Morgunblaðið - 21.10.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 21.10.1997, Blaðsíða 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER1997 B 7 HANDKIMATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR Bjargvætturínn Bergsveinn 24 milljónir í árslaun STEPHANE Stoecklin hjá Mind- en í Þýskalandi og Frederic Volle, sem leikur með Wallau Massenheim, tveir úr heims- meistaraliði Frakka í hand- knattleik frá HM á íslandi 1995, hafa ákveðið að söðla um í vor þegar þýsku deildinni lýkur. Þeir kumpánar hafa gert þriggja ára samning við jap- anska 1. deildarliðið Honda Gi- ken Suzuka sem tekur gildi næsta sumar og fara ékki alveg tómhentir frá Japan árið 2001 því hvor um sig fær andvirði 24 miiyóna króna I laun á ári eftir að greiddur hefur verið skattur. Það er Wolfgang Giitschow, umboðsmaður í Þýskalandi, sem hefur veg og vanda af samningi Frakkanna við japanska félagið og hefur greint frá því að einn rússneskur landsliðsmaður fari einnig til félagsins. Kvennalið Gróttu-KR sýnd veiði en ekki gefin „Guðný Egla vann leikinn" Stefán Stefánsson skrifar Stundar- fjórðungur í myrkri Ekki er von á góðu ef lið lætur vaða yfír sig í fímmtán mínútur án þess að skora mark á meðan mót- heijar þess skora níu en það varð einmitt raunin í Víkinni á sunnudaginn þegar Stjömumenn sóttu Víkinga heim. Enda tókst Víkingum aldrei að brúa bilið sem skapaðist svo að Garðbæingum varð eftirleikurinn auðveldur í 31:26 sigri. Úrslitin skila Stjörnunni upp í miðja deild en skilja Víkinga eftir á botninum með Breiða- bliki. Garðbæingar vissu hvers þeir þurftu helst að gæta hjá Víkingum; fara vel út á móti fyrrverandi félaga sínum, skyttunni Rögnvaldi Johnsen, og hanga eftir bestu getu á Birgi Sigurðssyni línumanni. Engu að síður skoraði Rögnvaldur fyrstu tvö mörkin og Birgir næstu tvö áður en vamar- leikurinn Stjömunnar gekk upp svo að Víkingar vom tilneyddir til að prófa ýmsar útgáfur af sóknarleik en það gekk ekki betur en svo að liðið skoraði ekki mark í tæpar fimmtán mínútur, sem fyrr segir, og munurinn varð níu mörk, 4:13. Þá vöknuðu Víkingar upp með andfælum og náðu strax á kióra í bakkann. Síðari hálfleikur hjá Víkingum fór í að reyna að vinna upp muninn með ærinni fyrirhöfn en Stjömumenn höfðu efni á að slaka aðeins á spenn- unni og spila lipran handknattleik þó að þeir slökuðu aldrei of mikið á. Þegar upp var staðið skildu 5 mörk liðin að. „Við vissum að þetta yrði erfíður vetur en við emm að gera hann okk- ur of erfíðan og það þarf að taka til á heimavígstöðvunum. Ég tel að það þurfi að bæta við mannskapinn, sér- staklega skotmönnum því það drífur aðeins einn maður að markinu, Rögn- valdur,“ sagði Birgir Sigurðsson Vík- ingur eftir leikinn. Eins og oft áður hafa Víkingar náð að spila vel í 40 til 50 mínútur, hingað til hefur það verið í lokin en nú kom svarti kaflinn í fyrri hálfleik. Eitthvað þarf að laga vamarleikinn, sem myndi eflaust bæta markvörsluna og í sóknarleikum þarf að ógna mun betur. Rögnvaldur og Birgir vom ágætir ogJljalti Gylfa- son, Hjörtur Öm Amarson og Krist- ján Ágústsson gerðu ágæta hluti. Valdimar Grímsson þjálfari og leik- maður Stjömunnar var aftur á móti hinn kátasti og sáttur við sína menn. „Ég er ánægður með frábæra baráttu hjá okkur og það er allt annað að sjá til liðsins nú en við upphaf mótsins. Við höfum nú spilað tvo leiki þar sem allt annar bragur er á liðinu, allir era að hafa gaman af því sem þeir em að gera auk þess að gera það sem fyrir þá er lagt. Stefnan er að vera með í baráttunni en við tökum hvem leik fyrir í einu og teljum stigin þeg- ar upp er staðið en markmiðið er að kitla þessi topplið," sagði Valdimar eftir leikinn. Á góðum degi hefur lið- ið alla burði til að kitla hressilega. Ingvar Ragnarsson varði mjög vel, Heiðmar Felixson átti mörg þmmu- skot, Hilmar Þórlindsson hafði lítið fyrir því að skora, Sigurður Viðarsson er lipur leikmaður og Valdimar dug- legur við klára færin sín. OFT hefur verið stiginn darr- aðardans á gólfi íþróttahússins að Varmá í Mosfellsbæ í leikj- um Aftureldingar síðustu ár en sjaldan hefur dansinn verið harðari en á sunnudagskvöldið er heimamenn sigruðu KA 25:24 í uppgjöri liðanna í 2. og 3. sæti. Bjargvættur heima- manna var Bergsveinn Berg- sveinsson markvörður. Þegar 10 sekúndur voru eftir varði hann úr horni skot Sverris Björnssonar, Mosfellingar sneru snöggt vörn í sókn og Þorkell Guðbrandsson skoraði af línu sigurmarkið er 2 sek- úndur voru eftir. Frábær leikur Bergsveins var lykillinn að sigri Aftureldingar, hann varði sem berserkur allan leik- inn og bætti oft á tíðum upp slaka vöm félaga hans. Öðra fremur var það þó baráttan sem ein- kenndi viðureign liðanna frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Leikmenn ætluðu greinilega að selja sig dýrt enda báðum liðum nauðsynleg stig- in í baráttunni við efsta lið deildar- innar, FH. Lengst af fyrri hálfleik var frum- kvæðið KA-manna. Þeir léku ákveðna 3:3 vörn sem Mosfellingum tókst illa að vinna leiðir í gegnum og fór svo oft að þeir unnu boltann af Mosfellingum, sem í stað þess að leika sig í gegnum vörnina skutu oft illa ígrunduðum skotum auk þess að glopra boltanum hreinlega í hendur norðanmanna. Eftir 10 Ivar Benediktsson skrifar mínútur var staðan 7:3 fyrir KA, þá tóku Mosfellingar leikhlé og jöfn- uðu fljótlega að því loknu í 7:7. Einkum tókst þeim að koma betra skipulagi á vöm sína og Bergsveinn tók að veija allt hvað af tók. Áfram héldu gestirnir að hafa frumkvæðið. Mosfellingar léku 6-0 vörn og gáfu skyttum KA, einkum Karim Yala, tækifæri á að komast nærri mark- inu. Dýrmæt þijú hraðaupphlaup undir lok hálfleiksins vógu þungt fyrir heimamenn sem með þeim tókst að ná forystu i fyrsta sinn 14:12 og 15:13 í leikhléi. í síðari hálfleik var sama barátt- an uppi á teningnum og í þeim fyrri. Leikmönnum UMFA tókst að halda frumkvæði því sem þeir náðu undir lok fyrri hálfleiks. Upp úr miðjum hálfleik var svo sem þeir væru að gera út um leikinn. Voru komnir með þriggja marka forystu 23:20 og möguleiki var á að komast fjór- um mörkum yfir. En þá snérust vopnin í höndum þeirra. Hver sókn- in fór í vaskinn á fætur annarri og alla yfirvegun vantaði og þó Berg- sveinn héldi uppteknum sá hann ekki við gestunum í öll skiptin. Þá urðu heimamenn tveimur leikmönn- um færri á kafla og það vó einnig þungt. KA-menn komust yfír 24:23 3,10 mín., vora eftir og áttu þess kost að komast tveimur mörkum yfír. Þeim varð ekki kápan úr því kiæðinu, á þá var dæmd töf. Leó var rekinn af velli þegar 1.30 mín. var eftir og reyndist það dýrkeypt. Einum færri börðust KA menn hetjulegri barátu en Bergsveinn var skerið sem þeir steyttu á 10 sekúnd- um fyrir leikslok. Enn stórleikur Bjarka BJARKI Sigurðsson átti stórleik með Drammen er félagið lagði Nor- rona 30:23 á útivelli á sunnudaginn í norsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik. Bjarki gerði 11 mörk og var að mati dagblaðsins Verdens Gangbesti leikmaðurinn vallarins og sá eini er fékk hæstu einkunn, þijár stjörnur fyrir framgöngu sína. Bjarki og samheijar í Drammen færðust upp í 4. sætið með þessum sigri hafa 8 stig að Ioknum 6 leikjum. Sandefjord, Runar og Viking eru fyrir ofan Drammen með 10 stig. Kristiansand, sem Róbert Rafnsson leikur með, vann sinn annan leik um helgina þegar það lagði Elverum á 15:13 á útivelli. Herkules, lið Hrafnkels Halldórssonar, beið lægri hlut fyrir Heimdal 29:23 og situr Herkules í næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig. Stefán Stefánsson skrifar AUÐUR Hermannsdóttur skýtur að marki Gróttu-KR. Til varnar eru Edda Kristinsdóttir og Selma Grétarsdóttir. Auði og féiögum tókst með herkjum að ^^laðlð/Ásdlb Ilands- og bikarmeistarar kvenna í handknattleik, Haukar, komust í hann krappan á Seltjarnamesinu á laugardaginn þegar þeir mættu hinu unga og sameinaða liði Gróttu-KR, sem ekki hafði tapað leik á ísiandsmótinu. Eftir að hafa þurft að gefa allt sem þeir áttu, tókst Hafnfírðingum að ná forystu þegar nokkrar mínútur vora til leiksloka og halda henni til loka í 25:22 sigri, sem var alltof stór miðað við gang leiksins. Haukar geta öðra fremur þakkað Guðnýju Eglu Jónsdóttur markverði fyrir sigurinn því hún varði mjög vel síðustu mínút- urnar. „Ég var tilbúin og það var gott að koma inná enda kominn tími til,“ sagði Guðný Egla eftir leikinn. „Við vorum ekki að spila nógu vel en vanmátum þær samt ekki. Líklega komum við ekki alveg tilbúnar í þennan leik, sem var samt mjög mikilvægur því það væri slæmt að fara með tap á bakinu í þriggja vikna frí. Við höfum þegar tapað einum leik sem er nóg - eiginlega einum of mikið.“ Leikurinn var spennandi og skemmtilegur en fór rólega af stað. Vamir beggja liða voru sterkar en sóknarleikurinn ákaflega daufur. Jafnt var í leikhléi, 12:12. Eftir hlé sýndu nýliðamir sínar bestu hliðar og náðu forystu, sem þeir héldu fram eftir án þess að gest- ir þeirra fengju rönd við reist. En þá kom að þætti Guðnýjar Eglu. Hún tók sig til og varði úr hraðaupp- hlaupi og tvö vítaköst auk fleiri góðra færa á meðan liðsmenn hennar tóku á sig rögg og nýttu færin sín, sem dugði til að ná forystu þegar sex mínútur voru til leiksloka. Gróttu- KR-stúlkurnar gerðu þá örvænting- arfullar tilraunir til að jafna leikinn en meistaraheppnin var með Hauka- stúlkum. „Guðný Egla vann fyrir þær leik- inn þegar hún varði vel í lokin því það munaði öllu, auk þess sem við nýttum ekki dauðafærin okkar,“ sagði Andrés Gunnlaugsson þjálfari Gróttu-KR eftir leikinn. „Lokatölurn- ar segja ekki allt, við reyndum að hleypa leiknum upp í lokin því vogun vinnur og vogun tapar og ég var til í reyna allt til að vinna, það skiptir ekki máli hvort tapið er eitt mark eða tíu - tap er alltaf tap. Ég er samt ánægður með stöðu okkar í deildinni þó við þurfum margt að bæta. Það bjóst enginn við að lið Gróttu-KR kæmist svona langt og.. við höfum sannað að við eram síst lakari en hin liðin og ég ætla mér að vera í einhveiju af fjóram efstu sætunum í lokin.“ Fram enn á botninum Fram, sem situr á botni 1. deildar kvenna, þurfti sárlega á stigum að halda þegar FH-stúlkur sóttu liðið heim á laugardaginn. Það var líka að ganga eftir en þegar þær höfðu tveggja marka forskot og rúmar tvær mínútur vora til leiksloka köstuðu þær frá sér sigrinum og FH-stúlkur fögnuðu 20:19 sigri. „Við voram nánast með sigurinn í höfn en klúðr- uðum honum. Það var kominn tími á sigur í dag en hann verður þá bara í næsta leik,“ sagði Hugrún Þor- steinsdóttir markvörður og fyrirliði Fram eftir leikinn. „Vörnin hefur verið mesta áhyggjuefni okkar í vet- ur og við vorum ákveðnar í að hafa hann í lagi í dag en þá brást sóknar- leikurinn." Auðvelt hjá Stjömunni Stjörnustúlkur áttu ekki í vand- ræðum með Vestmannaeyinga í Garðabænum á laugardaginn og var nánast einstefna að marki gestanna, og lauk leiknum með 30:21 sigri er hefði getað orðið enn stærri. Munur- inn var mestur tólf mörk um miðjan síðari hálfleik en þá skiptu Garðbæ- ingar ört inná og leyfðu öllum leik- mönnum á leikskýrslu að spreyta sig. „Við gerum okkur vonir um að byijunarerfiðleikarnir séu á enda og liðið sé komið á skrið en við hófum undirbúninginn seint, sem hafði slæm áhrif,“ sagði Ragnheiður Stephensen úr Stjörnunni sem var markahæst með níu mörk. Víkingar sýndu sparihliðarnar „Við voram lengi í gang en svo kom þetta í síðari hálfleik þegar vörnin small saman,“ sagði Kristín M. Guðjónsdóttir markvörður Vík- inga, sem átti góðan leik og varði tuttugu skot þegar Víkingstúlkur sýndi sparihliðamar eftir hlé og unnu stöllur sínar í Val 23:28 að Hlíðar- enda á sunnudaginn. „Við erum von- andi komnar á skrið og eigum mikið inni en hingað til höfum við ekki haft næga trú á okkur sjálfum þó það séu margir góðir leikmenn í lið- Stórleikur Ragnars Óskarssonar og Hrafns Margeirssonarvar HK um megn JJ Elska að vinna með einu“ Edwin Rögnvaldsson skrifar Leikmenn HK urðu aftur fyrir því að tapa með eins marks mun. í þetta sinn urðu þeir að játa sig sigr- aða fyrir ÍR-ingum, 29:28, í æsispennandi leik í íþróttahúsi Seljaskóla á sunnu- dagskvöld. Sem fyrr hafði Kópavogsliðið yfírhöndina framan af, en missti tökin er um stundaríjórðungur var eftir. Breið- hyltingar komust þá framúr, með leikstjórnandann Ragnar Óskarsson og markvörðinn Hrafn Margeirsson í fararbroddi, sem báðir fóru hamför- um. Ragnar gerði fjórtán mörk og Hrafn varði 24 skot. „Við unnum vel saman og allir Iögðust á eitt - þá gengur vel. Við hræðumst engan. Úrslit leikjanna eru undir okkur sjálfum kornin," sagði Matthías Matthíasson, leikmaður og þjálfari ÍR. Eins og áður segir höfðu gestirnir frumkvæðið í upphafi. Þeim gekk vel að opna framliggjandi vörn IR, sem virtist einbeita sér að því að hafa hemil á Sigurði Sveinssyni, sem var markahæsti maður deildarinnar fyrir umferðina. Gestirnir notuðu flata 6-0 vörn, sem gafst vel í upphafí, því ÍR-ingar komust ekki á blað fyrr en eftir fjór- ar og hálfa mínútu. Ragnar Óskars- son braut loks ísinn og IR-ingar jöfn- uðu metin með því að gera fímm mörk í röð. Þeir náðu síðan naumu forskoti, en HK-menn náðu aftur yfirhöndinni og voru yfir í leikhléi, 15:13. Er staðan var jöfn, 10:10, tóku þeir upp 5-1 vörn og Hlynur Jóhannesson, markvörður, hóf að veija meira en áður í leiknum. Adam var þó ekki lengi í paradís. Hlynur varði átta skot í fyrri hálf- leiknum, en síðan ekki söguna meir og honum var skipt útaf snemma í síðari hálfleik. Inná kom Baldur Bald- ursson, sem varði eitt skot á meðan Hrafn varði þrettán í marki ÍR. ÍR-ingar byijuðu vel eftir leikhlé. Þeir skiptu yfir í flata vörn og tóku síðar Sigurð Sveinsson úr umferð. Þá jöfnuðu heimamenn í 19:19 og var leikurinn í járnum næstu mínút- urnar. Þá fór í hönd stórkostlegur kafli Ragnars Óskarssonar. Gerði hann hvert markið af öðru, í öllum regnbogans litum, og ákveðnin geisl- aði af honum. Gestirnir tóku hann ekki úr umferð fyrr en ÍR-ingar höfðu náð frumkvæðinu, en þeir höfðu mátt grípa til þess fyrr. „Ragnar hló bara að okkur,“ sagði Sigurður Sveinsson og viðurkenndi að grípa hefði átt til aðgerða gagn- vart honum fyrr. „Það virðist vera hefð hjá okkur um þessar mundir að vera yfir í leikhléi, en síðan hrynur vörnin og markvarslan. Ég hef enga skýringu á þessu. Við áttum að geta unnið með eðlilegum leik. Þetta er það sama og gerðist gegn KA,“ sagði Sigurður, en HK tapaði síðast fyrir KÁ á heimavelli, með einu marki. Frammistaða þeirra Ragnars og Hrafn braut lið HK á bak aftur. „Ég er vitaskuld mjög ánægður með frammistöðu mína, þótt ég hafi gert slæm mistök undir lokin - lét skjóta í gegnum klofið á mér,“ sagði Hrafn Margeirsson, markvörður IR. „Mér fannst við leika við miklu sterkara lið í fyrri hálfleik og tel okkur heppna að hafa verið aðeins tveimur mörkum undir í leikhléi. Við byijuðum vel í síðari hálfleik, sóknarleikur þeirra fór í baklás og þeir gerðu mistök. Við áttum í raun að gera út um leikinn fyrr,“ sagði Hrafn. „Ég elska að vinna með einu marki,“ bætti hann við og vitnaði þannig í andstæðing sinn hinum megin á vellinum, Hlyn Jóhannesson, sem lét þessi orð falla eftir frækinn sigur HK á Aftureld- ingu á dögunum. Sterk liðsheild Hauka en naumursigur Skúli Unnar Sveinsson skrifar Eftir hræðilegan leik gegn Stjörn- unni á miðvikudaginn tókst Haukum að rétta úr kútnum og á laugardaginn sigr- uðu þeir Framara 30:29. Haukar tóku sig saman í andlit- inu, léku sem ein órofa heild, og uppskáru sigur þó ekki mætti muna miklu að þeir yrðu að sjá á bak öðru stiginu. Slenið virtist enn yfir Haukum í upphafi leiks en smátt og smátt tókst þeim að hrista það af sér og Framar- ar hjálpuðu þeim óneitanlega því þeir misstu boltann hvað eftir annað í sókninni og Haukar branuðu fram og skoruðu. Þegar þannig gerist öðlast menn sjálfstraust og það gerðu Haukar enda gerðu þeir átta mörk úr hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik auk þess sem þeir fengu nokkur vítaköst eftir slíkar sóknir. Framarar byijuðu betur eftir hlé, eins og í byijun leiksins og jöfnuðu 21:21 eftir 13 mínútna leik með þremur mörkum í röð. Næstu þijú gerðu heimamenn og þeir höfðu 28:25 yfir þegar fjórar mínútur voru eftir. Þá gerðu Framarar þijú mörk í röð og jöfnuðu og þegar 40 sekúndur voru eftir var staðan 29:29. Haukar fóru í sókn og inn úr vinstra horninu en Reynir Þ. Reynisson varði. Boltinn barst út og þar hafði Gústaf Bjarnson betur í baráttunni við tvo Framara og skoraði af harðfylgi. Hann hljóp síðan á eftir leikmönnum Fram sem flýttu sér sem mest þeir máttu og braut harkalega á Daða Hafþórs- syni og fékk rautt spjald er 2 sek- úndur voru eftir. Skynsamlegt hjá fyrirliðanum. Öruggur sigur Valsara á Blikum Borgar Þór Einarsson skrifar Viðureign Vals og Breiðabliks sunnudag var nokkuð fjörleg. Valsmenn sigraðu nokkuð sannfær- andi, 22:18, en leikur Blika var um margt jákvæður. Valsmenn vora sterkari en góð mar- kvarsla Elvars Guðmundssonar kom í veg fyrir að Valur hefði meira en þriggja marka forystu í hléi, 10:7. Valsmenn mættu grimmir til leiks eftir hlé. Vömin small saman og Guðmundur lokaði markinu. Mest náðu Valsmenn sjö marka forystu, 20:13, en þá slökuðu þeir á og Blikar gengu á lagið. Þegar um þijár mínút- ur voru til leiksloka minnkuðu Blikar muninn í þijú mörk, 21:18, og leikur- inn virtist galopinn. En Jón Kristjáns- son gulltryggði sigur Vals með góðu marki, 22:18, og þar við sat. Valsmenn þurftu að hafa nokkuð fyrir sigrinum en fyrirfram hefði mátt búast við öraggum sigri. Ari Allansson og Davíð Ólafsson vora bestir í liði Vals. Jón Kristjánsson, þjálfari Vals, var nokkuð sáttur í leikslok: „Það var lagt upp fyrir leik- inn að sem flestir fengju að spila. Eg var ánægður með vamarleikinn á löngum köflum. Sóknarleikurinn var með skásta móti og virðist fara batn- andi en við þurfum þó bæta hann ; mikið." Bestur hjá Blikum var markvörð'- urinn Elvar Guðmundsson. Geir Hall- steinsson, þjálfari Blika, sagði margt jákvætt við leik liðsins: „Þetta er í áttina en það tekur tíma að smyija liðið saman. Mér fannst Elvar [Guð- mundsson] vera að spila í landsliðs- klassa enda kemur markvarslan þeg- ar vömin fínnur sig.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.