Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 BÆKUR MORGUNBLAÐIÐ JÓHANN árelíuz er höfundur ljóðabókarinnar Par avion sem er fjórða ljóðabók hans. Jóhann hefur búið lengi í Svíþjóð og er við hæfi að spyija hann fyrst um þá sérstöðu hans sem islensks skálds og um bókmenntatengsl hans við ísland. „Mér býður í grun að Svíþjóð- arveran löng hafi í raun skorið úr um skáldskaparþörf mína og getu. Fáir klappa óþýddu skáldi á bakið i því langa landi sem ég nefni stundum Skagaströnd. Kannski af því ég lagðist fyrst í yrkingar á Blönduósi vorið 1968! Búluvarðarnir eru sumir breiðir í Stokkhólmi og langt á milli leit- andi sálna. Ekki síst í vetrarhörk- um og niðamyrkri nóvembers. Stundum minnir borgin með öllum sínum eyjum helst á ölkelduvatn í hrímuðu glasi. Það er ekki alltaf sólin og sumarið! En stóisk frostin og stillurnar minna mig og stund- um á norðlenska snjóavetur og forna und kuldaskildi. Flestum blekberum væri held ég hollt að hleypa heimadraganum og dvelj- ast úti um nokkra hríð. Ekki síst er hveijum skrifandi manni akkur í að kynnast annarri tungu til ein- hvurrar hlítar. Þá reynir nebbni- lega fyrst á hvurt brestur móður- málið eður ei. Hefur og reynst mér mjög gagnlegt við lestur. Og þó fjarlægðin geri stundum fjöllin blá og mennina mikla, er sú sama fjarlægð frá þrasi og ysi hinna óteljandi stórviðburða smáatrið- Sorgargleði kallast á við fegurðarþrá anna kannski líf- snauðsyn kviku ljóðs míns og lýrískri æð. Ekki er óleysanlegur en stundum ólæsileg- ur vandinn að fylgjast með því sem gerist í íslenska bókmennta- heiminum. Reyndar harla gott að sjatni svoltið í jólabókaflóð- inu áður en maður hefur lesturinn. Flór- an hlýtur að þola þro- skandi bið og lifa vet- urinn af standi rætur hennar djúpt, víð- feðmi ríki og fjöl- breytni nokkur.“ Hvað viltu segja um efni bók- arinnar? „Ljóðin í Par avion eru held ég flest um dag minn og veg og misjafnlega háar hugsanir. Sorg- argleði kallast á við fegurðarþrá. Ljóðin yfirleitt ort í Sverje en stundum líka á Is- landi og færð til let- urs í kamesi mínu á Kleifjárnsveginum í Friði Jóhannesar í Bromma. Kveðskap- urinn kannski ögn- inni tvíræðari og ydd- aðri en fyrr.“ Stíllinn er hnitmið- aðri en áður, töluvert um vísanir ogþú yrk- ir oft um staði? „Auðvitað birtast hér staðir eins og fyr- irburðir úr djúpinu. Sumir boða komu sína eins og óvart en aðrir eru valdir af nyög meðvituðu handahófi. Enn aðrir - og þeir eru flestir - eru ónefndir þó þá sé víða að finna. Læt mér Jóhann árelíuz BÓKMENNTIR Smásögur VATNSFÓLKIÐ Einfalt en Gyrðir Eliasson. Kápumynd og myndskreytingar: El- ías B. Halldórsson. Mál og menning, 1997 -171 bls. í ÞESSU safni 25 smásagna er Gyrðir á svipuðum slóðum og oft áður. Einfaldleiki sveitarinnar gegnsýrir söguefnið, gnauð vinds- ins, flug fugla og aðvífandi þoku- bakki eru efni í verðugar frásagnir. Með því helsta sem brýtur hvers- dagsleikann eru t.d. reglubundnar uppáhellingar og væntanleg rútan. Ætla mætti að efniviður af þessu tagi fleytti frásögninni skammt. En það er öðru nær. I Vatnsfólkinu, sem smásagna- safnið ber heiti af, er sagt frá systr- um tveim, fáfengilegum orðaskipt- um þeirra eina kvöldstund. Þar ber jafnt á góma Steingrím Thorsteins- son, glæpamynd í sjónvarpi og te fyrir tvo. Yfir öllu er ró og kyrrð sem ekkert fær hnikað, ekki einu sinni stórháskinn í lok sögunnar. þó margrætt ítalska stellið er að mörgu leyti dæmigerð frásögn í anda Gyrðis. Þetta er stutt smásaga, vel byggð. í hana er raðað persónum, atvik- um og staðháttum sem öll stefna markvisst að því að skýra megin- hugmynd sögunnar. Eins hversdagslegir hlutir og leirtau öðlast ákveðna merkingu. Gamla búðin, brot- hættir diskar og bollar, garðar (skemmtigarð- ur og kirkjugarður) verða ígildi forgengi- leikans. Allt fram streymir enda- laust - „og okkur fjölgaði, en disk- unum fækkaði hægt og hægt“. Sögur þessa safns skiptast í tvö horn þeg- ar litið er til beinnar orðræðu persóna. í Vatnsfólkinu bera samtölin uppi söguna, hún gæti mætavel staðist sem stuttur leikþáttur. Um dimm- an dal gerist hins vegar í hugskoti einnar per- sónu á ferð. Fáeinar aðrar persónur eru nefndar án þess að koma frekar við sögu. Burt er saga um tregablandinn viðskilnað. Samræður persóna eru naumar en dramatísk- Gyrðir Elíasson BÓKMENNTIR Skáldsaga LOKAORRUSTAN Höfundur: C.S. Lewis. Myndir: Paul- ine Baynes. Þýðing: Kristín R Thorlacius. Útgefandi: Muninn bóka- útgáfa, Islendingasagnaútgáfan 1997.194 síður. ÞETTA er sjöunda, og síðasta, bók höfundar um töfralandið Narníu, því kærkomin þeim, er af fyrri bókunum hafa hrifízt, öðrum hvatning, til þess að kynnast bókaflokknum nánar. Höfundur, margheiðraður sagna- meistari og kennari, kunni (d. 22.11. ’63) sannarlega að hvetja lesendur til fylgdar upp ijallið hátt, svo hátt að margan sundlaði, missti raunskyn, tók að svífa um í dulheimum, þar sem skii tíma og rúms eru öll rofín: Verur af mörgum sviðum hnattahylsins birtast á tjaldi og taka þátt í leikn- um; dýr, sum, tala mál manna; skóg- ardísir dansa, og jafnvel gamlar hest- húsdyr breytast í hið „gullna hlið“. Sjálfselskufullur api Tónsproti töfraleiks sögunnar er í höndum Skippa, gamals, args, sjálfselskufulls apa, sem kann svo sannarlega þá list að æra lýð til hlýðni. Til þess notar hann hræðsl- una við „guðdóminn“ Aslan, ljónið Ljós og myrkur t íikast ít mikla, sem þrátt fyrir allt er hin æðsta hug- sjón allrar tilveru. Ap- inn segist hafa vald sitt frá honum, og til að sanna það, leiðir hann fram, í húmskuggum kvölds og reykjarsvælu báls, lúinn asna, Púsla, klæddan í húð af ljóns- hræi, er þeir höfðu fundið. Annað leggst apanum og til í barátt- unni um hefðarsætið, moldarlitir Kalormínar, er fara um foldu undir gunnfána Tass, hins illa anda. Þeim hafði tekizt að hlekkja Tirían, hinn sanna konung Narníu, við tré, og þar beið hann varnarlaus örlaga sinna, kallandi á Aslan og allar góðar vættir sér til hjálpar. Skil góðs og ills Svo dimmt var yfir Narníu-degi, að margur sá ekki skil góðs og ills, steypti í sömu skál, og úr varð andinn Tasslan, líflaust leirhnoð. Allar nætur eiga sér morgun, og bænakalli Tiríans konungs er svarað með sjö vinum Namíu, eink- um telpunni Júlíu Pól og snáðanum Elfráði Skúta. Við sjáum fagr- an morgun renna, en eg ræni ekki lesanda ánægjunni að kynnast þeim degi. Kristín R. Thorlacius þar nægja að nefna Akureyri og Vopnafjörð svo og gamalgróna kirkjugarðinn við Suðurgötu. Þá er víða að finna bæði leyndar og ljósar vísanir til annarra skálda, sem öll eiga það sameiginlegt að vera spræk þó sum séu löngu lát- in. Nota ég tækifærið í skýringum þeim sem fylgja Par avion og votta eldri samheijum mínum og vinum eins og Jóni Oskari og Sig- fúsi Daðasyni heitnum vinsemd mína og virðingu. Sama gildir um Jóhann skáld Jónsson, Jóhann Sig- uijónsson og Tómas Tranströmer. Fleiri eru á ferðinni en ónefndir." VÍTT OF VEGA Febrúarsólin skín á kaun og mein Úlfasund skyggnd af Höfuðbólsbrú Jökullinn skyr á bláum diski bernskunnar Fjarlægðin fjalla best í sjóndeiidarhring sem ieikur við kvurn sinn fingur Ó útlínur bakvið minnið Ó ímyndun hrein og skær! ar. (Var þetta ekki einhvern tíma nefndur harðsoðinn stíll?). Hið ósagða æpir út á milli línanna og klippt og skorin sviðsetning kemur í stað margra orða: „Hún rétti fram hönd og lagði á hönd hans, hann kippti henni að sér: hún þaut yfír vaxdúksgrösin einsog vindblær stryki dalbotn." Vaxdúkurinn leikur hér stórt hlutverk og skilar andblæ sögunnar vel í lokaorðunum: „Hún lokaði augunum og hallaði sér fram á borðið; hvíldi höfuðið í blágresis- hvamminum, skammt frá fossinum." Vatnsfólkið er vitnisburður um höfund sem hefur fundið traustan farveg í ritferli sínum. Ungur kom Gyrðir fram sem óvenju þroskaður höfundur með sterk sérkenni. Þessi sérkenni hefur hann þroskað enn frekar með Vatnsfólkinu og aukið ýmsu við. T.d. bregður nú oftar við en áður að söguatvikin kalli fram bros, gráglettnin smeygir sér víða fram. Tungutakið er auðugt og óþvingað og frásögnin helst í hendur við sterka byggingu sagnanna. Vatnsfólkið geymir marga sprota sem fýsilegt væri að sjá síðar vaxa í stór verk. Ingi Bogi Bogason Höfundur vefur frásögn sína þeirri dulúð, að engu er líkara en hann segi: Þú ræður, lesandi góður, hvert orð mín leiða þig. Aðeins eitt skal þér vera ljóst, að eg er að ræða um baráttu góðs og ills; dauða og lífs. Hvort eg er að tala um trúmál; stjórnmál eða eitthvað allt allt ann- að, er undir þroska þínum komið, eg aðeins gára flötinn en þroskaöld- urnar þínar þekki eg ekki. Það er einkenni góðra sagna, að þær eru leiðarvísar inní marga furðuheima, ekki aðeins einn, og því hægt að nálgast efni þeirra á nýjan og nýjan hátt, hvert sinn sem til bókarinnar er leitað. Svo er um þessa, hún vek- ur ekki eina spurn, heldur margar. Hinn írski höfundur gerir því kröfur til lesandans, honum er alls ekki hlátur í huga. Hann unni þessari jörð, og lét sér ekki á sama, hvort stefnt er í eða úr myrkrahylnum. Þann boðskap óf hann í ævintýrið um Narníu. Þýðing Kristínar er mjög góð, málharpan hljómmikil og hljóm- fögur í höndum hennar, sýnir, að hún nálgast móðurmálið sem lotn- ingarfullt barnið. Myndir hefði eg kosið skýrari, þær minna mig, margar, á lélegt ljósrit. Prentverk allt og frágangur útgáf- unni til sóma. Góð bók sem gerir kröfur til les- andans. Sigurður Haukur Guðjónsson Nýjar bækur • VÍNLANDSGÁ TAN er eftir Pál Bergþórsson. Vínlandsgátan fjallar um landa- fundi norrænna manna í Vestur- heimi um árið 1000, ogþáaðal- lega Leifs heppna, Þorvalds Eiríks- sonar og Þorfinns karlsefnis. Höf- undurinn, Páll Bergþórsson, leggur Vínlands- sögurnar, Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða, til grundvallar, rekur Vínlandssögurnar áfanga eftir áfanga og kortieggur leiðir manna og dvalarstaði. Lýsingar sagnanna eru bornar saman við þá þekkingu sem afla má á annan hátt um siglin- gatækni fornmanna, staðhætti, loft- slag, gróður og dýralíf í Vesturheimi ogþjóðhætti indíána og ínúíta. I kynningu segir: „Páll hefur ekki látið þar við sitja í leit sinni að lausn Vínlandsgátunnar. Sjálfur lagði hann land undir fót í tengslum við rannsóknir sínar, kannaði staðhætti vestanhafs og fann meðal annars villtan vínvið og sjálfsáið hveiti eða villirís.“ í bókinni eru m.a. birt dag- bókarbrot og ljósmyndir úr þeirri ferð hans. Páll Bergþórsson er löngu lands- kunnur fyrir störf sín, rapnsóknir og skrif um veðurfræði. í Vínlands- gátunni fetar hann að nokkru aðrar slóðir og skoðar fornar heimildir frá nýjum og heillandi sjónarhóli sem þó stendur á traustum fræðilegum grunni. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er277bls., unnin íPrent- smiðjunni Odda hf. Kápuna gerði Birgir Andrésson. Verð: 3.980 kr. • MORÐIÐ í stjórnarráðinu er eftir Stellu Blómkvist. í kynningu segir: „Hér er á ferð- inni ný íslensk spennusaga úr sam- tímanum sem íjallar um lögfræðing- inn Stellu, sem er orðheppin og harð- soðin, nokkuð upp á karlhöndina og finnst viskísopinn góður. Hún brynj- ar sig með spakmælum frá mömmu og sérhæfir sig í að innheimta skuld- ir sem hún hefur keypt. Þegar ná- ungi úr undirheimunum, kallaður Sæmi súla, vill fá hana sem réttar- gæslumann um miðja nótt segir hún strax nei.“ Bókin er233 bls., prentuð í Sví- þjóð. Verð: 990 kr. • Lífsins tré er eftir Böðvar Guð- mundsson. Böðvar Guðmundsson hlaut ís- lensku bók- menntaverðlaunin fyrr á þessu ári fyrir Lífsins tré, sem er framhald af skáldsögunni Híbýlum vind- anna. Hér segir frá örlögum fólks af fyrstu og annarri kynslóð Vesturís- lendinga og sam- bandi þeirra við ættingja í gamla landinu. Bókin er 230 bls., prent- uðíSvíþjóð. Verð:899kr. 0 ÉG beiti Aram er eftir William Saroyan. í kynningu segir: „Þetta sagna- safn er einstakt í bandarískum bók- menntum. Hin armenski tónn inn- flytjendanna leynir sér ekki, en samt er þetta ekki bók um þjóðerni. Þetta er heldur ekki tilfinningaþrunginn lofsöngur um horfna æsku. Sögurn- ar um Aram, fjölskyldu hans, vini og samferðamenn eru umfram allt óður til mannanna, gæddar hljóð- látri trú á lífið og viðgang hins góða á jörðinni." William Saroyan (1908- 1981) var bandarískur rithöfundur af armensku bergi brotinn. Hann skrifaði smásögur, leikrit og skálcl- sögur, en sú þekktasta þeirra er Ég heiti Aram (útg. 1940). Hann var mikill sagnameistari og þykir höf- unda best hafa sýnt skoplegu hliðina á hinum svokallaða „ameríska draumi". Gyrðir Elíasson þýddi. Bókin er 180 bls., prentuð í Svíþjóð. Verð: 799 kr. Útgefandi bókanna er Uglan - íslenski kiljuklúbburinn. Páll Bergþórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.