Morgunblaðið - 08.08.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 B 7
PAGLEGT LÍF
FANNEY KRISTBJARNARDÓTTIR
«wsiíí£238 w **
^2£m?wv5S*2#»«iiu
ú's-;, fr»«2Bi5aga» '
íi#f **
-C«, ‘feSiSs:
Tölvan gerði þetta
allt mögulegt
Myndavélar fyrir
tölvuáhugafólk
nokkuð víða stöðum og virðist verð
á þeim yfirleitt vera í samræmi við
gæði. Odýrustu myndavélarnar
kosta rúmar 20.000 krónur. Vilji
menn hins vegar fá myndir sem
hægt er að prenta út á ljósmynda-
prentara getur verð myndavélanna
farið allt upp í tvær milljónir. I»að
er því ijóst að safnarar, listaverka-
salar og aðrir sem vilja prenta út
góðar myndir verða að kosta
þónokkru til. Ef eingöngu á að
nota myndina í tölvutæku formi,
t.d. á alnetinu eða í sýnitölvu, er
hins vegar hægt að notast við
myndavél sem kostar um 100.000
krónur. Einnig eru á markaðnum
forrit sem gera fólki mögulegt að
laga myndir sem komnar eru á
stafrænt form og jafnvel breyta
þeim. Yfirleitt fylgir þannig forrit
með vönduðum stafrænum mynda-
vélum.
Venjulegar myndir
á tölvutækt form
Einnig er hægt að skanna venju-
legar myndir inn á tölvutækt form.
í framköllunarþjónustum er nú
víða hægt að fá myndir skannaðar
inn á tölvudisk, geisladisk eða
beint inn á alnetið. Einnig eru á
markaðnum myndsjár sem gera
fólki kleift að gera þetta heima.
Einfaldar myndsjár kosta u.þ.b.
25.000 krónur en flóknari filmu-
sjár allt að 500.000 krónum. í flest-
um þessara myndsjáa má einnig
lagfæra myndir eða breyta þeim
áður en þær eru prentaðar út.
Samkvæmt upplýsingum Matthí-
asar Jóhannssonar, sölustjóra hjá
Hans Petersen, er eftirspurn eftir
þessum vörum og þjónustu stöðugt
að aukast. Hann segir mikið um að
fyrirtæki kaupi þessi tæki og búi
til sín eigin flokkunarkerfi til að
halda utan um varahluti, fasteignir
eða hvað annað.
Matthías segir ennfremur að
þeir sem alist hafi upp við tölvur
séu sérstaklega spenntir fyrir
þessum nýjungum eu eldra fólk
sem eigi fínar myndavélar og sé
vant pappírnum vilji halda í
gömlu aðferðirnar. „Það er tölvu-
dellufólk en ekki myndadellufólk
sem kaupir allt það nýjasta á þess-
um markaði.“
„GÖMLU mönnunum finnst þetta
nú ekki merkilegt," segir Fanney
Kristbjarnardóttir um frímerkja-
safn sitt. „Þeir eru allir í afbrigðum
og takkastærð en ég safna í þem-
um og byggi söfnin mín á því að
hægt sé að segja allt með frímerkj-
um.'1
Fanney safnaði frímerkjum sem
barn en byrjaði ekki aftur fyiT en
hún fór að fara á sýningar með eig-
inmanni sínum sem safnar dönsk-
um frímerkum. „Mér fundust ung-
hngasöfn, þar sem safnað var eftir
ákveðnum þemum, skemmtileg,"
segir hún. „en annars fundust mér
þessar sýningar bara virkilega
leiðinlegar." Það var upp úr þessu
sem Fanney fór að velta því fyrir
sér hvort ekki væri hægt að gera
frímerkjasöfnun skemmtilegri.
Hún byrjaði á að setja saman safn
um íslenskar konur. Fyrst safnaði
hún öllum íslenskum frímerkjum
með kvennamyndum og setti þau
inn í möppu ásamt upplýsingum
um konumar. Smátt og smátt hef-
ur svo ýmislegt bæst í safnið svo
sem bréf til Halldóru Bjarnadóttur
og Vigdísar Finnbogadóttur.
í tilefni af lýðveldisafmælinu
setti Fanney svo saman safn um
son sinn sem fæddur er 17. júní. í
því safni fléttar hún saman sögu
hans og lýðveldisins og notar aðal-
lega til þess 17. júní-frímerki. Þá
hefur hún einnig sett saman minni
söfn t.d. B-safn með frímerkjum
sem sýna t.d. borg, bát og blóm og
vísnasöfn sem sýna m.a. hana,
krumma, hund og svín.
Frímerkjasafnarar á alnetinu
„Það eru til tölvuforrit til að skrá
frímerkjasöfn en mér finnst óðs
manns æði að ætla sér að skrá
hvert einasta frímerki," segir
Fanney. „Hins vegar er stórkost-
leg hjálp að tölvum þegai- verið er
að setja frímerki upp til sýning-
ar.“
Á frímerkjasýningum eru frí-
merki sett upp á blöð í stórum
römmum. Það eru þessi blöð
sem Fanney hannar í tölvu.“Eg
var löngu búin að leggja drög
að fyrsta safninu." segir hún
„en kom því ekki í framkvæmd
fyrr en með tölvuvæðingunni.
Eg var byrjuð að vinna það í
höndunum en gafst fljótlega
upp. Blekið klesstist eða það
kom prentvilla og þá var allt
ónýtt.“
Fanney var einn af frum-
kvöðlum tölvuvæðingar við
uppsetningu frímerkja-
safna enda er tölvuvæðing
At) safnipT^-—-
Morgunblaðið/Jim Smart
FANNEY Kristbjarn-
ardóttir blaðar í frí-
merkjasafni sínu.
henni kannski mikilvægari
en öðrum frímerkjasöfnur-
um þar sem safn hennar
byggir á meiri texta en hefð-
bundin frímerkjasöfn. Hún
segir þó að yngra fólkið sé að
taka við sér og reyndar eldra
fólkið líka þótt það fari hægar
af stað.
Fanney segir að einnig séu frí-
merkjasafnarar mikið á alnet-
inu. Þeir séu þar með póstlista
og fréttagrúppur auk þess sem
margir séu með heimasíður.
MEÐ AUGUM LANDANS
Sumarsól
3
Arna Garðarsdóttir býr ásamt eiginmanni
sínum, Jónasi Tryggvasyni, í Seattle. Hún
segir hér frá aðdráttarafli borgarinnar
fyrir þær 15 milljónir ferðamanna sem
koma þangað árlega.
c
’ IAR byrjaði sumarið í
Seattle ekki vel, var
eitt af þessum vem
fram yfir miðjan júlí.
✓ \ Júnímánuður frekar
] vætusamur og hita-
stigið milli 16-20 C. í
byrjun júlí breyttist
^ svo veðrið í blíðu,
hélst þannig í nokkra
daga en var svo upp og ofan
þangað til um 20. júlí. Síðan hef-
ur verið heitt, um 25 C. Við sem
erum öðru vön kvörtum ekkert
en fórum óspart á ströndina til
að kæla okkur.
Til Seattle og nágrennis koma
15 milljónir ferðamanna á ári,
flestir frá júní til september-
loka. Aðdráttarafl Seattle er
landfræðileg staðsetning borg-
arinnar við sjó og vötn, tignar-
leg fjöll í allar áttir auk ýmissa
árlegra mannfagnaða. Eitt sér-
kenni borgarinnar eða „Perlan"
okkar hér er bygging eða turn
sem nefnist Geimnálin eða „The
Space Needle“. Þessi bygging
var reist árið 1962 í tilefni
heimssýningar sem hér var
haldin. Geimnálin er 200 metrar
á hæð og af toppi hennar er
hægt að virða fyrir sér borgina,
sjóinn, vötnin, fjöll og firnindi í
allar áttir.
Árlega leggja um 8 milljónir
ferðamanna leið sína í Nálina
sem er staðsett í miðbæ Seattle.
I miðbænum kennir ýmissa
grasa og alltaf er eitthvað um að
vera. Þar eru ýmiss konar leik-
tæki fyrir unga sem aldna, söfn,
leikvangar og stór gosbrunnur.
Eitt stórskemmtilegt safn heitir
„The Pacific Science Center“,
þar er auðvelt að eyða mörgum
klukkutímum við að reyna ýmis
tæki og tól. Hægt er að láta
mæla í sér blóðið, athuga styrk-
leika í höndum, fara í tölvuleiki
og afla sér upplýsinga um flest
það sem tilheyrir eðlisfræðinni.
Mjög skemmtilegt barnasafn,
„Childrens Museum“, er einnig
á þessu svæði. Þar eru ýmsar
uppákomur sérstaklega ætlaðar
börnum. Sinfóníuhljómsveit
borgarinnar er líka staðsett í
húsi í „Seattle Center", dagskrá
hennar er með svipuðu sniði og
hjá íslensku sinfóníuhljómsveit-
inni, tónleikaárið frá hausti og til
júníloka. Sinfóníuhljómsveitin
mun reyndar flytja í nýtt tón-
leikahús haustið 1998. Ekki má
gleyma körfuboltaliðinu „Seattle
Super Sonics" sem leikur heima-
leiki í íþróttahúsi sem er staðsett
á þessu sama svæði.
Skemmtilegast er þó að koma
í miðbæinn á góðviðrisdögum að
sumri til og njóta þess að vera
úti og horfa á mannlífið. Þá
dregur geysistór gosbx-unnur að
sér böm og fullorðna. Tónlistin
leikur stórt hlutverk og 50
vatnsbunur gjósa mishátt upp í
loftið í takt við hana og kæla við-
stadda ef þeir hætta sér of
nærri. Það gera reyndar flestir
þegar hitinn er yfir 25 C.
Ef manni leiðist svo leikurinn
er hægt að taka „Monorail", sem
er lítil lest, stutta vegalegnd um
3 km og drífa sig á annan mjög
vinsælan ferðamannastað en það
er „Pike Placé Market". Á þess-
um markaði, sem var upphaflega
fiskmarkaður, er margt að sjá.
Fólk selur þar góðan fisk, úrval-
ið jafnast næstum á við það sem
þekkist frá Islandi. Þar er líka
selt ferskt grænmeti, ávextir, af-
skorin blóm og mikið af
handunnum vönim frá ýmsum
stöðum í fylkinu. Sumir fisksal-
arnir halda hálfgerða sýningu
þegar viðskiptavinir koma ná-
lægt, gala og góla og henda fisk-
inum á milli sín og gera létt grín
að viðskiptavininum í leiðinni.
Voða hressir drengir.
Annað sem ferðamenn gera
gjarnan þegar þeir eru staddir
hér er að fara í siglingar, bæði á
vötnunum og út á sjó. Sjói-inn
liggur að borginni vestanverðri
en vatnið að henni austanverðri.
I boði era bæði dag- og kvöld-
siglingu, hægt er snæða kvöld-
verð um borð og fá sér snúning.
I vatnasiglingum (frá „Lake
Union“ og yfir í „Lake Was-
hington") er gjaman siglt upp að
húsi Bills Gates, stofnanda
Microsoft, sem líkist frekar heilu
Jxoi-pi en einu húsi. Eins og áður
hefur komið fram er þetta rík-
asti maður heims, a.m.k. að ver-
aldlegum gæðum. Þá er einnig
siglt fram hjá flothúsinu sem var
notað við upptökur á kvikmynd-
inni „Sleepless in Seattle."
Þeir sem velja sér ferð frá
vatni og út á sjó eru svo heppnir
að fara gegnum skipastigann í
Ballarð „Hiram Chittenden
Locks“. Það er sérstök upplifun
að fara frá einum stað á annan á
báti þar sem um slíkan hæðar-
mismun er að ræða. Eins er líka
skemmtilegt að horfa á bátana
fara um stigann og sjá hvernig
þetta virkar allt saman.
Þeir sem hafa áhuga á lista-
söfnum hafa úr mörgu að velja
en ég verð að játa að ég varð fyr-
ir vonbrigðum með „Seattle Art
Museum", kannski af því að
maður er vanur því að sjá heims-
fræg listaverk í söfnum Evrópu
en hér er allt önnur list til sýnis.
Hún tengist sögu indjána og
einnig þeim heimi sem er hinum
megin Kyrrahafsins, í Asíu. í
Seattle er töluvert af galleríum
sem hafa mismunandi sýningar
á mismunandi tímum ársins, og
flestir geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. Svo er líka hægt að
vera bara latur ferðamaður, fara
í garða og á strendur, liggja þar
og njóta þess að þurfa ekki að
gera neitt.