Morgunblaðið - 11.07.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.07.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1997 B 7 AGUST ELVARSSON RAGNHILDUR JONSDOTTIR Eitt af því sem setti hvað mestan svip á hátíðar- höldin þegar Hornfírðingar héldu upp á aldar- afmæli byggðar á Höfn í Hornafírði um síðustu helgi var heimsmeistaramót í Hornfjarðar- manna. Sigrún Birna Birnisdóttir fylgdist með 300 keppendum og talaði við nokkra þeirra eftir að þessari nýstárlegu keppni var lokið. Líflegt í íþróttunum firði, Jón Gunnar Sigurjónsson frá Neskaupstað og Björn Gísli Amar- son úr Hornafirði. Aðspurður sagði Albert að það hefði ekki komið sér á óvart að utanbæjarmaður sigraði í Hornafjarðarmannanum. „Nei, nei, þetta kom mér ekkert á óvart af því að þetta byggist mikið á heppni og því stóðu allir jafnt að vígi.“ Fjölmörg verðlaun voru veitt á mótinu. Fyrstu verðlaun voru humarskál sem Agnes Eymunds- dóttir átti hugmyndina að en Jónas Bragi Jónasson, glerlistamaður í Kópavogi, útfærði og smíðaði. í staðinn fyrir verðlaunapeninga fengu svo þeir sem voru í þremur efstu sætum listaverk til að hengja um hálsinn. „Það var ung listakona héðan, Nanný, sem gerði gripina. Hún bjó til fjögur spil úr leir og setti þau saman. I stað þess að á þeim stæði fyrstu, önnur og þriðju verðlaun voru þetta ás, tvistur og þristur með myndum héðan úr Hornafirði. Einnig voru fyrstu og önnur verðlaun utanlandsferð og þriðju og fjórðu verðlaun flug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar." Albert segir alla hafa verið til- búna að leggja sitt af mörkum varð- andi verðlaunin. „Það tóku þrjú hundruð manns þátt í mótinu og við gátum veitt 180 verðlaun. Að lok- um vil ég taka fram að heimsmeist- aramótið verður framvegis haldið á humarhátíð." N otalegt mannlíf RAGNHILDUR Jónsdóttir flutti ásamt foreldrum sínum frá Borg- arfirði eystri til Hornafjarðar, þeg- ar hún var þriggja mánaða gömul. Hún býr nú á Hornafirði ásamt eiginmanni sínum og dætrum sem hún kallar tvö einbirni, fímmtán ára og þriggja ára. Ragnhildur tók þátt í mannanum um helgina og Morgiinblaðið/Jim Smart JOELLE Annat og klukkan góða, á arinhillu eins og vera ber. og þegar þau dóu fyrir tíu árum erfði faðir mimi húsið þeirra og allt sem í því var,“ heldur hún áfram. Umrætt hús er í miðaldaþorpinu Entraygues-sur-Truyere í Suður- Frakldandi og nýtist íjölskyldunni nú sem sumarhús. Joelle fæddist í París en kom til landsins á vængj- um Amors fyrir þremur árum. í dag heldur hún heimili með norsk-íslenskum skógarketti og sér sjálfri sér farborða með því að taka á móti frönskum ferðamönn- um, þótt lögfræðimenntuð sé. „Þekking á frönskum Iögum nær skammt á íslandi og því hef ég reynt að hasla mér völl í ferða- þjónustu," segir hún. ísland kostum búið Leiðsaga um landið kemur til greina en Joelle hefur jafnframt hug á að kenna Islendingum frönsk viðskipta- og lagahugtök, því frekari dvöl á landinu er vel hugsanleg að hennar sögn. „Marg- ir Islendingar eru heillaðir af Parfs en þar er hávaði og stress og ekki alltaf auðvelt að búa,“ segir hún og veltist um af hlátri þegar minnst er á að mörgum þyki Reykjavík einmitt sama marki brennd. „Það var ekki auðvelt að koma til íslands og tók mig nokkurn tíma að venjast lífinu hér. Kostimir eru hins vegar margir og hér vil ég vera, að minnsta kosti enn um sinn.“ hke eg7r«agn- var spurð um spilamennsku sína og mótið. „Það hefur verið spilaður Horna- fjarðarmanni á heimili foreldra minna í gegnum tíðina og ég hef aðallega spilað hann þar en ekki mikið annars staðar. Á heimili þeirra er kannski ekki spilað alveg á hverjum degi en allt að því. Mér fannst alveg ofsalega gam- an á mótinu. Hugmyndin var frá- bær og hann Albert er búinn að gera þetta að svo stórkostlegum hlut. Hann er alveg ótrúlegur. Svo var skipulagið svo flott og allt gekk átakalaust. Verðlaunagripurinn var frábær og spilin sem hann lét búa til, þetta var bara alveg meiri- háttar.“ Kom alltaf heim á sumrin Ragnhildur bjó á Höfn þar til hún hélt til náms að loknu grunn- skólanámi. „Ég fór fyrst í Mennta- skólann á Akureyri, síðan í þroska- þjálfaskólann og tók svo BÁ próf í sérkennslu við KHÍ. Þegar ég hafði lokið því kom ég til baka til Hafnar og hef verið héma síðan. Ég stai’fa sem sérkennslufulltrúi á nýju skólaskrifstofunni þar sem ég er með ráðgjöf við kennara. Ég hef í gegnum tíðina verið með þessa krakka sjálf en nú er ég með ráð- gjöf við kennara í skól- unum á svæðinu.“ Var það aldrei spurning hvort þú kæmir aftur til Hafnar að loknu námi? „Nei, það var einhvem veginn aldrei nein spurning. Ég kom alltaf heim á sumrin að vinna og það kom bara einhvern vegin aldrei neitt annað til greina. Það er alveg rosalega fínt að búa hér. Það sem mér finnst svo gott er fyrst og fremst mannlífíð sem er svo notalegt. Mér finnst líka stærð bæjarins orðin alveg passleg. Hann er orðinn það stór að menn era ekki lengur með nefið ofan í hvers manns koppi. Fólk veit ekki lengur um allar gerðir þínar á hverjum tíma. En bærinn er samt nógu lítill til þess að maður getur fylgst með flestum sem koma manni við. Það er svo auðvelt og gott að halda tengslum héma. Fólk er líka svo notalegt í viðmóti. Svo finnst mér líka mjög gott að ala upp börn hérna því umhverfið er svo öraggt. Ef krakki týnist get- urðu verið viss um að hann endar alltaf hjá einhverjum sem þekkir hann og getur hringt eða komið með hann heim. En auðvitað lenda böm þó í slysum hér eins og ann- ars staðar." Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Það var mikið fjör á Humarhátíð á Hornafirði 5 'h&tti alverr u0tgUnblaðia/u . se*rú- ÁntiJ fiSapfe’ýhftc en var að rifja það upp í morgun.“ Aðspurður hvernig væri að vera unglingur á Höfn sagði Ágúst það vera alveg ágætt. „Það mætti samt alveg bæta aðeins við félagslífið og svona. Það er til dæmis ekki stór bíósalur hérna og bíómyndimar era sýndar svolítið eftir á. Mér finnst eiginlega oft- ast skemmtilegast að vera í Reykjavík af þvi það er meira hægt að gera þar, en það er ágætt hérna, svona oft- ast. Þegar það er skóli förum við á diskótek. Héma í Sindrabæ er líka félagsmiðstöð opin einu sinni til tvisvar í viku þegar skólinn er. Svo förum við krakkamir bara út og svona. Á sumrin fóram við stundum inn í Bergá að synda og svoleiðis." Ertu í vinnu? „Ég hef unnið svona smá í bæn- um í Gott í gogginn á Laugavegin- um. Hérna fer ég stundum á sjó með pabba en æ . . . , ég æli alveg ógeðslega mikið. Þannig að ég hjálpa honum kannski ekki mikið.“ Iþróttalíf barna og unglinga er líflegt á Höfn. Ágúst er í fótbolta, en hefur ekki getað æft mikið í sum- ar því hann meiddist í byrjun sum- arsins og svo hefur hann verið að vinna í Reykjavík. „Ég æfi líka körfubolta en ekki á sumrin. Ég æfði h'ka fleiri íþróttir en er hættur núna.“ ÁGÚST Elvarsson er þrettán ára Hornfirðingur sem tók þátt í heims- meistaramótinu í Homafjarð- armanna um helgina. Hann komst í 27 manna úrslit en eftir það segir hann að ekki hafi gengið nógu vel. „Ég datt út en veit ekká í hvaða sæti ég lenti." Varstu eitthvað búinn að æfa þig eða ertu vanur því að spila mannaj „Nei, ég æfði mig ekki neitt. Ég kunni þetta ekki einu sinni fyrr en í dag. Jú, ég hef einhvem tíma spilað þetta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.