Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 7
6 C ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 C 7 HANDKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR Afturelding tapaði með fimm marka mun fyrir Runar er von AFTURELDING tapaði fyrir norska liðinu Runar, 30:25, í fyrri leik liðanna í borgarkeppni Evrópu í Stavanger á sunnudagskvöld. Stað- an í hálfleik var 16:12 fyrir Runar. „Það er aðeins fyrri hálfleikur búinn og ég tel möguleika okkar á að komast áfram enn til staðar - enn er von,“ sagði Skúli Gunnsteinsson, þjálfari og leikmaður Aft- ureldingar. Afturelding byrjaði illa og lenti fljótlega sex mörkum undir um miðjan íyrri hálfleik, 10:4. Mosfell- ingar náðu síðan að rétta úr kútnum í síðari hálfleik og þegar skammt var til leiksloka var staðan 27:23. En norska liðið náði fimm marka forystu áður en flautað var af. Skúli sagði að norska liðið væri gott enda efst í deildinni og spilaði skemmtilegan sóknarleik. „Þeir byggja mikið á hraðaupphlaupum og skoruðu meðal annars 15 mörk úr þeim. Þeir voru rosalega fljótir að refsa okkur og fyrri hálfleikur var okkur dýrkeyptur. Við vorum líka ekki nægilega þolinmóðir í sókninni, en vömin var ágæt í síðari hálfleik. Dómararnir, sem eru sænskir, voru líka frekar óhliðhollir okkur og voru duglegir við að reka okkar menn út af. Eg er í sjálfu sér ekkert ósáttur við fimm marka tap miðað við hverning leikurinn þróað- ist,“ sagði Skúli. „Við ætlum okkur áfram, en til þess þurfum við öflugan stuðning áhorfenda á heimavelli í síðari leiknum. Við fáum þýska dómara heima og það ætti að gera okkur auðveldara fyrir að spila sterka „ís- lenska“ vörn. Þetta er ekki búið og ég veit að við getum bætt leik okk- ar,“ sagði Skúli. Gunnar Andrésson lék ekki með vegna meiðsla, en Þorkell Guð- brandsson, sem einnig hefur verið meiddur, var á leikskýrslu en kom lítið við sögu. Mosfellingar vonast til að Þorkell verði orðinn góður af ökklameiðslunum um næstu helgi og það ætti að styrkja liðið í bar- áttunni um að komast áfram. Ólafur með stórleik Bjarki með sjo fyrir Drammen BJARKI Sigurðsson skoraði sjö mörk, þar af eitt úr víti, fyrir Drammen sem tapaði fyrir spænska liðinu Prosesa Ademar Leon 25:27 í fyrri leik liðanna í meist- aradeild Evrópu á laugar- daginu. „Þetta var erfiður leikur og við vorum ekki að spila vel. Við lentum átta mörkum undir í síðari hálf- leik, 14:22, eftir að staðan í hálfleik var 10:13 En við náðum aðeins að rétta okk- ar hlut í lokin,“ sagði Bjarki. Hann sagðist ekki hafa verið ánægður með eigin frammistöðu og sagði reyndar að allir leikmenn liðsins hafi leikið undir getu. „Okkar vantar tilfinn- anlega hávaxna skyttu og það kemur vel í ljós á móti svona sterkum Iiðum.“ JÚIÍUS og félagar áfram JÍJLÍUS Jónasson og féiagar hans í svissneska liðinu St. Otmar/St. Gallen eiu komnir áfram 18-liða úrslit í borgar- keppni Evrópu. Þeir léku báða leikina við Tel Aviv Uni Sport frá ísrael á heimavelli sínum um helgina. Júlíus og félagar unnu báða leikina, fyrri á laugardag 34:26 og þann síðari á sunnudag 37:22 og því samanlagt 71:48. Júlíus gerði 3 mörk í fyrri leiknum og 6 í þeim síðari. 61afur Stefánsson átti mjög góðan leik íyrir Wuppertal sem vann Grosswalstadt 25:23 í þýska handboltanum á sunnudag, eftir að hafa verið undir í hálfleik, 12:16. Ólafur gerði níu mörk, þar af 4 úr vítaköstum, og var marka- hæstur. „Þetta var gríðarlega erf- iður leikur, við breyttum vöminni í síðari hálfleik og komum þá meira út á móti og það gekk upp. Við átt- um erfitt með að stöðva Frakkann Jackson Richardsson í íyrri hálf- leik, en hann gerði ekki mark í síð- ari hálfleik eftir að hafa gert sjö í fyrri. Ólafur átti hreint fi-ábæran leik. Dagur stóð sig einnig mjög vel þó svo að hann næði ekki að skora. Hann er heilinn í liðinu. Geir lék aðeins í vörn og stóð sig vel, en hef- ur ekki fundið sig í sókninni að undanfórnu. Filippow var með þrjú mörk og stóð sig vel,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Wuppertal, sem nú er í 8. sæti deildarinnar með 7 stig. Essen gerði jafntefli við Bayer Dormagen á heimavelli, 27:27, eft- ir að hafa haft yfir í hálfleik, 14:12. Patrekur Jóhannesson var marka- hæstur í liði Essen með 6 mörk. Róbert Sighvatsson gerði fimm mörk fyrir Dormagen, en Daninn Nikolai Jacobsen var markahæst- ur með 13 mörk. Nitherv"urzbach vann Rein- hausen á heimavelli 28:25. Konráð Olavson var ekki á meðal marka- skorara hjá Niterwúrzbach. Einvíginu lauk með Gróttu/KR sigri Stjörnustúlkur höfðu mikla yfirburði er þær heimsóttu Framara EINVÍGI efnilegustu liða fyrstu deildar kvenna, Gróttu/KR og FH, fór fram á Seltjarnarnesinu á laugardaginn og lauk með sigri þeirra fyrrnefndu, 25:20, í skemmtilegum baráttuleik. Liðin höfðu þar með sætaskipti, Grótta/KR tók við þriðja sæti deildar- innar en FH settist í það fjórða. Aðrir leikir voru eftir bókinni þar sem áttust við efstu lið deildarinnar gegn þeim neðstu. í Fram- heimilinu við Safamýri vann næstefsta lið deildarinnar, Stjarnan, það neðsta, Fram, 30:17 og á Hlíðarenda stóð næstneðsta lið deildarinnar, Valur, lengi vel uppi í hárinu á efsta liði deildarinn- ar, Haukum, sem sigraði þó 25:21. Jafnt var á svo til öllum tölum á vilja - það gerðum við og náðum ISeltjarnarnesi á laugardaginn en eftir hlé skellti vörn Gróttu/KR ■■■■ í lás og hægt og bít- Stefán andi náði liðið góð- Stefánsson um tökum á leikn- um. „Ég er mjög ánægð með sigurinn og við vorum að spila vel,“ sagði Anna Steinsen, sem átti góðan leik fyrir Gróttu/KR. „I síðasta leik sem var gegn Haukum misstum við af lest- inni svo að við vorum staðráðnar í að leggja allt sem áttum í þennan leik og baráttan var góð núna og liðsheildin virkilega góð. Liðin eru áþekk að getu svo að það gildir að koma brjálaðar til leiks með sigur- Generali stóð í Badel Zagreb ÍTALSKA liðið Generali Trieste stóð í króatíska liðinu Badel 1862 Zagreb í fyrri leik liðanna í A-riðli meistaradeildarinn- ar, en þau eru í sama riðli og KA er í. Leikið var á Ítalíu og endaði leikurinn með sigri Badel, 22:20, eftir að staðan í hálf- leik hafði verið 11:7 fyrir Badel. Áhorfendur voru 1.500. Næsti leikur KA-manna í keppninni er á móti Badel í Za- greb næsta sunnudag. Á sama tíma leika Celje Pivovarna Lasko og Generali Trieste í Slóveníu. að brjóta FH-liðið niður. Sigurinn var ekki síst mikilvægur vegna þess að við náðum að taka af þeim þriðja sætið - og ekki síst vegna þess að okkur var spáð neðsta sæt- inu í deildinni.“ Sem fyrr segir var Anna mjög góð ásamt Ágústu Eddu Björns- dóttur, Helga Ormsdóttir sýndi góð tilþrif er leið á leikinn og Harpa Ingólfsdóttir var drjúg í hominu. Vigdís Finnsdóttir í mark- inu hefur oft varið meira en minna mæddi á henni þar sem vörnin var sterk fyrir framan hana. FH-liðinu reyndist barátta mótherjanna ofviða. „Við börð- umst vel og þetta var í lagi en vendipunkturinn varð í lok fyrri hálfleiks þegar þær komust yfir og eftir hlé gekk lítið upp hjá okkur. Það hefði verið gott að fá að minnsta kosti annað stigið en svona gengur þetta og við leggjum síður en svo árar í bát,“ sagði Hild- ur Erlingsdóttir fyrirliði FH eftir leikinn en hún og Vaiva Drilingaite voru bestar hjá FH og Björk Æg- isdóttir var ágæt. Hrafnhildur Skúladóttir og Dagný Skúladóttir áttu góða kafla. Fram ekki hindrun fyrir Stjörnuna Fram reyndist Stjörnustúlkum lítil hindrun á laugardaginn þegar liðin mættust í Safamýrinni og sigruðu Garðbæingar örugglega 30:17. Yfirburðir gestanna voru al- gjörir allan leikinn og staðan í leik- hléi 8:14 og eftir hlé bættu gestirn- ir úr Garðabænum stöðugt við. Fram er því ekki í góðum málum í neðsta sæti 1. deildar kvenna með 2 stig eftir tvö jafntefli og hefur enn ekki unnið leik en Gústaf Björnsson þjálfari liðsins lætur samt ekki hugfallast. „Ég hef trú á að þetta komi hjá okkur en sveifl- urnar hafa verið miklar og það vantar allan stöðugleika," sagði Gústaf eftir leikinn. „Okkur vantar leikreynslu því með nokkram und- antekningum era flestir leikmenn liðsins í fyrsta sinn í byrjunarliði þetta tímabil. En það er mikið eftir og stigin fara að skipta máli þegar nær dregur lokasprettinum en á toppi deildarinnar era línur farnar að skýrast.“ Valsstúlkur létu hafa fyrir sér Á Hlíðarenda gekk háttskrifuð- um Haukastúlkum illa að hrista af sér stöllur sínar úr Val, sem léku langar sóknir, héldu boltanum og gekk lengi vel að halda hraðanum niðri. Val tókst að halda forskoti Hauka við eitt mark fram í miðjan fyrri hálfleik en þá skildi leiðir og Hafnfirðingar náðu mest átta marka mun en í leikhléi var staðan 13:6, gestunum í vil. Eftir hlé jókst munurinn en Valsstúlkur voru ekki á því að láta sinn hlut baráttulaust og tókst að minnka muninn í tvö mörk er dró að leikslokum. En þá tók Vigdís Sigurðardóttir aftur við markvörslunni hjá Haukum og það gerði gæfumuninn þó sigurinn hafi aldrei verið í mikill hættu. ■ Úrslit/ C10 ■ Staðan / C10 Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson SIGTRYGGUR Albertsson var frábær í marki KA gegn slóvensku meisturunum. Hann varð alls 25 skot, mörg hver með míklum tilþrifum þegar mótherji var kominn í dauðafæri. „Var mjög súrt að tapa leiknum" Sigtryggur Albertsson, markvörður KA, var maður leiksins. Hann varði 25 skot og tók m.a. stórskyttuna Iztoc ■■■■^B Puc á taugum. „Mér Stefán Pór gekk ágætlega en strák- Sæmundsson arnir voru svo grimmir í Akuævrí vörninni að Puc þurfti að skjóta af 12-13 metra færi og það gerði mér auðveldara að reikna út skotin,“ sagði Sigtiyggur og hrósaði vörninni mikið. „Við getum bor- ið höfuðið hátt að öllu leyti. Það var í rauninni mjög súrt að tapa leiknum eins og hann spilaðist og það væri gaman ef við næðum að spila svona í deildinni." Ekki vanmat Miro Pozun, þjálfari Celje, var bros- hýr í leikslok. Hann sagði sitt lið aldrei hafa vanmetið KA. „Við vissum að þetta yrði erflður leikur. íslendingar eiga sterk félagslið. Ég hafði séð tvo leiki með KA og vissi að þetta eru ungir og fljótir leikmenn og átti því von á jöfnum leik eins og raunin varð á. Við þurftum að leggja okkur alla fram,“ sagði Pozun. Aðspurður um hinn fræga Iztok Puc sagði hann að stórskyttan hefði ekki náð sér á strik gegn vörn og markverði KA og raunar hefði Puc fundið fyrir meiðslum í nára og því verið hvíldur hluta úr leiknum. Mjög sáttur við frammistöðuna Jóhann G. Jóhannsson, fyrirliði KA, skoraði 8 mörk og bar enga virðingu fyrir slóvensku meisturunum. „Við spil- uðum vel og skynsamlega og ég er mjög sáttur við frammistöðu okkar. Það er ljóst að við fengum ekkert gefins hjá þessum dómurum en við börðumst al- veg eins og við gátum. Fólk bjóst allt eins við því að við yrðum flengdir en það kom aldrei til mála. Við ætluðum að + velgja þeim undir uggum og það tókst,“ sagði Jóhann. Atli óhress með dómarana Atli Hilmarsson, þjálfari KA, var ánægður með strákana sína en að sama skapi óánægður með dómarana frá Lit- háen. „Ég er mjög óhress með dómar- ana. Maður myndi ætla það að vafadóm- arnir féllu einhvern tíma okkur í vil en þeir féllu alltaf þeim í vil og má vera að virðing fyrir þessum stóru nöfnum í Celje hafi spilað þar inn í. En ég er stoltur af mínu liði, strákarnir stóðu sig frábæriega vel og ef við hefðum náð þriggja marka forskoti er líklegt að taugar þeirra hefðu bilað enn meira en orðið var. Þá hefði allt getað gerst. Ég er ánægðastur með að við skyldum alltaf vera inni í leiknum, sama hvað gekk á, og við áttum möguleika nánast allt til loka,“ sagði Atli. Frábær frammi- \ staða KA-manna Slóvensku meistararnir í stökustu vandræðum ÍSLANDSMEISTARAR KA fengu eldskírn í Meistarakeppni Evr- ópu sl. laugardag þegar hið firnasterka lið Celje Pivovarna Lasko frá Slóveníu mætti í KA-heimilið með margreynda landsliðsmenn í hverri stöðu. í fylgd með þessum stórmennum voru 100 ákafir stuðningsmenn og 11 fréttamenn og ekki laust við að hrollur færi um norðanmenn í slydduhríðinni. KA gat ekki stillt upp sínu sterkasta iiði, landsliðsmaðurinn Björg- vin Björgvinsson meiddur og Vladimir Goldin frá Hvíta-Rúss- landi ekki gjaldgengur með félaginu í Evrópukeppni. Það mæddi því mikið á ungum lærisveinum Atla Hilmarssonar og reyndari refum f KA-liðinu. Skemmst er frá því að segja að KA-strákarnir stóðu sig frábærlega, gáfu þeim slóvensku ekk- ert eftir og héldu leiknum jöfnum alit þar til um 10 mínútur voru eftir. Þá tókst Celje að kreista reynsludropa úr leikmönn- um sínum og sigra með þriggja marka mun; lokatölur í KA- heimilinu 23:26. Stefán Pór Sæmundsson skrifar frá Akureyri Leikurinn var hin besta skemmt- un frá upphafi til enda. Það var hart barist í byrjun. Stefanovic skoraði fyrst fyrir Celje, Leó Örn Þor- leifsson jafnaði fyrir KA, Stefanovic kom liði sínu yfir eftir 7 mínútna leik en Halldór Sigfússon jafnaði úr vítakasti. Sigtryggur Al- bertsson markvörður KA gaf tón- inn með því að verja þrjú fyrstu langskotin frá stórskyttunni Iztoc Puc. Fín upphitun það. Celje náði tveggja marka forskoti, 3:5, KA jafnaði en Celje tók aftur kipp og staðan var 6:8 eftir 17 mínútur. Þá komu fjögur KA-mörk í röð, þar af tvö glæsimörk Leós Arnar úr hraðaupphlaupi. KA var því komið í 10:8 eftir 23 mín. og áhangendur Celje voru agndofa. Nú var hins vegar röðin komin að slóvensku meisturunum að skora fjögur mörk í röð og breyta stöðunni í 10:12. Baráttan hélt áfram út hálf- leikinn og Karim Yala skoraði glæsilegt mark eftir aukakast á síðustu sekúndunum og staðan í leikhléi 12:13. KA-menn sýndu í upphafi seinni hálfleiks að sterk staða liðsins í leik- hléi var engin tilviljun. Þeir skoraðu þrjú fyi'stu mörkin og breyttu stöð- unni í 15:13. Þá kom hæpin brottvís- un og skot í þverslá af vítalínunni frá Halldóri Sigfússyni og Celje- menn gengu á lagið og skoruðu þrjú næstu mörk. Dæmigert fyrir sveifl- urnar í leiknum. Útlitið var ekki gott hjá KA þegar Sverri Björns- syni vai' vísað út af í stöðunni 17:18 og Þorvaldur Þoi’valdsson fauk sömu leið 16 sekúndum síðar. Puc skoraði 17:19 en Jóhann G. Jó- hannsson svaraði fyrir KA þótt að- eins væru 4 útileikmenn á móti 6 leikmönnum Celje. Og Jóhann jafn- aði síðan í 19:19 þegar KA-menn voru komnir með fullskipað lið. Þetta sýnir glöggt baráttuna og kraftinn í KA-mönnum. Þeir gáfust aldrei upp þótt vafasamar brottvís- anir og vítakastsdómar færu skilj- anlega í taugarnar á þeim. Mót- spyrna þein-a fór hins vegar í taug- arnar á slóvensku meisturunum sem náðu ekki að hrista norðanpilt- ana af sér. Enn var barist. Eftir 23 mínútur skoraði Puc úr vítakasti og staðan 20:22. Þegar hér var komið sögu hafði C.elje fengið 6 vítaköst og KA misst leikmenn út af í 12 mínútur en dómararnir höfðu aðeins tvívegis dæmt víti á Celje og vísað einum leikmanni liðsins af velli. Puc skor- aði síðan hörkumark og var þetta eina langskot hans sem rataði í net- ið. KA-mönnum tókst ekki að vinna upp þennan þriggja marka mun á síðustu 5 mínútunum jafnvel þótt leikmenn Celje færu nú að tínast út af og reyndar stefndi allt í fjögurra marka tap. Fyrirliðinn Jóhann G. kórónaði þá frammistöðu sína með marki úr aukakasti eftir að leiktím- inn var runninn út. Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson JÓHANN G. Jóhannsson, fyrirliði KA, sem hér reynir að brjótast i gegnum vörn Celje Þivovarna Lasko, fór á kostum og var markahæstur Akureyringa með átta mörk. KA-menn geta borið höfuðið hátt eftir þennan leik. Varnarleikurinn var skínandi góður og Sigtryggur Albertsson átti stórbrotinn leik í markinu, varði 25 skot og mörg þeirra með miklum tilþrifum. Jó- hann G. fór á kostum og skoraði 8 mörk, Leó Orn var einnig sterkur og skoraði 6. Skyttumar komust hins vegar lítið áleiðis. Peric varði vel í marki Celje í fyrri hálfleik og vörn liðsins var römm í þeim seinni. Pungartnik og Stefanovic voru sterkir í sókninni. Puc var marka- hæstur Celje með 8 mörk en 6 þeirra komu úr vítakasti. „Slóvensk- ir dagar“ SEGJA má að blásið hafí verið til „slóvenskra daga" á Akureyri um sfðustu helgi. Um 100 stuðningsmenn og 11 fi'éttamenn komu með handknattleiksliði Celje Piv- ovarno Lasko í leiguflugi til Akureyrar og skemmtu sér vel á öidurhúsum bæjarins, bæði á fdstudags- og laugar- dagskvöld. Stuðningsmenn- irnir settu líka skemmtileg- an svip á lcikinn gegn KA en á köflum voru þeir þó afar hljóðir og virtust gáttaðir á inótspyrnunni. Nýstignir úr flensu en bestir ÞAÐ var ekki nóg með að KA-menu léku án Björgvins og Goldins heldur var lieiisa nokkurra leikmanna frekar tæp. Sigtryggur Albertsson og Jóhann G. Jóhannsson voru frekar máttlitlir eftir flensu en samt voru þeir bestu menn liðsins og rauuar bestu rnenn vallarins. Gaman væri að fá skýringu á þessu. Úr Evrópu- leik í 2. fiokk KA-MENN eru með ungt lið og strax eftir leik KA og Celje var blásið til leiks í 2. flokki í KA-heimilinu. Þar mættu nokkiár leikmenu sveittir eflir Evrópuleikinn og héldu áfram að djöflast í handbolta. Já, það er kraftur í KA-mömium. Dómararnir engin himna- sending DÓMARARNIR frá Litháen reyndust engin himnaseud- ing fyrir KA. Þeir vii*tust hafa gleyint stuðniiigi ís- lendinga við sjálfstæðisbar- áttu Lit.háa og gárungarnir voru á því að tap Kaunas gegn KA og landsliðs Lit- háen gegn Islendingum hefði eitthvað setið í þeim. Að minnsta kosti þóttu nokkrir brottrekstrar og allmargir vítakastsdómar á KA orka injög tvímælis. Hvað er orðið af hinni landlægu heima- dómgæslu í slíkum leikjuin?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.