Morgunblaðið - 27.05.1997, Síða 30
30 C ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
* Símar 551-9540 & 551-9191 - fax 551-8585 #
EIGNASALAN
INGÓLFSSTRÆTI 12 -101 REYKJAVÍK.
Yfir 35 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar.
Magnús Einarsson, löggiltur fasteignasali.
Sölurn. Svavar Jónss., hs. 553-3363, og Eggert Eliass., hs. 557-7789.
SAMTENGD
SÖLSKRÁ
\ ÁSBYRdUgjS
Einbýli/raðhús
LUNDIR - GARÐABÆ
Tæpl. 150 fm einb. á einni hæð. Saml.
stofur og 4 svefnherb. m.m. 50 fm
bílskúr þar sem innróttuð hefur verið
mjög góð 2ja herb. íbúð. Falleg ræktuð
lóð m. heitum potti.
DALHÚS - RAÐHÚS
Tæpl. 200 fm raðhús á tveimur hæðum
á góðum og rólegum stað. Innb. bílskúr.
Húsið er ekki alveg fullbúið. Hagst.
áhvílandi lán úr veðdeild.
BAKKAFLÖT -LAUST
Tæpl. 200 fm gott einbýlishús á
frábærum stað i rólegri lokaðri götu. 5
svefnherbergi. Falleg ræktuð lóð. Að
auki er 43 fm tvöfaldur bílskúr. Til afh.
strax.
REYKJAVEGUR - MOS.
240 fm gott einbýli á tveimur hæðum
auk 35 fm bílskúrs og 40' fm
gróðurskála. Falleg ræktuð lóð m.
miklum trjágróðri. Bein sala eða skipti á
minni eign í Rvik.
4-6 herbergja
BOLLAGATA - LAUS
4ra herbergja tæplega 80 fm lítið
niðurgrafin kjallaraíbúð. fbúðin er í góðu
ástandi. Sérinngangur. Til afhendingar
strax.
HRÍSATEIGUR - SÉRHÆÐ
3-4ra herb. efri hæð ( tvíbýlishúsi.
Sérinngangur, sérhiti. Sérþvottahús á
hæðinni. Nýlegt Merbau-parket á
gólfum. Suðursvalir. Ræktuð lóð
(trjágarður). Góð eign á góðum stað í
borginni.
í NÁGR. HÁSKÓLANS
Mjög góð 100 fm íbúð í fjölb. 2 stofur og
2 svefnherb. m.m. Suðursvalir. Gott
útsýni. Áhv. hagstæð langtímaián 3,7
millj.
HÁALEITISBRAUT
4ra herb. endaíbúð í fjölb. Góð eign m.
parketi á gólfum og miklu útsýni. Verð
7,3 millj.
ÞINGHOLTIN - LAUS
Glæsil. nýendurb. 4ra herb. íbúðarhæð í
steinh. Glæsil. útsýni. Góðar súðursv.
Allt nýtt í hólf og gólf. Til afh. strax.
3ja herbergja
ÁSBRAUT - KÓP.
3ja herb. snyrtil. endaíbúð á 1. hæð.
Góð sameign. Húsið allt klætt að utan.
Suðursvalir. Ásett verð 6,4 millj.
VESTURGATA
3ja herb. tæpl. 80 fm kjíb I faliegu eldra
steinhúsi. Skiptist í rúmg. stofur og gott
svefnherb. m.m. Nýtt parket á gólfum.
Falleg eldh. innrétting m. borðkrók.
Sérinng. Mjög skemmtileg eign.
EFSTASUND - LAUS
Mjög snyrtileg og góð 3ja herb. risíbúð í
þríbýlishúsi. Sérinng. Ib. er til afh. strax.
MÁVAHLÍÐ - LAUS
3ja herb. tæpl. 90 fm kjíb. f fjórbhúsi.
Góð íbúð með sérinng. Til afh. strax.
KEILUGRANDI - LAUS
Mjög góð 3ja herb. ib. í fjölbhúsi. Parket
á öllum gólfum. Tvennar svalir. Mikið
útsýni. Bílskýli. TIL AFH. STRAX.
2ja herbergja
GNOÐARVOGUR
Tæpl. 60 fm snyrtil. og góð íbúð i
fjölbhúsi. Húsið er nýl. klætt að utan.
Laus fljótlega.
SKIPASUND - ÓDÝR
2ja herb. mjög snyrtil. ósamþ. risíbúð i
þribhúsi. Góð sameign. Verð 3,2 millj.
Laus fljótlega.
NÖKKVAVOGUR - LAUS
70 fm góð kjallaraibúð i tvibhúsi. á
góðum stað. Nýl. eldhúsinnrétting. Nýl.
raflögn. Parket. Sérinng. Falleg ræktuð
lóð. ibúðinni má auðveldlega breyta í
3ja herb. íbúð. Til afh. strax.
KRUMMAHÓLAR - LAUS
2ja herb. góð ibúð á 1. hæð i fjölb.
Ibúðin er öll í góðu ástandi. Verð 4,5
millj. íb. er laus. Við sýnum.
NJÁLSGATA -LAUS
70 fm ibúð á 3. hæð (efstu) i steinh. Ib.
er öll í mjög góðu ástandi. öll sameign
nýstandsett. Til afh. strax.
Atvinnuhúsnæði
ATVHÚSNÆÐI ÓSKAST.
Höfum traustan og góðan kaupanda að
ca. 3-400 fm góðu atvinnuhúsn. á
jarðhæð. Góð innkeyrsluhurð æskileg.
Traustur kaupandi með góða útborgun.
STRANDGATA HF. GÓÐ
GREIÐSLUKJÖR.
220 fm atvinnuhúsnæði á 2. hæð f góðu
eldra steinh. (Drafnarhúsið). Hægt að
stúka niöur f nokkur herb. Til afh. strax.
Traustum aðila boðin góð greiðslukjör.
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Sumarhús siglingamannsins
Nýl. timburhús m. portbyggðu risi. Grunnfl. um 40 fm. Vönduð
viðarklæðning. Viðbygging um 50 fm m. 3 m vegghæð. Eignarland
6000 fm á vinsælum stað á Vatnsleysuströnd. Uppsátur fyrir bát I
fjöru. Myndir og nánari uppl. á skrifst.
Leitum að:
Raðhúsi eða einbýlishúsi í Árbæjarhverfi eða Smáibúðahverfi.
Sérhæð, raðhúsi eða einbýlishúsi í Vesturborginni eða á Nesinu.
Húseignum af ýmsum stærðum I gamla bænum eða nágrenni.
Meiga þarfnast endurbóta. Margir kaupendur á skrá, þ.á m. nokkrir
sem bjóða staðgreiðslu fyrir rétta eign.
í ■<
• • •
Opið á laugardögum.
Auglýsum á laugardögum.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370
Hafðu öryggi og reynslu í
fyrirrúmi þegar þú
kaupir eða selur fasteign.
Félag Fasteignasala
£
Morgunblaðið/Golli
ÞAÐ eru nógu margir ágætir lagnamenn til á Akureyri sem geta leyst það vandmál að sjá til þess að allir
leikhúsgestir fái það súrefni sem þeir þurfa án þess að það trufli viðkvæma leiksýningu.
Vefarinn mikli
á Akureyri
Lagnafréttir
Það var þrekraun að horfa á sýningu Leik-
félags Akureyrar, segir Sigurður Grétar
Guðmundsson. Leikhúsgestum hafði ekki
verið séð fyrir súrefni.
ÞAÐ er aldrei á vísan að róa
með það hvenær vorið kemur
hérlendis og eftir hlýjan aprfl
stóðu vonir til að maí yrði ekki
síðri og hvað er betra en að eyða
nokkrum vordögum á Akureyri?
En það voru engir varmir vor-
dagar þar í fyrrihluta maímánaðar
en það þarf ekki að þýða mis-
heppnaða heimsókn, öðru nær.
Það orð hefur stundum farið af
Akureyringum að þeir væru stór-
bokkar en hafi svo verið fyrr á ár-
um, sem ýmislegt bendir til, eru
þeir góðir heim að sækja í dag. En
það er meira að sjá við Eyjafjörð
en Akureyri og heimsókn til
Sæplasts á Dalvík er vissulega eft-
irminnileg, enda þangað komnir
flestir pípulagningamenn af Eyja-
fjarðarsvæðinu og vel var þar
veitt. Þó svo hafi óvænt viljað til að
tvær konur voru meðal gesta var
fyrirfram ákveðin dagskrá með
karlabröndurum látin halda sér,
efth- nokkurt hik þó.
Sæplast er stórmerkt fyrirtæki á
heimsvísu og efalaust finnst mörg-
um merkflegt að slíkt fyrirtæki
skuli hafa risið á Dalvík en það ger-
ist ekki allt á suðvesturhominu.
Fyrir lagnamenn er fróðlegt að
sjá fiskiker verða til með hverfi-
steypu en það er hinsvegar fram-
leiðsla Sæplasts á plaströrum sem
tók athyglina og auðvitað kom hin
eilífa umræða um súrefnisupptöku
plaströra fram í dagsljósið en lát-
um hana bíða betri tíma.
Það var fróðlegt að fara í klukku-
stundar kynnisferð um Akureyri
með innfæddum starfsbróður og að
heimsækja annan sem er „útvegs-
bóndi“ við Ljósavatn.
Veitingahúsum hefur ijölgað
mikið á Akureyri síðustu árin og
kráarmenningin kom með bjórn-
um, það er ekki í kot vísað að fá
sér bjór niður á Oddeyri í aldar-
gömlum húsum þar sem sagan er
skráð í hverja sperru, hverja fjöl.
Við nýja veginn fyrir fjarðarbotn-
inn er bensínstöð og ágætis veit-
ingahús á efri hæð sem býður upp
á ódýrt hlaðborð í hádeginu, hinar
bestu kræsingar og meira að segja
nýja steikta sfld, en því miður kom
þar fram veikasti punktur ís-
lenskra matreiðslumanna; ofnotk-
un á salti. Sama var uppi á ten-
ingnum í Bautanum, annars ágæt
blómkálssúpa eyðilögð með salti.
Humarinn í Fiðlaranum ljúffengur
og að sjálfsögðu með bræddu
smjöri, en þá þurfa diskarnir auð-
vitað að vera heitir, annars er
smjörið fljótt að kólna.
Leikhúsið í Renniverkstæðinu
í gömlu húsi niður á Oddeyri,
þar sem áður var renniverkstæði,
hefur Leikfélag Akureyrar inn-
réttað leikhús á hráan hátt eins og
við á. Það verður ekki annað sagt
að þama verður til sérstætt og
skemmtilegt leikhús og á umhverf-
ið ekki síður þátt í að það tekst,
pollurinn handan götunnar og
elstu hús Akureyrar (eða eigum
við að segja Oddeyrar?) mynda
umgjörðina. Það er ekki ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur
við val á leikverki til að sýna á
Renniverkstæðinu, æskuverk
Halldórs Laxness Vefarinn mikli
frá Kasmír, verkið sem opnaði
augu framsýnustu manna fyrir því
að þarna var snillingur framtíðar-
innai’ á ferð.
Kominn tfl Akureyrar er ekki
hægt að láta slíkan menningarvið-
burð fram hjá sér fara, en margar
sagna Laxness er búið að færa í
leikbúning með misjöfnum ái'angri
þó. Það er ekki hægt að segja ann-
að en að leikgerð Vefarans hafi
tekist eins vel og við mátti búast
en það er hins vegar nær því að
vera ofætlun að ráðast í það, þessi
saga verður aldrei að heilsteyptu
sviðsverki. Leikstjóri sýnir mikla
hugkvæmni í sviðsetningunni og
flestar persónur öðluðust líf en eft-
irminnulegust verður Diljá.
En það dugmikla fólk sem skap-
aði Vefaranum þessa frumlegu
umgjörð á Renniverkstæðinu hef-
ur ekki gáð að öllu, hefur að sjálf-
sögðu verið með hugann íyrst og
fremst við leikverkið. En mað-
urinn er nú einu sinni með þessum
ósköpum fæddur að hafa margs
konar þarfir, hann þarf mat og
drykk og ekki síst súrefni. Þar
brugðust skapendur leikhússins.
Að sitja á næstaftasta, eða rétt-
ara sagt næstefsta bekk, var nán-
ast þrekraun á þessari nokkuð
löngu leiksýningu. Það sem hefur
gleymst er að sjá fyrir fersku lofti
fyrir leikhúsgesti, að vísu virtust
loftstokkar vera upp undir lofti en
hafi þeir verið virkir eru þeir lík-
lega sömu annmörkum háðir og
flest vélræn loftræsikerfi; ekki
hægt að nota þau meðan á leiksýn-
ingu stendur sökum hávaða. Svo
alvarlegt varð málið að ein kona
féll í öngvit og urðu tveir nær-
staddir karlar að bera hana á brott
og eftir hlé kom í ljós að nokkrir
leikhúsgestir höfðu gefist upp og
skiluðu sér ekki aftur í sæti.
Þetta má leysa
Það er til einfóld lausn á þessu
vandamáli að færa leikhúsgestum,
einkum þeim sem efst sitja, nægj-
anlegt súrefni og það er hægt að
gera á þessum stað án þess að
nokkur vélrænn blástur sé notaður
sem heyrist í og truflar leiksýning-
una. Það er hin gamla týnda nátt-
úrulega loftræsing þar sem nátt-
úrulögmálið er notað sem drif-
kraftur, því heitara sem loft er því
léttara er það, þess vegna streym-
ir það uppávið.
Ein eða tvær lúgur á þaki sem
hleyptu út lofti hefðu getað gjör-
breytt líðan sárþjáðra leikhúsgesta,
þessar lúgur geta meira að segja
verið sjálfvirkar, engin þörf að út-
rýma tækninni með öllu. Hljóð-
látir litlir mótorar, sem stýrast af
hitastilli uppi við loft opna og loka
lúgunum, þegar hitinn hækkai' opn-
ast lúgumar og súrefnissnautt heitt
loftið streymir út og-annað ferskt
kemur inn í staðinn, þegar hitinn
fellur lokast þær aftur.
Það eru nógu margir ágætir
lagnamenn á Akureyri sem geta
leyst þetta vandmál; að sjá til þess
að allir leikhúsgestir fái það súr-
efni sem þeir þurfa án þess að það
trufli viðkvæma leiksýningu