Morgunblaðið - 29.10.1997, Side 3
2 B MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
HAIMDKNATTLEIKUR
MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 1997 B 3
IÞROTTIR
KAPPAKSTUR
Schumacher segist bera ábyrgð á árekstrinum
Iðrast en segir at-
vikið ekki viljaverk
^Reuters
MICHAEL Schumacher á blaöamannafundi í gœr. „Ég er
mannlegur eins og alllr aðrir og því miður gerði ég mistök.
MICHAEL Schumacher, fyrrum
heimsmeistari í Formula 1
kappakstri, var fullur iðrunar á
blaðamannafundi í höfuðstöðv-
um Ferrari kappakstursliðsins
í Maranello á Italíu í gær;
kvaðst bera ábyrgð á árekstrin-
um sem varð þess valdandi að
hann varð að hætta í síðasta
kappakstri ársins, f Jerez á
Spáni á sunnudag, en sagðist
hins vegar ekki hafa ekið vilj-
andi á bifreið keppinautar síns,
Jacques Villeneuves.
Schumacher hafði eins stigs for-
skot á Villeneuve fyrir Evr-
ópukappaksturinn í Jerez og vitað
mál var að sá sem kæmi á undan
í mark yrði heimsmeistari. Einvígi
þeirra lauk á 48. hring af 69 þegar
Kanadamaðurinn Villeneuve ók
Williams-bifreið sinni hægra megin
fram úr Ferrari-bíl Þjóðverjans í
beygju; fór út úr kjölsogi Schumach-
ers til að komast fram úr honum
innanvert í Expo-beygjunni, en þeg-
ar hann var að fara fram úr sveigði
Schumacher til hægri, rakst á Will-
iams-bílinn en kastaðist af honum
og hafnaði í malargildru hægra
megin við brautina og varð að
hætta. Villeneuve hélt hins vegar
áfram, þó bifreiðin væri löskuð, og
varð heimsmeistari.
Schumacher sagði í gær, að
ástæða árekstursins væri sú að hann
hefði metið stöðuna rangt; hann
hefði orðið mjög undrandi þegar
Villeneuve reyndi að fara fram úr
á þessum stað og hefði ekki brugð-
ist rétt við. Hann hefði ekki ekið
viljandi á Williams-bílinn. Schu-
macher sagði alla ökumenn meðvit-
aða um að forráðamenn íþróttarinn-
ar gætu dregið stig af mönnum fyr-
ir óíþróttamannslega framkomu í
keppni að henni lokinni. Sagði hann
þar af leiðandi að viljandi árekstur
gerði engan að meistara, viðkom-
andi virkaði hins vegar „mjög
heimskur", eins og hann orðaði það
á blaðamannafundinum í gær.
Schumacher sagðist hafa gert
mistök í hita leiksins, en kæmi stað-
an upp aftur myndi hann ekki bregð-
ast eins við. „Eg er mannlegur eins
og allir aðrir og því miður gerði ég
mistök. Það gerist ekki oft en ég
gerði mistök í þetta skipti," sagði
Þjóðverjinn.
Forystumenn alþjóða bifreiða-
íþróttasambandsins hafa boðað
Schumacher á sinn fund í París til
að skýra mál sitt. Meistarinn fyrr-
verandi gæti átt yfir höfði sér
keppnisbann verði hann talinn sekur
um glæfraakstur og kvaðst hann í
gær tilbúinn að sætta sig við afleið-
ingar mistaka sinna í keppninni.
Schumacher tjáði sig í gær í
fyrsta skipti um afrek Villeneuves,
hældi Kanadamanninum og sagði
hann góðan ökumann. „Hann er
verðugur meistari," sagði Þjóðvetj-
inn, heimsmeistarinn frá því í fyrra.
Mark Price til Magic
MARK Price bakvörður Golden State Warriors hefur verið seldur
til Orlando Magic, en Golden State fékk í hans stað bakvörðinn
Mark Price og miðherjann David Vaughn frá Orlando-Iiðinu.
„Það er mikill akkur fyrir okkur að fá Price til liðsins,“ sagði
John Gabriel framkvæmdastjóri Orlando í gær er hann upplýsti
um kaupin. „Hann er góð skytta og kemur einnig til með að styrkja
vörn okkar verulega. Að sama skapi er hryggilegt að sjá á bak
þeim Shaw og Vaughn, en svona gerast kaupin á eyrinni,“ bætti
Gabriel við. Price hefur leikið í NBA deildinni sl. 11 ár, fyrstu
9 árin með Cleveland, eitt með Washington og sl. keppnistímabil
með Golden State. Hann hefur fjórum sinnum verið valinn til
þátttöku í stjörnuleiknum, 1989,1992,1993 og 1994.
GETRAUNALEIKUR MORGUNBLAÐSINS
Úrvalsdeildarliðin í knattspyrnu í sviðsljósinu
Keppt um Englands-
og Ítalíubikarínn
Á MORGUN hefst nýr get-
| raunaleikur hjá Morgunblað-
inu, þar sem úrvalsdeildarliðin
Íí knattspyrnu etja kappi á síð-
um blaðsins. Það má því búast
við harðri og spennandi keppni
eins og á knattspyrnuvellinum.
f
Cyrirkomulag er þannig, að úr-
íj ■ valsdeildarliðin tíu keppa í
*“ tveimur fimm liða riðlum, Englands
Iog Ítalíu.
Allir keppa við alla, þannig að
f um tíu leikir er í hvorum riðli.
Búið er að draga í riðla, sem eru
þannig:
Englandsriðill: Fram, ÍA, Kefla-
vík, KR og ÍR.
IA og ÍR hefja keppni á morgun,
í næstu viku mætast Keflavík og
KR.
Ítalíuriðill: Valur, Grindavík,
Þróttur R., ÍBV og Leiftur.
Grindavík og Leiftur hefja keppni
á morgun, í næstu viku mætast
Þróttur R. og ÍBV.
Hvert lið setur þijú merki á tvo
leiki, tvö merki á fjóra leiki og eitt
merki á sjö leiki. Eftir tíu umferð-
ir, fyrri hálfleik, fara þau lið sem
kepptu í Englands-riðli yfir í Ítalíu-
riðilinn og öfugt.
Keppnin er stigakeppni, þannig
að ef tvö lið eru efst og jöfn að
stigum, ræður heildarfjöldi réttra
leikja úrslitum.
Keppt er um Englands- og Ítalíu-
bikarinn.
Eftir deildarkeppnina tekur við
bikarkeppni, sem hefst í mars.
Verður sagt frá fyrirkomulagi
hennar síðar.
Þorbjörn Jensson stjórnar sínum mönnum í þýðingarmiklum leik í Litháen
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ þar sem ísland og Litháen etja kappi í dag í Kaun-
as myndi aldrei verða samþykkt sem keppnisstaður á íslandi. Völlur-
inn er að vísu í löglegri stærð en frísvæði við endalínu og hliðarlínu
er ekki skv. reglum Alþjóða handknattleikssambandsins, auk þess sem
svalir, sem umlykja völlinn á þijá vegu, slúta fram yfir aðra mark-
slána. Þetta þýðir að fari leikmaður inn úr homi við þennan enda
vallarins hefur enga þýðinga að reyna að vippa yfír markvörðinn því
þá fer knötturinn í svalimar.
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari sagðist samt oft hafa séð það
svartara. „Það er þó að minnsta kosti hreint héma. Stundum lék maður
í húsum þar sem gólfið var svo drullugt að varla var hægt að ganga
á því,“ sagði Þorbjöm. Þess má geta að í Kaunas er stór og vegleg
íþróttahöll en hún er notuð fyrir markað þar sem ekki er mikill áhugi
á handknattleik hér í borg. Hægt er að koma 500-600 áhorfendum
fyrir í húsinu þar sem leikurinn fer fram í kvöld en búist er við 200-300
áhorfendum.
Verður 13
happatala íra
eða Belgíu-
manna?
BÆÐI írar og Belgiumenn vona
að talan 13 verði happatala
þeirra, þegar þeir mætast í fyrri
leik sínum í undankeppni HM á
Lansdowne Road í Dublin í
kvöld. Síðan þjóðirnar mættust
fyrst i landsleik 1928 hafa þær
tekist á tólf sinnum. írar hafa
fagnað fjórum sigrum, eins og
Belgar, en fjórum sinnum hefur
viðureign þeirra lokið með jafn-
tefli. Markatalan er hnífjöfn,
22:22.
írar fögnuðu sigri í fyrstu
þremur viðureignunum, 1928,
1929 og 1930, en hafa aðeins
náð að leggja Belgíumenn einu
sinni að velli í 67 ár - 3:2 í vin-
áttuleik 1966.
Prosinecki
verður með
Króötum
Morgunblaðið/Einar Falur
GEIR Svelnsson, fyrirliði landsliðsins og samherjar hans standa í ströngu í Kaunas í dag.
HAFNABOLTI
Frábær lokaleikur
háður í Miami
ROBERT Prosinecki leikur með
landsliði Króatíu gegn Úkraínu í
leikjum í undankeppni að úrslita-
keppni heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu í dag, en um tíma lék
mikill vafí á að hann myndi geta
leikið vegna meiðsla. Við þessi tíð-
indi hefur brúnin hækkað á Króöt-
um og vonir glæðst um hægastæð
úrslit. „Þetta eru góð tíðindi og við
munum að sjálfsögðu nota Pros-
inecki og breyta uppstillingu liðsins
frá því sem ég hafði áður sett niður
á blað,“ sagði Miroslav Blazevic
þjálfari Króatíu í gær sem áður
hafði talið að hann yrði að vera án
Prosinecki og Alen Boksic. Hinn
síðarnefndi verður hinsvegar ekki
með.
ÚRSLIT
Knattspyrna
England
1. deild:
Birmingham - Ispwich.............1:1
Bruce (81.) - Holland (34.) - 16.778.
Middlesbrough - Huddersfield.....3:0
Merson (13.), Beck (18., 58.). - 29.965.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 3. umferð:
Eintracht Trier - Dortmund.......2:1
Thömmes (37.), Czakon (50., vítasp.) -
Kohler (53.). 17.900, uppselt.
Kaiserslautern - Bayern Miinchen.1:2
Sforza (25.) - Nerlinger (3.), Jancker (77.).
38.000.
Spánn
Mallorca - Real Madrid...........0:0
24.000.
Staða efstu liða:
Barcelona...........8 7 1 0 20:6 22
Real Madrid.........8 5 3 0 12:1 18
Espanyol............8 4 4 0 14:4 16
RealSociedad........8 5 12 14:8 16
FRAMLENGINGU þurfti til að
útkljá meistaratitilinn íhafna-
bolta, þjóðaríþrótt Bandaríkja-
manna. í sjöunda og síðasta leikn-
um í Miami vann Flórída Marlins
lið Cleveland Indians, 3:2. Þetta
varfyrsti meistararitill Marlins,
sem kom inn í deildina sem nýtt
lið fyrir aðeins fimm árum.
Liðin í lokaúrslitunum höfðu unnið
annan hvern leik í leikseríunni og
eftir 4:1 sigur Cleveland á laugardags-
kvöld var ekkert annað
Gunnar eftir en að leika loka-
Valgeirsson leikinn á sunnudag.
skrífar frá Þetta var í fyrsta skipti
Bandarikjunum f gex -r þar gem sjö ]eiki
þurfti til að gera út um meistaratitil-
inn. Hvorugt þessara liða var talið lík-
legt til að komast í lokaúrslit, en í
undanúrslitunum unnu þau bæði sterk-
ustu liðin í hvorri deild. Miami vann
Atlanta Braves og Cleveland vann
Baltimore Orioles.
Leikurinn var í járnum allan leikinn
og minnstu mistök gátu gert út um
leikinn. Nýliði Cleveland, Jaret Wright,
kastaði vel fyrir gestina lengst af og
Cleveland náði forystu, 2:0, í þriðju
lotu. Flórída minnkaði muninn í átt-
undu lotu, 2:1, ogjafnaði síðan leikinn
í lok níundu lotu (sem er venjulega
lokalotan). Framlengingu þurfti því til
að hvert kast og grip varð mikilvæg-
ara eftir því sem á leið.
Það var síðan í lok elleftu lotu sem
Edgar Renteria sló boltann sentímetr-
um fram hjá kastara Cleveland, út
fyrir innri vörn liðsins, og það gerði
Greg Councell kleift að hlaupa í heima-
höfn, 3:2 fyrir Flórída. Að venju varð
allt vitlaust inn á leikvanginum, bæði
meðal leikmanna og áhorfenda. Skilj-
anlegt þegar tekið er tillit til að liðin
leika 162 leiki í deildarkeppninni og
aðra 15-20 leiki í úrslitakeppninni.
Flórídaliðið er í eign marg-billjóna-
mæringsins Wayne Huizenga, sem
einnig á íshokkíliðið Flórída Panthers
og fótboltalið Miami Dolphins. Hann á
einnig stærstu myndbandaleigu í heim-
inum, Blockbuster, ásamt öðrum fyrir-
tækjum. Huizenga eyddi stórfé í að fá
leikmenn í vor og þessi fjárfesting skil-
aði sér vel. Liðið er orðið meistari eft-
ir aðeins fímm ár í deildinni, sem er
fyrr en nokkru öðru nýju liði hefur
tekist að vinna titil á.
Leikmenn Flórída fögnuðu ákaft í
lokin, m.a. með því að sprauta úr tólf
kössum af sérpöntuðu kampavíni frá
Kaliforníu í búningsklefum liðsins.
„Maður lokaúrslitanna“ var kosinn
Kúbubúinn Livan Hemandez, sem flúði
frá Kúbu fyrir tveimur árum, þegar
landslið Kúbu var í heimsókn í Mexíkó.
Hann hafði aðeins leikið í 18 ieikjum
fyrir lið sitt áður en hann hóf úrslita-
keppnina. Kúbustjóm gaf móður hans
leyfi til að heimsækja son sinn fyrir
lokaleikinn og hún fór beinustu leið frá
flugvellinum til leikvangsins. „Ég til-
einka sigur okkar móður minni og ég
elska Miamiborg og alla stuðningsmenn
okkar," sagði Hemandez eftir leikinn.
Framkvæmdastjóri Flórída, Jim Ley-
land, er vinsælasti stjórinn í deildinni.
Ekki er hægt að fínna einstakling sem
getur sagt vont orð um manninn og
hann var að vonum kampakátur eftir
leikinn. „Ég var að sjálfsögðu orðinn
áhyggjufullur í lok níundu iotu áður en
við jöfnuðum, en við höfum barist vel
allt keppnistímabilið í lokin. Ég kann
engin orð til að lýsa tilfínningum mínum
á þessari stundu,“ sagði hann rétt eftir
leikinn við íþróttafréttamann NBC sjón-
varpsstöðvarinnar.
Cleveland situr eftir með sárt ennið
í annað skiptið á fjórum áram, en bolt-
inn rúllaði einfaldlega ekki rétt fyrir
liðið í lokin.
Dreymir
stundum
handbolta
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari, er hæfilega bjartsýnn fyr-
ir landsleik íslands og Litháens i Kaunas í dag, en leikurinn er
liður í undankeppni Evrópukeppni landsliða í handknattleik. Þor-
björn segir að þegar Ijóst var með hvaða þjóðum við lentum f
riðli hefði hann gert sér i hugarlund að það myndi nægja að
vinna alla leikina á heimavelli og einn leik á útivelli. „Þótt sigur-
inn á útivelli sé kominn förum við að sjálfsögðu í þennan leik til
að sigra, eins og við gerum raunar alltaf," sagði Þorbjörn í gær.
Þorbjörn sagðist búast við
erfiðum leik. „Litháar eru
harðir í horn að taka og sérstak-
lega á heimavelli. Sem dæmi má
nefna að þeir lögðu
alla mótheija sína
Sveinsson her i undankeppm
skrifar HM og komust með
frá Kaunas því í lokakeppnina
í Kumamoto. Þeir eru sterkir í
vörninni en sóknin er ekki eins
góð og því er mikilvægt fyrir okk-
ur að reyna að bijóta hana upp
og ná hraðaupphlaupum og gera
eittvað af ódýrum mörkum. Við
unnum Litháa á HM í Kumamoto
21:19 og það eru ekki mörg mörk,
enda leika bæði lið sterka vörn.
Ég er enn að velta fyrir mér
hvenig vörn við eigum að leika á
móti þeim. í Kumamoto lékum við
bæði 3-2-1 og flata vörn og mér
fannst sú flata koma betur út.
Ég held samt að ég byiji með 5-1
vörn og falli síðan í 6-0 því það
er einhvern veginn auðveidara að
gera það þá leiðina en að byija í
flatri vörn og fara síðan í 5-1.
Annars ætla ég að sofa á þessu
í nótt og þegar ég hef hugsað mik-
ið um handbolta eins og síðustu
dagna þá dreymir mig stundum
handbolta,“ sagði Þorbjörn í gær.
Nú hefur loðað við þig að fara
ekki auðveldustu leiðina að settu
marki. Ef framhald verður á því
þá má alveg eins búast við að liðið
tapi hér í Kaunas.
„Já, ef framhald verður á því
að ég þurfi alltaf að fara lengri
leiðina að settu markmiði. En auð-
vitað stefnum við að sigri og við
göngum ekki til Ieiks með því hug-
arfari að það sé alveg í lagi að
tapa þessum leik þar sem við séum
búnir að vinna einn útileik og því
miklar líkur á að við komumst
áfram. Annars hef ég mikið hugs-
að um þetta og velt því fyrir mér
hvort það ætli loksins að koma að
því að dæmið sé eins auðvelt og
það lítur út núna, eða hvort ég
þurfi enn og aftur að fara lengri
leiðina."
Þú tókst þrettán leikmenn með
þér hingað, ertu ekki hjátrúarfull-
ur?
„Jú, á mörgum sviðum en ekki
hvað varðar töluna þrettán, enda
hafa margir af bestu handbolta-
mönnum þjóðarinnar verið númer
þrettán og nægir þar að nefna
Sigurð Sveinsson og Duranona,“
sagði Þorbjörn.
Morgunblaðið/Einar Falur
ÞORBJORN Jensson, landsliðsþjálfari og aðstoðarmaður
hans, Boris Bjarnl Akbachev, leggja ð ráðin. Það verður
þeirra að finna veikleikana í liði Litháa í Kaunas í dag.
Gústaf
meiddur
.
GÚSTAF Bjarnason úr Hauk-
um meiddist í fyrri hálfleik í
æfingaleiknum gegn Bad
Schwartau á mánudagskvöld-
ið. Gömui meiðsli á hægra hné
tóku sig upp og sagði Gústaf
að það yrði að koma í ljós á
leikdag hvernig hnéið yrði.
„Ég hef verið þjá sjúkraþjálf-
ara á hverjum degi í vetur til
að halda bólgunum niðri og
það hefur gengið," sagði Gúst-
af.
íslenska í
Hamborg
ÞEGAR íslenska liðið lagði af
stað frá Hamborg í gærmorg-
un áleiðis til Kaunas kom
skemmtilega á óvart að stúlk-
an sem kallaði út í flugvélina
á Hamborgarvelli talaði þrjú
tungumál. Fyrst mælti hún á
þýsku, þá ensku og loks á ís-
lensku og óskaði liðinu góðrar
ferðar og góðs gengis. Þarna
var ein af þremur íslenskum
stúlkum sem vinna á flugvell-
inum í Hamborg.
Tveiráður
í Kaunas
TVEIR úr íslenska hópnum
hafa leikið í Kaunas - Boris
Bjami Akbachev, aðstoðar-
maður landsliðsþjálfarans, en
hann lék í sovésku fyrstu deild-
inni í tvo áratugi og sagðist
hafa leikið í Kaunas þrisvar
til fjómm sinnum á vetri. Hinn
er Björgvin Björgvinsson, m
homamaður úr KA, en hann
lék með liði sínu gegn Kaunas
í Evrópukeppninni á dögunum.
Öxlin að
hrjá Júlíus
JÚLÍUS Jónasson hefur verið
meiddur í hægri öxl upp á síðkastið
en lætur það væntanlega ekki koma
í veg fyrir að leika með íslenska
landsliðinu í dag. Á æfingu í Kaun-
as í gær lék Júlíus eingöngu í vörn-
inni og þykir líklegt að Þorbjörn
Jensson landsliðsþjálfari gefi hon-a
um leyfí frá sóknarleiknum að þessu
sinni og láti hann aðeins vera í
vörninni.
Hávaxnir
Litháar
EFTIR að íslenska landsliðið hafði
lokið æfingu í Kaunas í gær kom
inn í salinn körfuknattleikslið borg-
arinnar, Zaldkaris Kaunas, sem er
eitt af þekktari félagsliðum Evrópu.
Tók það til við hefðbundna æfingu.
I liðinu eru sjö leikmenn sem eru í
litháíska landsliðinu sem mætir þvf'
íslenska í Evrópukeppni landsliða í
körfuknattleik um mánaðamótin
nóvember-desember. Liðsmenn
Kaunas eru frekar hávaxnir og er
hæsti leikmaður 219 sm. Einnig er
innan herbúða þess króatískur leik-
maður sem er 216 sm en hann er
einmitt í landsliði Krótaíu sem einn-
ig mætir Íslandi í Evrópumótinu.
Olafur „her-
tók“ nuddara.
ÓLAFUR Stefánsson „hertók“
nuddara körfuknattleiksliðs Kaunas
þegar hann mætti með félagi sínu
á æfingu í gær strax eftir æfíngu
íslenska landsliðsins. Lét Ólafur
nuddarann nudda sig eftir æfíng-
una á meðan félagar hans fylgdust
með æfingu körfuknattleiksliðsins.?