Morgunblaðið - 20.09.1997, Síða 4

Morgunblaðið - 20.09.1997, Síða 4
HANDKNATTLEIKUR Hulda Bjarnadóttir línumaður meistaraliðs Hauka á von á jöfnu og skemmtilegu móti Allir geta unnið alla ÍSLANDSMÓTIÐ íhandknatt- leik kvenna hefst f dag með þremur leikjum og síðasti leik- urfyrstu umferðarinnar verður sfðan á morgun. Haukar eru núverandi íslands- og bikar- meistarar og forráðamenn lið- anna spáðu stúlkunum úr Hafnarfirði sigri á árlegum ^ blaðamannafundi á dögunum. Eg held það sé bara venja að telja núverandi meistara lík- lega til afreka næsta ár,“ sagði Hulda Bjarnadóttir, línumaður úr Haukum, í samtali við Morgunblað- ið. „Mér líst rosalega vel á tímabil- ið og held að íslandsmótið verði miklu skemmtilegra í ár en oft áður. Núna eru færri lið og mér sýnist þau flest vera sterkari en í fyrra og því held ég að allir geti unnið alla. •" Stjörnustúlkur hljóta að vera orðnar leiðar á að tapa fyrir okkur og vilja öruggl^a hefna ófaranna frá því í fyrra. Víkingur kemur örugglega sterkur til leiks og ég held að Grótta-KR verði líka með ágætt lið. FH á eftir að vera í bar- áttunni á toppnum og ég hef mikla trú á Framstúlkum því þær hafa frábæran þjálfara, en Guðríður er hætt og það er spurning hvernig liðið leikur án hennar. Hópurinn hjá okkur er minni en í fyrra þann- ig að við megum ekki við miklum meiðslum, en auðvitað ætlum við okkur sigur,“ sagði Hulda. í ár verða aðeins átta lið í deild- . inni, en í fyrra byrjuðu tíu, Fylkir hætti síðan keppni þannig að níu lið luku keppni. ÍBA verður ekki með í vetur þannig að liðin eru átta talsins og leikin verður þreföld umferð. „Ég held að það hafi verið Morgunblaðið/Geir AUÐUR Hermannsdóttir úr Haukum reynir hér að brjótast í gegnum vörn Króata í landsleik. Haukum er spáð sigri á ís- landsmótinu sem hefst í dag. varpað hlutkesti um þriðja leikinn, hvort liðið fær hann á heimavelli eða útivelli. Við leikum til dæmis tvo leiki við Stjörnuna í Garðabæn- um en fáum í staðinn tvo heima- leiki gegn ÍB V, og það ber að þakka fyrir það,“ sagði Hulda. Talsvert miklar breytingar eru á sumum liðum frá því í fyrra og sérstaklega er áberandi hversu margar stúlkur koma frá útlöndum og í raun líka hversu margar fara til útlanda. Fjórar stúlkur ganga til liðs við Víking, Inga Lára Þóris- dóttir og Vibeke Sinding Larsen frá Njard, Halla María Helgadóttir frá Sola, en þessi lið eru öll í Nor- egi og Vala Pálsdóttir frá Sasja í Belgíu. Til Gróttu-KR koma tvær stúlkur _sem léku í Danmörku í fyrra, Ágústa Björnsdóttir frá Ribe og Anna Steinsen frá Kold- ing. Stjörnustúlkur hafa fengið Litháíska stúlku í markið, Lijanu Sadzon, en Fanney Rúnarsdóttir er farinn til Tertnes í Noregi og Sóley Halldórsdóttir hefur tekið sér frí frá handknattleik - altént í bili. Þtjár Valsstúlkur gengu til liðs við danska liðið HH90 Holsterbro, markvörðurinn Vaiva Drillingaite og þær Sigurlaug Rúnarsdóttir og Júlíana Þórðardóttir. Frá danska liðinu fá Eyjastúlkur hins vegar eina stúlku, Söndru Anulyte, og Andt’ea Atladóttir er gengin til liðs við ÍBV á ný. „Ég hef sjálf prófað að leika í útlöndum og það er góð reynsla. Ég held líka að það sé mjög gott fyrir íslenska landsliðið ef stelpur drífa sig út, til dæmis Fanney markmaður, henni mun örugglega fara mikið fram í Noregi," sagði Hulda. toúmR FOLK ■ CIAUDIO Ranierí fyrrverandi þjálfari Fiorentina hefur verið ráð- inn þjálfari spænska félagsins Va- lencia næstu tvö keppnistímabil. Ranieri tekur við starfi Argentínu- mannsins Jorge Valdano sem var vikið úr starfi á þriðjudaginn eftir dapurt gengi félagsins í fyrstu þremur umferðum deildarkeppninn- ar, en Valencia hefur tapað öllum leikjunum. ■ AJAX og Feyenoord hafa sam- einast um að hvort félag meini stuðningsmönnum hins aðgang að leikjum félaganna í vetur. Er þetta gert til þess til að koma í veg fyrir að stuðningsmönnum félaganna lendi saman eins og gerðist í fyrra- vetur með þeim afleiðingum að einn stuðningsmaður Ajax lést. ■ STUÐNINGSMENN Ajax eiga þess kost horfa á leik félaganna í Rotterdam á risaskjá á heimavelli og sama verður uppi á teningnum þegar liðin mætast í Amsterdam, þá verður leikurinn sýndur á skjá í Rotterdam. Vonast er eftir að á leiktíðinni 1998-1999 verði þessi háttur aflagður og fyrri háttur tek- inn upp á ný. ■ CHELSEA hafði mikla yfirburði í viðureign sinni við Slovan Brat- islava en sigraði aðeins 2:0. Ro- berto Di Matteo skoraði fyrra markið snemma leiks. Þrátt fyrir að vera talsvert betri kom síðara markið ekki fyrr en að 10 mínútur voru til leiksioka. Það gerði Danny Granville. ■ MIÐAR á fyrsta leik heims- meistarakeppninnar í knattspyrnu á næsta sumri og átta leiki í fjórð- ungsúrslitum komu í sölu í gær. Miðar á aðra leiki í keppninni verða settir í sölu 18. október en þó er hægt að panta miða nú á þá leiki, en aðeins getur hver maður fengið tvo miða. Spá um úrslit í 1. deild kvenna 1. Haukar 123 stig 2. Stjarnan 113 stig 3. Víkingur 89 stig 4. FH 81 stig 5. ÍBV 68 stig 6. Valur 56 stig 7. Fram 51 stig 8. Grótta-KR 31 stig Háttvís- ishelgi KNATTSPYRNUMENN um allan heim munu um helgina halda hátíðlega fyrstu hátt- vísishelgina, en það er Al- þjóðaknattspyrnusambandið sem gengst fyrir þessu. FIFA valdi þessa helgi fyrr í sumar vegna þess að þannig næst í fleiri knattspyrnumenn en um nokkra aðra helgi. Keppt er í flestum deildum auk þess sem HM-leikmanna undir 17 ára fer fram í Egyptalandi. Þar mun Bobby Charlton vera heiðursgestur og mun ganga inn á völlinn með leikmönnum liðanna þegar mótið verður sett. KSÍ hefur óskað eftir því ' við félög hér á landi að þau minnist helgarinnar með stuttri athöfn þar sem sex krakkar ganga inn á vellina á undan liðunum sem keppa og stilla sér upp með háttvís- isfána FIFA. BADMINTON / EM FÉLAGSLIÐA TBR vann Lið TBR sigraði belgíska félag- ið Fri.Fri.St. Truiden 4:3 í jöfnum leik _ í Evrópukeppni fé- lagsliða í N-írlandi í gær og varð að leika oddalotur í tveimur viður- eignum tii þess að knýja fram úrslit. Tryggvi Nielsen sigraði sinn andstæðing í þremur lotum í ein- liðaleik og Sveinn Sölvason hafði betur í tveimur lotum, þar af end- aði önnur 18/17. Katrín Atladótt- ir beið lægri hlut í tveimur lotum en Sara Jónsdóttir hafði betur í sínum leik í tveimur lotum einnig. í tvíliðaleik karla sigruðu Tryggvi og Njörður Ludvigsson andstæðinga sína í jöfnum leik sem fór í þijár lotur. Katrín og Anna Lilja Sigurðardóttir urðu á hinn bóginn að játa sig sigraðar í tveimur lotum og sömu sögu er að segja af tvenndarleiknum, þar töpuðu Njörður og Sara í tveimur lotum. SVEIT TBR skipa, í fremrí röð frá vinstri, Katrín Atladóttir, Anna Lilja Sigurðardóttir og Sara Jónsdóttir. Fyrir aftan frá vinstri eru Pétur Hjálmtýsson, fararstjóri, Sveinn Sölva- son, Tryggvi Nielsen, Njörður Ludvigsson og Jónas Huang, þjálfarl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.