Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 12
KNATTSPYRNA
Molde í Evrópukeppni
NORSICA liðið Molde, sem Bjarki
Gunnlaugsson leikur með, tapaði
2:1 fyrir meisturunum í Rosenborg
í síðustu umferð norsku deildarinn-
ar um helgina og lagði Bjarki upp
mark Molde. Liðið endaði í fjórða
sæti og náði þar með í Evrópu-
sæti. „Menn eru mjög ánægðir með
að hafa náð sæti í Evrópukeppn-
inni,“ sagði Bjarki í samtali við
Morgunblaðið. „Það eru í sjálfu sér
ekki svo slæm úrslit að tapa 2:1
fyrir Rosenborg, það er langbesta
liðið hér. Við hefðum samt alveg
getað gert betur og fengum færin
til að skora, en meistaraheppnin
var með meisturunum," sagði
Bjarki.
Stabæk, lið Helga Sigurðssonar,
endaði í fimmta sæti, tapaði fyrir
Brann, liði Ágústs Gylfasonar og
Birkis Kristinssonar, um helgina.
Helgi var í banni en að sögn Bjarka
lék Ágúst með Brann. Tapið þýðir
að Stabæk verður að bíða í viku
eftir því hvort liðið kemst í Evrópu-
keppnina. Til að það megi verða
þarf Strömgodset, sem Óskar
Hrafn Þorvaldsson gerði nýverið
samning við, að leggja Válerenga,
þar sem félagi hans úr KR, Brynj-
ar Gunnarsson leikur, í bikarúrslit-
um. Gerist það fer Strömgodset í
Evrópukeppni bikarhafa og þá gef-
ur fimmta sætið, þar sem Stabæk
er, sæti í Evrópukeppni félagsliða.
„Hermann frábær“
Hermann Hreiðarsson lék mjög
vel með Crystal Palace á laug-
ardag, þegar liðið gerði markalaust
jafntefli við Arsenal, sem er í efsta
sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Her-
mann lék í miðju varnarinnar og
fékk það hlutverk að hafa gætur á
hollenska framherjanum frábæra
Dennis Bergkamp - sem gert hafði
ellefu mörk í jafn mörgum leikjum
í úrvalsdeildinni í vetur - og fórst
það vel úr hendi. „Mér gekk ljóm-
andi vel,“ sagði Hermann í samtali
við Morgunblaðið. „Ég komst
snemma inní leikinn og tók hann
hreinlega í nefíð.“
„Frábær“
Steve Coppell, knattspyrnustjóri
Crystal Palace, hældi íslenska varn-
armanninum unga á hvert reipi að
leikslokum en starfsbróðir hans hjá
Arsenal, Arsene Wenger, var ekki
að sama skapi ánægður. Kvartaði
mjög undan því hve Hermann hefði
fengið að vera grófur og hve lítið
hefði verið dæmt á hann. „Hermann
var frábær," sagði Coppell og félagi
Hermanns í vöminni, Dean Gordon,
tók í sama streng. „Mér fannst
Hermann og Andy Linighan [sem
einnig leikur sem miðvörður] stór-
góðir.“
Wenger var harðorður: „Leik-
maður númer 22 [Hermann] fékk
að vefja Bergkamp örmum hvað
eftir annað í sex til sjö sekúndur.
Hann braut mjög oft á honum án
þess að dæmt væri,“ sagði Frakkinn
og sagðist vel skilja gremju fram-
herja síns, sem fékk að líta gula
spjaldið fyrir að bijóta á Her-
manni. Þetta var fimmta áminning
Bergkamps í vetur og varð þess
valdandi að hann fer fljótlega í
þriggja leikja bann; verður með
gegn Aston Villa um næstu helgi
en missir síðan af útileikjum gegn
Derby og Sheffield Wednesday og
viðureigninni við Manchester Un-
ited á Highbury 9. nóvember.
Hermann fékk mjög góða dóma
í bresku dagblöðunum eftir leikinn
við Arsenal. Af 10 mögulegum fékk
hann 7 í einkunn í News of the
World, Daily Star, Daily Mirror og
Sun en í Sunday Mirror fékk hann
einkunnina 8 og var talinn besti
leikmaður vallarins.
United besta liðið
Hermann, sem hefur nú verið í
byijunarliði Palace í fimm deildar-
leiki í röð, sagði á vissan hátt gott
Mynd/Sun
HERMANN Hreiðarsson í harðrl baráttu við hollenska framherjann frábæra Dennis Bergkamp
á Selhurst Park á laugardag. íslendingurinn ungl þóttl frábær í leiknum, en Arsenal-menn
kvörtuðu reyndar undan því hve illa hann hefði fenglð að lelka Bergkamp.
að halda hreinu gegn leikmönnum
Arsenal enda hefðu þeir verið iðnir
við að skora. Uppáhaldslið Her-
manns, áður en hann samdi við
Palace, var Manchester United,
þannig að hann jánkaði því að þetta
væri tvöfaldur sigur fyrir sig; að
ná stigi af Arsenal og þar með að
hjálpa United í baráttunni um
meistaratitilinn. „Ég held að United
verði meistari, mér sýnist það vera
sterkasta liðið," sagði hann.
Raufoss komst upp
RAUFOSS vann sér í síðustu viku sæti í 1. deild, næstu efstu deild
norsku knattspymunnar, næsta sumar. Þrír íslendingar eru á mála hjá
félaginu, Einar Páll Tómasson, sem er fyrirliði, Tómas Ingi Tómasson
og Páll Guðmundsson. Liðinu barst svo góður liðsauki um mitt sumar
þegar Hajrudin Cardaklija markvörður, sem var hjá Leiftri, gekk til liðs
við Raufoss og stóð sig afar vel. Raufoss sigraði í einum af átta riðlum
2. deildar og lék í framhaldi af því við Kolstat, frá Þrándheimi. Þar
hafði Raufoss betur í báðum leikjum, 2:1 á heimavelli og 3:2 á útivelli.
10 mörk í leik
hjá Þórði
„ÞETTA var ótrúlegu*- leikur
og ég hef aldrei áður tekið
þátt í leik sem endar 5:5 -
ekki einu sinni með yngri
flokkunum þjá ÍA,“ sagði
Þórður Gucljónsson um leik
Genk og Vesterlo f belgísku
1. deildinni um helgina. Genk
er í þriðja sæti með 17 stig
eftir niu umferðir og hefur
aðeins fengið tvö stig úr síð-
ustu fjórum leikjum sinum.
Brugge er efst með 24 stig
og hefur unnið alla níu leiki
sína.
Þórður lék fyrri hálfleikinn
með Genk og lagði upp fyrsta
mark liðsins, en var tekinn
út af í háifleik. „Ég var auðvit-
að óhress með að vera skipt
út af. En þjálfarinn gerði tvær
breytingar enda staðan 3:2
fyrir Vesterlo, sem við ættum
á eðlilegum degi að vinna
stórt. Við sóttum látlaust allan
leikinn, en Vesterlo varðist vel
og byggði á skyndisóknum.
Liðið náði fjórum sóknum í
fyrri hálfleik og gerði þijú
mörk og átti síðan þrjú skot
á markið í síðari og gerði tvö
mörk - góð nýting það,“ sagði
Þórður.
■ PÉTUR Marteinsson og sam-
heijar í Hammarby tryggðu sér
sæti í sænsku úrvalsdeildinni næsta
sumar með því að sigra Lira frá
Luleá 3:1 á útivelli. Hammarby sigr-
aði þar með í norðurriðli 1. deildar-
innar.
■ ÓLAFUR Gottskálksson lék að
venju í markinu hjá Hibemian um
helgina en liðið tapaði 2:0 fyrir
Aberdeen á útivelli, en Aberdeen
er í neðsta sæti skosku úrvalsdeild-
arnnar. „Við vorum lélegir í leiknum,
einkum í fyrri hálfleik og greinilegt
að liðsmenn Aberdeen komu til leiks
staðráðnir í að sigra,“ sagði Ólafur,
„enda hefði knattspyrnustjóri liðsins
verið rekinn hefðu þeir tapað.“
■ ÓLAFUR sagði að í fyrra mark-
inu hefði knötturinn breytt um
stefnu af varnarmanni á síðustu
stundu og hann því kastað sér í rangt
horn. Síðara markið var úr víta-
spyrnu, en bæði voru þau gerð í
fyrri hálfleik. „Við vorum heldur
skárri í síðari hálfleik og fengum
nokkur færi.“
■ BJARNÓLFUR Lárusson var í
leikmannahópi Hibernian í leiknum
en kom ekki inn á. „Miðað við
frammistöðu ýmissa hjá okkur að
undanförnu kæmi mér ekki á óvart
þó styttist í að Bjarnólfur fengi
tækifæri," sagði Ólafur.
■ GUÐNI Bergsson lék í stöðu
miðvarðar með Bolton er liðið sótti
West Ham heim og tapaði 3:0.
Guðni lék vel og hafði í nógu að
snúast því Gerry Taggart hinn
miðvörður liðsins var rekinn útaf á
69. mínútu rétt eftir að heimamenn
höfðu gert fyrsta mark sitt.
■ ARNAR Gunnlaugsson sat á
varamannabekknum hjá Bolton í
leiknum, en fékk ekki að spreyta
sig. „Ég er kominn í góða æfingu
og vildi gjarnan spreyta mig, en ég
verð bara að sýna þolinmæði," sagði
Amar eftir leikinn. „Mikið er um
meiðsl hjá varnarmönnum okkar auk
þess sem það vantar meira sjálfs-
traust í liðið.“
■ EVEN Pellerud, þjálfari Rúnars
Kristinssonar og samheija hjá
norska 1. deildarliðinu Lilleström,
var leystur frá störfum í síðustu viku.