Morgunblaðið - 23.05.1997, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1997
■ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ
BLAÐ
Fæst hjá
j'oU:
SEIKO
KINETIC'
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAMÓTIÐ
STÓRGLÆSILEGUM sigri fagnað á Júgóslövum í gærmorgun.
Frá vinstri: Júlíus Jónasson, Bergsveinn Bergsveinsson markvörður og Geir fyrirliði Sveinsson.
Bestir í þessum vígamóði
Eg trúði því alltaf að við gætum
lagt Júgóslava að velli, en ef
ég á að vera hreinskilinn verð ég
að segja að ég átti aldrei von á níu
marka sigri," sagði Geir Sveinsson,
fyrirliði íslenska landsliðsins í hand-
knattleik við Morgunblaðið eftir
stóran sigur, 27:18, á Júgóslövum í
A-riðli heimsmeistarakeppninnar í
Japan í gærmorgun. íslenska liðið
lék stórkostlega og er nú í efsta
sæti riðilsins með fimm stig.
„Við vorum búnir að búa okkur
undir mikla baráttu allan leikinn,
en svo varð ekki. Júgóslavarnir
hreinlega hættu í seinni hálfleik,"
sagði Geir
Varstu aldrei hræddur um að
þú og Júlíus [Jónasson] fengjuð
rautt spjald, þegar búið var að vísa
ykkur tvisvar af leikvelli? „Nei, ég
hugsaði ekki út í það. Við vissum
að við urðum að gefa allt sem við
áttum í leikinn og taka vel á Júgó-
slövum. Við beittum leikstíl sem
hentar okkur best, náðum upp bar-
áttu og hreyfanleikinn var mikill
— menn fórna sér af fullum krafti
gegn andstæðingunum. Þegar við
erum í þeim vígamóði, erum við
bestir,“ sagði Geir, sem sagði að
það hafi verið ánægjulegt hve
markvarslan hefði verið góð í
leiknum - „Bergsveinn var frá-
bær, Dagur og Olafur náðu báðir
að sýna livað í þeim býr og Valdi-
mar hélt sínu striki," sagði Geir.
Geir sagði að skemmtunin vari
ekki búin, þá að Júgóslavar hefðu
verið lagðir að velli. „Næst eru það
Litháar, sem verða erfiðir viður-
eignar. Þeir eru sterkir og verða
eflaust metnaðarfullir gegn okkur,
þar sem þeir hafa séð að við erum
með gott lið. Það er deginum ljós-
ara, að sigur okkar gegn Júgóslav-
íu hefur skotið okkur fram í sviðs-
ljósið. Onnur lið fara að reikna með
okkur. Ég er viss um að flestir sem
sjá úrslitin, telja að um prentvillu
sé að ræða — að tölur okkar og
Júgóslava hafi víxlast. Þetta vekur
athygli, kastljósið beinist aðeins
meira að okkur. Við verðum að
njóta þess að vera þar, en vera einn-
ig tilbúnir að takast á við það.
Framhaldið verður helmingi erfið-
ara fyrir vikið,“ sagði Geir.
■ HM i Japan / C2, C3, C8
KNATTSPYRIMA: ÖNIMUR UMFERÐ ÍSLANDSMÓTSINS í GÆRKVÖLDI / C4, C5, C8