins og kunningi hans orð-
aði það. Hárgreiðsla og
klæðaburður keppenda
allt frá því söngvakeppnin
hóf göngu sína árið 1956,
stigaíjöldi og gengi ein-
stakra laga, Reynir Þór
veit nánast allt um það
því Söngvakeppni evróp-
skra sjónvarpsstöða er
einfaldlega áhugamál hans númer
eitt.
„Ég á mjög auðvelt með muna
smáatriði," segir Reynir Þór þegar
hann sér undrunarsvipinn í andliti
blaðamanns. „En auk þess finnst
mér keppnin einfaldlega skemmti-
leg og áhuginn hefur vaxið ört með
árunum." Eurovision sameinar
einnig áhuga Reynis Þórs á tónlist
og tungumálum en hann talar sjö
tungumál og er auk þess slarkfær
í rússnesku og finnsku.
Fjölmiðlafulltrúi á írlandl
Fullur tortryggni ákveður blaða-
maður að sannreyna kunnáttu
Reynis Þórs og baunar því á hann
spurningu. Hvað hét svissneska
lagið í söngvakeppninni árið 1985,
í hvaða sæti lenti það og hvernig
fatnaði klæddust flytjendur. ? Ekki
stóð á svari. „ Lagið heitir „Piano
Piano“ og lenti í 10. sæti. Flytjend-
ur voru tveir; konan var í svörtum
hlíralausum pífukjól sem náði niður
á hné og karlinn í svörtum
mittisjakkafötum með rauðan
linda.“
Keppnin verður að þessu sinni
haldin í Dyflinni á írlandi og Reyn-
ir Þór fer utan sem fjölmiðlafulltrúi
Páls Óskars Hjálmtýssonar sem
syngur fyrir Islands hönd. Að
beiðni söngvarans mun hann einnig
reyna að viða að sér sem flestum
kjaftasögum um hina keppendurna.
Eins og sönnum aðdáenda sæm-
ir hefur Reynir Þór ákveðið að
stofna Eurovision aðdáendaklúbb á
Islandi en slíkir klúbbar eru starf-
ræktir víða um Evrópu. Undanfarið
hefur hann tekið virkan þátt í starf-
semi aðdáendaklúbbsins á alnetinu.
Slóðin er http://www.geociti-
es.com/'tarantulas/. „Þar er meðal
annars að finna forvitnilegar upp-
lýsingar um gamla keppendur og
með hljóðkorti er unnt að heyra
búta úr nýjustu lögunum."
Reglulega horfir Reynir Þór á
upptökur af gömlum keppnum og
á þær reyndar nánast allar á mynd-
bandsspólum. Safnið er því orðið
myndarlegt, samtals 36 spólur.
Auk þess á hann heilan helling af
gömlum hljómplötum með Eurovi-
son lögum. Uppáhaldslagið hans
er tvímælalaust ítalska vinning-
slagið frá árinu 1964 „Non hol’eta"
sem sungið hefur verið á íslensku
og heitir Heyr mína bæn.
„Sum laganna í Eurovision eru
einfaldlega léleg, að mati Reynis
Þórs, sérstaklega í seinni tíð. „Um
1990 staðnaði keppnin, hún hætti
að fylgja almennri þróun í popp-
tónlist en áður voru flytjendur alla
jafna með á nótunum. Lögin sem
keppa i ár lofa hins vegar góðu svo
ég held að keppnin muni lifna við
á ný.“ Reynir Þór kveðst hafa á
tilfinningunni að Minn hinsti_ dans,
íslenska lagið hans Páls Óskars
muni lenda í 3. sæti. Þann þriðja
maí nk. kemur í ljós hvort hann
reynist sannspár. ■
hm
Notaðu aðeíns það besta,
notaðu TREND snyrtivörur
Með TREND nærðu árangri.
TREND naglanæringin styrkir
neglur. Þú getur gert þínar eigin
neglur sterkar og heilbrigðar.
TREND handáburður með Duo-
liposomes, ný tækni sem vinnur
inní húðinni. Einstök gæðavara.
Snyrtivörumar frá TREND eru fáanlegar
í apótekum og snyrtivöruversíunum um
land allt. Einnig í Sjónvarpsmarkaðnum.
li\END
COSMETICS
Einkaumboð og heildsala
S. Gunnbjörnsson £ CO,
Iðnbúð 8, 210 Carðabæ.
Símar 565 6317 og 897 33»7- Fax 565 8217.