Morgunblaðið - 30.09.1997, Side 22

Morgunblaðið - 30.09.1997, Side 22
, 22 C ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Það eru fjölbreyttir pappírar sem detta inn um bréfalúguna, allir að auglýsa allt, tilboðunum rignir inn. Inn á milli kemur lesmál, sem verulega athygli vekur og eitt slíkt hefti var að koma, Byggiðn, kynningarrit nýstofnaðs Menntafé- lags byggingariðnaðarins sem er sameignarfélag Samtaka iðnaðarins og Samiðnar, samtaka sveina í byggingaiðnaði, en þetta nýja félag tekur við af Fræðsluráði byggingar- iðnaðarins, sem lagði grundvöllinn að endurmenntun byggingamanna. í Byggiðn er skrá yfir þau nám- skeið sem í boði eru á haustönn, sum eru ný en önnur eru námskeið sem mikil aðsókn hefur verið að hjá Fræðsluráðinu og er þeim fram- haldið á nýjum vettvangi. Of langt mál yrði að telja upp öll námskeiðin, en rétt að gefa nokkur dæmi. Á rekstrarsviði má nefna „Gæðastjórnun", „Verkstjóm á byggingarstað" og „Vekefnistjórn- un“. Meðal fagnámskeiða iðngreina má nefna „Lögn parketgólfa", „Við- hald og endurbætur eldri timbur- húsa“, „Plastlagnir - Rör í rör lagnakerfi", en nú þegar er búið að halda allmörg námskeið um þetta efni, og „Snjóbræðslu- og gólfhita- lagnir", þá er og vísað til fjöl- breyttra tölvunámskeiða Rafiðnað- arskólans. í vinnslu eru m.a. nám- skeiðin „Timbur og steyptir stigar“, „Gas- og loftlagnir" og „Litaval og litafræði". En í þessu fyrsta tölublaði af „Byggiðn“ er efni sem hver fagmað- ur í byggingariðnaði ætti að láta sig Menntafélag byggingariðnaðarins Lagnafréttir Byggingariðnaðurinn varðar alla þjóðfélags- þegna, segir Sigurður Grétar Guðmundsson. Að koma sér upp þaki yfír höfuðið er það Grettistak, sem allir verða að lyfta. varða og raunar miklu fleiri, því byggingariðnaður varðar alla þjóð- félagsþegna, að koma sér upp þaki yfir höfuðið er það Grettistak sem allir verða að lyfta. Pess vegna er það þjóðarhagur að allir þeir sem í byggingariðnaði starfa hafi sem besta og víðtækasta menntun og þekkingu. Sundurlyndisfjandinn Formaður Menntafélags bygg- ingariðnaðarins, Guðmundur Ómar Guðmundsson, skrifar stutta en hnitmiðaða ritstjórnargrein og seg- ir þar m.a.: „Undanfarin ár hefur iðnmennt- un ekki höfðað til ungs fólks. Ef- laust eru ýmsar ástæður fyrir því. Ein er sú að við byggingamenn höf- um ekki staðið okkur sem skyldi við endurskoðun námsins og alls ekki í að kynna þá möguleika sem felast í námi í byggingagreinum. Þar kem- ur að hluta til samstöðuleysi okkar og sundrung. Ekki hefur tekist að sameina alla sveina í byggingariðn- aði í ein heildarsamtök og ekki held- ur atvinnurekendur en það leiðir til þess að allt starf að menntunarmál- um okkar er ómarkvisst og fálm- kennt. Þegar spurt er: Hvað viljum við byggingamenn? - held ég að svar okkar allra verði eitthvað á þá leið að vegur starfsgreinarinnar verði sem mestur. En þegar kemur að því að sameina krafta okkar ráða einka- -y F&AGl»SBSNASAfcA Opið 9-18 MSTEI9NASALAISLANDS Haukur Geir Garðorsson viðskiptafræðingur og löggillur fasteignasan SUPURLAMPSBRAUT 12 » SIAAI 588 5060 • FAX .588 5066. 2ja herbergja BÍLLINN UPP í! Falleg nýleg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli við Flétturima. Stæði í bílskýli. Góð staðsetning. Möguleiki að taka ca. 1 millj. kr. bíl upp í. Áhv. 3,8 millj. húsbréf. LAUS STRAX. Verð 6,2 millj. NÝTT í MIÐBORGINNI Vorum að fá í sölu fallega 2ja herb. íbúð á 4. hæð í nýlegu lyftuhúsi í miðbæ Reykjavíkur. Ahv. um 4,4 millj. húsbréf. LAUS STRAX - LYKLAR Á SKRIFSTOFU. Verð 6,7 millj. SELTJARNARNES Mjög góð og björt 2ja herb. risíb. í fjórbýli við Melabraut. Suðursvalir. Áhv. 1,8 millj. langt.lán. Verð 4,8 millj. HÖFUM ÁKVEÐNA KAUPENDUR AÐ: 1) 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ í HRAUNBÆ EÐA ÁRBÆ. 2) 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ í HRÍSMÓUM GARÐABÆ OG Á KR-SVÆÐINU. 3) 3 - 4RA HERBERGJA í FOSSVOGI EÐA SMÁÍBÚÐA- HVERFI. 4) HÆÐ í HLÍÐUNUM EÐA í HOLTUNUM. 5) EINBÝLI/RAÐHÚS í GARÐABÆ OG GRAFARVOGI. MANAGATA - LAUS - LAN Góð 2ja herb. íbúð í kj. í þribýli á þessum góða stað miðsvæðis. Sérinngangur. Laus strax. Áhv. 2,4 millj. byggsj. rik. Verð 4,9 millj. HAALEITI - 4 SVEFNH. Mög falleg 6 herb. ibúð á 4. hæð í fjölbýli með glæsilegu útsýni. Stofa, borðstofa, 4 svefnherbergi. Þvottaherb. í íb. Merbau-parket. Tvennar svalir. Áhv. hagstæð byggsj/lífsj. lán 3,3 millj m. lágum vöxtum. LAUS STRAX, Verð 8,4 millj. HRAUNBÆR Góð 2ja herb. ib., 60 fm á 2. hæð í fjölbýli. Suðursvalir. Fallegt útsýni. Bein sala eða skipti á 3ja herb. Verð 4,8 millj. 3ja herbergja ENGIHJALLI - GOÐ IBUÐ Mjög góð 3ja herb íb., 90 fm, á 3. hæð í góðu fjölbýli. Suður- og austursvalir. Þvottahús á hæðinni. Hús endurnýjað að utan. Verð 6,3 millj. LYNGMÓAR - GBÆ Falleg 3- 4ra herb. íb. á 1. hæð i litlu fjölb. með innb. bílskúr. Suðursvalir. Verð 7,8 millj. AUSTURSTRÖND - BÍLSK. Mjög falleg og vönduð 3ja herbergja íbúð ofarlega í lyftuhúsi. Parket. Útsýni. Bílskýli. Verð 8,0 millj. ÁLFHEIMAR Góð 3ja herb. íbúð á jh. i góðu fjölbýli. Áhv. 3,5 millj. húsbr. Laus fljótlega. Verð 6,2 mllj. HRAUNBÆR Góð 3ja herb. íb. á 3. hæð í fjölbýli. Stutt í alla þjónustu. Verð 5,8 millj. FLÉTTURIMI Glæsileg 4ra herb. íbúð á jarðhæð í nýlegu litlu fjölbýli. Parket. Vandaðar innréttingar. Áhv. 5,2 millj. húsbréf. Verð 8,6 millj. 5 HERB. OG BÍLSKÚR Góð 5 herb. endaíb. á 4. hæð í góðu fjölbýli. Stofa m. stórum suðursvölum og útsýni, 4 svefnherb. Þvottah. í íb. Áhvíl. 4,8 millj. LAUS STRAX. Lyklar á skrifst. Verð aðeins 7,3 millj. Einb.-parhús-raðhús FAGRIHJALLI - KOP. Gott 206 fm parhús á þessum vinsæla stað á mót sumri og sól, ásamt innbyggðum bílskúr. Sólstofa. Skipti ath. Verð 12,5 millj. FOSSVOGUR Fallegt raðhús á þessum vinsæla og veðursæla stað, 195 fm ásamt bílskúr. Parket á gólfum. Sauna. Suðursvalir. Hús nýlega málað að utan. Bein sala eða skipti á ódýrari. Verð 14,4 millj. AÐEINS 5,9 MILLJONIR Góð 4ra herb. íb. á 2. hæð í fjölbýli við Kleppsveg ásamt aukaherbergi í risi með sam. snyrtingu. 4 svefnherbergi. Suðursvalir. Áhvíl. 2,4 millj. byggsj. í lífsj. MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ. LAUS FLJÓTL. Verð aðeins 5,9 millj. BYGGINGARSJ.LAN Góð 3ja herb. ib. á 1. hæð öatðh.) í fjölbýli. ÁHVlL UM 3,2 MILU. BYGGSJ. Ri. - EKKERT GREIÐSLUMAT. Verð 6,7 - 6,8 millj. 4 - 6 herbergja HÓLAR - BÍLSKÚR Góð 4ra herb. íb. á 2. hæð m. sérinngangi af svölum. Suðursvalir úr stofu. BÍLSKÚR. Verð 7,5 millj. FELLSMÚLI - LAUS Falleg4ra - 5 herb. íbúð, 117 fm á 3. hæð í mjög góðu fjölbýli sem er klætt að utan að hluta. Stórar stofur, vestursvalir. LAUS STRAX. Verð 7,8 millj. VESTURBERG Góð 4ra herbergja íbúð á 4. hæð í verðlaunahúsi. Nýl. eldhúsinnr. og á baði. Vestursvalir. Glæsilegt útsýni m.a. Snæfellsjökull. Stutt í skóla og þjón. Laus fljótlega. Verð 7,2 millj. SELJAHVERFI - BÍLSK. Góð 4ra herbergja ibúð á 1. hæð ásamt stæði í bílskýli. Þvottaherbergi inn af eldhúsi. Laus strax. Lækkað verð, 6,9 millj. KLEPPSVEGUR Góð 4ra herb. ib. á jh. ásamt aukaherbergi í risi. Stofa og 4 herbergi. Bein sala eða skipti á dýrari 3-4 herb. íbúð. Verð aðeins 5,9 millj. 5-6 herb. oq hæðir TÓMASARHAGI Vorum að fá í einkasölu 126 fm efri hæð í fjórbýli á þessum vinsæla staö. Stofa, borðstofa 3 svefnherbergi þar af 2 mjög stór. Vestursvalir. Nýlegt gler. Bílskúrsréttur. Bein sala, skipti ath. á ódýrari eign. Verð 10,4 millj. í smíðum GRUNDARSMARI - KOP. Einbýli á 2 hæðum með mögul. á sér íbúð á jarðhæðinni. Afh. fljótl. fokh. að innan og fullbúið að utan. Teikningar á skrifst. DOFRABORGIR Glæsileg raðhús á 2 hæðum m. innb. bílskúr, tengjast saman á skjólveggjum. Afh. fohelt að innan eða tilbúin til innréttinga. Verð frá kr. 7.500.000.- LAUFRIMI Ný 3ja herb. ib., 94 tm á 2. hæð í litlu fjölbýli. Sérinngangur. Suðursvalir. Til afh. strax tilb. til innr. og fullb. utan. Verð 6,8 millj. FLÉTTURIMI 3ja og 4ra herb. íb. á jh., 1. og 2. hæð í nýju litlu fjölb. Afh. strax tilbúnar til innr. og fullbúnar að utan. Möguleiki á stæði í bílskýli. SKIPTI MÓGULEG. Teikn. á skrifstofu. Atvinnuhúsnæði SKRIFSTOFUHERBERGI Tii leigu samliggjandi 1 eða 2 mjög góð um 20 fm skrifstofuherbergi við Suðurlandsbraut. Aðgangur að eldhúsi og snyrtingu. Nýmálað, nýtt parket. Laust. MIÐBORGIN -TIL LEIGU ! Til leigu um 100 fm húsnæði á 1. hæð og um 70 fm húsnæði á 2. hæð í góðu steinhúsi miðsvæðis í Rvk. Sérbílastæði. Laust fljótlega. Sanngjörn leiga. Hentugt t.d. fyrir arkitekta, verkfræðinga, auglýsingafólk eða smáheildsölu. LANDSBYGGÐIN NJARÐVÍK Stór, 117 fm íbúð, 4 herb. á 1. hæð í nýlegu fjölbýli ásamt 28 fm herb. í kjallara sem mögul. er að samtengja íbúð. SKIPTI ATH. Á MINNI ÍBÚÐ, ÓD.JÖRÐ, BlL EÐA SUMARBÚSTAÐ. hagsmunir og skammtímasjónarmið oft ferðinni. Þessu verðum við að breyta". Sjónarmið ráðherrans Bjöm Bjarnason menntamálaráð- herra skrifar athyglisverða og efn- ismikla grein í Byggiðn. Það er erfitt að vitna í grein ráðherrans því öll á hún skilið að vera lesin af þeim sem láta sig menntamál varða og þá sérstaklega þeim sem starfa í bygg- ingagreinum og reyndar öllum sem starfa í löggiltum iðngreinum. Það hafa margir áhyggjur af því hvað áhugi ungs fólks fyrir iðnnámi er lítill en um það segir mennta- málaráðherra: „Rannsóknir sýna, að áhugi á starfsnámi eða verknámi ræðst ekki af fögrum yfirlýsingum stjórnmála- manna eða því, sem samþykkt er á Alþingi. Það eru aðrir þættir í þjóð- lífinu, sem ráða meiru um val ungs fólks á námsbrautum. Þróunin hér er hin sama og annars staðar, að æ fleiri kjósa almenna framhalds- skólamenntun, sem veitir aðgang að háskóla. Hinum fækkar jafnt og þétt, sem ákveða strax á framhalds- skólaaldri að velja sér iðngrein eða verknámsbraut. Er ljóst, að hér stefnir í þá átt, að starfsnám sé einkum stundað að loknu stúdents- prófi. Ég tel að þetta sé ekki æskileg þróun. Hún á ekki rætur að rekja til þess, að menn hafi ekki unnið að því að endurskoða löggjöf um fram- haldsskóla og sníða starfshætti þeirra að nútímalegum kröfum, þar sem meiri áhersla en áður er lögð á samstarf skóla og atvinnulífs. Slík lög tóku gildi 1. ágúst 1996. Sama haust varð einnig bylting í aðstöðu til verknáms í landinu, þegar Borg- arholtsskóli hóf starfsemi sína og verknámsálma bættist við Mennta- skólann í Kópavogi." í lok sinnar ágætu greinar kemur ráðherrann með þá þörfu ábend- ingu að það eigi ekki ætíð að ein- blína á forystu hins opinbera í menntamálum, það er atvinnulífið, starfsgreinarnar, sem eiga að hafa forystuna um menntamál sinna stétta og þrýsta á ríkisvaldið. Það hlýtur að vera svo að hver starfsgrein veit best hver þörfin er fyrir skólagöngu og endui'menntun í greininni. En þá er ekki ólíklegt að sam- vinna og félagsþroski margra þeirra sem í byggingariðnaði starfa, hvort sem eru sveinar eða atvinnurekendur, þurfi að aukast og þroskast. •' TfY-r Morgunblaðið/RAX ÞAÐ hlýtur að vera svo að hver starfsgrein veit best hver þörfin er fyrir skólagöngu og endurmenntun f greininni. Eignaskip tayfirlýsingar Er til eignaskiptayfirlýsing fyrir húsið þitt? Tek að mér gerð eignaskiptayfirlýsinga íýrir allar gerðir fjöleignahúsa. Gunnar Þ. Steingrímsson, húsasmíðameistari, símar 588 7503 og 897 1710. SkrifstofuKtúsnæði til leigu Til leigu í Lágmúla 5 ca 60 m2 skrifstofuhúsnæði með stórglæsilegu útsýni (,,penthouse“). Sími 553 2636 eða 568 9981. Fax 588 9011. Félagasamtök óska eftir húsnæði undir starfsemi sína til kaups eða leigu. Húsnæðið þarf að vera á fjölförnum stað, sýnilegt, að hluta til á jarðhæð, með gott aðgengi að samgöngum. Stærð 550-600 fm. Upplýsingar um stærð og verðhugmyndir sendist Mbl., fyrir 6. október merkt: 2609.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.