Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 B 3
DAUNILLA rósin við Columbus Avenue.
ÞAÐ er hvítlaukur í ísnuin!
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Hanna Katrín
pott og látið sjóða.
Takið þá pottinn af
hellunni. Þeytið
saman sykur og
eggjarauður. Hellið
mjólkurblöndunni
rólega í eggjaþeyt-
una og hrærið
stöðugt í á meðan.
Setjið blönduna aft-
ur á helluna og
hrærið stanslaust yf-
ir vægum hita þar til
blandan þykknar
(tekur svona 10-15
mínútur). Kælið
blönduna í ísbaði og
bætið þeyttum rjóm-
anum út í. Frystið.
Að lokum, það er
sagt að það virki vel
að tyggja lítið stein-
seljubúnt eftir hvít-
lauksneyslu. Það er
að segja kæri mað-
ur sig yfirhöfuð um
líðan fólks sem ekki
þykir hvítlaukslykt
góð.
fyllist matarfíkn og aðra sem eru
vinnusjúkir, valdasjúkir eða spila-
sjúkir. Enn aðrir ánetjast fjárhættu-
spilum eða kynlífi."
Glfmt við reiðlna
Reiði er eitt af sjúkdómseinkenn-
um alkóhólisma að sögn Pálma og
við hana hefur hann þurft að glíma í
mörg herrans ár. Fyrir nokkrum ár-
um byrjaði Pálmi að hugleiða og
hann kynnti sér bókmenntir nýald-
arsinna, m.a. Celestine handritin,
sem fjallar um innsæi og að læra að
þekkja sjálfan sig. „Með hugleiðslu
fékk ég að vita að ég ætti erindi
norður í land, nánai- tiltekið að
Þeistareykjum, sem er
eyðibýli sunnan Reykja-
heiðar, en þangað hef ég
komið einu sinni áður.
Ég kvaddi því eiginkonu
mína og dæturnar tvær
og hélt til íslands. Eftir
að hafa þrammað um í
óbyggðum í tvo daga án
þess að hitta nokkurn
mann, var allt í einu sem
reiðin blossaði upp í mér.
Ég var búinn að loka
hana lengi inni, dauð-
hræddur um að gera eitt-
hvað illt af mér ef hún
brytist út. Það má
ímynda sér að reiðin hafi
verið í stálhjúp sem allt í einu
sprakk. Á þessu andartaki, einn uppi
á fjöllum, leyfði ég mér í fyrsta skipti
á ævinni að verða reiður. Ég varð al-
veg brjálaður, barði í hraunið, hróp-
aði, öskraði og æpti, en sem betur
fer heyrði enginn í mér nema rjúp-
urnar. Eftir stundarkorn, um það bil
fimmtán mínútur, var eins og reiðin
rynni af mér og allt féll í ljúfa löð.“
Pálmi telur slíkar öræfaferðir vera
algjört neyðarúrræði og ekki fyrir
hvern sem er. „FJjótlegast og best
væri náttúrulega að fá útrás inni í
stofu heima hjá sér en sumir eru svo
Ég varð alveg
brjálaður,
barði í hraun-
ið, hrópaði,
öskraði og
æpti, en sem
betur fer
heyrði enginn
í mér nema
rjúpurnar.
illa skemmdir að eitthvað í líkingu við
þetta þarf til. Á öræfum getur maður
ekki flúið sjálfan sig, til dæmis með
því að horfa á sjónvarpið, fá sér dóp,
borða eitthvað eða hringja í vinina.“
Pálmi er sífellt að leita nýrra leiða
íyrir skjólstæðinga sína sem hafa
lokið meðferð en eiga í vandræðum
með tilfinningar sínar. Hann segir að
svona óbyggðaferð gæti hugsanlega
hentað þeim. Það er þvi aldrei að vita
nema hann skipuleggi svipaðar ferðir
fyrir þá til íslands næsta sumar.
Bók um sársaukann
í haust kemur væntanlega út bók
eftir Pálma sem hann nefnir Sárs-
auki og fjallar um alkó-
hólisma og starf hans
sem meðferðarráðgjafi
undanfarin fimmtán ár.
Ásamt fjölskyldu sinni
hefur Pálmi hreiðrað um
sig í litlum bæ, Karise,
sem liggur um 60 km
norður af Kaupmanna-
höfn. Þar hefur hann
komið á fót lítilli stofnun
sem nefnist Isama og er
upplýsingabanki og þró-
unarmiðstöð fyrir fólk
sem er að kljást við eigin
tilfinningar. „Hjá mörgum
byija vandamálin fyrst
eftir meðferðina, þegar
blákaldur veruleikinn blasir við. Otal
tilfinningaflækjur koma upp á yfir-
borðið sem nauðsynlegt er að leysa úr
svo unnt sé að lifa eðlilegu lífi. Það er
nú einu sinni þannig að surnir þurfa
að ganga í gegnum ýmsar þrengingar
áður en þeir ná til fyrirheitna lands-
ins, líkt og Móses í eyðimörkinni forð-
um. Það land getur eins verið maður
sjálfur. Smám saman læri ég að
þekkja sjálfan mig og í leiðinni hjálpa
ég öðrum við eigin sjálfsskoðun. Mik-
ilvægast af öllu í lífinu er þó að vera
sáttur við sjálfan sig og að sætta sig
við það sem ekki fæst breytt.“
PEYSUJAKKAR í Chanel-stíl. Hönnuður Karl Lagerfeld.
Haldgóð
hönnun
TÍSKAN er sannarlega breyting-
um háð, hönnuðir þurfa að sýna
hugkvæmni í verki til að geta
stöðugt boðið upp á eitthvað nýtt.
Hönnuðir í fremstu röð sýna
afrakstur vinnu sinnar í það
minnsta tvisvar á ári. Það er ær-
inn starfi. Stöku sinnum verða
kúvendingar á þessu sviði, eink-
um þegar pilsfaldurinn færist
upp eða niður, eftir einhverjum
óútskýrðum lögmálum, með vissu
millibili.
Fyrir 70 árum, árið 1927,
kynnti franski hönnuðurinn Coco
Chanel sinn „Chanel“ jakka og
það sem meira er, jakkinn sá hef-
ur haldið sínu gildi og verið í
tfsku allar götur siðan. Það hlýt-
ur að vera heimsmet í endingu.
Eftir lát Coco Chanel tóku aðr-
ir við tískuhúsinu, síðast hefur
Karl Lagerfeld séð um að halda
hefðinni við. Smávægilegar
breytingar koma fram við og við,
en aðallína jakkans hefur alltaf
haldið sér.
TÍSKUHÖNNUÐURINN Coco
Chanel, myndin er tekin árið
1960.
Peysujakkarnir á myndunum
sem hér fylgja með, eru hönnun
Karls Lagerfeld, framlag hans til
tískunnar á komandi vetri, fýrir
tískuhús Chanel.
Það er óhætt að segja að ekki
sjást ellimerki á frumhönnun
Coco Chanel, þótt hún hafí verið
gerð fyrir 70 árum. Hún getur
allt eins átt eftir að endast önnur
70 ár, ef ekki lengur.
PEYSUSETT í Chanel-stíl hannað af Karl Lag-
erfeld, vetrarflfkur 1979-1980.
'jBnoe láútS
a:
9 .* • 9 # •
I •
• s
*« *
• » •
••••«•• i/\Yi>
«•#••••••#feV
#••••••##* ér L-
• * • ♦ * ♦ ♦ ###■
afiiæiniá práfaá
L)W U
n i
i j
'sOiUUiL-
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavfk • Sími: 581 4670
Umboðsaðilar um allt land
Akranes: Versl. Perla • Borgarnes: Rafstofan
Ólafsvík: Litabúðin • Stykkishólmur: Heimahornið
Patreksfjörður: Ástubúð • ísafjörður: Þjótur sf.
Drangsnos: Kf. Steingrimsfj. • Hólmavík: Kf. Steingrlmsfj,
Hvammstangi: Kf. V-Húnv. • Blönduós: Kf. Húnvetninga
Sauðárkrökur: Hegri • Sigluf jörður: Apótek Siglufjarðar
Ólafsf jörður: Versl. Valberg
Akureyri: Versl. Vaggan, Sportver
Húsavík: Kf. Pingeyinga • Egilsstaðir: Kf. Héraðsbúa
Neskaupsstaður: Lækurinn • Eskifjörður: Esklkjör
Höfn: Verslunin Lðnið • Hvoisvöllur: Kf. Árnesinga
Þorlókshöfn: Rás hf. • Vestmannaeyjar: Tölvubær
Garóur: Raflagnavlnnust. Sigurðar Ingvarssonar
Keflavlk: Bústoð • Grindavik: Versl. Palóma
Reykjavík: Bamaheimur, Fatabúðin, Húsgagnahöllin,
Marco, Versl. Hjólið (Eiðistorgi)