Morgunblaðið - 20.09.1997, Blaðsíða 1
Leikur Tindastóls
og KR ómerkur
STJÓRN Körfuknattleiksráðs Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sinum á finmitudaginn að viðureign
KR og Tindastóls í Reykjavikurmóti karla i körfu-
knattleik á dögunum skuli vera ómerk og órslit
hennar niður falla. Hefur félögunum verið gefinn
kostur á að tilgreina nýjan leikdag áður en undan-
úrslit fara framá mánudag. Takist það ekki fær
hvorugt félagið stig úr innbyrðisviðureign þeirra.
í tilkynningu frá Körfuknattleiksráðinu segir:
„Ákvörðun um flutning leiksins frá Reykjavík var
tekin i heimildarleysi af félögunum tveimur og
án samþykkis tækninefndar Reykjavíkurmótsins
sem annast framkvæmd þess. Tindastóll hefur
tekið þátt £ Reykjavíkurmótinu £ körfuknattleik
nú £ haust sem gestur £ boði KKRR. Þátttakan
var bundin þvi skilyrði að leikir £ niótinu færu
fram í Reykjavík. Onnur félög sem leika sem
gesttir í mótinu, Breiðablik og Stjarnan, hafa
gengist undir það og virt skilyrði sem sett voru
fyrir þátttöku þeirra.“
Ragna Lóa Stefánsdóttirfer líklega heim af spítala um helgina eftirað hafa verið ílífshættu
Morgunblaðið/Þorkell
RAGNA Lóa Stefánsdóttir í rúmi sínu á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þar sem hún er á góðum batavegi og ætlar að sjá leik KR og Breiðabliks i Meistarakeppninni í dag.
„Vakna þú mín Þymirós“
„AÐGERÐIN á fætinum tókst
mjög vel, en eftir hana bárust
beinmergur og óhreinindi með
blóðinu upp í lungun með þeim
afleiðingum að ég gat vart and-
að. Lungun voru orðin full af
óhreinindum, ég var bráðri lífs-
hættu,“ segir Ragna Lóa Stef-
ánsdóttir, landsliðsmaður í
knattspyrnu, þjálfari og leik-
maður Islandsmeistara KR.
Hún fótbrotnaði illa í landsleik
gegn Úkraínu fyrir tæpum hálf-
um mánuði og komst nú í vik-
unni loks inn á almenna stofu.
Vegna þessara óhreininda fékk
Ragna Lóa svokallaða íferð sem
gerði það að verkum að hún gat
ekki andað og var hún svæfð og
sett í öndunarvél í hálfan fjórða
sólarhring.
„Mér varð sífellt þyngra um
andardrátt eftir því sem frá leið
aðgerðinni og á fimmtudegi var
ég að lognast út af,“ segir
Ragna, en hún brotnaði í leik á
sunnudegi og fór í aðgerð í kjöl-
farið. „Ég man varla eftir þess-
um síðasta degi áður en ég var
sett í öndunarvélina."
Ragna segir batann hafa verið
hraðan eftir að hún vaknaði upp
á ný á síðasta sunnudag og
reyndar hefur hann verið betri
en læknar töldu. Er það helst
þakkað í hversu góðu líkamlegu
ástandi hún er, ekki síst hversu
góð lungun í henni eru. „Ég hef
verið í iþróttum frá fæðingu og
það er ljóst að allar þrekæfing-
arnar, hlaupin og erfiðið í kring-
um knattspyrnuna, hafa skilað
góðum iungum sem hefur hjálp-
að mér nú. Læknarnir segja mér
að ef ég hefði verið eldri og
ekki í eins góðri æfingu og raun
er á væri ég tæplega á lífi.“
Vegna þess hraða bata og sú
staðreynd að lungun er að verða
hrein segist Ragna Lóa búast við
að fara heim af spítalanum á
sunnudaginn. „Læknarnir hafa
talað um að ég færi heim strax
eftir helgi en vegna þess hversu
hröðum framförum ég hef tekið
er ekki ósennilegt að það verði
fyrr, vonandi á sunnudaginn [á
morgun].“
Hvað sem því líður hefur hún
fengið leyfi til að vera á meðal
áhorfenda á leik KR og Breiða-
bliks í Meistarakeppni kvenna á
Valsvelli. „Þar verð ég í hjóla-
stól og hvet mitt lið,“ segir
Ragna og mikila tillilökkun má
greina í röddinnni.
En meðan Ragna barðist fyrir
lífinu tryggði liðið sem Ragna
leikur með og hefur þjálfað
síðastliðið ár, KR, sér íslands-
meistaratitilinn í knattspyrnu.
Stúlkurnar hennar Rögnu voru
konmar með aðra hönd á titilinn
þegar hún slasaðist en nú er
hann í höfn og um síðastliðna
helgi fengu þær bikarinn afhent-
an. Ragna segir það auðvitað
hafa verið sorglegt að hafa ekki
getað tekið þátt í lokaspettinum
og fögnuðinum þegar bikarinn
var í húsi, eftir 10 mánaða undir-
búning og erfiði. „ Aðalatriðið er
hins vegar að vera á lífi og fyr-
ir það er ég ákaflega þakklát.“
Eftir að KR-stúlkur fengu
bikarinn afhentan sendu þær
hann á Sjúkrahús Reykjavikur
til þjálfara síns og bréf með.
„Tvær stúlkur úr liðinu sendu
bréf með bikarnum og þegar
ég vaknaði sá ég bikarinn og las
bréfið, þar stóð „Vakna þú mín
Þyrnirós“.“
Ragna segir fótbrotið gróa vel
og nú megi hún tylla í fótinn en
reiknað er með að hún geti farið
að ganga óstudd eftir 6 til 8 vik-
ur. Nú tekur við þolinmæðis-
vinna í þjálfun. „Ég verð komin
á fulla ferð fljótlega, aldrei
betri,“ segir Ragna Lóa og bros-
ir sínu breiðasta, enda komin inn
á beinu brautina á ný. „Ég held
samt að ég leggi skóna á hilluna
núna.“
KNATTSPYRNA: TRYGGJA EYJAMENN SÉR ÍSLANDSMEISTARATITILINN í DAG? / B3