Morgunblaðið - 13.06.1997, Síða 4

Morgunblaðið - 13.06.1997, Síða 4
4 Smellufauxur Ballar Skár Kringlunni 8-12 • Sími 568 6010 mm ■ LORENZO Sanz, forseti Real Madrid lýsti í gær yfir áhuga fé- lagsins á að kaupa brasilíska fram- heijann frábæra Ronaldo frá erki- fjendunum Barcelona. ■ „VERÐI ekki af því að Inter kaupi hann höfum við áhuga,“ sagði Sanz eftir fund með Giovanni Branchini, umboðsmanni Ronaldos og framheijans Davors Suker, sem leikur með Real. Inter er þó enn talið líklegast til að kaupa Ronaldo. ■ REAL Madríd gæti tiyggt sér spænska meistaratitilinn í knatt- spymu um helgina. Láðinu nægir eitt stig gegn erkifjendunum í At- letico Madrid en Fabio Cabello, segir þó of snemmt að fagna. „Fólk sem farið er að tala um veisluhöld og fagnaðarlæti er bijálað,“ sagði hann. ■ ANDY Gray, sjónvarpsmaður hjá Sky Sports, er nú orðaður við starf knattspymustjóra hjá Ever- ton. Hann lék með liðinu á sínum tíma. ■ MESTAR líkur eru nú taldar á að Chic Bates taki við starfí knatt- spymustjóra hjá Stoke City - sem Lárus Orri Sigurðsson leikur með - af Lou Macari, sem hætti i vor. Bates var einn aðstoðarmanna Mac- aris. ■ ÍTALIR eru himinlifandi með frammistöðu landsliðs síns á Frakk- landsmótinu, þó svo liðið hafi gert tvö jafntefli og tapað einum leik. Bæði gamla kempan Gigi Riva, markahæsti landsliðsmaður ítala og Marco Tardelli, einn heimsmeist- aranna frá 1982, telja leikinn við Brasilíu (3:3) einn af þeim fimm bestu sem nokkru sinni hafí farið fram. ■ SÆNSKA úrvalsdeildarliðið Örebro hefur keypt júgóslavneskan framheija, Dragan Djucanovic, sem leikið hefur í Grikklandi. Hann er 27 ára. Sigurður Jónsson, Arn- ór Guðjohnsen og Hlynur Birgis- son leika sem kunnugt er með Örebro. ■ COLIN Todd, knattspyrnustjóri Bolton - liðs Guðna Bergssonar - hefur fylgst með danska framheij- anum MLklos Molnar, markahæsta manni dönsku úrvalsdeildarinnar. ■ TOMMY Burns, fyrrum knatt- spymustjóri Celtic, er á leið til Newcastle þar sem hann á að stjórna uppbyggingu unglinga- starfs. Burns lék á sínum með Kenny Dalglish, knattspymustjóra Newcastle, hjá Celtic. ■ DAVE Bassett, knattspyrnu- stjóri Nottingham Forest, hefur keypt franska varnarmanninn Thi- erry Bonalair frá Neuchatel Xam- ax í Sviss á 400.000 pund. Bonal- air samdi til tveggja ára við Forest. skrifar frá Bandaríkjunum FRAMMISTAÐA Michaels Jordans í fimmta leik Utah Jazz og Chicago Bulls á miðvikudag mun sennilega verða talin sem ein sú sögulegasta í sögu úr- slitakeppni NBA-deildarinnar. Kappinn fékk slæma maga- kveisu aðfaranótt miðvikudags og var lítt til stórræðanna lík- legur allan daginn. Þegar upp var staðið hafði hann þó skor- að 38 stig, þar af mikilvægustu körfu leiksins á lokamínútunni. Chicago sigraði 90:88 og meistararnir hafa nú 3:2 yfir í einvíginu um titilinn. Utah hafði jafnað upp keppni liðanna með tveimur góðum heimasigrum. Það voru ekki margir sem veðjuðu gegn Gunnar Utah eftir 23 heima- Valgeirsson sigra í röð og slakan leik Chicago undan- farið, en Jordan var á annarri skoðun. Hann fékk slæman vírus á þriðju- dag og fékk lítinn svefn, þar sem hann kastaði upp alla nóttina. Hann lá í rúminu mestallan daginn fyrir leikinn og hafði litla matarlyst. „Ég hef aldrei Séð hann jafn slæman og í dag. Það var hreint ótrúlegt að hann gat leikið eins mikið og hann gerði,“ sagði Scottie Pippen eftir leikinn. Utah byrjarvel Þessi fímmti leikur liðanna var skemmtilegur, enda um lykilleik að ræða fyrir bæði lið. Utah náði 16 stiga forystu í fyrri hálfleik, 34:18, en Chicago minnkaði muninn þegar Karl Malone fékk hvíld í öðrum leik- hluta. Leikurinn var mun jafnari í seinni hálfleik og staðan var 85:85 þegar um mínúta var til leiksloka. Á lokaminútunni var það hinsvegar leikreynsla meistaranna sem réð baggamuninn og Chicago vann 90:88. Jordan skoraði þriggja stiga körfu um 40 sekúndum fyrir leiks- lok þegar varnarmenn Utah yfír- gáfu hann til að einbeita sér að Scottie Pippen, sem var með bolt- ann. Þann mun náði Utah aldrei að vinna upp. Chicago hefur ekki tapað þremur leikjum í röð síðan 1990. Jordan tekur yfir leikinn Lykillinn að sigri Chicago var leikur Jordans. Hann var dasaður í fyrsta og þriðja leikhluta, en í fjórða leikhlutanum tók hann leik- inn í sínar hendur þrátt fyrir að virðast uppgefinn og skoraði 15 stig. Hann sýndi lítil svipbrigði hið ytra, en hið innra er brennandi keppnisskap sem venjulegur magavírus hefur lítil áhrif á. Þessi frammistaða kappans mun senni- lega auka enn á orðstír ofurmennis- ins í framtíðinni. Jordan treysti sér ekki til að mæta á blaðamannafund eftir leik- inn en ræddi stuttlega við frétta- mann NBC-sjónvarpsstöðvarinnar þegar hann yfirgaf leikvöllinn. „Ég var alveg uppgefínn í hálfleik og sagði við þjálfarann að ég gæti sjálfsagt aðeins leikið á köflum í seinni hálfleik. Ég fann samt ein- Reuter MICHAEL Jordan skorar tvö af 38 stigum í fimmta leiknum gegn Utah. Mlðherjlnn Greg Ost- ertag er til varnar. Þrátt fyrir að hafa verið fárvelkur lék Jordan í 44 mfnútur af 48 og var frábær. hversstaðar orku til að klára leik- inn,“ sagði hann. Karl Malone náði sér aldrei á strik fyrir Utah. Hann „týndist" í seinni hálfleik og tók mörg slæm skot, sem er óvenjulegt fyrir hann. Malone skoraði 19 stig, en aðeins sex í seinni hálfleik - þar af aðeins eitt í fjórða leikhlutanum. John Stockton skoraði 13 stig. Utah náði ekki að fylgja eftir góðri byijun og það gerði gæfumuninn. Jordan skoraði 38 stig sem fyrr segir og Scottie Pippen skoraði 17 stig. Þeir skoruðu 55 af 90 stigum Chicago. Ástralinn Luc Longley var traustur með 12 stig. Einn mikilvægasti sigurinn „Þeir byijuðu vel, en við náðum að halda í við þá í fyrri hálfleik. Ég held að þegar við lítum á leikinn í heild sé þetta einn mikilvægasti sig- ur sem ég hef verið viðriðinn sem þjálfari," sagði Phil Jackson, þjálfari Chicago. „Okkur tókst að gera það sem við vildum, sem var að vinna einn leik hér. Við vissum að Jordan væri í slæmu ásigkomulagi, en hann spilaði 44 mínútur og ég held að það segi allt sem þarf um hann,“ sagði Jackson og Scottie Pippen tók í sama streng: „Ég get ekki skilið hvernig Michael [Jordan] gat leikið eins og hann gerði. Við hinir hefðum átt að leika mun betur en við gerð- um, en hann fann einhversstaðar orku til að ýta undir okkur í kvöld. Við sýndum hvemig meistarar bregðast við þegar illa lítur út og munum leika betur á föstudag." Karl Malone sagði: „Ég er að sjálfsögðu eyðilagður núna, en mað- ur verður að rífa sig upp fyrir föstu- dag. - Þeir spiluðu vel í lokin og það gerði gæfumuninn. Ég átti af- leitan leik og klúðraði of mörgum skotum í seinni hálfleik. Það þýðir ekkert að hugsa of mikið um þenn- an leik núna. Það verður að sjálf- sögðu erfítt að vinna í Chicago, en við verðum að hafa trú á því að við getum unnið alveg eins og þeir höfðu þegar þeir komu hingað.“ Fimmti titillinn? Búast má við að leikmenn Chicago komi grimmir til leiks á heimavelli í nótt. Ekkert lið hefur unnið tvo útileiki í röð í lokin til að vinna titilinn. Chicago tapaði aðeins tveimur heimaleikjum allt keppnistímabilið og hefur ekki tap- að í United Center í úrslitakeppn- inni. Fimmti titill liðsins virðist óumflýjanlegur. KORFUKNATTLEIKUR Jordan stórkostlegur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.