Morgunblaðið - 30.09.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 30.09.1997, Síða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER1997 i MORGUNBLAÐIÐ ÓÐINSGATA2 er gamalt og virðulegt hús sem hentugt gæti verið til ýmiss konar atvinnustarfsemi og einnig til íbúðar. Húsið er til sölu hjá Hóli, en ásett verð er 23 millj. kr. Virðulegt hús við Óðinsgötu Verzlunarhúsnæði við Faxafen Fasteign- sölur / 1 blaðinu í dag Agnar Gústafsson bls. 7 Almenna fasteignasalan bls. 12 Ás bls. 20 Ásbyrgi bls. 8 Berg bls. 8 Bifröst bls. 7 Borgareign bls. 18 Borgir bls. 9 Eignamiölun bls. 12-13 Fasteignamarkaöur bls. 3 Fasteignamiðstöðin bls. 26 Fasteignas. íslands bls. 22 Fasteignas. R.vikur bls. 5 Fjárfesting bls. 20 Fold bls. 10 Gimli bls. 28 Hóll bis.14-15 Hóll Hatnarfiröi bls. 19 Hraunhamar bls. 27 Húsakaup bls. 11 Húsvangur bls. 21 Höfði bls. 25 Kjörbýlii bls. 24 Kjöreign bls. 23 Laufás bls. 15 Miðborg bls. 6 Óðal bls. 17 Skeifan bls. 4 Stóreign bls. 12 Valhöll bls. 18 Farsæl fasteignaviðskipti = þekking og reynsla f Félag Fasteignasala ÖÐRU hvoru koma í sölu hús sem margir þekkja og hafa lengi sett svip á bæinn. Hjá fasteignasölunni Hóli er nú í einkasölu húseignin Óð- insgata 2. Þetta er timburhús byggt 1906 auk viðbyggingar úr steini sem reist var 1926. Húsið er kjallari, hæð og ris og rúmir 100 ferm. að grunnfleti. „Hús þetta hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá því það var byggt og er sagt eitt fyrsta húsið sem byggt var á þessu svæði og enn stendur fyrir utan Hegningarhús- ið,“ sagði Elías Haraldsson hjá Hóli. „Eins og húsið er nýtt í dag er í kjallaranum í eldri byggingunni sér, lítil íbúð sem leigð er út. í nýrri hlutanum er lftið atvinnuhúsnæði og þar er raftnagnsverkstæði. Á aðal- hæð og í risi er glæsileg íbúð með góðri lofthæð, gipslistum og rósett- um í lofti. Hægt væri að gera séríbúð í risinu. Möguleikarnir sem þetta hús býður upp á eru margir. Hægt er að gera þarna fjórar íbúðir eða færri en stærri íbúðir, eitt glæsilegt ein- býlishús og svo er hægt að hafa þama margvíslegan atvinnurekstur. Þegar hafa komið fyrirspumir um húsið, m.a. frá mönnum sem hafa áhuga á veitingarekstri og einnig aðilum sem vom að hugsa um að koma uppi gistiheimili í hús- inu, þar sem þessi staður er mjög ákjósanlegur fyrir t.d. útlendinga sem vilja geta farið allra ferða sinna fótgangandi. Alls konar önnur atvinnustarf- semi, svo sem verslun eða iðnaður væri líka vel settur í húsinu, en það stendur mjög nærri miðbænum án þess þó að vera í mesta skarkalan- um. Húsið hefur fengið gott viðhald allt frá upphafi, en það er klætt að utan með álklæðningu þannig að heildarsvipur þess er góður. Að inn- an er margt upp á gamla mátann og mætti leggja meiri áherslu á hið virðulega útlit hússins ef vilji væri fyrir slíku. Húsið getur losnað fljót- lega, en ásett verð er 23 millj. kr.“ Margir þættir hafa áhrif á fast- eignamarkaðinn, umsvifin á honum og möguleika fólks á að festa kaup á, byggja eða selja íbúð- arhúsnæði. Óvissa í efnahagsmál- um, atvinnumálum, eða öðru því sem áhrif hefur á greiðslugetu al- mennings, dregur úr framkvæmd- um. Stöðugleiki hefur hins vegar örvandi áhrif. Ástandið undanfarin ár hefur verið skólabókardæmi um þetta. Háir vextir á fjármagnsmarkaði og atvinnuleysi á vinnumarkaði komu fram í fasteignaviðskiptum. Það sama á við nú þegar aðstæður hafa breyst, nema með öfugum for- merkjum. Staðan á fasteignamark- aðnum er góð, alltént á þeim stöð- um þar sem hægt er að tala um virkan markað. Aukin umsvif Vextir á fjármagnsmarkaði hafa verið lægri síðastliðna mánuði en flesta rekur minni til frá fyrri árum. Áhrifa þess gætir víða og fyrir fast- eignamarkaðinn er þetta sérstak- lega jákvætt. íbúðarkaup, húsbygg- ingar og endurbætur á íbúðarhús- næði eru auðveldari fyrir vikið, ef fólk þarf á lánum að halda. Meiri stöðugleiki er nú á vinnumarkaði og óvissan er minni í kjölfar nýgerðra kjarasamninga, sem gengið hefur verið frá varðandi meirihluta laun- þega. Þegar allt þetta er lagt saman kemur ekki á óvart, að fasteignavið- skipti hafa verið mikil upp á síðkastið. Þá virðist og sem nýbygg- ingar séu að taka við sér og var ekki vanþörf á eftir lægð undanfarinna ára. Jafnvel má gera ráð fyrir því að meiri háttar endurbætur á íbúðar- húsnæði hafi aukist eða muni gera það á næstunni. Flestir íbúðarkaupendur og hús- byggjendur þurfa á lánum að halda, MEIRI eftirspurn er nú eftir at- vinnuhúsnæði en áður og þá ekki hvað sízt á heppilegum stöðum. Hjá Eignamiðluninni er til sölu stórt verslunar- og þjónustuhúsnæði á götuhæð að Faxafeni 10. Eignin er 1.500 ferm. og steinsteypt, byggð 1987. „Þetta er mjög gott verslunar- húsnæði í einum 1.390 feim. sal með góðri lofthæð og stórum verslunar- gluggum í tvær áttir," sagði Stefán Stefánsson hjá Eignamiðluninni. „Möguleiki er á að skipta þessum sal upp í minni einingar. I norður- þegar fyrsta íbúð er keypt eða byggð svo og þegar fólk er að stækka við sig. Lánamöguleikar fólks hafa aukist til muna á síðustu árum. Nú er svo komið að tiltölu- lega auðvelt er fyrir flesta að fá lánafyrirgreiðslu, hvort sgm er hjá lánastofnunum eða öðrum. I fjöl- miðlum er nánast daglega auglýst eftir lántakendum í einu eða öðru formi. Það er af sem áður var. Þetta gerir fasteignaviðskipti og bygging- ar auðveldari, ef rétt er á málum haldið. Stöðugt lánakerfi Húsbréfakerfið hefur rækilega fest sig í sessi. Það gengur greið- lega fyrir sig og á án efa ekki minnstan þátt í því hvað fasteigna- viðskipti hafa verið jöfn og auðveld á umliðnum árum. Áfgreiðsla á hús- bréfaláni frá Húsnæðisstofnun tek- ur til að mynda ekki nema um viku. Þegar haft er í huga um hve gífur- lega mikilvægan þátt í fjárfesting- um hvers og eins umsækjanda er að ræða, sést hvað þetta er skjótvirk afgreiðsla. Húsbréfakerfinu var vel tekið strax í upphafi á árinu 1989. Þá var tekin upp nýjung í lánaviðskiptum enda eru svo tvö afmörkuð verslun- arpláss með sérinngangi, sem snúa út að götu. í húsnæðinu hefur verið verslun- arrekstur og sölumarkaður en þetta húsnæði gæti nýst mjög vel sem verslunar- og sýningarsalir og jafn- vel skrifstofur fyrir ýmiss konar starfsemi. Húsnæðið er laust til afhendingar strax, en ásett verð er 98 millj. kr. fyrir heildareignina. Áhvílandi eru 35 millj. kr. í hagstæðum langtíma- lánum.“ hér á landi. Þeir sem að kerfmu koma þurfa að kanna aðstæður á fjármagnsmarkaði, áður en ákvarð- anir eru teknar um kaup, byggingu, endui-bætur eða sölu á íbúðarhús- næði. Áður skiptu þessar aðstæður umsækjendur um húsnæðislán litlu máli. Þeir fóru bara í biðröð eftir lánum. Markaðskerfi Húsbréfakei-fið er hreint mark- aðskerfi. Kjör ráðast af aðstæðum á fjármagnsmarkaði. Vextir af hús- bréfalánum, sem kaupendur greiða af, eru fastir. Mismunur á vöxtum af húsbréfum, sem seljendur fá við sölu íbúðar, og þeim vöxtum, sem eru á fjármagnsmarkaði á hverjum tíma, koma fram í affóllum við sölu húsbréfanna. Lækkun vaxta að undanförnu hefur gert það að verk- um, að seljendur íbúða fá meira fjármagn fyrir húsbréf, sem þeir selja. Þannig fá seljendur í raun hærra verð fyrir íbúðir sínar, jafn- vel þó að heildarverð þeirra hækki ekki. Lækkun vaxta er íbúðarkaupend- um einnig í hag, því minni affóll við sölu húsbréfa dregur úr þörf fyrir hækkun íbúðaiverðs, sem alltaf má reikna með í kjölfar meiri eftir- spumar, eins og vart hefur orðið að undanfórnu. Það sama á við um húsbyggjendur, sem taka húsbréfa- lán. Þeir fá meira fyrir húsbréf við sölu þeirra á markaði, og þannig eni íbúðarbyggingar í raun auð- veldari en áður. Stöðugleiki á fjáimagns- og vinnumarkaði og stöðugt og ömggt húsnæðislánakerfi, sem gengur að öllu leyti upp, stuðlar hvert fyrir sig að öryggi á fasteignamarkaði. Á því hagnast allir. Jákvæð áhrif stöðug- leikans eru því augljós. I BUÐARLÁN TIL ALLT AÐ Þú átt góðu láni að fagna hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis SPARISIOÐUR * REYKJAVlKUR oc nácrennis V. EIGNAMIÐLUNIN er með til sölu 1.500 ferm. verslunar- og þjónustu- húsnæði við Faxafen 10. Ásett verð er 98 millj. kr. en áhvilandi eru 35 millj. kr. Jákvæð áhrif stöðugleikans Markaðurinn Vextir hafa verið lægri síðastliðna mánuði en flesta rekur minni til, segir Grétar J. Guðmundsson, rekstrarstjóri Húsnæðis- stofnunar ríkisins. Fyrir fasteignamarkað- inn er þetta sérstaklega jákvætt. i i í i i i í i > i 1 I I I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.