Morgunblaðið - 21.10.1997, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 B 9
„F}ölþtóðalió“ Derby “Eg,
nálægt sigri á United '.
Reuters
GIANFRANCO Zola, ítalskl landsliðsmaóurinn snjalli í liðl Chelsea, skýlir knettinum fyrir Jul-
ian Watts, varnarmanni hjá Leicester. Chelsea sigraði 1:0 og er í fjórða sæti deíldarinnar.
Romario gleðimaður
BRASILÍSKI framhetjinn Romario, sem leikur með
Valencia á Spáni, hefur löngum verið þekktur fyr-
ir að vera gleðimaður og sést gjarnan á næturklúbb-
um. Hann lék ekki með Valencia gegn Celta á
sunnudaginn, sagðist meiddur. Hann var hins veg-
ar á næturklúbbi nóttina fyrir leikinn og telur það
sjálfsagt. „Það getur enginn sagt neitt um einka-
líf mitt. Ég þarfnast næturklúbba; ef ég fer ekki
út á kvöldin þá skora ég ekki,“ sagði Romario.
Strákarnir frábærir
„STRÁKARNIR léku frábærlega og haldi þeir
áfram að leika svona hljótum við að ná góðu sæti
í deildinni," sagði George Graham knattspyrnu-
stjóri Leeds eftir að liðs hans hafði unnið öruggan
stórsigur á liði Newcastle, 4:1, á heimavelli sínum,
Elland Road, í ensku úrvalsdeildinni. „Allir léku
vel og ég verð að lofa alla leikmenn mína, varnar-
mennina, miðjumennina og sóknarmennina,“ bætti
knattspyrnustjórinn við, alsæll.
Barcelona tapaði stigi
MIKIÐ var um óvænt úrslit í
Englandi um helgina. Leeds
burstaði Newcastle 4:1, Man-
chester United náði 2:2 jafn-
tefli við Derby, Crystal Palace
hélt markaskorurum Arsenal á
mottunni og lauk þeirri viður-
eign með markalausu jafntefli
og síðast en ekki síst lagði
Everton hina rauðklæddu
granna sína í Liverpool 2:0.
að eru liðin mörg ár síðan stuðn-
ingsmenn Derby hafa getað
fagnað góðu gengi liðsins; Derby
varð tvívegis meistari á áttunda ára-
tugnum, 1972 og aftur 1975. En
nú hafa þeir fulla ástæðu til að gleðj-
ast yfir gengi „fjölþjóðaliðsins" sem
hefur leikið mjög vel og skorað mik-
ið. í liðinu eru tveir leikmenn frá
Costa Rica, tveir ítalir, tveir Eistar,
tveir Króatar, Holiendingur, Dani
og menn víðs vegar að af Bretlands-
eyjum.
Á laugardagin tók Derby á móti
meisturum United og skildu liðin
jöfn, 2:2, eftir að Derby hafði kom-
ist í 2:0 og tryggði Andy Cole jafn-
teflið með marki á 84. mínútu. Derby
er nú í sjöunda sæti og á tvo leiki
til góða, gæti komist að hiið United
og Blackburn, stigi á eftir Arsenal
sem er á toppnum. Teddy Shering-
ham misnotaði vítaspyrnu í fyrri
hálfleik og leikmenn Derby fengu
ágætis færi til að bæta við mörkum,
ekki síst Wanchope þegar staðan var
2:0, en skot hans small í þverslánni.
Jim Smith, stjóri liðsins, var bæði
ergilegur og ánægður eftir leikinn.
Sár yfir því að sigra ekki og um
leið ánægður með að lið sem vann
sér rétt til veru í úrvalsdeildinni fyr-
ir 16 mánuðum væri eins gott og
raun ber vitni. „Það segir ef til vill
mikið um lið mitt að ég skuli hafa
messað rækilega yfir leikmönnunum
eftir að hafa gert 2:2 jafntefli við
Manchester United. En ég var með
unga stráka í dag sem trúðu því
hreinlega ekki að þeir gætu lagt
United,“ sagði Smith. Hann sagði í
síðustu viku að hann væri búinn að
vera svo lengi viðloðandi knatt-
spyrnu að hann hefði vit á að spá
ekki um gengi liða. „Hins vegar
sýnist mér ljóst að við erum að verða
lið sem gæti unnið eitthvað."
Leikmenn United sýndu meistara-
takta með því að ná að jafna og
forráðamenn Feyenoord hafa eitt-
hvað til að hugsa um fram að leik
liðanna í Meistaradeild Evrópu á
miðvikudaginn.
Arsenal brá sér til Selhurst Park
í Lundúnum og mætti þar Hermanni
Hreiðarssyni og félögum í Crystal
Palace og lauk leiknum með marka-
lausu jafntefli. Leikmenn Arsenal
náðu sér ekki á strik í leiknum en
Hermann var ánægður með sinn
hlut í leiknum, gætti Dennis Berg-
kamps.
í Liverpool mættust nágrannarnir
Everton og Liverpool í 157. sinn og
að þessu sinni var það Everton sem
hafði betur, 2:0. Everton hefur ekki
gengið vel það sem af er, hafði að-
eins sigrað tvívegis í deildinni og
tapaði 4:1 fyrir Coventry í deildar-
bikarnum. Þrátt fyrir þetta mættu
leikmenn Everton fullir sjálfstrausts
og stolts; léku með hjartanu og
uppskáru sigur. Það var raunar Li-
verpool-maðurinn Neil Ruddock sem
kom þeim á bragðið með sjálfsmarki
á síðustu mínútu fyrri hálfleiks en
þegar hálf klukkustund var liðin af
þeim síðari skoraði táningurinn
Danny Cadamarteri.
Það má segja að þó svo gengi lið-
anna hafi verið misjafnt í vetur komu
úrslitin ekki á óvart. Everton hefur
ekki tapað fyrir Liverpool í síðustu
sjö leikjum og á Goodison Park hef-
i ur Liverpool ekki lagt Everton síðan
1990.
Blackburn, sem byijaði með mikl-
um látum, hefur heldur betur hægt
á sér og fyrir leikinn við Southamp-
ton á laugardaginn hafði liðið aðeins
unnið einn af síðustu fimm deildar-
leikjum. Tim Sherwood tryggði
Blackburn sigur og annað sætið í
deildinni með marki á 26. mínútu.
Chelsea færði sig líka til á töfl-
unni, úr fimmta í fjórða sæti, með
því að leggja Leicester 1:0 á Stam-
ford Bridge; markið gerði Frank
Lebouef á 88. mínútu. Frakkinn
hefur áður tryggt Chelsea sigur en
í febrúar var það hann sem skoraði
sigurmark liðsins úr vítaspyrnu í
framlengingu í leik gegn Leicester
í bikarkeppninni.
Mark Lebouef var glæsilegt og
landi hans í marki Leicester, Pegguy
Arphexad, sem lék sinn fyrsta leik
með liðinu, átti ekki möguleika á
að verja. Arphexad átti annars mjög
góðan leik. Graeme Le Saux, miðju-
maður hjá Chelsea, meiddist á hand-
legg í fyrri hálfleik og gæti orðið
frá keppni um tíma.
Gerry Francis, knattspyrnustjóri
Tottenham, getur andað léttar um
sinn því lið hans náði að sigra Shef-
field Wednesday 3:2 á sunnudaginn.
Francis hafði verið gagnrýndur fyrir
slakt gengi liðsins en með sigrinum
náði það að mjaka sér upp undir
miðju.
Barcelona heldur efsta sætinu á
Spáni þrátt fyrir að gera 2:2
jafntefli við Compostela, en þetta
voru fyrstu stigin sem Barcelona
tapar á tímabilinu.
Barcelona má teljast heppið að
krækja í eitt stig í leiknum því
heimamenn komust í 2:0 snemma í
síðari hálfleiknum og fengu færi á
að skora fleiri mörk en markvörð-
urinn Ruud Hesp tryggði sæti sitt
í liðinu með góðri markvörslu, sér-
staklega í tvígang á lokamínútun-
um. Oscar Garcia minnkaði muninn
fyrir Börsunga tveimur mínútum
eftir síðara mark Compostela og
Rivaldo tryggði stigið með marki
eftir óbeina aukaspymu sem dæmd
var á markteig þegar markvörður-
inn greip sendingu frá varnarmanni.
ítalski framlínumaðurinn Christ-
ian Vieri gerði þrennu þegar At-
letico vann Zaragoza 5:1. Lið At-
letico lék frábærlega, hélt með sigr-
inum þriðja sætinu og minnkaði bil-
ið heldur á milli liðsins og Börs-
unga, sem eru í efsta sæti, fimm
stigum ofar og tveimur stigum ofar
en meistarar Real Madrid sem eru
í öðra sæti.
Meistararnir áttu ekki í erfiðleik-
um með Tenerife og sigraðu 3:0 og
á miðvikudaginn vann liðið Merida
4:0. Það má því með sanni segja að
ARSENE Wenger, hinn franski
knattspyrnustjóri enska úrvals-
deildarliðsins Arsenal, sagðist
í gær ekki telja ólíklegt að þijú
eða fjögur lið frá hverri hinna
„stóru“ knattspyrnuþjóða yrðu
fljótlega með í Meistaradeild
Evrópukeppninnar - að kröfu
sjónvarpsstöðva.
Frakkinn upplýsti einnig að
hann hefði grátið þurrum tár-
um þegar lið hans var slegið
út úr Evrópukeppni félagsliða
(UEFA-keppninni svokölluðu) í
fyrstu umferðinni fyrr í mánuð-
inum.
„Ef ég á að vera hreinskilinn
verð ég að viðurkenna að eina
Evrópukeppnin sem ég hef
raunverulegan áhuga á er
Meistaradeildin,“ sagði hann.
„UEFA-keppnin er huggun
[þeim sem ekki ná á toppinn í
heimalandinu] og Evrópu-
keppni bikarhafa hefur verið
eyðilögð. Hver tekur þátt í
henni nú til dags? Enginn. Jafn-
vel lið sem verða bikarmeist-
arar geta komist inn í Meistara-
deildina með því að ná öðru
sæti í deildarkeppninni. Barcel-
ona er gott dæmi. Liðið sigraði
í spænsku bikarkeppninni en
mun Chelsea mæta því í vetur?
Nei, vegna þess að Barcelona
er í Meistaradeildinni. Stað-
reyndin er sú að Meistaradeild-
in er það sem öllu máli skiptir.”
Wenger, sem þjálfaði í
Frakklandi og Japan áður en
hann kom til Arsenal, er ekki
í vafa um að enn verður fjölgað
í Meistaradeildinni frá því sem
nú er. Átta lið voru í deildinni
þegar hún var sett á laggirnar
keppnistímabilið 1992-93,
1994-95 var fjölgað í 16 og nú
eru 24 lið í deildinni. „Þetta
snýst allt um peninga. Þegar
leikjunum fjölgar fá félögin
meira fé fyrir sjónvarpsútsend-
ingar og ég tel að á næstu árum
verði ekki einungis tvö, heldur
þrjú eða fjögur lið frá „stóru“
löndunum sem mætist innbyrð-
is. Þetta er það sem sjónvarps-
fyrirtækin vilja - stóru liðin í
stórleikjum.“
piltamir hans Radomir Antic fari
með gott veganesti í Evrópuleikinn
gegn gríska liðinu PAOK frá Salon-
íki. Femando Morientes, sem Real
keypti nýlega, undirstrikaði að hann
ætlar sér fast sæti í liðinu og kom
meisturunum á sporið snemma leiks.
Liðin tvö sem hafa komið mest. á
óvart það sem af er keppninni á
Spáni era án efa Mallorca og Celta
Vigo. Þau héldu bæði uppteknum
hætti um helgina, Vigo vann Val-
encia 1:0 og þau urðu einnig úrslit-
in í leik Mallorca og Santander. Lið-
in eru bæði með 14 stig eins og
Atletico, sem er í þriðja sæti, en
hafa lakari markamun.