Morgunblaðið - 13.06.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.06.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1997 B 7 SVARTA lótusblómið sem selst á þrjátíu þúsund krónur. hvemig er það spilað? Sagan í því er fantasía um tvo galdramenn sem eru að berjast og í spilunum er ákveðinn heimur með löndum, fólki og verum sem hafa ólíka hæfíleika til að vinna lífsstig af mótspilaranum," segir Arni. Ef tveir spila saman byrja þeir með 20 lífsstig og eru með _ _u M tvo spilastokka, leiknum lýkur svo þegar annar þeirra er búinn að tapa öllum sínum stig- um. „Annars er fjöldi spilara ótak- markaður þótt hann fari sjaldnast hátt yfir hundrað," segir Árni. „Út- færslurnar á leikn- Sagan á spilun- um gerist í heimi fantasíu og ókinda. Tveir galdra- menn glíma um yfirráð. um eru margskonar, stundum eru aðeins notuð spil sem fást í búðum og stundum má nota spil sem útgáfu er hætt á.“ Þess má geta að nokkur tákn eru á hverju spili sem segja til um gildi þess og hvenær megi spila því út. Svarta lótusblómið dýrast Hann segir að dýrasta spilið hjá söfnurum sem hætt er að framleiða heiti Black Lotus eða Svarta lótusblómið og kosti u.þ.b. þrjá- tíuþúsund krónur á fomsölu en það er teikn- að af Christopher Rush. Það er gott dæmi um hvernig spilamennskan og söfnunar- áráttan sameinast í eitt. Skrásetningin í íslandsmótið er hafín og er hún á öllum helstu sölustöðum eins og Fáfni á Hverfísgötu og Míþríl á Skólavörðu- stíg í Reykjavík, Bókabúð Jónasar á Akur- eyri, Jack & Jones á Selfossi og Bókabúð Keflavíkur. Ámi segist reikna með um 120 spilurum á mótið á aldursbilinu 14-24. Fjórir efstu á mótinu verða svo sendir til Seattle í Bandaríkjunum í ágúst á heimsmeistaramót safnkortaspilara. „Spilið felst ekki í hlutverkaleikjum eða að .,drepa“ andstæðinginn," bætir Árni við lok- um, „hinsvegar örvar það ímyndunaraflið með sögu og myndum.“ Blaðberasystkinin sjö og mamma þeirra í Eyjum SYSTKININ sjö að Bröttugötu 9 í Vest- mannaeyjum ólustu upp með Morgunblaðið i höndunum. Þau hafa til skiptis verið blaðber- ar í samfellt 20 ár. Elsta barnið byrjaði að bera blaðið út árið 1977 og síðan hafa þau tek- ið við hvert af öðru. Núna hefur sá yngsti verkið á sinni könnu en systir hans sem er næst yngst hjálpar honum. Systkinin Tómas, f. 1967, Lúðvík, f. 1969, Steingrímur, f. 1973, tvíburamir Hjalti og Hlynur, f. 1974, Helga, f. 1980, og Sæþór, f. 1983, eru böm hjónanna Geirrúnar Tómas- dóttur og Jóhannesar Kristinssonar, sem lést 1990. Geirrún segir að Tómas hafí sem smá peyi farið að hjálpa bömum Helgu systur sinnar við blaðburðinn og þegar hann var átta ára hafí hann beðið Sigurgeir, umboðsmann í Eyjum, um að fá að bera út. Ekki gekk það eftir þá, en tveimur ámm síðar fékk hann starfið og síðan hefur blaðburðarstarfið haldist óslitið innan fjölskyldunnar. Krakkam- ir sem höfðu verkið með hönd- um tóku alltaf yngri systkinin með þegar þau fóm að bera út, fyrst í kerm, en síðan fóm þau að hlaupa með. Þau hafa allan tímann verið með sama hverfið en stundum bætt við sig þegar tvö eða fleiri vora á blaðburðar- aldri. Til dæmis hafa Hjalti, Hlynur og Steingrímur borið saman út, Lúðvík og Tómas, og síðast Helga og Sæþór. Geirrún segir að yfirleitt hafi þau verið með 30 til 70 blöð og götumar þeirra hafi verið Heið- arvegur, Strembugata, Illuga- gata, Hátún og Brattagata. Við- miðið hafi verið að hætta að bera út um fermingu því þá hafi þau komist í bæjarvinnuna á sumrin. Röflgjaldið Geirrún segir að blaðburðurinn hafi gengið vel öll árin og sjálf hafi hún aldrei orðið leið á þessu. Þótt krakkamir hafi verið duglegir segir hún að eftirlitið hafi mætt á sér. Til dæmis segist hún alltaf hafa verið með svo- kallað röflgjald. Röflgjaldið dró hún af laun- unum ef krakkarnir voru löt að koma sér af stað og voru að tuða yfir að þau nenntu ekki að fara. Öll börnin hafa verið mikið í íþróttum, tveir bræðumir, Hjalti og Steingrímur leika nú með knattspyrnuliði ÍBV, Hlynur er mark- vörður HK í handbolta, Lúðvík leikur knatt- spymu með Haukum og Sæþór spilar með 4. flokki IBV í knattspyrnu. Geirrún segir að íþróttirnar hafi oft tekið tíma frá blaðburðin- um. Það hafi því oft verið þannig að blaðburð- arbömin hafi verið í keppnisferðum uppi á landi í tvo og þrjá daga í einu og þá hafi hún séð um útburðinn á meðan. Geirrún segir að ef til vill hafi hlaupin með Moggann verið fyrsta þjálfunin sem krakkarnir fengu og lagt granninn að getu þeirra í íþróttum síðar. Geirrún Tómasdóttir, móðir sjö systkina í Eyjum sem hafa borið Morgunblaðið út samfellt í 20 ár, sagði Grími Grímssyni, að hún sjálf og börnin hefðu haft bæði gagn og gaman af starfínu. Geirrún segir að krakkarnir hafi þurft að skipuleggja tíma sinn vel. Á veturnar þurftu þau að nota fyrsta frítíma frá skólanum til að koma Mogganum til áskrifenda. í vetur fór Geirrún með Sæþóri í hádeginu til að bera út, því hann var í skólanum til klukkan hálf eitt og átti að vera mættur aftur hálftíma síðar. Saman fóru mæðginin með blöðin í bílnum og áttu ánægjulegar samverustundir. Dreifði blöðum yfir pabba sinn Geirrún minnist ýmissa skemmtilegra at- vika sem tengjast blaðburði fjölskyldunnar. „Fyrstu árin þegar Lúðvík var að byrja að bera út kom fyrir að þrjú blöð bárast í einu, enda samgöngur ekki eins góðar og nú. Eitt sinn komu ekki blöð í þrjá daga. Loksins þeg- ar þau komu og allur bunkinn var kominn inn á gólf ásamt lesbók og aukablöðum fór Tómas að stinga aukablöðunum inní og gera sig klár- an fyrir að bera hrúguna út. Jói, faðir hans, hafði gaman af að stríða honúm og var að arg- ast í honum hvernig þetta væri hvort hann færi ekki að fá blaðið sitt. Þegar strák fannst nóg komið af stríðninni stormaði hann inn í stofu með blöðin þrjú ásamt aukablöðum og fleygði þeim með mikilli sviflu upp í loft svo þau svifu um alla stofuna og lentu á víð og dreif um stofugólfið. Tilkynnti hann pabba sín- um, all hressilega, að héma hefði hann blöðin. Jói varð að eyða löngum tíma í að tína blöðin upp og finna út úr að raða þeim saman á ný.“ Neitaði að taka þátt í kortavæðingunni Þegar áskrifendum var boðið að greiða með greiðslukortum vora blaðburðarböm beðin að fara með bæklinga þar sem áskrifendum var gefinn kostur á að setja áskriftina á kort í stað þess að blaðburðarbömin gengju í hús og innheimtu. Sonur Geirrúnar neitaði, hann vildi innheimta með gamla laginu og halda persónulegu sambandi við fólkið. Auk þess gaf innheimtan oft vel því sumir höfðu fyrir sið að gefa honum góðgæti þegar hann koma að rukka. Hann var fastur fyrir, fór ekki með bæklinginn, en sagði að ef fólk vildi setja áskriftina á greiðslukort gæti það haft framkvæði að því sjálft. Á hlaupum undan hundi Geirrún segir að stundum hafi hundar traflað útburðinn. Einu húsi man hún eftir þar sem hundur var jafnan bundinn við útdymar. Það kom í hlut Stein- gríms, sem var mjög sprettharð- ur þá eins og nú, að fara með blaðið í húsið. Hann náði yfirleitt að henda blaðinu inn og taka á sprett undan hundinum. Eitt sinn fór þó svo að þegar hann tók á rás kom hundurinn á eftir honum og í stað þess að stoppa eins og venjulega þegar strekkt- ist á bandinu hélt hann áfram. Steingrímur kastaði sér því yfir garðvegg, hundurinn kom á eftir, sinnti þó ekkert um Steingrím, hljóp bara áfram og hvarf út í bæ. Steingrímur, sem var alsaklaus, var skammaður af tveim vegfarendum fyrir að hafa leyst hundinn. Gagn og gaman af útburðinum Annars segir Geirrún að fjölskyldan eigi bara góðar minningar um þann tíma sem hún og Morgunblaðið hafi átt samleið. „Við höfum verið heppin með hverfi þar sem áskrifendur hafa yfirleitt borgað áskrift sína fljótt og vel og samvinnan við umboðsmenn Morgunblaðsins, Jöggu og Sigurgeir, hefur verið ákaflega skemmtileg og góð. Krakk- arnir hafa haft gott af þessu. Þau hafa með blaðburðinum náð að sjá sér sjálf fyrir vasa- peningum og því lært fljótt að vinna fyrir sér. Þó einstaka sinnum hafi verið kvartað hefur kvabbið ekki verið mikið. Við höfum öll haft bæði gagn og gaman af því að bera út Morgunblaðið. Annars hefðum við ekki stað- ið í því tvo áratugi." Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson SYSTKININ sjö sem borið hafa Morgunblaðið út í 20 ár ásamt móður sinni. Frá vinstri: Iljalti, Steingrímur, Geirrún, Lúðvík, Helga, Tómas og Hlynur. Sæþór situr fyrir framan á Morgunblaðskerrunni. á sjúkrahúsum í fjölda ára og læknar hafa lengi þekkt mik- ^ ilvægi þeirra. Fyrir nokkrum J™ áram var ákveðið að koma slíkum tækjum einnig fyrir í sjúki-abílum og þjálfa sjúkra- flutningamenn í notkun þeirra, því þeir koma fyrstir að sjúklingi og hver mínúta skiptir máli þegar um hjartastopp er að ræða. Hálfsjálf- virkt hjartastuðtæki var fyrst tekið í notkun í sjúkrabíl í Reykjavík fyr- ir fjóram árum, fyrir tilstuðlan Gests Þorgeirssonar hjartasér- fræðings á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og yfirlæknis neyðarbíls. Slík tæki eru nú einnig á Slökkvistöðinni í Hafnarfirði, Slökkvistöðinni í Ár- bæ, Slökkvistöð Reykjavíkur við Skógarhlíð, á Akureyri og í Reykjanesbæ. Sjúkraflutninga- menn fá leyfi til að nota hálfsjálf- virk hjartastuðtæki að loknu tveggja daga námskeiði og æfa auk þess notkun þeirra á tveggja til þriggja mánaða fresti. Að sögn Garðars Sigurðssonar, umsjónarlæknis neyðarbíls, er ár- angursríkast að gefa hjartastuð þegar taktur hjartsláttarins er svo- kallað sleglatif. Þá er einhver raf- virkni til staðar í hjartanu en svo óregluleg að það getur ekki pump- að eðlilega. Enn er líf í hjartanu, þó það sé ekki nógu kröftugt til að það geti snúið aftur til eðlilegs takts án þess að fá rafstuð. Um helmingur hjartastöðvunarsjúklinga er með sleglatif þegar komið er á vettvang og um þriðjung þeirra sem fá stuð undir þessum kringumstæðum tekst að endurh'fga. Brýnt að beita rafstuði fljótt „Þetta er langöflugasta meðferð- in sem til er í dag við hjarta- stoppi,“ segir Garðar. „Sé hjarta- hnoði og blæstri beitt aukast lífslíkur sjúklinga tvöfalt til þrefalt, en það dugar sjaldan ein- göngu. í neyðarbílnum er alltaf læknir af lyflækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Því er einnig hægt að beita lyfjagjöf í slíkum tilvikum og það hjálpar mjög mikið. Undanfarin ár hafa ýmsar breytingar verið gerðar á þeim fyrirmælum sem bandarísku hjartalæknasamtökin hafa sett þar að lútandi en þær hafa þó ekki skilað bættum árangri í endurlífg- un. Reynslan sýnir að það sem virkilega skiptir máli er hversu fljótt er farið að beita hjartastuði og það höfum við staðfest með ís- lenskum rannsóknum. Þessvegna er mjög mikilvægt að hjartastuð- tæki séu til staðar á útstöðvum þannig að unnt sé að nota þau sem fyrst. Þá er vonandi hægt að hafa útkallstímann sem stystan, en bestur árangur næst ef hann er ekki lengri en fjórar til sex mínút- ur. Ef útkallstími er lengri skiptir enn meira máli að vitni beiti strax hjartahnoði og blæstri.“ Nákvæmni og öryggi Tækið er hálfsjálfvirkt, sem þýð- ir að það greinir hjartsláttartakt sjúklingsins og metur sjálft hvort nauðsynlegt sé að gefa stuð, en ýta þarf á takka til að gefa það. Tækið er svo nákvæmt að það greinir hvort einhver snertir sjúklinginn og hreyfir við honum eða hvort leiðslurnar eru lausar. Það á að vera 99% öraggt, en þrátt fyrir það era sjúkraflutningamenn hér á landi menntaðir til að lesa hjarta- línurit og þekkja þann takt sem stuða má á, til að fyllsta öryggis sé gætt. Tækið er bara notað á fólk sem er öragglega í hjarta- og önd- unarstoppi og því eru mjög litlar líkur á að það valdi nokkum tíma skaða. „Hjartastuðtæki hafa mjög mikla þýðingu í öllum endurlífgun- araðgerðum,“ segir Garðar. „í Bandaríkjunum hefur verið lagt til að slíkum tækjum verði fjölgað og þau sett upp á stöðum þar sem saman kemur mikið fjölmenni, til dæmis á íþróttaleikvöngum og flugvöllum. Jafnvel er rætt um að kenna þá leikmönnum líka á tækin en ekki eingöngu sérmenntuðu fólki. Það segir nú kannski mest um hvað tækin eru orðin örugg og þýðing þeirra mildl.“ Heitir pottar mótaðir úr akrýl, níðsterkir, hita- og efnaþolnir og auðveldir að þrífa. Margar gerðir. Verð frá kr. 89.133 stgr. Trefjar ehf. Hjallahrauni 2, Hafnarfirði, sími 555 1027.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.