Morgunblaðið - 18.05.1997, Blaðsíða 18
18 E SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Þýska sendiráðið
óskar eftir að taka á leigu einbýlishús eða rað-
hús á einni hæð í 2-3 ár.
Upplýsingar í síma 551 9535/36 á skrifstofu-
tíma.
Hafnarfjörður
Góð hæð, raðhús eða einbýli óskasttil leigu
sem fyrst miðsvæðis í Hafnarfirði.
Vinsamlegast hringið í síma 565 4210 og fáið
nánari upplýsingar.
Til leigu
Reglusamt par óskar eftir íbúð, sérhæð eða
húsi, 3-4 herbergi ca 90-150 fm á svæði 101 —
* 108 Reykjavík.
Tilboð berist afgreiðslu Mbl. merkt: „L - 955".
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Fundarboð
Aðalfundur S.Í.B.S. deildarinnar á Vífilsstöðum
verður haldinn miðvikudaginn 21. maí 1997
kl. 20.30.
Fundarstaður: Thorarensen lyf hf.,
Vatnagörðum 18, Reykjavík.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fyrirlestur: Nefið og kæfisvefn.
Sigurður Júlússon dr.med. Sérgrein: Háls-,
nef- og eyrnalækningar.
Önnur mál.
Fundarstjóri: Sigurður Guðmundsson.
Kaffiveitingar kr. 500 á mann.
Fjölmennum og tökum með okkur gesti.
Aðalfundur
Dómkirkjusafnaðarins
verður haldinn í safnaðarheimilinu Lækjargötu
14a, þriðjudaginn 27. maí kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg störf aðalfundar.
2. Önnur mál.
Sóknarnefndin.
Vínlandsferð
Landnámu
kynnt í
Norræna Húsinu
þriðjudagskvöld 20. maí kl. 20.30
Quebéc borg
„Hér er eini stadurinn við Lárensflóa þar
sem enn er hægt að finna öll þau gæði Vín-
lands sem sagt er frá í Vínlandssögum eða
fundist hafa leifar af í búðum þeirra á Ný-
fundnalandi. Líkur benda til að hér hafi
verið Vínland Leifs hepppna."
Páll Bergþórsson.
Einstakttækifæri til að upplifa Vínland Leifs
heppna og söguslóðir Vínlandssagna í fylgd
Páls Bergþórssonar, veðurfræðings, sem er
sérfróður um efnið.
14. ágústtil 1. september.
• Nýja Skotland (Nova Scotia) — Nýja
Brunnswick — Nýfundnaland —
Lárensdaiur — Quebéc og Montreal.
• Gist í 17. aldar köstulum og sveitasetr-
um í fögru umhverfi.
• Innsýn í heillandi listaheim Québec
borgar gist í Chateau Frontenac kastal-
anum.
• Meðalhiti í ágúst í Kanada er 25 °C og
í ferðinni gefast næg tækifæri til úti-
vistar.
Allar nánari upplýsingar verða veittar á
ferðakynningunni eða á skrifstofunni.
Grænlandsfarar Landnámu 5. júlí
athugið!
Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, verður
til viðtals á skrifstofu Landnámu, Vesturgötu
5, næstkomandi fimmtudag 22. maí milli kl.
15.30 og 18.00. 7 sæti enn laus í ferðina.
Ítalía — milli fjalls og fjöru
Einstökferð fyrir listhneigt útivistarfólk 13.
júní. Ferðasttil Dólómítafjalla, Lago d'lseo og
gengið milli fiskimannaþorpa við ströndina
í Cinque Terre. Aðeins lítill hópur.
Vesturgata 5, sími 511 3050.
LANDNÁMA
HÚSNÆÐI í BOÐI
Hús verslunarinnar
— til leigu
Mjög gott húsnæði á 11. hæð til leigu. Hentar
vel fyrir skrifstofur og þjónustu. Frábært út-
sýni. Einnig húsnæði á 1. hæð með sérinn-
gangi og innangengt í banka og aðra þjónustu
í Húsi verslunarinnar.
Næg bílastæði. Laust fljótlega.
Nánari upplýsingargefurskrifstofa Húss versl-
unarinnar í símum 581 4120 og 897 1943.
Einbýlishús til sölu
í Varmahlíð, Skagafirði
Undirrituðum lögmanni hefur verið falið að
annast sölu á fasteigninni Birkimel 5,
Varmahlíð, sem er 158 fm steypt einbýlishús
fráárinu 1981, ásamt bílskúrsem er 50 fm. Um
er að ræða góða eign og henni fylgir stór og
skemmtileg lóð. Allar nánari upplýsingarfást
hjá undirrituðum á Húnabraut 19, Blönduósi,
eða í síma 452 4030.
Stefán Ólafsson hdl.
Til leigu
Til leigu er lítil, ný standsett kjallaraíbúð á Mel-
unum. ískápurfylgir. Falleg gluggatjöld.
Er laus.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „íbúð - 956".
Til sölu
94 fm kaupleiguíbúð með garði á góðum stað
í Uppsölum, Svíþjóð.
Tilvalin fyrir fólk í framhaldsnámi.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur
í síma 565 0858 eftir kl. 20.00
FRU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
MARGT er gert til að Iaða laxinn í ána.
Lax varinn fyrir vargi og
veiðimönnum
Leigutakar og landeigendur
grípa til ýmissa ráða til að greiða
leið laxins í árnar. Ásgeir Heið-
ar, fulltrúi leigutaka Laxár í
Kjós, hefur til að mynda ákveðið
að verja laxinn veiðimönnum er
hann rennir sér upp í ána.
„Ég ætla að banna veiði í
Hökklunum. Ég þykist vita að
sú ákvörðun verði ekki vinsæl
hjá öllum, mörgum þykir gaman
að veiða þar og það er viss kúnst.
En þessir veiðistaðir eru við sjáv-
armál og þar hefur verið mikið
veitt síðustu sumur. Það er að
mínu viti mikilvægara að fá lax-
inn upp í ána og veiða hann
þar,“ sagði Ásgeir.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
og landeigendur við Hítará hafa
átt við annars konar vandamál
að glíma. Selir sitja fyrir laxinum
í ósnum og svo rammt hefur
kveðið að sókn Kobba, að hann
hefur elt laxinn alveg upp að
Brúarfossi.
Enn er í fersku minni er veiði-
menn sem hugðust opna ána
20.júní í fyrra horfðust í augu
við sel á Breiðunni fram undan
veiðihúsinu. Selurinn komst
undan en var skotinn neðar í
ánni fáeinum dögum síðar. Selur
var einnig á ferð 1994 og oft
þar á undan. Nú hefur varg-
veiðimaður verið ráðinn til að
fara reglulegar eftirlitsferðir
með ánni til að halda selnum á
mottunni.
Skipulagsb
ingar á Veiði-
málastofnun
MIKLAR skipulagsbreytingar
verða á starfsemi Veiðimála-
stofnunar 1. júní næstkomandi,
en þá verður ráðinn til starfa
sérstakur forstjóri stofnunarinn-
ar. Þá verða í húsinu bæði for-
stjóri Veiðimálastofnunar og
veiðimálastjóri. Árni ísaksson
gegnir áfram starfí þess síðar-
nefnda, en enn hefur ekki verið
ráðið í stöðu forstjórans.
Vífili Oddsson stjórnarfor-
maður Veiðimálastofnunar sagði
í samtali við Morgunblaðið að
þessi breyting væri afleiðing af
og í samræmi við nýjar stjóm-
skipunarreglur og við breyting-
una yrði veiðimálastjóri embætt-
ismaður sem heyr'ði undir land-
búnaðarráðuneytið, en forstjóri
stofnunarinnar aftur á móti aðili
sem sæi um daglegan rekstur,
stefnumörkun og verkefnisstjóm
á Veiðimálastofnun.
„Það hafa orðið einstaka
árekstrar í gegn um tíðina þar
sem veiðimálastjóri hefur lent
beggja vegna borðsins í einstök-
um málum. Það þurfti að ráða
bót á því ástandi. Hitt er, að enn
liggur ekki endanlega fyrir hvað
í starfseminni mun tilheyra hvor-
um. Það er unnið að því að að-
greina stöðumar þessa dagana
og það fer senn að smella saman,
enda lítill tími til stefnu þar sem
nýi forstjórinn tekur til starfa um
mánaðamótin," sagði Vífíll.
Fordæma
hækkun
sjálfræðis-
aldurs
HÚMANISTAHREYFINGIN á ís-
landi hefur sent Morgunblaðinu
yfirlýsingu í tilefni af lögum um
hækkun sjálfræðisaldurs. Þar segir
m.a.:
„Húmanistar fordæma fyrirhug-
aða lagasetningu um hækkun sjálf-
ræðisaldurs úr 16 árum í 18. Með
þessu eru þúsundir ungs fólks svift
sjálfræði og mannréttindi þeirra
skert. Þessi lagasetning birtist und-
ir því yfirskyni að verið sé að fást
við vímuefnavanda ungs fólks. Hún
afhjúpar hins vegar uppgjöf og
úrræðaleysi ráðamanna og viðleitni
þeirra til að kæfa mannsandann.“
-------»-■»■■«-
Erindi um karl-
inn á vinnustað
á Akureyri
KRISTJÁN Magnússon sálfræðing-
ur flytur erindi um karlinn á vinnu-
stað í Deiglunni á Akureyri næst-
komandi þriðjudagskvöld, 20. maí
kl. 21.
í erindinum fjallar Kristján um
hvernig konur og karlar nýta mis-
munandi eiginleika sína á vinnstað.