Morgunblaðið - 27.05.1997, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 27.05.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MAl 1997 C 19 i Morgunblaðið/Porkell SIGURBERGUR Arnason arkitekt hefur deiliskipulagt byggingasyseðið. Reykjavíkurvegi. Hinum megin, það er við Arnarhraun og Smyrla- hraun, var byggt á fimmta og sjötta áratugnum. Byggingasvæðið er um fjórir hektarar og hæð þar yfir sjó rúml. 20 metrar. Ekki er nema 200-300 metra göngufjarlægð í alla almenna verzlun og þjónustu í miðbæ Hafn- arfjarðar og skólar og íþróttahús eru í svipaðri fjarlægð. Jafnframt er íþróttasvæðið í Kaplakrika í aðeins um 600 metra fjarlægð. Þétt byggð Húsin eiga að standa þétt og þau verða lág, en útsýni verður á stöku stað til fjalla og sjávar. Lóðirnar undir húsin verða smáar eða um 400 ferm. og göturnar tiltölulega þröngar, líkt og eldri húsagötur í miðbæ, enda býður svæðið upp á kosti miðbæjarsvæðis, þar sem stutt er í þjónustu, verslun og stjórnsýslu. Að sögn Sigurbergs verða skipu- lagsskilmálar fyrir svæðið nokkuð þröngir með tilliti tO þess, að verið er að skapa ramma um byggð sem á að taka mið af eldri byggð umhverf- is svæðið, en hugmyndin jafnframt sú, að lóðarhafar geti byggt ódýrt sérbýli. Hæð húsanna, stærð og þéttleiki þeirra verður svipaður og í eldri hluta Hafnarfjarðar. Byggingasvæðið skiptist í tvo hluta. Meginhluti svæðisins tengist umferðinni frá Álfaskeiði og Arnar- hrauni en austurhlutinn tengist um- ferðinni við Smyrlahraun. Ekki verður hægt að aka í gegnum svæð- ið, en götur verða botnlangagötur og stuttar húsagötur á milli húsa. Ekki er gert ráð fyrir sérstökum hraðahindrunum. Gangstétt verður öðru megin á götunum og bifreiða- stæði verða á lóðum og við gang- stétt. Gönguleiðir verða í gegnum svæð- ið eftir götum og um stíga og stutt í strætisvagna. Yfir Reykjavíkurveg verður byggð örugg gönguleið með ljósum, sem tengir svæðið við Vest- urbæ. Þvert yfir svæðið sjálft verð- ur svo sérstök gönguleið yfir hraun- gjótumar, sem skerast í gegnum svæðið og jafnframt greið leið að Einarsreit. - Hraungjótumar á svæðinu verða útivistarsvæði og leiksvæði fyrir byggðina í kring, segir Sigur- bergur. - Ekki er gert ráð fyrir að þessi hluti verði afmarkaður sér- staklega eða ákveðið fyrirfram, hvar leiktækjum, bekkjum eða öðra af því tagi verði komið fyrir, en íbúam- ir hafðir með í ráðum eða þá að þeir geta sett slíkt upp sjálfir, þar sem þeir óska. I stórri gjótu vestan til á svæðinu er þegar til staðar sparkvöllur og í annarri gjótu austar era sléttar und- irstöður undan bragga. Þar væri audvelt að setja upp leiktæki eða sandkassa fyrir yngstu bömin. - Það verður forðast að hreyfa við klettum og gjótum og hraun- landslagið látið halda sér, segir Sig- urbergur. - í gjótunum er gott skjól og þær verða eflaust notaðar tii útivera jafnt vetur sem sumar. Á sameiginlegum svæðum er ekki gert ráð fyrir gróðursetningu, en verði gróðursett tré, er mælzt til þess að það séu lágvaxnar trjá- og runnategundir. Þar sem húsin standa við útivistarsvæðið er ætlast til þess, að hægt verði að komast um lóðirnar út á útivistarsvæðið, en það á að bæta úr því, að lóðirnar verða fremur smáar. Svæðið býður upp á góða mögu- leika til vetrarleikja, þar sem snjór safnast fyrir í gjótunum. Hægt verð- ur að fara um svæðið á gönguskíðum og nægar sleða - og snjóþotubrekk- ur ættu að verða ákjósanlegur vett- vangur fyrir börnin. Einarsreitur varðveittur Þar sem Einarsreitur er síðasti heillegi fiskreiturinn í Hafnarfirði er gert ráð fyrir, að hann verði verndaður sem sögulegar minjar og fái að pjóta sín ásamt svæðinu í kring. Á reitnum mætti koma fyrir bekkjum, svo að fólk gæti sezt þar niður. Þar mætti jafnvel hafa úti- sýningar og setja upp listaverk eða minnisvarða, sem minna á liðinn tíma eins og saltfiskverkunina, sem þar fór fram. - Reiturinn hefur algera sér- stöðu, sem gott opið svæði inni í miðjum bænum, segir Sigurbergur. - Kostirnir felast einkum í legunni, auk þess sem nágrenni hans er ósnortinn hluti af náttúrunni. Svæðið á að fá að njóta sín eins og það er og yfirbragð þess á að halda sér, bæði á reitnum og gjótunum í kring. í jaðri fiskreitsins að austan- verðu verða þó byggð fimm einbýl- ishús í röð vestan við húsin á Smyrlahrauni. - Stærsti hluti fiskreitsins verður samt ósnertur, heldur Sigurbergur áfram. - Vegghleðslur við gjóturnar verda lagfærðar og haldið í upp- runalegu horfi og sömuleiðis yfir- borð reitsins. Ekki er ætlast til þess, að ekið sé inn á fiskreitinn, en um hann verður greið gönguleið. I tengslum við hátíðahöld í bænum mætti gera gera ráð fyrir minni háttar samkomum á reitnum. Ekki er samt gert sérstaklega ráð fyrir bílastæðum þar af þeim sökum, enda er svæðið það nálægt sjálfum miðbænum og fjöldi bílastæða þar nærri. Tekur mið af eldri byggð Skipulagið tekur mið af eldri byggð í nágrenninu. Húsin verða ekki stór og á litlum lóðum. Ætlazt er tO þess, að þakhalli, stærð, hlut- EINARSKEITUR fihreyFt yfirborö ^PARK VaLLUl UPPDRÁTTUR af byggingasvæðinu. Byggð verða 33 Iítil einbýlishús á svæðinu, en það afmarkast af Reykja- víkurvegi, Arnarhrauni, Smyrlahrauni og Álfaskeiði. Aðkoma að svæðinu er að norðan frá Arnarhrauni eftir Fálkahrauni en frá Reykjavíkurvegi eftir Kjóahrauni. „ Morgunblaðið/Golli NU er verið að ljúka gatnagerð á byggingasvæðinu, en gert er ráð fyr- ir, að lóðirnar verði byggingarhæfar í júní. fijll og hæð húsanna verði svipuð og í elzta hluta Hafnarfjarðar, þó án þess beinlínis að líkja eftir húsum þar. - Byggðin verður álíka þétt og í gamla bænum og slíkur þéttleiki hefur ákveðnar takmarkanir í fór með sér, segir Sigurbergur. Við göturnar Fálkahraun og Kjóahraun verða húsin hæð og ris- hæð. - Heimilt verður að byggja bíl- skúra við húsin og einnar hæðar út- byggingu, sem snýr að baklóð, segir Sigurbergur. - En það verður að- eins heimilt að hafa ris yfir aðalhluta hússins. Við Lóuhraun verða hins vegar tveggja hæða hús, sem munu standa rétt við fiskreitinn. Ekki era gerðar sérstakar kröfur um útlit þessara húsa. Æskilegt er að efnisnotkunin taki mið af eldri byggð á miðbæjarsvæð- inu. Samkvæmt byggingareglugerð er fjarlægð milli húsanna nægjanleg til þess að hægt verður að byggja öll húsin úr timbri, en ætlast er til þess að þau verði klædd með bárujámi. Neðsti hluti húsanna verði steyptur eða klæddur sléttu efni og mælzt er til að skörp skil verði á milli bygg- ingarefna. Lóðir er heimilt að afmarka frá götu með lágum girðingum eða veggjum. - Húsin standa stutt frá götunni og því er eðlilegt að af- marka einkasvæðið frá götusvæð- inu, segir Sigurbergur. - Þar sem baklóð snýr að gjótum er ekki ætl- SJÁ NÆSTU SÍÐU Suðurlandsbraut 16 (3. hæð), 108 Rvík. Sími 588 8787, fax 588 8780 Opið virka daga 9.00-18.00. Símatími laugardaga 11-14. Sæmundur H. Sæmundssón, sölustjóri/byggingam. Ólafur G. Vigfússon, sölufulltrúi. Rósa Halldórsdóttir, sölufulltrúi/ritari. Sigurberg Guðjónsson, hdl. lögg. fasteignasali. 2JA HERBERGJA ■ EINBÝLISHUS/RAÐHUS Hamraborg Góð tveggja herb. íbúð á 7. hæð i lyftuhúsi. Þvottahús á hæðinni. Stæði í bílakj. Verð 4,9 m. 394 Hjallavegur Rúmgóð 58 fm íbúð i fjórbýlish. með sérinng. Pergo-parket á gólfum. Gler og gluggar nýtt. Verð 5,3 m. 387 3JA HERBERGJA Framnesvegur 3-4 herb. 75 tm (búð f tvíbýlish. Verð 5,6 m. 378 Æsufell Falleg 88 fm íbúð á 4. h. Park- et á gólfum. Vandaðar innr. Suð-vestur svalir og frábært útsýni. Verð 6,5 m. 279 Grenimelur Góð 90 fm kjallaraíb. Gott parket á gólfum. Ágætar innrétting- ar. Verö 6,9 m. 236 4RA HERB. OG STŒRRA Kleppsvegur 4ra herb. ibúð á fjórðu hæð. Aukaherb. í risi Verð 6.950 þús. 366 Austurströnd Glæsileg 121 fm penthouse íbúö á frábærum útsýnisstað. Stutt í alla þjónustu. Verð 10,9 m. 396 Hraunbraut Falleg 100 fm neðri sér- hæð í Kóp. auk 32 fm bílskúrs. Verð 9,8 m. 290 Jöldugróf Einbýlishús í drauma stærð. Húsið er 130,5 fm og bílskúrinn er 34,4 fm Eign f góðu ástandi á grónum og góðum stað í borginni. Verð 13,9 m. 397 Heiðargerði Glæsilegt 200 fm ein- býlish. með bílsk. á mjög eftirsóttum stað í borginni. Húsið er allt meira og minna end- urn. og er sem nýtt. Sjón er sögu ríkari. Verð 18,5 m. 399 Sogavegur Glæsilegt þriggja íbúða hús á einum besta stað i borginni. Heildar- stærð um 290 fm Vandaðar innréttingar. Hús sem gefur mikla möguleika. 219 Akrasel Glæsilegt 287 fm einbýlish. með bílsk. Frábært útsýni. Mjög fallegur garður. Á neðri hæðinni er sóribúð. Verð 18,5 m. 226 í BYGGINGU Litlavör Parhús á tveimur hæðum með bílskúr samt.181 fm Selst tilbúið til innréttinga. Verð 10,9 m. 391 Funalínd Glæsilegt fjölbýlish. í Kóp. Fáar ibúöir eftir. Veriö að afhenda fyrstu fbúðirnar. Allar búðirnar afhendast fullb. með frág. lóð. Verð frá 8.950.000 þ. 346 Lautasmári þriggja herb. íbúð á 2. h. á eftirsóttum staö í Kópavogi. íbúðin af- hendist fullbúin án gólfefna. Verð 7,9 m. 392 Suðurhólar góö 100 fm ibúð. Sameign og húsið að utan í góðu ástandi. ATH: Verð aöeins 6,9 m. 271 Fjallalind í byggingu 228 fm raöhús á tveimur hæðum í Kópav. Afhendast fullbú- in úti og fokheld Inni. Verð fró 8,9 m. 382 VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.