Morgunblaðið - 03.10.1997, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.10.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 C 3 KÖRFUKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Ásdís rðvíkinga í gær og hér reynir Birgfr Örn Birgisson að verjast honum os á vör og Krlstlnn Einarsson fylgfst með. int tap hjá víkingum afsökun því Njarðvíkingar misstu sinn Bandaríkjamann útaf með fimm villur um miðjan hálfleikinn. Þá var staðan 72:66 fyrir Njarðvíkinga og ljóst að eftirleikurinn yrði ekki auðveldur. En þá sýndu Njarðvíkingar að þeir kunna ýmislegt fyrir sér og þá sérstak- lega í jöfnum stöðum þegar stutt er til leiksloka. Keflvíkingum tókst hins vegar ekki eins vel upp, þeir brutu óþarflega mikið og fengu því á sig mörg vítaköst og í lokin voru tveir komnir útaf með fimm villur og fjórir leikmenn voru þá komnir með fjórar villur. „Þetta voru kærkomin stig og ég þakka það góðum varnar- og sóknar- leik í síðari hálfleik,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Njarðvíkinga eftir leikinn. „Við vorum slakir í byijun og varnar- og sóknarleikurinn var hvorki fugl né fiskur sem sést á því að við fengum þá á okkur rúm 50 stig. Síð- ari hálfleikurinn var mun betri þó ég sjái enn ýmislegt sem við þurfum að lagfæra. Það helst nefnilega oft í hend- ur að þegar lið fara að leika góða vörn þá kemur sóknarleikurinn með og það gerðist einmitt í síðari hálfleik", sagði Friðrik Rúnarsson. „Þetta var hálfgerður skandall hvernig dómararnir vernduðu Teit [Ör- lygsson] í síðari hálfleik og það tel ég að hafi verið vendipunkturinn hjá okk- ur. Það var alveg sama hvað hann gerði, alltaf var dæmd villa á okkur sem kostuðu vítaskot", sagði Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflvíkinga sem var afar óhress með dómgæsluna í síðari hálfleik. „Mér fannst við leika eðlilega í fyrri háfleik, en síðari hálf- leikurinn var ekkert í samræmi við það sem við getum“, sagði Sigurður Ingi- mundarson ennfremur. Bestu menn hjá Keflvíkingum voru Dana Dingle, Birgir Örn Birgisson og Falur Harðarson. Guðjón Skúlason lék vel í fyrri hálfleik en fann sig ekki í þeim síðari og það hlýtur að muna um minna. Kristján Guðlaugsson átti einn- ig ágætan leik. Hjá Njarðvíkingum voru þeir Teitur Örlygsson, Dalon Byn- um og Friðrik Ragnarsson bestir og saman gerðu þeir félagar 65 stig. Páll Kristinsson var einnig sterkur og þá sérstaklega í síðari hálfleik. KR-ingar skotnir í bólakaf SKAGAMENN byrjuðu íslandsmótið í körfuknattleik með þvíað blása á hrakspár um að þeirra biði ekkert nema fall, með því að skjóta sterkt lið KR hreinlega í kaf. Þeir gerðu 11 þriggja stiga körfur og jókst sjálfstraust og þor eftir því sem á leikinn leið. Takist þeim jafnvel upp í framhaldinu er ekki ósennilegt að þeir verði ofar en spekingar spá um. Lokatölur 81:73, örugg- ari sigur en tölurnar gefa til kynna. Ivar Benediktsson skrifar Talsverður byrjendabragur var á leik liðanna fram eftir fyrri hálfleik. Mikið var um rangar send- ingar og slök skot og ruðningur var nokkuð áberandi. jafnt var á flestum tölum fram undir miðjan leikhlutann að Akurnesingar náðu frumkvæðinu, einkum eftir að Trausti Jónsson gerði þtjár þriggja stiga körfur með skömmu millibili. KR-ingar reyndu að einbeita sér að loka fyrir Damon Johnson, en gekk illa. Hann gerði þeim hveija skrá- veifuna á fætur annarri og Hermann Hauksson átti í mesta basli með að hemja hann. KR-ingum tókst um tíma að jafna einu sinni, 39:39, en Skagamenn sigu á ný fram úr áður en flautað var til leiksloka og voru 4 stigum yfir í leikhléi, 45:41. Enn héldu Akurnesingar sínu striki í upphafi síðari hálfleiks og KR-ingum gekk illa að slá þá út af laginu. Maður á mann-vörn heima- manna var stöð og var gestunum engin hindrun. En batnandi mönnum er best að lifa og um miðjan hálfleik- inn náðu KR-ingar að jafna leikinn og í framhaldi af því urðu þeir kvik- ari í vörninni. Sóknarleikurinn var hins vegar slakur, þar sem óðagotið réði ríkjum. KR-ingar jöfnuðu 64:64 er hálf sjöunda mínúta var eftir. Þeim tókst hins vegar ekki að hressa við sóknarleikinn og Skagamenn sigu fram úr á ný og að þessu sinni héldu þeir dampi alla leið til loka án þess að KR-ingar fengju rönd við reist. „Við ætluðum í upphafi að hafa gætur á Damon Johnson og tókst það, en þá losnaði um aðra leikmenn hjá þeim,“ sagði Hrannar Hólm, þjálfari KR. „Þegar við vorum búnir að jafna gerðum við alltof mikið af mistökum í sókninni. I stað þess að lengja sóknirnar, spila þar sem þeir voru komnir í villuvandræði voru sóknir okkar stuttar og gengu ekki upp.“ Sigurður Elvar Þórólfsson átti stórgóðan leik hjá Skagamönnum. Hann hitti vel og barðist grimmt í vörn. Þá var Damon Johnson sterkur lengst af. Það var aðeins á upphafs- mínútum síðari hálfleiks sem hann hvarf um tíma. Alexander Ermol- inskij var stórgóður í vörninni. Ann- ars var baráttan og sigurviljinn aðal IA að þessu sinni. KR-liðið náði aldrei að leika af þeim styrkleika sem mátti búast við. Marel Guðlaugsson hitti illa, Kevin Tuckson var slakur í sókninni og sama var upp á teningum hjá Her- manni. Eini maðurinn sem barðist af krafti frá upphafi til enda var Ingvar Ormarsson. AuðveK hjá Haukum Það var hvorki rishár né spenn- andi körfubolti sem leikinn var í íþróttahúsinu við Strandgötu þegar Haukar sigruðu Þór Halldór 99:63. Leikurinn bar Bachmann þess greinileg merki skrifar ag leikmenn eru ekki komnir í leikæfingu því mikið var um mistök og leikleysu á báða bóga. Fyrstu mínúturnar leit út fyrir að Þórsarar ætluðu að koma heimamönnum í Haukum í opna skjöldu því þeir komust í 0:8. Sú sæla varði ekki lengi því Haukar tóku hressilega við sér. Sherrick Simpson opnaði stigareikning Hauka með þriggja stiga körfu og lagði línuna fyrir það sem koma skyldi. Á næstu mínútum skoruðu Haukar 17 stig gegn 3 stigum Þórs og náðu forystu 17:11. Haukar léku pressuvörn allan völl- in eftir skoraða körfu og átti fremur lágvaxið lið Þórs oft í mesta basli með að koma boltanum fram yfir miðju. Munurinn jókst svo jafnt og þétt og í hálfleik var staðan 44:31. I síðari hálfleik héldu Haukar upp- teknum hætti án mikillar mótspyrnu frá Þórsurum. Hjá Haukum var Sherrick Simpson allt í öllu en Sigfús Gizurarson og Bjarni Magnússon áttu einnig þokkalegan leik. Hjá Þór fór Jo Jo Chambers fyrir liði sem á erfiðan vetur fyrir höndum ef marka má leikinn í gærkvöldi. Leikreyndir menn s.s. Konráð Ósk- arsson og Björn Sveinsson hafa lík- lega lagt skóna á hilluna og liðið vantar sárlega stóran mann undir körfuna. FOLX ■ DEAN Holdsworth framherji hjá Wimbledon var í gær seldur til Bolton fyrir 400 milljónir króna. Holdsworth sem er 28 ára hefur átt í erfiðleikum með að vinna sér fast sæti í liði Wimbledon á leiktíð- inni. Holdsworth gerði fjögurra ára samning við Bolton og er reikn- að að hann leiki sinn fyrsta leik gegn Aston Villa á laugardaginn. ■ ROY Keane fyrirliði Manchest- er United leikur ekki með félaginu á þessari leiktíð vegna meiðsla í hné sem hann hlaut í leik við Leeds um síðustu helgi. Keane er með slitin liðbönd í hné og gengst undir skurðaðgerð til að fá bót meina sinna á næstu vikum. ■ PAUL Cascoigne leikmaður Rangers varð fyrir svipuðum meiðslum í úrslitaleik bikarkeppn- innar árið 1991 er hann lék með Tottenham. Það tók Cascoigne 16 mánuði að fá sig góðan af þeim meiðslum. ■ RENE Higuita hefur á ný verið valinn í landsliðshóp Kólumbíu en hann hefur verið úti í kuldanum síðasta hálfa annað árið. Kólumbíu- menn leika vináttulandsleik við Noreg á næstakomandi miðviku- dag. ■ AIME Jacquet landsliðsþjálfari Frakka hefur valið fjóra nýliða í landsliðshóp sinn sem mætir S-Afr- íku í vináttulandsleik 12. október næstkomandi. ■ LEIKMENNIRNIR sem um er að ræða eru Lionel Letizi mark- vörður Metz, miðvallarleikmaður- inn Alain Boghossian frá Samdor- ia, framhetjinn Stephane Gui- varc’h sem er í herbúðum Auxerre og Thierry Henry, efnilegur piltur sem leikur með Mónakó. ■ EMMANUEL Petit leikmaður Arsenal er að nýju valinn í franska hópinn að þessu sinni en hann hef- ur ekki hlotið náð fyrir augum landsliðsþjálfarans síðan Frakkar mættu Astralíu í Japan árið 1994. ■ ANTONIO Maceda hefur tekið við þjálfun hjá Sporting Gijon og Sergio Kresic við sama starfi hjá Valladolid í framhaldi af því að forverum þeirra var nýlega sagt upp hjá félögunum. ■ KEVIN Keegan nýráðinn knattspyrnustjóri Fulham hefur augastað á Paul Bracewell til að styrkja leikmannahóp sinn. Ef af kaupum yrði verður Bracewell fyrsti leikmaðurinn sem Keegan kaupir frá því hann kom til liðs við Fulham. ■ BRACEWELL er 35 ára og aðstoðarknattspymustjóri hjá Sunderland jafnframt því að leika með félaginu. Hann gerði 2 ára samning við Sunderland fyrir 6 mánuðum. ■ KEEGAN keypti Bracewlll á sínum tíma til Newcastle frá Sund- erland er hann var að byggja upp liðið á St James’ Park, en leyfði honum síðan að halda á ný til fé- lagsins að nokkrum tíma liðnum. KEFLAVÍK - ÍBV A Laugardalsvelli 5. október kl. 14:00 Starfandi dómarar og aðrir með gild aðgangskort fá afhenta aðgöngumiða á leikinn á Laugardalsvelli laugardaginn 4. október kl. 11:00 - 14:00. ATH. MIÐAR VERÐA EKKI AFHENTIR Á ÖÐRUM TÍMUM. Aðilar utan af landi með gild aðgangskort geta hringt á skrifstofu KS( á sama tlma og látið taka frá fyrir sig miða sem síðar verða afhentir samkvæmt samkomulagi. •V KSI FIMMTÍU ÁRA IreyklausI KNMTSPYBNfl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.