Morgunblaðið - 18.05.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.05.1997, Blaðsíða 4
4 G SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐJ.Ð Gift í 60 ár Það var lítið um að vera þegar þau Anna Margrét Þorkelsdóttir og Vilhjálmur Hjálmarsson giftu sig. Það var engin veisla, engin brúðarmynd tekin og þau höfðu ekki keypt sér neina hringa og hafa aldrei gert. En hjónabandið hefur enst vel og dyggilega í rösk 60 ár. Þau fá enn glampa í augun þegar þau líta hvort á annað. Og þau hlæja mikið saman. ARGRET og Vilhjálmur voru gefín saman í stofunni á Brekku í Mjóafírði af sr. Har- aldi Þórarinssyni 12. desember 1936. Viðstaddir voru foreldrar Vilhjálms og annað heimilisfólk á bænum. Það var ekki haldin veisla þótt menn fengju kaffi og súkkul- aði á eftir, engir sálmar sungnir og ekki fengu þau sér giftingar- hringa og engin mynd var tekin af þeim. „Venjan var að syngja að minnsta kosti „Hve gott og fagurt og indælt er“,“ segir Margrét. „En við vorum dálítið sérvitur og mér fannst þetta svo vellulegur sálm- ur. Nú, svo voru engir sérstakir söngmenn þama í hópnum svo það var þá alveg eins gott að láta það vera.“ Hvað sem því líður hefur hjóna- bandið verið farsælt og þarf ekki að vera lengi samvistum við þau hjón til að fínna þá gagnkvæmu ánægju sem er á milli þeirra. Þau hafa búið í Reykjavík á vetuma síðan 1973 en halda alltaf austur í Mjóafjörð í júní og em þar fram í október. Vilhjálmur var kjörinn á þing fyrst 1949 og var því lang- dvölum frá heimilinu á veturna meðan hann sat á þingi. „Það var nú meira sem ég lagði á konuna, að vera ein með þetta allt heima,“ segir hann. Börn þeirra urðu fímm, fjórir synir og ein dóttir. Bama- börnin 18 og bamabamabörnin 17 svo afkomendur þeirra em nú íjömtíu talsins. Alla öldina hafa tveir ættliðir setið Brekku samtímis í mörg ár eftir að þau giftu sig vom þeir tveir bændumir, Vil- hjálmur og Hjálmar, faðir hans, og þar á undan afí hans og faðir. Seinna tók Sigfús, sonur Vil- hjálms, við ásamt föður sínum og nú er einnig bóndi á Brekku sonur Sigfúsar svo tveir ættliðir hafa setið jörðina alla öldina. Þegar þau voru nýgift voru einnig allmargir fleiri á heimilinu, ættingjar Vilhjálms og fleiri sem vom þar til dauðadags og foreldr- ar Vilhjálms vom þar og sumt af þessu fólki flutti með þeim þegar þau fóm suður. „Það var ekkert nýtt að mann- margt væri á Brekku,“ segir Vil- hjálmur. „Afi minn reisti húsið, sem er norskt flekahús, 1882, það var á tveimur hæðum og hundrað fermetrar hvor hæð. Þegar afí minn byggði það var útgerð í Mjóafírði og oft heimilisfastir þar 25-30 manns. Seinna komu til sögunnar vinnuflokkar við bryggjusmíði og vegavinnuhópar. Útgerð var ekki stunduð þaðan á mínum búskaparárum enda fískerí tregt eftir að togararnir komu. Nú síðustu ár hefur yngri bónd- inn, Páll Sigfússon, trillu og rær til fískjar og hefur komið upp verkunaraðstöðu þar sem við ger- um að.“ Margrét er fædd að Bót í Hró- arstungu og alin upp hjá föður- systur sinni á Héraði. Hún dó þeg- ar Margrét var á 7. ári. Stjúp- fóstri hennar kvæntist aftur en MARGRÉT Þorkelsdóttir og Vilhjálmur Hjálmarsson á „gaman- myndinni" sem var tekin af þeim fyrir þremur árum í tilefni áttræðisafmælis þeirra. BREKKA í Mjóafirði. Myndin er frá 1910. við lát seinni konunnar leystist heimilið upp og tíu ára sonur stjúp- fóstrans kom að Brekku með Mar- gréti og ólst þar upp. Kynntust 18 ára og voru búin að ákveða eitthvað eftir sumarið „Við kynntumst á Brekku," segir Margrét þegar þau voru innt eftir hvar þau hefðu kynnst. Hún var að safna til að geta kom- ist í kvennaskólann á Hallorms- stað og réð sig að Brekku sumar- ið 1932. „Ég hygg að um haustið höfum við verið búin að ákveða eitt- hvað,“ segir Vilhjálmur og kímir. Þá voru þau 18 ára. Haustið 1933 fór hann til náms í Héraðsskólan- um á Laugarvatni og hún í Hali- ormsstað. Allan þennan tíma töluðu þau aidrei saman í síma en því duglegri voru þau við bréfa- skriftimar. Þessa tvo vetur sáust þau bara einu sinni þegar Vil- hjálmur kom í Vallanes þar sem Margrét var kaupakona. „Okkur datt aldrei í hug að hringja, það voru engir peningar í slíkt,“ segir Margrét og hlær við. Þau settu aldrei upp hringa og hafa ekki gert það enn. Vilhjálmur segir að ástæðan fyrir því að þau settu aldrei upp hringa í byijun hafí kannski ekki verið eintóm sérviska. „Við höfum aldrei verið peningalítil nema á þessum bú- skaparámm. Þá var auraleysi hjá flestum. Svo breyttist þetta í stríð- inu eins og margt fleira." Engin brúðarmynd var tekin en „við höfum verið jafnlukkuleg fyr- ir það,“ segir Margrét og bætir við að þau hafí ekki nema tvisvar farið að láta mynda sig á stofu. Fyrri myndin var tekin um 1950 og svo ákváðu þau að drífa sig í myndatöku árið 1994 þegar bæði áttu áttræðisafmæli. Margrét flutti að Brekku eftir að hafa verið tvo vetur og eitt sumar á Hallormsstað. Þá hafði Vilhjálmur einnig lokið námi á Laugarvatni. Margrét segist bara hafa geng- ið inn í heimilið og þau fengu tvö herbergi fyrir sig. Húsgögn áttu þau ekki mörg. Einn dívan og teppi sem Margrét óf í skólanum. Vil- hjálmur átti skrifborð og nágranni gaf þeim hjónarúmið sitt. Stofur voru sameiginlegar með öðru heimilisfólki og hvomgt þeirra tel- ur að þau hafi vantað eitthvað. Þau fengu engar brúðargjafir. „Það tíðkaðist naumast, þetta var allt annar heimur," segja þau bæði. Um þetta leyti voru um 5 kýr o g innan við 100 kindur á Brekku. Var um tíma gerður út mótorbát- ur en fiskerí var tregt eftir að togararnir komu til sögunnar, eins og fram kom hér fyrir ofan. Árið 1929 var byggð rafstöð, að sögn Vilhjálms, og tekið til þess stórt lán „sem ætlaði alla að drepa“, segir Vilhjálmur. „Pen- ingavandræðin leystust þegar við tókum túnið og fórum að rækta garðmat, kartöflur og rófur. Mað- ur fékk meira fyrir hveija spildu en heyskapurinn gaf af sér og þá var hægt að greiða skuldirnar fljótt.“ Þau tóku um einn hektara und- ir garðinn og árið 1940 fengu þau 250 tunnur af garðmat. Sauðfé fjölgaði og hagurinn vænkaðist. „Þetta verður ekki til í skyndi, það þróast og treystist“ Þegar þau hjón eru spurð hvað það hafi verið í fari hins sem þau hrifust af á sínum tíma verður Vilhjálmur fyrir svörum: „Bæði var það nú náttúrlega að mér leist vel á stúlkuna og svo fann ég við kynni að hún var gegnumvönduð manneskja og traust. Það er, held ég, málið.“ Margrét bætir við að hún geti heimfært þetta yfir á Vilhjálm hvað hana snertir „og svo verður þetta svo sem ekki til í skyndi, þetta þróast og svo treyst- ist það,“ segir hún. Þau segjast ekki muna eftir að hafa rifist oft. „Ætli við höfum ekki bara rætt saman um það sem máli skiptir," segir Vilhjálmur. Eins og getið var fara þau sum- ar hvert að Brekku og Vilhjálmur ekur. Þau gista nótt á leiðinni og taka sér góðan tíma. En „einkenni- legt hvað manni hættir til að gleyma að manni liggur ekkert á,“ segir Vilhjálmur. Aðallega viðhald nú orðið! Vilhjálmur hvarf af þingi í tíu ár eftir kjördæmabreytinguna 1959.En 1969 tók hann sæti þar að ný. Hann var menntamálaráð- herra 1974-1978. Hvorugt þeirra kærði sig um að breyta um heim- ili meðan Vilhjálmur var ráðherra. Tveggja herbergja íbúðin þeirra á Ásvallagötu var látin duga. „Marg- ur ágirnist meira en þarf,“ segir Margrét og hristir höfuðið hugsi. Þau hjón segjast vera við prýði- lega heilsu. „Þetta er aðallega við- hald nú orðið,“ segir Vilhjálmur. „En þetta hefur allt gengið stórá- fallalaust. Ég hef þó fengið krans- æðasjúkdóm og krabbamein og náð mér af því.“ Það háir Mar- gréti að sjónin er slæm, hún seg- ist hafa umhverfíssjón en geti ekki lesið lengur. Það er hollt og frískandi að sitja að skrafi með þessum brúðhjónum sem eftir 60 ára sambúð fá enn blik í augun þegar þau horfa hvort á annað. í I I I \ i I 1 I i I \ \ I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.