Morgunblaðið - 29.10.1997, Side 1
i
í
n
lc
I
/s
ETIi
m
1997
MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER
KNATTSPYRNA
's i
V, Íkí , ' ' "
• . .. <
BLAD
Pétur Bjöm
fertil
Hammarby
PÉTUR Björn Jónsson, leikmaður með Leiftri, er á förum til
sænska liðsins Hammarby í Stokkhólmi - hefur ákveðið að
skrifa undir þriggja ára samning við félagið, sem vann sér sæti
í úrvalsdeildinni á dögunum. Pétur Björn fetar því f fótspor
föður síns, Jóns Péturssonar, fyrrum landsliðsmanns úr Fram,
sem lék með Jönköping á árum áður.
Pétur Björn æfði með Hamm-
arby á dögunum og var þjálf-
arinn, Rolf Zetterlund, fyrrum
þjálfari Malmö FF, mjög ánægður
með Pétur Björn, sem kom með
drög að þriggja ára samningi
heim. Þar sem hann var samnings-
bundinn Leiftri til ársins 2000,
urðu forráðamenn Hammarby að
ræða við Leiftursmenn. „Ég er
mjög þakklátur Leiftri að ég fái
tækifæri til að fara áður en samn-
ingurinn var útrunninn, en Leiftur
og Hammarby náðu saman um
félagsskiptin," sagði Pétur Björn.
Biðstaða
hjá Sigurði
SIGURÐUR Jónsson knatt-
spyrnumaður þjá Örebro í
Svíþjóð segir að félagsskipta-
mál sitt liggi i salti þessa
dagana, en hann hefur í
hyggju að skipta um vett-
vang þar sem samningurinn
við sænska félagið er útrunn-
inn. í samtali við Morgun-
blaðið í gær sagði Sigurður
sem fyrr væri hann að velta
fyrir sér möguleikum á að
leika í Noregi eða í Skot-
landi, en hann væri hins veg-
ar búinn að gefa austurríska
liðið Admira Wacker upp á
bátinn. „Sem stendur er ég í
nokkurra daga leyfi með fjöl-
skyldunni en ég vonast til
þess að það skýrist fljótlega
að þvi loknu hvaða pól ég tek
í hæðina,“ sagði Sigurður.
Leiftur samþykkti félagsskiptin á
þriðjudaginn.
Pétur Björn hittir fyrir hjá
Hammarby fyrrum félaga sinn hjá
Leiftri, Pétur Marteinsson, sem
hefur staðið sig mjög vel sem mið-
vörður hjá liðinu, sem leikur 4-4-2.
„Ég verð að segja eins og er, ég
skil ekki hvernig landsliðsþjálfari
íslands hefur getað sleppt því að
kalla eftir kröftum Péturs,“ sagði
Pétur Björn.
Hammarby er eins og fyrr segir
frá Stokkhólmi og er heimavöllur
liðsins lítill og mikill stemmnings-
völlur - Söderstadion, sem tekur
10.200 áhorfendur. „Það voru
þetta fjögur til fimm þúsund
áhorfendur á heimaleikjum liðsins
í sumar, mér var sagt að það yrði
uppselt á alla heimaleikina næsta
keppnistímabil. „Ég fékk fiðring
þegar ég sá liðið leika þýðingar-
mikinn nágrannaleik við
Djurgárden á dögunum. Stemmn-
ingin var ólýsanleg og ég sagði
við sjálfan mig; Ég vil taka þátt
í þessu.“
Pétur Björn, sem hefur leikið
með Leiftri í sex ár, fer til Stokk-
hólm í lok nóvember. „Ég er mjög
sáttur við minn hlut og það verður
spennandi verkefni að fá að leika
með í úrvalsdeildinni í Svíþjóð, sem
er sterkari en deildin hér heima.
Mér fannst ég farinn að staðna
hér heima, nú hefur opnast nýr
heimur fyrir mig.
Hammarby er með sterkan leik-
mannahóp, en liðið ætlar að bæta
leikmönnum við fyrir átökin í úr-
valsdeildinni. Ég var látinn leika
sam hægri útherji á æfingum með
liðinu og vona ég að það verði
mitt hlutverk í framtíðinni hjá lið-
inu,“ sagði Pétur Björn Jónsson.
Morgunblaðið/Ásdís
PÉTUR Björn Jónsson verður á ferðlnnl með knöttlnn í
Svíðþjóð næsta keppnlstímabll.
Lofsamleg
ummæli um
Árna Gaut
NORSKA dagblaðinu Aftenpostea í gær er
greint frá líklegum kaupum norsku meistar-
anna Rosenborgar á Árna Gauti Arasyni mark-
verði Stjörnunnar og íslenska unglingalands-
liðsins skipað leikmönnum 21 árs og yngri. Þar
fer Trond Sollied, næsti þjálfari liðsins, lofsam-
legum orðum um Árna Gaut og segir að greini-
legt hafi verið er Árni heimsótti félagið á dög-
unum og lék og æfði með því að þar væri góð-
ur markvörður á ferð. „Þrátt fyrir að hann sé
ungur að árum sé ég ekkert því til fyrirstöðu
að við notum hann hiklaust hvenær sem og
hvar sem er gerist þess þörf,“
segir Sollied. Ummælin lýsa
vel því góða áliti sem forráða-
menn félagsins hafa fengið á
Arna, en Rosenborg er ekki
einvörðungu að keppa á
heimavígstöðum heldur einn-
ig á meðal fremstu knatt-
spyrnuliða Evrópu í Meistara-
deildinni.
Kongs-
vinger vill
fá Loga
NORSKA félagið Kongsving-
er hefur áhuga á að fá Loga
Ólafsson þjálfara Akraness
sem næsta þjálfara félagsins
eftir því sem fram kemur í
fréttum dagblaðsins Aften-
posten í gær. Dag Arneson
forsvarsmaður félagsins seg-
ist hafa rætt starfið við Loga,
en einnig við tvo aðra þjálf-
ara sem til greina koma.
Ekkert væri hins vegar kom-
ið á hreint í þessu máli. Kong-
svinger hafnaði í 6. sæti í
norsku úrvalsdeildinni sem
lauk á dögunum.
Logi tók við liði Akraness
á miðju sl. sumri og stýrði
því til loka keppnistímabils-
ins. Að því loknu gerði hann
samning um að þjálfa Skaga-
liðið næstu tvö keppnistíma-
bil. Ekki náðst í Loga í gær
en haft var eftir honum á
Stöð 2 að hann hefði engu
við þessa frétt að bæta.
KORFUKNATTLEIKUR
Réttlætið sigraði
Bandaríkjamaðurinn David Be-
vis leikmaður körfuknatt-
leiksliðs KFÍ var í gær úrskurðað-
ur saklaus af aganefnd KKÍ af
því að hafa sýnt „sérlega grófan
leik eða ofbeldi" eins og segir í
skýrslu dómarar í síðari leik
Keflavíkur og KFÍ í Eggjabikarn-
um í Kefalvík á sunnudaginn. Þá
var Bevis vikið af leik- velli eftir
að dómarar leiksins, Helgi Braga-
son, Kristján Möller og Einar Ein-
arsson höfðu dæmt á hann ásetn-
ingsvillu í framhaldi af því að
þeir töldu Bevis hafa slegið leik-
mann Keflavíkur í andlitið.
„Réttlætið sigraði,“ sagði Guð-
jón Þorsteinsson, annar tveggja
þjálfara KFÍ, í gær eftir að málið
hafði verið tekið fyrir. „Þeir sáu
ekki ástæðu til að gera neitt frek-
ar í málinu og því var vísað frá.“
Það var gert að sögn Guðjóns
m.a. eftir að farið hafði verið yfir
myndbandsupptökur frá Stöð 2
og RÚV af umræddu atviki. Hefði
Bevis verið fundinn sekur hefði
hann a.m.k. hlotið eins leiks bann.
„Eftir stendur hins vegar að við
töpuðum leiknum, sem ekki verður
bætt upp. Við ætluðum að vinna
og þegar Bevis var rekinn af leik-
velli vorum við þremur stigum yfir,
63:60, og Keflavíkingar réðu ekk-
ert við hann enda var Bevis besti
leikmaður vallarins. Við töpuðum
síðan leiknum og sitjum eftir með
sárt ennið í keppninni þar sem við
ætluðum okkur að komast áfram.
En Bevis var sýknaður enda góður
drengur sem við vorum vissir um
að væri saklaus. Þess vegna ríkir
bæði gleði og sorg hjá okkur vegna
þess máls,“ sagði Guðjón ennfrem-
ur.
30 LEIKIR LARVIKS ÁIM TAPS UIMDIR STJÓRIM KRISTJÁIMS HALLDÓRSSOIMAR / B4