Morgunblaðið - 30.09.1997, Page 1

Morgunblaðið - 30.09.1997, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • JMttrgttttMftfrife Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 30. september 1997 Blað C Hagstæð þróun VEGNA lækkunar vaxta fá selj- endur íbúða meira fyrir hús- bréfin, segir Grétar J. Guð- mundsson í þættinum Markað- urinn. Þannig fá seljendur í raun hærra verð fyrir íbúðir sínar, jafnvel þó að heildarverð þeirra hækki ekki. / 2 ► [ÍlHlirwi Veðurfar og uppskera ÞRÁTT fyrir kuldanepjuna í vor tók gróður vel við sér, svo að uppskera var sízt lakari en í meðalári, segir Hafsteinn Haf- liðason í þættinum Gróður og garðar, þar sem hann veltir því fyrir sér, hvort veðurfar fari hlýnandi hér á landi. / 4 ► Ú T T E K T Einbýl- ishús MARKAÐURINN fyrir góð einbýlishús á höf- uðborgarsvæðinu hef- ur styrkzt mjög á þessu ári og mörg stór liús hafa verið seld, sem höfðu verið í sölu jafnvel árum saman án þess að seljast. Kemur þetta fram í grein hér í blaðinu í dag, þar sem fjallað er um einbýlishúsamarkaðinn. Að sögn Pálma B. Almars- sonar, fasteignasala hjá Bifröst, er nú skortur á mark- aðnum á einbýlishúsum í gömlu hverfunum. „Það eru margir, sem vilja kaupa og eftirspumin er því mikil en framboð er lítið,“ segir Pálmi. „Nú er miklu auðveldara að kaupa myndarlegar eignir en eitt sinn var,“ segir Pálmi ennfremur. „Ef lánastofnanir telja eignirnar lánshæfar og lántakandinn er traustur, tek- ur það ekki nema örfáa daga fyrir kaupendur að fá lán til kaupanna. Eignaskipti era því ekki eins algeng og áður, þeg- ar um stærri eignir er að ræða. Vextir eru 7-8% eftir veð- rétti og veðhæfni eignanna. Vextir eru því aðeins hærri en í húsbréfakerfinu, en á móti kemur, að afföll eru engin." Fjallað er um nokkur at- hyglisverð einbýlishús, sem nú eru til sölu. Greinilegt er, að alltaf er til staðar viss hópur fólks, sem hefur áhuga á stór- um húsum. / 16 ► Hækkandi fer- metraverð í sér- býli í Reykjavík NOKKUR hækkun virðist hafa orðið á sérbýli í Reykjavík á síðustu tólf mánuðum, en undir sérbýli falla bæði einbýlishús og raðhús. Hækk- unin er greinilega mest í minna sér- býli. Þó virðist einnig hafa orðið hækkun á stórum einbýlishúsum. Teikningin hér til hliðar sýnir ann- ars vegar fermetraverð í þeim hús- eignum, sem skiptu um eigendur á síðasta ári og hins vegar þeim, sem skipt hafa um eigendur á tólf mán- aða tímabilinu júlí 1996-júní 1997. Er þar byggt á upplýsingum frá Fast- eignamati ríkisins, sem taka til stein- húsa reistra 1940 eða síðar. Þó að verð kunni að hafa hækkað eitthvað, er ekki þar með sagt, að það sé allt raunhækkun, því að taka verð- ur tillit til hækkana á vísitölu bygg- ingarkostnaðar, en á tímabilinu júh' 1996 - júní 1997 hækkaði hún um 6,3%. Jafnframt ber að hafa í huga, að stór einbýlishús höfðu lækkað tölu- vert í verði á undanfórnum árum. Eins og sjá má, þá er fermetra- verðið lægra eftir því sem húsin eru stærri. Fyrir því eru ýmsar ástæður. Vissir dýrir þættir era sameiginlegir með öllum íbúðarhúsum. Þar má nefna eldhús og bað, útihurð og margs konar búnað. Ymiss konar undirbúningur kostai- líka svipað, hvort sem húsin ena lítil eða stór. Hagræði við innkaup í stór hús eru einnig meiri vegna magnsins. Fleira hefur áhrif á fermetraverð húsa. Þau eru auðvitað misjöfn að allri gerð og mismikið í þau borið, hvort sem þau eru gömul eða ný. Jafnframt eru sum hverfi eftirsóttari en önnur og það hefur einnig áhrif á verðið. Gott viðhald ræður líka afar miklu um verð og sölu, en það er mjög misjafnt, hve vel húseignum er haldið við. Því verður að hafa í huga, að hér er um meðalverð að ræða og að frávik frá meðalverði geta verið mikil. 110-149 ferm. 1996 júlí '96-júní '97 150-209 ferm. 1996 júlí '96-júní '97 210-269 ferm. 1996 júlí '96-júní '97 270-369 ferm. 1996 júlí r96-júní '97 SERBYLI ALLS júlí '96-júní r97 58.872 kr. ' 59.513 kr. Kynntu þér kosti Fasteignalána Fjárvangs hjá ráðgjöfum Fjárvangs í síma 5 40 50 60 Dæmi um mánaðarlegar afborganir af 1.000.000 kn Fasteignaláni Fjárvangs* \fcxtir(%) 10 ár 15 ár 25 ár 7,0 11.610 8.990 7.070 7,5 11.900 9.270 7.500 8,0 12.100 9.560 7.700 Miðað er við jafngreiðslulán. *Auk verðbóta FJARVANGUR Laugavegi 170,105 Reykjavík, sími 540 50 60, símbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.