Morgunblaðið - 18.05.1997, Blaðsíða 16
16 G SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Brúðkaupsdagur Ölmu Maríu Rögnvaldsdóttur og Guðmundar Guðnasonar
GUÐMUNDUR Guðnason ásamt vinunum Frikka ljósmyndara og Bjössa. Teitur var með þeim í lauginni en er ekki á myndinni. Hann tók að sér hlutverk
veislustjóra síðar um daginn. „Þetta var gert til að létta biðina, við fórum út að borða og í sund áður en stóra stundin rann upp.“ Vinkona Ölmu Maríu, Agnes, sá
um að snyrta hana en hún rekur Snyrtistofú Agnesar í Kompaníi. Ölmu Maríu var greitt fyrir brúðkaupið á sama stað. Guðmundur sækir hér brúðarvönd-
inn ásamt Sveini, bróður Ölmu Maríu. Alma María hafði haft hönd í bagga með vali á blómum í vöndinn. Hún valdi bergfléttu, rauðar rósir,
önnur blóm sem Ragnheiður í Undir stiganum sá um að nota í vöndinn, hárskraut, barmblómin og vönd fyrir brúðarmeyjuna.
sem leið bara of f Ijótt
IÐ vorum bæði
mjög róleg og dag-
urinn gekk alveg
eins og best verður á
kosið. Það er í rauninni
ekkert sérstakt sem
stendur upp úr, dagurinn var
óglejmianlegur en leið bara of fljótt,"
segja þau Alma María Rögnvalds-
dóttir og Guðmundur Guðnason sem
eru nýkomin úr brúðkaupsferðinni
af Snæfellsnesi. Þau gáfu okkur Ieyfí
til að vera með þeim á brúðkaups-
daginn en þau gengu í hjónaband
þann 26. apríl síðastliðinn í Háteigs-
kirlqu.
„Það var kostur að hafa brúð-
kaupið seinnipart dags þannig að
hægt var að taka það rólega framan
af degi,“ segir Guðmundur þegar
þau eru spurð hvort stressið hafí
verið mikið. Aðeins meira var þó að
gera hjá Ölmu Maríu því hún þurfti
að fara í hárgreiðslu og snyrtingu.
Anna Ólafsdóttir sá um að
skreyta salinn með hjálp fjölskyldna
beggja.
Afí Ölmu gaf þau saman
Afí Ölmu, sr. Andrés Ólafsson,
gaf þau saman, og mikið var um
söng í kirkjunni.
Sálm í kirkjunni sungu foreldrar
Margrétar Kristínar vinkonu Ölmu
Maríu, þau Jóhanna Möller, og Sig-
urður Pálsson ásamt Margréti
Kristínu og Ingólfí Helgasyni.
Hera Björk Þórhallsdóttir, kunn-
ingjakona Ölmu Maríu, söng lagið
Dagný. Eftir athöfnina söng Mar-
grét Kristín frumsamið lag, Any-
thing, fyrir brúðhjónin og Hera söng
Somewhere úr West Side Story með
íslenskum texta. Að lokum lék saxó-
fónleikarinn Óskar Guðjónsson Be-
autyful Maria of My Soul.
„Þessi lög eru í uppáhaldi hjá
okkur og ég sjálf hef verið að syngja
við brúðkaup og vissi upp á hár
hvað átti að leika í mínu brúð-
kaupi," segir Alma María.
Lítil stúlka, Bergþóra, frænka
Ölmu Maríu, sem hún hefur passað
þó nokkuð, tók að sér brúðar-
meyjarhlutverkið og ungur frændi
Guðmundar, Ólafur Hákon, var
brúðarsveinn sem sá um að bera
hringana til brúðhjónanna.
Margir tróðu upp og tóku lagið
Hundrað og sjötíu gestir mættu
í brúðkaupið og ýmsir gestanna
gerðu sér lítið fyrir og komu frá
Bretlandi, Danmörku, Bandaríkjun-
um og víðar utan úr heimi til að
vera viðstaddir þegar Alma María
og Guðmundur tóku þetta stóra
skref. Gestir fengu kampavín og
jarðarber á meðan beðið var eftir
í apríl sl. gengu þau Alma María Rögnvalds-
dóttir og Guðmundur Guðnason í hjónaband
í Háteigskirlgu. Ljósmyndarí Morgunblaðs-
ins fékk að fylgja brúðhjónunum eftir á
brúðkaupsdaginn.
Morgunblaðið/Golli
NÝGIFT og sæl að skála við gestina í veislunni. Glösin sem brúð-
hjónin skáluðu úr voru árituð með nöftium þeirra, brúðkaupsdegi
og síðan prýddi þau slaufuskraut. Guðmunda Óskarsdóttir og
Þórdís Gunnarsdóttir sáu um að skreyta glösin þeirra og búa til
servíettuhringi úr gleri fyrir alla gestina með nöfnum þeirra
ágröfnum. Þær útbjuggu einnig glerspírala á öll kampavínsglösin
fyrir veislugesti. Guðmunda sá einnig um að útbúa boðskortin.
Guðmunda er mágkona Sjafíiar, móður brúðarinnar.
HÉR dregur Guðmundur hringinn á fíngur Ölmu Maríu. Það sem
er öðruvísi við hringana en venjulega er að nöfnin þeirra eru
grafin utan á þá. Það voru gullsmiðimir Sigga og Timo í Hafnar-
fírði sem smíðuðu hringana.
ALMA María kom Guðmundi í opna skjöldu með þvi að hefja upp
raust sína og taka fyrir hann uppáhaldslagið Father and Son eft-
ir Cat Stevens og lagið I Only Have Eyes for You. Margrét Krist-
ín Sigurðardóttir, vinkona Ölmu Maríu, lék á píanó við þetta tæki-
færi en annars lék Karl O. Olgeirsson á píanó í veislunni. Róbert
Þórhallsson er á bassa og trommuleikarinn er Jóhann Hjörleifs-
son. Margrét Kristín söng í kirkjunni lagið Anything fyrir Ölmu
Maríu og Guðmund en lagið samdi hún sérstaklega fyrir þau.
brúðhjónunum. Boðið var síðan upp
á 15 rétta sjávarréttahlaðborð sem
Bjami Þór Ó'lafsson sá um að útbúa
fyrir þau. Hvítvínið bjuggu brúð-
hjónin sjálf til og hönnuðu sérstaka
miða á flöskumar. Á eftir var
heimabökuð kransakaka sem for-
eldrar brúðhjónanna sáu um að
baka, ásamt kaffí og koníaki.
Margir tróðu upp í veislunni, tóku
lagið eða sögðu skondnar sögur af
brúðhjónunum. Fjölskylda Ölmu
Maríu bjó til og flutti tólf erindi
um hana frá því hún fæddist og
fram að þessu kvöldi, systir Guð-
mundar, Eva Hrönn, söng tvö jazz-
lög, vinur Guðmundar, Gunnar
Bjöm, söng lag án undirspils, Örl-
ygur vinur Guðmundar spilaði á
gítar og söng og Teitur, besti vinur
Guðmunar, kom frá Bmssel til að
stjóma veislunni.
Friðrik Öm, vinur Guðmundar,
sá um að mynda allt brúðkaupið
en hann starfar sem ljósmyndari í
Los Angeles og kom heim til að
vera við brúðkaupið.
Brúðhjónin létu sig hverfa í hita
leiksins í svítu í Kirkjuhvoli og þar
höfðu vinir komið fyrir ýmsum kræs-
ingum sem nýgift hjónin gæddu sér
á þegar morgunsólin fór að skína.
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 G 17
Guðmundur klukkutíma fyrir athöfnina að róa mömmu sína,
Katrínu, í gegnum símann. Hún var með áhyggjur af blómunum.
ALMA María er að ganga inn gólfíð ásamt Rögnvaldi, föður sín-
um, og eftirvæntingin skín úr augum feðganna Guðmundar og
Guðna. Á myndinni er presturinn sem sá um athöfína, sr. Andrés
Ólafsson, en hann er afí brúðarinnar.
Margir tróóu upp í
veislunni, tóku
lagió eöa sögöu
skondnar sögur af
brúöhjónunum.
Fjölskylda Ölmu
Maríu flutti brag
um hana og Teitur,
besti vinur
ÍRIS, vinkona Ölmu Maríu,
aðstoðar hana hér við að klæða
sig í brúðarkjólinn en hún lét
fatahönnuðinn Þórhall Inga-
son sauma hann á sig. Hún var
með ákveðnar skoðanir og hún
bað hann að hanna kjólinn eft-
ir sínum hugmyndum.
Guðmunar, kom
frá Brussel til aö
stjórna veislunni
dU lllllld UL
Serþjalfað startstolk okkar aðstoðar við
réttu dýnuna fyrirykkur. Einnig
mikið úrval af höfðagöflum, rúm-
teppum og öðrum fylgihlutum til
að útbúa fallegt og rómantískt
svefnherbergi.
H Velkomin í stærstu rúma og húsgagnahölun
dýnuverslun landsins.
Ertu að fara að gifta þig?
Þá er alveg tilvalið að koma til
okkar og prófa amerísku lúxus
dýnurnar frá Serta. Hjá okkur
fást margar gerðir og stærðir
og Serta dýnunum fylgir allt
að 15 ára ábyrgð.
Hfá Gull og Silfur er hver
hringur sérsmíöa&ur af
koslgæfni og snilld
Vi6 leggjum áherslu á persónu-
lega þjónustu og komum
til móts vió þínar hugmyndir
Sendum
trúlofunarhringalitmyndalistann
okkar um allt land
A
Mjðrdís TL jómdéttir
blómaskreytingameistari Blómavals
„Þegar ég tek að mér brúðkanpsskreytingar og brúðarvendi vil
ég leggja persónulega alúð í verkið.
Hvert brúðkaup er einstakt í mtnum huga og ég legg úherslu ú að
vinna fyrir ykkur.
Með því móti er tryggt að útkoman hæfi tilefninu.
Hafið samband við mig og ég skal leggja mig alln fram til að
gera fallegan brúðkaupsdag entt fallegri."
Ælá