Morgunblaðið - 03.05.1997, Síða 2
2 C LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1997 C 3
AÐSENDAR GREINAR
Mismunandi
viðhorf til glímu-
íþróttarinnar?
EG VERÐ að játa að
ég trúði ekki mínum
eigin augum þegar ég
opnaði blaðið kl. 9 að
morgni 1. maí og fletti
fyrst á íþróttasíðuna
eins og ég er vanur og
leitaði að skrifum um
glímu en þau finnast því
miður þar allt of sjald-
an. Þar var óvænt grein
um glímu sem ég las
með athygli því þar er
vitnað í einhvern glæsi-
legasta glímumann sem
stigið hefur á glímuvöll.
En þvílík vonbrigði.
Greinin er full af undar-
legum fullyrðingum bæði um glímu-
íþróttina og nýendurkjörinn formann
GLÍ.
tegundir fangbragða
sem ég þekki til.
Ólafur Haukur
gagnrýnir Jón M.
Ivarsson, nýendurkjör-
inn formann GLÍ,
nokkuð harkalega og
mest fyrir að þekkja
ekki til íþróttarinnar.
Fegurðarsmekk Ólafs
Hauks ætla ég ekki að
gagnrýna. Það getur
vel verið rétt að meiri
fríðleikspiltar en Jón
M. Ivarsson hafi stigið
um glímuvöll. Ég veit
það hins vegar vel að
fáir menn eru betur
Til umræðu í greininni er aðallega
viðureign Jóns Unndórssonar og
Péturs Eyþórssonar í síðustu ís-
landsglímu, 26. apríl sl. í þessari
viðureign mættust miklar andstæður
og skarpar. Stór, sterkur, þungur
og reyndur glímumaður og ungur
og léttur nýliði. Ólafur Haukur sagð-
ist hafa séð Jón taka góð brögð
þegar hann glímdi við Pétur. Ég sá
þau ekki. Ég sá hins vegar Jón eiga
í mestu vandræðum með að ná nógu
góðum brögðum til að leggja Pétur
og því greip Jón til annarra ráða.
Ég er hjartanlega sammála Jóni
ívarssyni að Jón Unndórsson fór
verulega yfír mörkin þegar hann
glímdi við Pétur. Að mínu mati átti
Jón að vera löngu búinn að fá gult
spjald fyrir níð. Jón kastaði sér ofan
á Pétur hvað eftir annað en Pétri
tókst alltaf að komast hjá því að
hljóta byltu, þ.e eins og stendur í
glímulögum 21. gr. „Það er bylta,
ef læri viðfangsmanns, sitjandi, bol-
ur, öxl, höfuð eða upphandleggur
snertir glímuvöll.“ Og í 16. gr.
glímulaga stendur. „Glímumenn
valdi byltu með leyfilegum glímu-
brögðum á þann hátt að þeir haldi
jafnvægi þegar glímubragði er lokið.
Að loknu glímubragði er sækjanda
leyfiiegt að styðja höndum á glímu-
völl. Ekki er leyfilegt að falla ofan
á viðfangsmann sinn, þrýsta honum
niður með handafli eða hrekja hann
eftir glímuvellinum eftir að hann
hefur komist í handvörn. Níð er
óleyfilegt í glímu.“ Pétri tókst alltaf
að komast í nauðvörn, sem við köll-
um í dag handvörn. 0g Jón hélt
áfram að kasta sér ofan á Pétur
eftir að yfirdómari hafði fundið að
því við Jón. Síðan fékk Jón að vísu
gult spjald en það var fyrir að bola.
I glímulögum segir um varnir í 16.
gr. „Varnir eru til við hvetju glímu-
bragði. Felast þær einkum í því að
veijandi víkur sér úr því með mjúk-
um og snöggum hreyfingum, lyftir
fæti eða gefur mjúklega eftir, einnig
að stökkva upp úr eða yfír bragð.
Styðja má hendi og hné í glímuvöll
til þess að veijast byltu.“ Viðureign
Jóns og Péturs lauk síðan með jafn-
glími.
Ólafur Haukur segir að þegar 105
kg maður mætir 70 kg manni verði
viðureign í glímu ójöfn. Þetta er
ekki lögmál og raunar alls ekki rétt.
Það höfum við oft séð báðir á glímu-
velli. Arngeir Friðriksson, 78 kg,
lagði Orra Björnsson, 105 kg, tví-
vegis og einnig Jón Unndórsson.
Arngeir hefur lagt þyngri menn, þá
var þyngdarmunurinn yflr 40 kg.
Og ef ég man rétt var það Ólafur
Haukur sem sjálfur afsannaði þessa
kenningu rækilega 22. febrúar 1981
og margoft síðan. Þetta er einmitt
það skemmtilega við glímuna, að
þyngd og kraftar ein og sér nægja
ekki til sigurs. Glíman væri lítið
skemmtileg ef það nægði að þungur
maður tæki Iéttan upp, snerist með
hann í hringi og henti honum síðan
í gólfið af kröftum og hentist síðan
sjálfur ofan á hann á eftir. Það þarf
fleira til, öfugt við margar aðrar
Hjálmur Sigurðsson
lesnir um glímuíþróttina en Jón M.
ívarsson. Og fáir menn eyða meiri
tíma í að umgangast glímumenn og
hugsa um glímuíþróttina en hann.
Jón lærði fyrst að glíma í Haukadal
hjá Sigurði Greipssyni, síðan glímdi
hann lítið en tók til við að stunda
aðrar íþróttir í mörg ár og kom síð-
an aftur að glímu 36 ára gamall sem
keppandi í Skjaldarglímu Skarphéð-
ins árið 1985 og varð annar. Sigur-
vegari varð Kjartan Helgason, bóndi
í Haga, og í 7.-8. sæti varð annar
Ólafur Haukur Qlafsson
sendi Jóni M. ívarssyni,
formanni Glímusam-
bandsins, tóninn í Morg-
unblaðinu á fímmtudag.
Hjálmur Sigurðsson,
fyrrum glímukóngur, er
ósáttur við orð Ólafs og
viðhorf hans til glímu-
íþróttarinnar.
Kjartan, þá nýliði í glímu en áhuga-
samur, Lárusson á Laugarvatni.
Kjartan Helgason hafði í mörg ár
þar á undan haldið uppi merki glí-
munnar á Suðurlandi af þrautseigju
og nú fékk hann þessa tvo áhuga-
sömu menn í lið með sér og í samein-
ingu hafa þeir með góðri hjálp ann-
arra lyft glímunni á Suðurlandi til
vegs og virðingar.
Hvað sjálfan mig varðar get ég
upplýst Ólaf Hauk um það að ég fór
á mína fyrstu glímuæfingu hjá
Glímufélaginu Ármanni árið 1962
eða 1963 með föður mínum, Sigurði
Siguijónssyni, sem lærði að glíma
austur undir Eyjafjöllum. Hann æfði
síðan og keppti með KR eftir stríð
og fram yfir 1950. Á þessari æfingu
hjá Ármanni var ég svo heppinn að
sjá þá glíma Guðmund Frey Hall-
dórsson, Trausta Ólafsson og Lárus
Lárusson, bróður Ármanns J. Lárus-
sonar. Þessir menn glímdu allir af
mikilli list. Síðan þegar Kjartan
Bergmann Guðjónsson stofnaði
Ungmennafélagið Víkveija ásamt
öðrum góðum mönnum haustið 1964
var ég mættur þar á fyrstu æfingu
félagsins og er þar enn. Aðalþjálfari
félagsins á meðan ég æfði og keppti
í glímu af einhveijum metnaði
1964-1976 var alltaf Kjartan Berg-
mann. Hann hafði þann góða sið að
fá á æfingar ýmsa reynda menn til
að miðla til okkar og á meðal þeirra
voru þeir nafnarnir Þorsteinn Krist-
jánsson og Þorsteinn Einarsson.
Þessir þrír menn auk föður míns
kenndu mér það sem ég kann um
glímu. Og í mínum huga hafa þessir
menn allir djúpan og góðan skilning
á glímuíþróttinni. Eg reyndi að til-
einka mér skilning þeirra og er enn
að því og á ýmislegt ólært. Þessu
reyni ég sem þjálfari að miðla til
þeirra sem æfa glímu hjá Ung-
mennafélaginu Víkveija.
í Íslandsglímunni 1997 voru tveir
keppendur sem hafa æft nokkuð vel
í vetur hjá UMF Víkveija, Ingiberg-
ur Jón Sigurðsson og Pétur Eyþórs-
son. Fyrir mótið settu þeir sér hvor
sín markmið, annar fór til þess að
vinna sigur og vetja titil sinn en
hinn taldi sig eiga möguleika á að
ná þrem vinningum og sækja sér
reynslu til frekari afreka á glímuvell-
inum í framtíðinni. Báðir náðu þeir
sínum markmiðum. Pétur Eyþórsson
fékk að vísu ekki nema 2 vinninga
en reynslan sem hann náði sér í og
öll hans framganga var meira en
vinningsins virði sem vantaði. Báðir
eru þessi piltar synir glímumanna
sem settu svip á þau glímumót sem
þeir tóku þátt í með glæsilegri glím-
uiist og náðu með því glímulagi góð-
um árangri í íþrótt sinni. Feður þess-
ara pilta eru Sigurður Jónsson og
Eyþór Pétursson.
Á næstunni gefast okkur glímu-
mönnum þijú gullin tækifæri til að
sýna betri hliðamar á glímunni, 16.
maí í þættinum „Good morning Am-
erika", 31. maí á aðalfundi ISCA í
Borgarnesi og 2. júní á setningarhá-
tíð Smáþjóðaleikanna á Laugardals-
vellinum. Nú ættum við, þjálfaramir
tveir, að snúa bökum saman og sjá
til þess að þeir sem koma til með
að vera viðstaddir þessa atburði á
vettvangi eða í sjónvarpi fái að sjá
það besta sem glíman hefur upp á
að bjóða. Ég er í símaskránni og bíð
eftir að Ólafur Haukur hringi til mín.
Ólafur Haukur og ég getum átt
okkur fleiri_ sameiginleg markmið á
næstunni. Ég veit til þess að Ólafur
Haukur var skráður 1. varamaður í
sveit KR í Sveitaglímu íslands sem
fram fór í byijun apríl sl., en því
miður fyrir félag sitt komst hann
ekki með. Við í Víkveija höfðum hug
á því að senda sveit til keppni en
því miður tókst okkur það ekki vegna
fámennis. Við ættum báðir að stefna
að því að fara sem varamenn með
sveitum okkar norður í Þingeyjar-
sýslu í apríl á næsta ári og sækja
sveitaglímubikarinn í greipar Þin-
geyinga og koma með hann til
Reykjavíkur aftur.
Ólafur Haukur kvaðst í téðri grein
vera tilbúinn að taka gagnrýni. Ég
vona að hann telji mig hafa nógu
mikla þekkingu á glímuíþróttinni til
að hann geti tekið minni. Við Ólaf
Hauk vil ég segja þetta. Kjartan
Bergmann gaf út bók árið 1993. Á
baksíðu hennar stendur orðrétt: vGlí-
man á að vera jafnvægisíþrótt. I því
felst að glímumenn eiga að halda
jafnvægi þá glímubragði er lokið, en
falla ekki ofan á viðglímanda í lok
glímubragðs. Slíkt er kallað níð.
Öleyfilegt er að bolast í íslenskri
glímu. Glímustígandin spomar við
því að kyrrstaða myndist í glímunni.
Glíman eykur andlegt og líkamlegt
jafnvægi, sé hún rétt iðkuð og skil-
in.“ Svo mörg voru þau orð.
Ég vil því bæta við: Við verðum
að koma allri faglegri umræðu í
glímu á æðra stig með því að mæta
á dómara- og þjálfaranámskeið og
taka þar þátt í umræðunni. Við þurf-
um ekki að skilgreina glímuna og
eðli hennar upp á nýtt né breyta
henni. Ég held að það verði henni
ekkert til framdráttar. Við skulum
hefja glímuíþróttina til vegs á nýjan
leik með þvi að leggja áherslu hver
fyrir sig í sínum heimagarði á henn-
ar bestu hliðar. Forfeður okkar
stunduðu þessa íþrótt í aldir með
þeim skilningi að viðfangsmann sinn
ætti að leggja að velli með vel út-
færðum glímubrögðum, snerpu og
lipurð og halda sjálfur jafnvægi á
eftir. Fyrir þessu eigum við að bera
virðingu og flytja áfram til næstu
kynslóðar. Því hvað ungur nemur
gamall temur.
í dag, 3. maí, verður sýnt frá ís-
landsglímunni 1997 í RÚV. Þar get-
ur hver sem vill lagt sinn dóm á
frammistöðu einstakra manna og
metið heima i stofu það sem við
höfum verið að láta hafa eftir okkur
í fjölmiðliim og fáir hafa séð eigin
augum. Ég segi fyrir mig að ég er
afar stoltur af mínum mönnum. Þeir
gáfust ekki upp við mótlætið heldur
efldust og geta báðir verið ánægðir
með sinn hlut. Ég vona að Ólafur
Haukur sé líka ánægður með sína
lærisveina.
Höfundur crþjálfari hjá Víkverja.
IÞROTTIR
IÞROTTIR
URSLIT
Island-Þýskaland 20:23
íþróttahöllin í Torrejon de Ardoz, skammt
utan við Madrid, æfíngamót í handknatt-
leik, föstudaginn 2. maí 1997.
Gangur leiksins: 1:0, 2:1, 3:2, 5:5, 6:6,
6:8, 8:8, 9:10, 9:11, 10:12, 13:15, 16.16,
16:20, 17:21, 19:22, 19:23, 20:23.
Mörk íslands: Valdimar Grímsson 5/4,
Ólafur Stefánsson 4/2, Julian Robert Dur-
anona 3, Dagur Sigurðsson 3, Gústaf
Bjarnason 2, Patrekur Jóhannesson 1, Kon-
ráð Olavson 1, Geir Sveinsson 1. Aðrir sem
voru á leikskýrslu: Róbert Sighvatsson,
Bjarki Sigurðsson, Júlíus Jónasson og Jason
Ólafsson sem var sá eini þeirra sem kom
ekki inná í leiknum.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 4
(þar af 2 til mótheija). Bergsveinn Berg-
sveinsson 7 (þar af tvö til mótheija).
Utan vallar: 6 mín.
Mörk Þýskalnds: Daniel Stephan 8/1,
Mark Dragunski 3, Nils Lehmann 3, Sven
Lakenmacher 2, Holger Löhr 2, Hennig
Wiechers 1, Florian Kehrmann 1, Dieter
Springel 1, Wolfgang Schwencke 1, Stefan
Krebiedke 1.
Varin skot: Jan Holpert 13/2 (þar af 4 til
mótheija).
Utan vallar: 4 minútur.
Dómarar: Gallego Santos og Lamas Perez
frá Spáni. Voru ágætir.
Áhorfendur: Um 800.
Spánn - Hv-Rússl. 30:20
Gangur leiksins: 1:0,4:3,10:4,14:8,15:9,
18:11,23:13, 25:15, 28:19 30:20.
Mörk Spánveija: Urdangarin 5, Masip
5/2, Dujshebaev 4, Guijosa 3/2, Olalla 3,
Femandez 2, Locano 2, Gonzalez 2, Ortega
2, Urdiales 1, Perez 1.
Valin skot: Barrufet 14/2, Fort 4.
Utanvallar: 2 mínútur.
Mörk Hvít-Rússa: Jakimovitch 8/3, Ovs-
atscev 4, Nekhattcik 3, Klimoviets 2, Kosti-
ovtshcik 2, Orlov 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Vincente Dreto og Jose Hueljin
frá Spáni. Dæmdu vel.
Áhorfendur: 4.500.
Knattspyrna
Deildabikar karla
Valur-ÍA........................4:0
Amar Hrafn Jóhannsson 4.
UMFG-KR.........................1:0
Kicic.
Breiðabiik - Fram...............3:2
Sljarnan - Leiftur..............0:2
EM 16 ára og yngri
Tyrkland - ísland...............4:0
■ íslenska hefur lokið keppni.
Vináttulandsleikur
Brasilía - Mexíkó...............4:0
Leonardo (5.), Romario (12., vítasp., 17.,
75.). 51.500.
Þýskaiand
Hansa Rostock - Bochum..........0:0
20.700.
Diisseldorf - Bielefeld.........1:2
Dobrowolski (40.) - Reina (70.), Kuntz (78.).
Körfuknattleikur
Úrslitakeppni NBA
Leikið aðfaranótt fimmtudags:
Austurdeild:
Washington - Chicago ■ Chicago vann einvígið 3:0. Vesturdeild: 95:96
Portland - LA lakers 98:90
■ LA Lakers hefur forystu í einvíginu, 2:1. Leikið aðfaranótt föstudags: Austurdeild:
Orlando - Miami 99:91
■ Staðan í einvíginu er jöfn, 2: Vesturdeild: 2.
Phoenix - Seattle 115:122
l Eftir framlengingu.
I Staðan ! einvíginu er jöfn, 2:2.
UM HELGINA
Knattspyrna
Deildabikar kvenna
Laugardagur:
Sandgerði: Reynir- ÍA...............14
Sunnudagur:
Ásvellir: Breiðablik-Valur..........13
Ásvellir: KR - Stjarnan.............15
Deildabikar karla:
Mánudagur:
Akranes: ÍA-FH......................19
Gervigras L.dal: Fram - Fylkir......19
KR-völlur: KR - Skallagrímur........19
Helgafellsvöllur: Leiftur - ÍBV.....19
Suðurnesjamótið:
Sunnudagur:
Garður: Víðir - Reynir..............14
Njarðvík: UMFN - GG.................14
Golf
LEK-mót
Verður haldið á morgun á Húsatóftavelli
við Grindavík. Keppt verður ! flokkum 50
til 54 ára og 55 ára og eldri. Einnig verður
keppt í kvennaflokki, 50 áraog eldri.
Fossavatnsgangan
Fer fram í dag og hefst klukkan 14 við
Vatnahnjúk.
Kraftlyftingar
íslandsmótið
Mótið fer fram í KA-heimilinu á Akureyri
í dag. Til leiks eru skráðir 24 kraftlyftinga-
menn og keppa þeir í 8 þyngdarflokkum.
Mótið hefst kl. 13.00 á laugardag og því
lýkur um kl. 18.00. Mótið verður opnað
með tvísöng þeirra Óskars Péturssonar og
Amars Viðars Birgissonar og skátar sjá
um fánahyllingu. Aðgangseyrir er kr. 250
en frítt er fyrir 12 ára og yngri.
HANDKNATTLEIKUR
íslendingar langt
frá sínu besta
Andleysi og þreyta varð þeim að falli gegn Þjóðverjum
ÍSLENDINGAR náðu sér ekki á strik í fyrsta leik sfnum í fjögurra
þjóða handknattleiksmótinu í Madrid á Spáni ígær. Þeir mættu
Þjóðverjum og máttu sætta sig við þriggja marka tap, 20:23.
Leikurinn var slakur og fslenska liðið lék langt frá sínu besta.
„Fali er fararheill," sagði Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska liðsins
eftir leikinn. Vonandi að hann hafi rétt fyrir sér, en mikið má
leikur liðsins skána ef ekki á illa aðfara á HM f Japan sem hefst
eftir aðeins hálfan mánuð. Ef liðið leikur eins og það gerði í gær
á það ekkert erindi til Japans.
Morgunblaðið/Golli
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfarl, hefur um margt að hugsa eftir slakan leik íslenska landsllðsins
í gærkvöldi gegn Þjóðverjum. Liðlð leikur í dag gegn Spánverjum og á morgun gegn Hvít-Rússum. Þetta
eru síðustu landslelkir Islands fyrlr heimsmelstarakeppnlna sem hefst í Japan 17. þessa mánaðar.
Islenska liðið virkaði þungt og
leikmenn þess voru ekki að
berjast eins og þeir geta gert og
hafa oft sýnt. Fyrir leikinn kvört-
uðu leikmenn um
ferðaþreytu eftir 16
tíma ferðalag til
Spánar á fimmtu-
dag. Það var því
ekki von á góðu þegar liðið mætti
í hina glæsilegu 8000 manna
fþróttahöll í Torrejon de Ardoz.
Islensku strákarnir byijuðu reynd-
ar ágætlega og höfðu frumkvæði
framanaf eða þar til staðan var
3:2. Eftir það tóku Þjóðverjar við
Valur B.
Jónatansson
skrifar frá
Madrid
Tilvonandi
tengdasonur
Jóhanns Karls
konungs
IGNACIO Urdangarin, örvhenta skyttan
í liði Spánvetja, ætlar að bera upp bón-
orð sitt við Kristínu Spánarprinsessu í
beinni útsendingu í spænska sjónvarpinu
í dag. Þau hittust á Ólympíuleikunum í
Atlanta, sl. sumar og hafa verið í ástar-
sambandi síðan. Reiknað er með að brúð-
kaup þeirra verði á haustdögum. Vegna
þessa leikur Urdangarin ekki á móti Is-
lendingum í dag. Hann lék hinsvegar á
móti Hvít-Rússum í gær og átti góðan
leik. Hann leikur lokaleik keppninnar á
móti Þjóðveijum og þá er jafnvel reiknað
með að hans heittelskaða mæti til að
horfa á.
Brúðguminn tilvonandi hefur ekki
fengið mikinn frið fyrir spænskum frétta-
mönnum síðustu daga. Hann býr á sama
hóteli og íslenska liðið í Madrid og þar
hefur verið mikill erill. Tugir ljósmyndara
hafa setið fyrir honum.
Ekkert sem hægt
er að gleðjast yfir
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálf-
ari, var ekki ánægður með frammi-
stöðu íslenska liðsins í fyrsta leikn-
um á Spánarmótinu gegn Þjóðveij-
um í gær. „Þetta var ekki góður
leikur af okkar hálfu. Strákarnir eru
rosalega þungir núna og kannski
ekki í besta standi til að spila því
mikið álag hefur verið á þeim að
undanförnu. Samt sem áður fannst
mér að þeir hefðu átt að geta bet-
ur. Við vorum að gera allt of mikil
klaufamistök, sérstaklega í sókn-
inni. Við höfum ekki æft varnarleik-
inn mikið á æfingum undanfarið og
því var samstaðan í vörninni ekki
til staðar. Ég „hrærði" mikið í Iið-
inu, skipti ört inná og notaði alla
leikmennina sem voru á skýrslunni
nema Jason. Hann ætla ég að nota
á móti Spánveijum," sagði Þorbjörn.
Formula 1 byrjar
á RÚV eftir viku
Á LAUGARDAG eftir viku byrjar RÚV
að sýna beint frá keppni í Formula 1
kappakstri, en þá verður keppt I Monte
Carlo kappakstrinum. Verður þetta í
fyrsta skipti sem íslensk sjónvarpsstöð
sýnir beint frá keppninni en RÚV hef-
ur nú tryggt sér sýningarrétt á henni.
Fyrirhugað er að sýna á laugardögum
frá forkeppni sem ákveður röðina fyrir
lokakeppnina á sunnudeginum. RÚV
ein 203 sjónvarpsstöðva í heiminum
sem sýnir frá Formula 1.
Sýnt verður beint frá þeim 13 móturo
sem eftir eru á þessu keppnistímabili
en alls eru þau 17, fjórum mótum er
lokið. Að þessu loknu verður sjónvarp-
að frá mótunum með viku til þriggja
vikna millibili fram í október er keppn-
istímbilinu lýkur.
í fréttatilkynningu frá RÚV segir
m.a.: „Samkvæmt tölum frá rétthafa
sjónvarpssendinga erlendis er kapp-
akstur vinsælasta sjónvarpssportið í
heiminum þar sem samtals fylgdust
rúmlega fjörutíu milljarðar manna með
keppninni á síðasta ári. Formula 1 er
því vinsælli en knattspyrna og Ólymp-
íuleikar." Vegna þessara útsendinga
hefur RÚV fengið þijú fyrirtæki tii liðs
við sig og gert við þau stærsta kostun-
arsamnings sem RUV hefur gert í sögu
sinni. Þau fyrirtæki sem um er að
ræða eru Skeljungur, Hekla og Brim-
borg.
Þjálfarinn sagði jafnframt: „Það
er ekkert sem hægt er að gleðjast
yfir í þessum leik. Við vorum einfald-
lega að spila illa. Þetta var frekar
leiðinlegur handbolti sem liðin
sýndu. Við vorum að bíða of mikið
eftir boltanum án þess að hreyfa
okkur. Ég veit að strákarnir voru
þreyttir eftir ferðalagið og erfiðar
æfingar að undanförnu. Ég finn það
líka á sjálfum mér að ég er hálf
slæptur eftir ferðalagið. Við lærum
vonandi af þessu og nú geri ég mér
frekari grein fyrir hvaða þætti þarf
að vinna betur með á síðustu æfing-
unum fyrir HM. Það verður varnar-
leikur og aftur varnarleikur. Ég hef
í sjálfu sér ekki áhyggjur af sókn-
inni því þar getum við betur, en það
er alvarlegra ef við getum ekki var-
ist betur. Vörnin var ömurleg, það
er eitt orð yfir það. Þjóðveijar voru
ekki að spila vel og þess vegna eru
þessi úrslit enn daprari fyrir okkur.“
Um leikinn í dag á móti Spánveij-
um sagði Þorbjörn: „Ég lofa engu
en auðvitað stefnum við að því að
bæta okkur og skipuleggja leik okk-
ar betur. Spánveijar eru með rosa-
lega sterkt lið og margir hafa spáð
þeim heimsmeistaratitlinum og ég
held að það sé vel raunhæft. Þeir
voru með allt með sér á móti Hvít-
Rússum og tengdason konungsins í
Iiðinu og fengu enn meiri stuðning
út á það,“ sagði Þorbjörn.
Hef ekki skýringu
„Þetta var svakalega lélegt hjá
okkur. Við erum auðvitað þreyttir
en ég trúi ekki að við séum svona
lélegir,“ sagði Patrekur Jóhannes-
son. „Það var eitthvert andleysi yfir
þessu, ekki ósvipað og þegar við
lékum á móti þeim í Þýskalandi [fyrr
5 vetur], sama slenið yfir mann-
skapnum. Við þurfum að fara að
taka okkur saman í andlitinu því nú
er skammt fram að HM og ef við
leikum ekki betur en í þessum leik
höfum ekkert að gera til Japans.
Við vorum ekki einu sinni að beij-
ast. Ég vona að þetta sé þreyta og
við eigum eftir að springa út.“
Fall er fararheill
„Eigum við ekki að segja að fall
sé fararheill," sagði Geir Sveinsson
fyrirliði íslenska liðsins. „Ég veit
ekki hveiju er um að kenna. Kannski
þreytu og andleysi og því að menn
séu ekki nægilega hungraðir í sigur.
Það var engin stemning í hópnum
og eins og við værum á æfíngu en
ekki í keppni. Þrátt fyrir að leika
illa og vera búnir að jafna 16:16
virtist það ekki einu sinni geta kveikt
í leikmönnum. Við verðum að gera
betur. Aðalatriðið er að þegar við
förum heim getum við séð þróun í
leik okkar í rétta átt. Það skiptir
kannski ekki máli að tapa ef við
getum lært af því. Við getum ekki
leyft okkur að mæta í svona leiki
með hálfum huga. Við verðum að
hafa metnað til að gera okkar besta
því við erum að spila fyrir ísland.
Það er skammur tími tií stefnu og
hér erum við að mæta liðum sem
eru í svipuðum styrkleika og við
komum til með að mæta í Japan.
Það er því eins gott að leggja sig
frarn," sagði Geir.
Ánægður
Heiner Brand þjálfari Þjóðveija
sagði að leikurinn hefði ekki verið
mikið augnayndi en var samt
ánægður með sigurinn. „Ég er ekki
með mitt besta lið og því voru vænt-
ingarnar ekki miklar í þessu móti.
Margir af lykilmönnum liðsins eru
lítilsháttar meiddir og ég ákvað að
gefa þeim, frí. Ég er með unga leik-
menn sem ég er að skoða fyrir fram-
tíðina. Það var margt jákvætt í leik
okkar en annað sem mátti betur
fara. Ég er auðvitað ánægður með
sigurinn. íslenska liðið lék ekki vel
og ég veit að það á eftir að bæta
leik sinn áður en það fer til Jap-
ans,“ sagði Brand.
forystunni og íslendingar náðu
aldrei að komast yfir í leiknum
eftir það, en jöfnuðu nokkrum sinn-
um. Þjóðvetjar voru ekki að leika
vel, gerðu mörg mistök, en þau
voru þó heldur fleiri hjá íslendingu-
numn.
Dagur Sigurðsson stjórnaði
sóknarleik liðsins og opnaði leikinn
með því að skora fyrsta markið.
íslenska liðið var með í leiknum
fram að hálfleik og munurinn yfir-
leitt ekki nema eitt til tvö mörk.
Staðan í hálfleik var 10:9 fyrir
Þjóðveija, en rétt áður en fiautað
var til hálfleiks, komst Bjarki inn
úr horninu en Holpert í marki Þjóð-
veija varði.
I síðari hálfleik var jafnræði með
liðunum framanaf og þegar sjö
mín. voru liðnar jafnaði Valdimar
úr vítakasti 15:15. Aftur var jafnt
16:16 eftir að Patrekur hafði gert
eina mark sitt í leiknum. Þegar
hér var komið sögu, tók Þorbjörn
þjálfari Dag út af og því mátti ís-
lenska liðið ekki við vegna þess
að hann var sá sem tók af skarið
í sókninni. Þjóðveijar voru fljótir
að færa sér þetta í nyt og gerðu
næstu 4 mörk, staðan þá 20:16
og tíu mínútur eftir. Þeir höfðu
sigurinn í hendi sér eftir það og
uppskáru öruggan sigur 23:20.
Það má vel vera að ferðaþreyta
hafi setið í íslendingum en það er
engin afsökun fyrir því að leika
svona illa. Algjört andleysi var í
hópnum en engin barátta. Sóknar-
leikurinn afar ósamstilltur og lítið
um leikkerfi. í vörninni tóku menn
ekki á og var refsað grimmilega
fyrir enda markvarslan í lágmarki.
Guðmundur stóð í markinu í
fyrri hálfleik og varði aðeins 4
skot. Bergsveinn gerði aðeins betur
i síðari hálfleik og varði 7. Lélega
markvörslu má að miklu leyti
skrifa á slaka vörn. Dagur var sá
eini sem var skapandi í sókninni
og átti margar góðar línusending-
ar. Geir var nokkuð duglegur á
línunni og fiskaði meðal annars 4
vítaköst, en hann hefur hins vegar
oft gert betur í vörninni. Konráð
og Valdimar byijuðu í hornunum
og átti Konráð þokkalega spretti
en Valdimar virðist ekki vera búinn
að ná sér fullkomlega af meiðslun-
um. Bjarki, sem í vikunni var kos-
inn besti leikmaður íslandsmóts-
ins, tók stöðu Valdimars undir lok
fyrri hálfleiks en fann sig alls ekki
og komst ekki á blað. Ólafur Stef-
ánsson var ekki líkur sjálfum sér,
og Duranona náði aldrei að lyfta
sér almennilega í skotstöðu. Gústaf
kom inná í síðari hálfleik og gerði
ágæta hluti þann stutta tíma sem
hann var með. Júlíus lék aðeins í
vörninni og var engu skárri en
félagar hans.
Þjóðveijar voru ekki með sitt
sterkasta lið og því var það enn
gremjulegra fyrir íslenska liðið að
tapa. Daniel Stephan, hinn ungi
og efnilegi leikmaður liðsins, var
allt í öllu hjá Þjóðveijum og svo
vörðu markverðir liðsins mun betur
en þeir íslensku. Það er ljóst að
betur má ef duga skal hjá íslend-
ingum á móti Spánveijum í dag.
Spánveijar
voru frábærir
Spánveijar sýndu allar sínar
bestu hliðar er þeir mættu
Hvít-Rússum á Spánarmótinu í gær
og unnu 30:20. Varnarleikur Spán-
veija var gríðarlega sterkur og kom-
ust þeir hvað eftir annað inn í send-
ingar Hvít-Rússa og gerðu fjölmörg
mörk eftir vel útfærð hraðaupp-
hlaup. Staðan í hálfleik var 15:9.
Yfírburðir Spánveija voru á öll-
um sviðum handboltans, jafnt í vörn
sem sókn. Talant Dujshebaev
stjórnaði sóknarleik liðsins og mér
er til efs að nokkur annar skili því
hlutverki betur í heiminum en hann.
Hann átti hveija snilldarsendinguna
á fætur annarri á samheija sína,
auk þess sem hann gerði 4 glæsileg
mörk. Eftir að Spánveijar náðu 10
marka forskoti, 23:13, er sjö mínút-
ur voru liðnar af síðari hálfleik fór
byrjunarliðið af leikvelli. Það kom
ekki að sök því ungu leikmennirnir
héldu fengnum hlut. í liðinu er val-
inn maður í hveiju rúmi og verður
það að teljast til alls líklegt á HM
í Japan. Spánveijar náðu bronsverð-
launum í Átlanta en ætla sér greini-
lega dýrari málm í Japan. Gamli
maðurinn Mikahel Jakimotitch var
yfirburðamaður í liði Hvít-Rússa í
sókninni, en varnarleikur er ekki
hans sterkasta hlið. Hann og félag-
ar hans áttu aldrei möguleika í
þessum leik og máttu þakka fyrir
að sleppa með 10 marka tap. Hvít-
Rússar leika við Þjóðveija í dag og
íslendingar við Spánveija.
Eyjólfur til
Remus?
EYJÓLFUR Bragason hand-
knattleiksþjálfari hefur feng-
ið boð um að þjálfa austur-
riska félagið HSG Remus á
næstu leiktíð. Það er á rneðal
þeirra sterkustu þar í landi
og er m.a. að leika um þessar
mundir í úrslitum um meist-
aratign og leikur til úrslita í
bikarkeppninni 19. maí. Hafa
forráðamenn félagsins óskað
eftir því við Eyjólf að hann
komi út áður en úrslitaleikur-
inn fer fram og ræði við þá
um starfið og sjái liðið leika
til úrslita.