Morgunblaðið - 18.05.1997, Side 5

Morgunblaðið - 18.05.1997, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 E í Bakki hf. rekur rækjuverksmiðjur í Bolungarvík og Hnífsdal, fisk- vinnslu í Bolungarvík og gerir út tvo togara. Hjá Bakka starfa um 300 starfsmenn og veltir fyrirtækið yfir 2. milljörðum króna á ársgrundvelli. í Bolungarvík er blómlegt mannlíf og góð verslun og þjónusta. har er sundlaug, íþróttahús, knattspyrnuvöllur, skíðalyfta, heilsu- gæslustöð, leikskóli og góður einsetinn grunnskóli. ► Viðskiptafræðingur - fjárhagssvið Leitum að viðskiptafræðingi af fjármála- eða endurskoðunarsviði í þetta mikilvæga starf. Helstu ábyrgðarsvið eru: Eftirlit og ábyrgð á bókhaldi. Gerð viku-, mánaðar-, og ársuppgjöra. Samræming og gerð rekstraráætlana. ►- Gerð fjárfestinga- og kostnaðaráætlana. Við leitum að kraftmiklum og jákvæðum starfsmanni, með góða tölvukunnáttu. Samskipta- og skipulagshæfi- leiki, þjónustulund og löngun til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni eru nauðsynlegir eiginleikar fyrir þetta starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í sumar, en beðið verður eftir réttum manni. Nánari upplýsingar veilir Benjamín Axel Árnason ráðningastjóri Ábendis. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Vinsamlegast sækið um á eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar sem fyrst, en í síðasta lagi fyrir hádegi 30. maí 1997 Á 3 <S I^J >T VERKEFNASTJÖRI Stálsmiðjan hf. óskar eftir að ráða verkefnastjóra í tæknideild. Starfíð • Verkefnastjórnun i skipasmiðum og landverkefnum við stálsmfðar og vélaviðgerðir. • Tilboðsgerð undirbúningur verklegra framkvæmda o.fl. Hæfniskröfur • Tækni- eða verkfræðimenntun á sviði skipa eða véla. • Reynsla af sambærilegum verkefnum. • Sjálfstæði og frumkvæði [ starfi. • Samskiptahæfileikar og metnaður til að beita vönduðum vinnubrögðum. Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 I slma 533 1800. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs fyrir 26. ma( n.k. merktar: “ Verkefnastjóri - Stálsmiðjan” RÁÐGARÐURhf S3QÓBMJNAROGREKSIRARRAEXj|ÖF FurugarBIB 1QB RiykUvlk SlmlBS31800 Faxt 833 1808 Nitfmgi rBmldlunOtraknat.lt HalmaalOai hHpi//wwrw.traknat.la/radBardur Ráðgarður hf. er framsækið og leiðandifyrirtæki sem hefyr kynnt nýjungar í stjómun og þróað aðferðir sem henta vel íslensku viðskiptaumhverfi. Ráðgarður hf. hefur m.a. haslað sér völl á sviði gæðastjómunar, stefnumótunar, þjónusturáðgjafar og starfsmannamála. Ráðgjafar Ráðgarðs hf. búa yfir víðtækri reynslu og hafa unnið meðfyrirtækjum úr öllum greinum atvinnulífsins. MARKAÐSRÁDGJAFI HJÁ RÁÐGARÐI Starfið (boði er spennandi og krefjandi starf er snýr að markaðsmálum en umsvif fyrirtækisins á þvl sviði hefur vaxið ört á síðustu ámrn. Starfsmann vantar til að sinna markaðstengdri ráðgjöf s.s. við markaðsrannsóknirog áætlanagerð. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun í markaðsftæðum eða viðskiptum. • Frumkvæði og leiðbeinandahæfileikar. • Samskiptahæfileikar og metnaður til að beita vönduðum vinnubrögðum. • Góð tungumála- og tölvukunnátta. í boði er faglega kreflandi starf á góðum vinnustað, þar sem fhimkvæði og sjáHstæði fá að njóta sín. Faríð verður með umsóknir og fyrirspumir sem trúnaðarmál Nánari upplýsingar veita Jón Birgir Guðmundsson og Auður Bjarnadóttir hjá Ráðgarði isíma 533 1800. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs fyrir 31. maí n.k. merktar: “Markaðsráðgjafi” RÁÐGARÐURhf sijörnunarogrbksirarrAðg^ FumgerílB 10« Reykjitik Siml 833 1100 Paxt 033 1808 Nitfingt rgmldlunOtreknet.l* HtlmiBl&ai http://www.tr«t;n«t.la/radBardur Grunnskólinn Hólmavík Kennara vantartil bekkjarkennslu og kennslu sérgreina eldra deilda. Einnig vantartilfinnanlega íþróttakennara til starfa (80% starf) en auk íþróttakennslu fyrir grunnskólann mun viðkomandi íþróttakennara bjóðast þjálfun fyrir Geislann, íþróttafélagið á staðnum og HSS, Héraðssamband Stranda- manna. Tekjumöguleikar íþróttakennara eru góðir því aukfyrrnefndra starfa er möguleiki á sjálfstæðri starfsemi við þjálfun o.fl. Einnig vantartvo stuðningsfulltrúa (2x50% störf) og starfsmann til heimavistargæslu (100% starf). Hugsanlegt er að starfsmaður heimavistar geti kennt við grunnskólann í skertu starfshlutfalli. . Hólmavík er stærsti þéttbýlisstaður í Strandasýslu og stendur við Steingrímsfjörð u.þ.b. 320 km frá Reykjavík. í Hólmavíkurhreppi búa um 500 manns, flestir á Hólmavík en þar er öll almenn þjónusta, s.s. leikskóli, heilsugæslustöð o.m.fl. Samgöngur við höfuðborgar- svæðið eru yfirleitt greiðar en við venjulegar aðstæður tekur um 4 klst. að ferðast milli Hólmavíkur og Reykjavíkur. I grunnskólanum, sem er einsetinn heildstæður skóli með 1. —10. bekk, verða um 100 nemendur næsta skólaár í 9 bekkjardeildum. Að jafnaði eru því um 10 nemendur i bekk. Nýr íþróttasalur var tekinn í notkun fyrir fáum árum sem gjörbreytti allri íþróttaaðstöðu á stað- num. Hólmavíkurhreppur greiðir flutningskostnað kennara og greiðir uppbót á föst laun. Næsta skólaár mun starfsfólk grunnskólans taka þátt í verkefninu MASK, mat á skólastarfi, en skólinn hefur hlotið til þess styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla. Við hvetjum duglega og metnaðarfulla kennara til að athuga þann kost að koma til Hólmavíkur, í fámenna skóla i þægilegu samfélagi við góðar aðstæður. Hólmvík- ingar munu án efa taka vel á móti nýjum kennurum. Hafið samband við okkur og fáið frekari upplýsingar um hugsanlega kennslu, staðinn o.fl. Frekari upplýsingar gefa: Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri, og Victor Örn Victorsson, aðstoðarskólastjóri, í símum 451 3129 og 451 3430. Framlengdur umsóknarfrestur er til 30. maí nk. Tónlistarkennarar Leikskólakennarar Grunnskólakennarar Lausar stöður á Akranesi Leikskólarnir á Akranesi Leikskólakennara vantartil starfa við leikskól- ana á Akranesi. Upplýsingar veitir leikskólafulltrúi í síma 431 1211. Tónlistarskólinn á Akranesi Við skólann eru lausar stöður málm- og tré- blásturskennara (2 stöður) sem einnig vinna með lúðrasveitinni. Einnig vantartónfræði- og söngkennara til starfa næsta skólaár. Upplýsingar veitir Lárus Sighvatsson, skóla- stjóri, í síma 431 2109. Brekkubæjarskóli Tónmenntakennara vantartil starfa (1/1 stöðu- gildi). Einnig vantar grunnskólakennara til almennra kennslustarfa. Upplýsingarveita Ingi Steinar Gunnlaugsson, skólastjóri, og Ingvar Ingvarsson, aðstoðar- skólastjóri, í síma 431 1938. Ráðið verður í stöður við tónlistar- og grunn- skóla frá 1. ágúst. í leikskólakennarastöður verður ráðið frá 1. september. Umsóknarfrestur er til 27. maí 1997. Skólafulltrúi Akraness Á Akranesi búa rúmlega 5.000 manns. Á vegum bæjarins eru reknir 4 leikskólar, tveir grunnskólar með 1,—10. bekk, tónlistarskóli með um 300 nemendum. Á Akranesi er einnig Fjölbrautaskóli Vesturlands sem er vel búinn framhaldsskóli með fjölbreyttu námsframboði. Einnig státum við af fjölgreinasjúkrahúsi og öflugri heilsugæslu. Akranes er líflegur íþróttabær með tveimur íþróttahúsum, sundlaug- um, golfvelli (12 holur) auk ótal sparkvalla. Á Akranesi er öflugttónlist- arfélag, leikfélag, kórar og fjöldi annarra félaga og félagasamtaka. Bjartsýni ríkir um framtið bæjarins, mörg ný atvinnutækifæri eru í augsýn og áætlað er að Hvalfjarðargöngin verði tekin í notkun í lok árs 1998. BERGDAL EHF. HEILDVERSLUN Bergdal ehf. flytur inn og dreifir þekktum merkjavömm í matvöm til verslana og stómotenda. SÖLUMAÐUR MAnuu Bergdal ehf. óskar eft'r að ráða sölumann sem fýrst Starfssviö Sala og kynning á vörnrn fýrirtækisins, til verslana, ve'itingahúsa og stofnana á Reykjavfkursvæðinu ásamt ákveðnum utanbæjarsvæðum. Hæfniskröfur • Reynsla úr svipuðu starfi eða úr verslun er kostur en ekki skilyrði. • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. • Snyrtimennska og metnaður til að veita fýrsta flokks þjónustu. Reyklaus vinnustaður. Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið með sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir hjá Ráðgarði hf. frá kl. 9 -12. í síma 533 1800. Ath. upplýsingar um starfið eru eingöngu veittar hjá Ráðgarði. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs fyrir 26. maf n.k. merktar: ”Sölumaður” RÁÐGARÐURhf SIlCSRNUNAROGREKSIRARRÁEXJfCf Furugsril B 108 Rsyklavlk Slml 533 1800 F«i 833 1808 Nvtfangi rgmldlunQtrnknnt.il HnlmnnlSm Mtpa//vvww.trnknnt.ln/rnilsnrdur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.