Morgunblaðið - 27.05.1997, Side 1

Morgunblaðið - 27.05.1997, Side 1
 Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 27. maí 1997 Blað C Merkileg sýning ÞEIR sem sjá líkan af dóm- kirkju í Skálholti frá 16. öld, sem nú er til sýnis í Þjóðminja- safninu í mælikvarðanum 1:20, verða flestir undrandi yfír stærð og gerð hússins, segir Bjarni Olafsson í þættinum Smiðjan. / 24 ► 1 - mn ull . Tirn ji ~ j a Val á verk- tökum TILBOÐ eru ekki öll eins. Þau eru misjöfn að upphæð og jafn- vel innihaldi, segir Eyjólfur Bjarnason tæknifræðingur. Ekki er víst, að allir bjóðendur séu að bjóða sama hlutinn og þar af leiðandi eru tölur ekki sambærilegar. / 26 ► Ú T T E K T Nýbygg- ingasvæði í Firðinum Ntí er hafin Ióðaúthlutun á nýju byggingasvæði í hjarta HafnarQarðar, en þar verða byggð 33 lítil einbýl- ishús. Svæðið afmarkast af Reykjavíkurvegfi, Arnarhrauni, Smyrlahrauni og Álfaskeiði og einkennist af hraunlendi með bölum og bollum, sem eru svo áberandi í Firðinum. - Byggingasvæðið liggur í miðbæ Hafnarfjarðar, um- kringt blandaðri byggð á alla vegu, segir Sigurbergur Árna- son arkitekt í viðtali hér í blaðinu í dag, en hann hefur skipulagt; svæðið. Á þessu svæði var áður salt- fískreitur. Hann verður vernd- aður sem sögulegar minjar, en reiturinn hefur mikla sérstöðu sem gott opið svæði inni í miðjum bænum. Húsin eiga að standa þétt og þau verða lág, en útsýni verð- ur á stöku stað til fjalla og sjávar. Lóðirnar undir húsin verða smáar eða um 400 ferm. og göturnar tiltölulega þröng- ar, líkt og eldri húsagötur í miðbæ, enda býður svæðið upp á kosti miðbæjarsvæðis, þar sem stutt er í þjónustu, verzlun og stjórnsýslu. - Þessi nýja byggð á að falla inn í gömlu byggðina í Hafnarfirði, svo að úr verði ein heild, segir Sigurberg- ur Árnason. Gert er ráð fýrir að lóðimar verði byggingar- hæfar í júní. / 18 ► Heppilegast að kaupa þegar ávöxt- unarkrafan er lág FASTEIGNAMARKAÐURINN er mjög háður ytri aðstæðum. Ástand á vinnumarkaði og lánamarkaði eru þeir þættir, sem hafa hvað aug- Ijósust áhrif á hann. Þannig skiptir ávöxtunarkrafa húsbréfa miklu máli, því að hún ræður þeim affóllum, sem eru af húsbréfunum hverju sinni. Sem dæmi má nefna, að affoll af 1 millj. kr. í húsbréfum tO 25 ára eru um 65.200 kr., ef ávöxtunarkrafan er 5,70% en um 91.000 kr., þegar ávöxt- unarkrafan er 6%. Af þessu má sjá, að heppilegast er að kaupa eða byggja, þegar ávöxtun- arkrafan er lág, því að þá eru hús- bréfín þeim mun verðmætari, sem fást út á eign, sem ætlunin er að kaupa eða byggja. Á síðasta ári og það sem af er þessu ári hefur ávöxtunarkrafan ver- ið tiltölulega lág og stöðug. Á árun- um þar á undan urðu hins vegar oft mjög miklar sveiflur á henni. Hæst varð ávöxtunarkrafan um 9% síðari hluta árs 1991 en lægst rétt undir 5% um mitt ár 1994. Teikningin hér til hiiðar sýnir ann- ars vegar húsbréfaútgáfuna á síðasta ári og til aprílloka á þessu ári og hins vegar þróun ávöxtunarkröfunnar til 22. maí sl. Að jafnaði er lítið sam- hengi þar á milli. Ljóst er þó, að hækkun ávöxtunarkröfunnar seint á árinu 1991 mátti rekja beinlínis til mjög mikillar húsbréfaútgáfu á sama tíma. Húsbréfakerfið er hugsað sem markaðskerfi óháð stjórnvöldum. Það felur samt í sér aðstoð ríkis- valdsins við íbúðarkaupendur og húsbyggjendur á hinum almenna markaði. Þessi aðstoð felst í ríkisá- byrgð á húsbréfum, en hún stuðlar að lægri vöxtum á þeim. Ávöxtunarkrafan væri sennilega líka hærri en nú. Ríkisábyrgðin auðveldar því fólki íbúðarkaup. Ávöxtunarkrafa húsbréfa 1. jan. 1996 til 22. maí 1997 6,0%-- 5,9 5,8 5,7 5,6 Afgreidd húsbréf 1996 og 1997 lyíillj. kr. Á reiknuðu meðaiverði hvers mánaðar 1.400,6 — ----==—-1“ TRYGGÐU ÞER BETRA VERÐ Selflu Húsbréfm hjá Fjáruangi! Það borgar sig að gera verðsamanburð! Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi eftir fjármálastofnunum. Fjárvangur keppist við aó bjóða besta kaupgengið og staðgreiðir Húsbréfin samdægurs. Ráðgjafar Fjárvangs veita allar upplýsingar um kaupgengi Húsbréfa. Hærra kaupgengi þýðir hærra verð fyrir Húsbréfin þín. fin^ FJÁRVANGUR IDCEIIT VEIISBREFAFTRIRT/Etl Fjárvangur hf., löggilt verðbréfafyrirtæki, Laugavegi 170, 105 Reykjavfk, simi 5 40 50 60. sfmbréf 5 40 50 61, www.fjarvangur.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.