Morgunblaðið - 29.10.1997, Side 4

Morgunblaðið - 29.10.1997, Side 4
Kristinn Alberts- son á ferð og flugi KRISTINN Albertsson körfu- knattleiksdómari mun á næstu vikum dæma þrjá alþjóðlega leiki á vegum aiþjóða körfu- knattleikssambandsins, FIBA. Hann mun dæma leik Plannja frá Svíþjóð og Uniao Desport- iva frá Portúgal í Evrópu- keppni bikarhafa 11. nóvem- ber og leik Astra frá frá Sví- þjóð og BC Statyba frá Litháen í Evrópukeppni félagsliða 12. nóvember. Þá mun Kristinn dæma leik Englands og Spánar í Evrópu- keppni landsliða, sem fer fram í Engiandi 29. nóvember. Scan-Foto VEL gengur hjá Kristjánl Halldórssyni og lærisvelnum hjá Larvik og ekki furða þó glatt sé á hjalla þegar Kristján ræðir við þá. Undir stjórn Kristjáns Halldórssonar hefur Larvik leikið 30 leiki án taps Það er alltaf gaman þegar vel gengur LARVIK-liðið, sem Kristján Halldórsson, fyrrum þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, þjálfar, er i efsta sæti norsku úrvaisdeildarinnar í handknattleik kvenna að loknum átta umferð- um; það hefur unnið alta leikina eitt liða. í síðustu viku sigraði Larvik Gjerpen, 31:21, á heimavelli og hafði þar með leikið 30 leiki í röð án taps sem er met þar f landi, gamla metið voru 29 leikir í röð. Það er alltaf gaman er vel geng- ur,“ sagði Kristján i samtali við Morgunblaðið. „Að sjálfsögðu var haldið upp á áfangann með veg- legri veislu að leik loknum á fímmtu- daginn enda fylgjast Norðmenn al- mennt vel með öllum áföngum sem þessum í íþróttum." Kristján sagði ennfremur að jafnhliða því sem fé- lagið stefndi að því að veija meistar- atitlinn þá væri ætlunin að gera betur í bikarkeppninni en í fyrra þegar liðið tapaði fyrir Bækkeiaget í undanúrslitum. „Nú erum við kom- in í undanúrslit og leikum við Stabæk, sem nú er í fimmta sæti í deildinni, heima og að heiman í byij- un desember.“ Auk keppninnar heimafyrir leikur Larvikurliðið í meistaradeild Evrópu og einnig þar hafa Kristján og liðs- menn hans sett markið hærra en norsk félög hafa áður náð. „Við vilj- um altjent komast í undanúrslit þar. Norska landsiiðið og félagslið hafa aldrei náð verulega langt og við vilj- um reyna að bijóta ísinn. Það myndi enn auka á áhugann á kvennahand- knattleik hér í landi og er hann mikill fyrir.“ Sterkari hópur Kristján sagði ennfremur að lið hans væri ívið sterkara en í fyrra þegar það varð meistari. Fyrir tíma- bilið hafi komið til liðsins finnski markvörðurinn Lene Rantala og hún hafi tvímælaiaust styrkt hópinn verulega auk þess sem tvær ungar stúlkur hafi komið inn í liðið og aukið á breiddina. „En þó vel gangi er ekkert sjálfgefið að svo verði áfram og keppnin er hörð, ekkert má bera út af, en eins og mál standa nú lítur allt vel út.“ Nokkurt strik hafi sett í reikninginn hjá félaginu snemma í haust þegar sterkasti leik- maður þess, Lina Olsson, meiddist iila og hefur hún ekkert leikið með eftir það. Reiknað er með að hún verði mánuð frá til viðbótar. „Aðrar í liðinu hafa þjappað sér vel saman þannig að fjarvera hennar hefur ekki komið niður á okkur ennþá og gerir vonandi ekki.“ Nú er hlé á mótinu vegna leikja í Evrópukeppni landsliða en að því loknu mætir Larvik liði Selbu á heimavelli. Selbu ér að sögn Krist- jáns með efnilegt lið er komið hefur talsvert á óvart og er nú í 4. sæti með 10 stig. „Selbu er sýnd veiði en ekki gefin.“ Fleiri áhorfendur Hann sagði mikinn áhuga vera fyrir heimaleikjum Larvikur og að jafnaði væru um 1.000 áhorfendur á heimaleikjum og enn fleiri þegar bestu liðin kæmu í heimsókn. „Fyrir tímabilið var byggt við húsið svo það rúmar 2.500 áhorfendur í sæti og við vonumst til þess að geta fyllt þau þegar á líður og ef okkur vegn- ar vel í Evrópukeppninni. Bæjarbúar fylgjast vel með árangri liðsins og mikil stemmning er í kringum okkur hér enda áhugi mikill." Lið Bækkelaget hefur ekki verið eins sterkt í vetur og reiknað hafði verið með þó það hafi á að skipa Önju Andersen, sem að margra mati er besta handknattleikskona heims. „Það hafði slæm áhrif á lið Bækkelaget fyrir tímabilið hversu tvístígandi Anja var, ýmist var hún á förum frá félaginu eða ekki. Við það komst rót á liðið sem það hefur ekki jafnað sig á enn þann dag í dag.“ Fanney stendur sig Kristján sagði ennfremur að Fanney Rúnarsdóttir landsliðsmark- vörður stæði sig vel hjá Tertnes og færi vaxandi með hveijum leik. „Hún var m.a. aðalhindrun liðsmanna Bækkelaget er félagið mætti Tertnes í síðustu viku og varð að játa sig sigrað, 25:23. Ég er ánægður fyrir hönd Fanneyjar hvað henni gengur vel því ég átti nokkurn þátt í að koma henni að hjá félaginu," sagði Kristján. Hann sagði ennfremur að Tertnes hefði ekki byijað leiktíðina ýkja vel en hefði jafnt og þétt sótt í sig veðrið og væri nú um miðja deild og ætti eflaust eftir að ná hærra. „Sem fyrrum landsliðsþjálfari kvenna vildi ég gjarnan sjá fleiri íslenskar stúlkur koma til liða hér í Noregi. Það yrði einn liðurinn í að gera kvennalandsliðið betra og um leið víkka sjóndeildarhring stúlkn- anna. Hér er leikinn góður hand- knattleikur og áhuginn er óvíða meiri.“ FOLX ■ ARIE Haan var látinn taka pok- ann sinn hjá Feyenoord í gær, eftir að liðið tapaði þremur leikjum á viku. ■ GARRY Francis, knattspyrnu- stjóri Tottenham, hefur mikinn hug á að fá Matthew Le Tissier til liðs við sig. Er hann tilbúinn að borga 6 millj. punda fyrir hann, en frá Southampton hefur hann feng- ið þau svör: Le Tissier er ekki til sölu. ■ JUVENTUS og Benfica hafa áhuga á að fá Brasilíumanninn Emerson til sín. Líklegt er að kapp- inn fari til portúgalska liðsins - kaupverð er fjórar mill. punda. ■ BRYAN Robson, knattspyrnu- stjóri Middlesbrough, segist ekki ætla að standa í vegi Emerson, ef hann hefur áhuga að leika með liði sem gæti gefið honum tækifæri til að komast í landslið Brasilíu. ■ ROBSON hefur hug á að kaupa Carl Sarrant, varnarleikmann frá Oldham, eftir að ljóst er að Robbie Mustoe verður frá keppni í sex vik- ur vegna meiðsla á ökkla. ■ IAN Selley, miðvallarleikmað- ur, sem Fulham keypti á dögunum fyrir 500 þús. pund - dýrasti leik- maður liðsins, verður frá keppni þar til í mars. Hann varð fyrir því óhappi að fótbrotna í leik á sunnu- daginn gegn Northampton. ■ FULHAM hefur augastað á franska landsliðsmanninum Jean- Pierre Papin, fyrirliða Bordeaux. ■ WALTER Smith, sem hefur verið knattspyrnustjóri Glasgow Rangers, ætlar að hætta eftir þetta keppnistímabil. Hann vonast eftir að lið hans fagni meistaratitlinum tíunda árið í röð þegar hann hættir. ■ NOKKRIR menn hafa verið nefndir sem arftakar hans hjá Rangers, eins og Richard Möller- Nielsen, fyrrum landsliðsþjálfari Dana, sem er nú þjálfari finnska landsliðsins, Tommy Svensson, landsliðsþjálfari Svía og Svíinn Sven-Göran Eriksson, sem þjálf- ara Lazíó. ■ RICHARD Möller Nielsen seg- ir að það væri mikill heiður fyrir hann, ef hann fengi boð frá eins stóru og frægu liði og Glasgow Rangers. ■ FRANSKI leikmaðurinn Sam- assi Abou er á leið til West Ham. Abou, sem hefur verið i herbúðum Cannes, hefur leikið með franska landsliðinu skipað leikmönnum und- ir 21 árs. West Ham borgar 43,8 millj. ísl. kr. fyrir hann. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA I NOREGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.