Morgunblaðið - 13.06.1997, Page 1

Morgunblaðið - 13.06.1997, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1997 gKmrguttMð&fö ■ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ BLAD SNÓKER / EVRÓPUMÓTIÐ Kristján ætlar að sigra Kristján Helgason, íslandsmeistar- inn í snóker síðustu fjögur árin heldur ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni til Frakklands eftir helgina til að taka þátt í Evrópumótinu í snóker. í fyrra varð Kristján í öðru sæti og hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann væri ekki að fara á mótið núna til að verða aftur í öðru sæti, stefnan væri að sjálfsögðu sett á sigur. „Allt annað en sigur er lélegt,“ sagði Krist- ján. Kristján hefur æft mjög vel að undanfönu og segja þeir sem til hans hafa séð að trúlega hafi hann aldrei verið betri og ekki sé óalgengt að sjá hann hreinsa borðið eða svo gott sem. Ásgeir fer á Evrópumótið í forföllum Jóhannesar B. Jóhannessonar. ■ Fer ekki.../ C3 Huffins byrj- ar vel í tug- þrautinni CHRIS Huffins er með forystu eftir fyrri keppnis- dag f tugþraut á bandaríska meistaramótinu í fijáls- íþróttum sem hófst á miðvikudaginn í Indianapolis. Huffíns sem hafnaði í 10. sæti í tugþrautarkeppni Ólympíuleikanna í fyrra, fékk þá 8.300 stig, hefur hlotið 4.499 stig, en hafði að loknum fyrri degi á Ólympíuleikunum önglað saman 4.448 stigum. Þess má til gamans geta að þegar Jón Amar Magnússon setti íslandsmet sitt í Götzis á dögunum, 8.470 stig, hafði hann fengið 4.493 stig að loknum fyrri degi. Annar í þrautinni er Steve Fritz sem hafnaði í ijjórða sæti á Ólympíuleikunum í fyrra, hefur náð saman 4.334 stigum. „Ég er á góðu róli,“ sagði Huffins er hann kast- aði mæðinni eftir 400 m hlaupið, síðustu keppnis- grein fyrri dags tugþrautarkeppninnar. Grunninn að þessum góða árangri á fyrri keppnisdegi lagði hann í tveimur fyrstu greinum dagsins er hann hljóp 100 m á 10,35 sek., og stökk 7,79 m í langstökki, en til samanburðar má geta þess að hann hljóp 100 m í Atlanta á 10,47 sek., stökk 7,49 m í langstökki. Jackie Joyner-Kersee heimsmethafi kvenna í sjö- þraut er ekki á meðal keppenda fremur en margir af fremstu fijálsíþróttamönnum Bandaríkjana. Kym Carter er efst í sjöþrautinni eftir fyrri dag með 3.854 stig. Ekki var keppt til úrslita í neinni grein á fyrsta keppnisdegi meistaramótsins en í undankeppni kúlu- varpsins varpaði C.J. Hunter lengst 20,73 m og Jonny Gray, fékk besta tíma keppenda í 800 m hlaupi í undanrásum 1.47,68 mín. K | i FRJÁLSÍÞROTTIR Ekki sótt um undan- þágu fyrir Johnson og félaga Nefnd á vegum bandaríska fijáls- íþróttasambandsins ákvað í gær að breyta ekki reglum sínum við val á keppendum fyrir heims- meistaramótið sem fram fer í Aþenu í ágústbyijun. Þar með er ljóst að ekki verður sótt undanþágukeppnis- beiðni fyrir Michael Johnson, Dan O’Brien, Mike Powell og Gwen Torr- ence eins og væntingar voru um á tímabili, en sem kunnugt er keppa þau ekki á bandaríska meistaramót- inu sem nú stendur yfir í Indiana- polis vegna meiðsla. í tilkynningu frá bandaríska fijáls- íþróttasambandinu sagði hins vegar að það myndi ekki setja sig upp á móti að Alþjóða fijálsíþróttasam- bandið byði bandarískum heims- meisturum frá síðasta móti keppnis- rétt. Johnson varð sem kunnugt er tvöfaldur heimsmeistari í Gautabrog árið 1995 og O’Brien og Torrence sigruðu í einni grein hvort. Ekkert hefur verið gefið til að kynna um að af þessu boði til íþróttamannanna verði. „Niðurstaða okkar varð sú að ekki væri hægt fyrir okkur að breyta þeim reglum sem við höfum farið eftir við val á keþpendum á heims- meistaramót," sagði Bill Roe, einn varaforseta fijálsíþróttasambands Bandaríkjanna, að fundi loknum í gær. „Nú hefur alþjóðasambandið valið." Talsmaður Alþjóða fijáls- íþróttasambandsins, Giorgio Reineri, sagði að það myndi taka málið til skoðunar en gaf ekkert til kynna um til hvaða niðurstöðu sú skoðun gæti leitt. Morgunblaðið/Ásdís Hrap niður heimslistann MARKALAUST jafntefli íslands og Litháen á Laugardalsvelli í fyrrakvöld voru mikil vonbrigði. Og ekki bara úrslitin heldur frammistaða íslenska liðsins. Þessi mynd er e.t.v. dæmigerð fyrir leikinn; Bjarki Gunnlaugsson hugðist spyrna knettinum á lofti með tilþrifum að marki, í stað þess að taka hann niður, en hitti ekki knöttinn. ísland er í 76. sæti nýjasta heimslista alþjóða knattspyrnusambandsins frá því í maí en á sama tíma í fyrra, áður en keppni íslendingar hófu leik í áttunda riðli heimsmeistaramótsins, voru þeir í 52. sæti. í október 1995 var ísland hins vegar í 44. sæti listans. KÖRFUKNATTLEIKUR: JORDAN VEIKUR EN LÉK STÓRKOSTLEGA / C4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.