Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 C 9 ÍÞRÓTTIR KORFUKNATTLEIKUR Góður sigur KR-inga Lið KR í 1. deild kvenna í körfu- knattleik hélt sigurgöngu sinni áfram á laugardag er það sigraði Islandsmeistara Stefán UMFG í annað sinn Arnarson á þessu keppnis- skrifar tímabili. Lið KR, sem hefur á að skipa sjö landsliðsmönnum, er geysisterkt um þessar mundir og hefur íjögurra stiga forskot á næsta lið í deild- inni. Fyrri hálfleikur sem var vel og prúðmannlega leikinn var mjög jafn. Liðin skiptust átta sinnum á að hafa forystu. Grindvíkingar byrj- uðu betur og komust mest sjö stig yfir, 18:11, en KR-ingar sýndu góða baráttu í lok hálfleiksins og komust yfir 30:26. Seinni hálfleikurinn var ekki vel leikinn og einkenndist af mikilli baráttu og óskipulögðum sóknar- leik. Gestirnir byijuðu seinni hálf- leikinn mjög vel og skoruðu 11 stig gegn 2 stigum KR. Munaði þar mest um Penni Peppas sem fór á kostum. Fyrstu 12 mínútur seinni hálfleiks skoraði KR aðeins 6 stig. UMFG notfærði sér þennan slaka sóknarleik KR og komst yfir 41:36. Á næstu tveimur mínútum sneri KR leiknum sér í hag með því að skora 8 stig í röð og komast yfir 44:41. KR hélt síðan forystunni út leikinn og sigraði 52:47. UMFG átti góða möguleika á því að ná hagstæðari úrslitum, en klaufa- skapur í vörn og sókn á síðustu mínútum leiksins kom í veg fyrir það. í jöfnu liði KR stóðu þær Krist- ín Jónsdóttir og Guðbjörg Norðíjörð sig best, og í liði UMFG voru þær Penni Peppas og Anna Dís Svein- björnsdóttir bestar. Morgunblaðið/Ásdís ANNA Dís Svelnbjörnsdóttir, landsliðsmaður í Grindavíkurliðinu, meö knöttinn í leiknum gegn KR. Hún var elnn besti leikmaður UMFG en Linda Stefánsdóttir, sem reynir að stöðva Onnu Dís, og samherjar hennar í Vesturbæjarliðinu fögnuðu enn einum sigrinum. Atlanta ó- stöðvandi Atlanta Hawks hefur farið vel af stað í NBA-deildinni og unnið alla sex leiki sína til þessa og hefur aldrei byijað betur í deild- arkeppninni. Um helgina vann liðið meistarana í Chicago Bulls á laug- ardag og Cleveland á sunnudag. Leikurinn við Cleveland á sunnudag var æsispennandi og þurfti að framlengja hann. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn, 90:90. Steve Smith gerði síð- an öll níu stig liðsins í framlenging- unni og tryggði liði sínu sigur, 99:97. „Ég var búinn að hitta ágætlega í leiknum og það breytt- ist ekki í framlengingunni," sagði Smith, sem gerði alls 21 stig. „í þessum ham er eins og maður geti allt.“ Á laugardaginn sigraði Atlanta lið Chicago 80:78 á heimavelli. 46 þúsund áhorfendur voru í Georgia Dome-höllinni og hafa þeir aldrei verið eins margir. Stemmningin var mikil meðal þeirra enda flestir á bandi Atlanta. „Við fundum okk- ur vel enda stuðningur áhorfenda góður,“ sagði Mookie Blaylock, sem gerði 17 stig fyrir Atlanta. „Ef við höldum áfram að leika eins vel í næstu leikjum koma þessir áhorfendur aftur til að skemmta sér.“ Michael Jordan var stiga- hæstur í liði Chicago með 27 stig. Það gekk aðeins betur hjá Chicago á sunnudag er liðið mætti New Jersey á heimavelli og sigraði 99:86. Steve Kerr var stigahæstur í liði Bulls með 21 stig, en Toni Kukoc kom næstur með 17 stig. Jordan gerði aðeins 15 stig og þykir það ekki mikið á þeim bæ. Tim Hardaway átti góðan leik með Miami Heat sem vann Wash- ington í miklum stigaleik, 114:106. Hann gerði 25 stig og átti 12 stoð- sendingar. Jamal Mashburn setti niður 22 stig og Terry Mills, sem byijaði sem varamaður, gerði 20 stig. Chris Webber var með 34 stig fyrir Washington. Charlotte sigraði Indiana á heimavelli, 89:82. Vlade Divac var dijúgur og gerði 18 stig, tók 13 fráköst og „stal“ boltanum fjórum sinnum. Glen Rice var stigahæstur með 30 stig í fjórða sigri liðsins í röð. Reggie Miller var með 20 stig fyrir Indiana. AMERISKI FOTBOLTINN Víkingarnir á skrið NÚ eru aðeins fimm umferðir eftir í deildarkeppni NFL deildarinnar. Línurnar hafa nokkuð skýrst um sterkustu Gunnar liðin' en mör« lið' Valgeirsson anna eiga enn tæki- skrifarfrá færi á að komast í Bandaríkjunum úrslitakeppnina. í Ameríkudeild styrkti stórsigur Denver Broncos gegn Carolina Panthers, 34:0, sess liðsins. Denver mun sennilega verða með besta árangurinn í deildinni, eins og í fyrra. Liðið sækir Kansas City heim um þessa helgi og getur gert út um sigurinn í vesturriðlinum í þeim leik. Jacksonville Jaguars og Pitts- burgh Steelers beijast um sigurinn í miðriðlinum. Bæði lið unnu góða sigra heima um helgina. Pittsburg slátraði Baltimore Ravens, 37:0, og Jacksonville vann sannfærandi sigur á sterku liði Kansas City, 24:10. í austurriðli eru fjögur lið i barátt- unni og geta þau þess vegna öll unnið riðilinn. Liðin léku innbyrðis- leiki um helgina. Miami Dolphins vann mikilvægan sigur gegn New York Jets, 24:17, og New England Patriots fór létt með Buffalo Bills á útivelli, 31:10, eftir að hafa tapað þremur leikjum í röð. Patriots verður að teljast sigurstranglegast af þess- um liðum. í Landsdeildinni er mikil spenna í tveimur riðlum. Minnesota Vikings hefur nú unnið sex leiki í röð í fyrsta sinn síðan 1975. Um helgina vann liðið Chicago Bears, 29:22. Meistaral- ið Green Bay Packers vann St Louis Rams, 17:7. Þessi lið eru jöfn á toppi miðriðils og keppa saman í mánu- dagskvöldsleiknum eftir þijár vikur. Tampa Bay hefur aðeins tapað einum leik meira og á því enn tækifæri. I austurdeildinni eru íjögur lið í baráttunni, þar á meðal Dallas Cowboys, sem vann Arizona Card- inals um helgina 24:6. Cowboys, ásamt New York Giants, Philadelp- hia Eagles, og Washington Redskins eru öll í einum hnapp. Dallas á minnsta möguleikann af þessum lið- um vegna tapa gegn liðunum í riðlin- um það sem af er, en séu lið jöfn að lokinni deildarkeppninni, vega úrslitin í innbyrðisleikjunum i riðlin- um mest. San Francisco 49ers hefur afger- andi forystu í vesturriðli og ætti að vinna hann án þess að svitna mikið, en liðið átti að keppa í nótt. Onnur lið koma væntanlega ekki til með að blanda sér í baráttuna um að komast í úrslitakeppnina. ísfirðingar fengu ósk sína upp- fyllta KFÍ og Keflavík drógust saman í 16-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ pg Renault. Það má því segja að ísfirðingar hafa fengið ósk sína uppfyllta því_ Guðjón Þorsteinsson, liðsstjóri KFÍ, vonaðist eftir að fá Keflavík. Ástæðan er sú að Kefla- vík sló KFI út úr eggjabikarnum og nú fær KFÍ möguleika á að hefna ófaranna. Liðin drógust þannig: KR - Njarðvík, Haukar - Þór Þorláks- höfn, KFÍ - Keflavík, Grindavík - Selfoss, ÍA - Reynir Sandgerði, ÍR - Skallagrímur, Valur - Höttur og Stjarnan - Smári Varmahlíð. Ljóst er að eitt lið úr neðri deild- unum fer áfram í 8-liða úrslit því Stjarnan mætir Smáranum. Leik- irnir eiga að fara fram 12. og 13. desember. BLAK KA-menn fengu stig Lið ÍS fékk KA í heimsókn um helgina og mættust liðin tví- vegis í 1. deild karla. Á föstudags- • kvöldið vann ÍS 3:1, en það byijaði samt illa hjá KA sem tapaði fyrstu hrinunni 15:5 en í þeirri næstu náðu gestirnir sínu fyrsta stigi S deildinni í vetur þegar þeir unnu hrinuna 15:13. Það var fyrst og fremst góður leikur miðjumannsins Andra Magnússonar og Davíðs Búa Halldórssonar sem hleypti lífi í leik KA liðsins í annarri hrinunni en það dugði skammt í framhaldinu þar sem ÍS vann örugglega í þriðju og ljórðu hrinunni. Á laugardeginum bar það helst til tíðinda að strax S fyrstu hrinu þurfti Óskar Hauksson, ÍS, að yfir- gefa leikvöllinn vegna meiðsla þeg- ar hann sneri sig illa en leikmenn . ÍS létu það ekkert á sig fá, unnu hrinuna 15:13 og tvær næstu með sama mun, 15:7. Zdravko Demirev lék langbest í liði ÍS og greinilegt að hann getur spilað allar stöður á leikvellinum og með hinum búlg- arska félaga sínum Martin Rad- itchkov verður erfitt að stoppa hann eins og leikmenn KA fengu að reyna í leiknum. Stúdínur skelltu KA Stúdínur mættu KA stúlkum í Hagaskólanum á laugardaginn og skelltu gestunum 3:0 en það blés ekki byrlega hjá heimaliðinu í upp- hafi leiksins því KA stelpurnar voru sýnd veiði en ekki gefin. Fyrsta ' hrinan var í járnum framan af og stúdínum gekk illa að hrista gestina af sér. Það hafðist þó með herkjum og fyrsta hrinan vannst 15:10 en í annarri hrinu voru KA stelpurnar með pálmann í höndunum þegar þær höfðu forystu, 12:5, en sterkar uppgjafir Þorbjargar Ólafar Jóns- dóttur kæfðu tilburði þeirra í fæð- ingu en Þorbjörg gaf tíu sinnum upp án þess að KA stelpum tækist að svara fyrir sig. í þriðju hrinunni var þetta hins vegar aldrei spurning hjá heimaliðinu. Lið KA, sem steig sín fyrstu spor í deildarkeppni á síðasta ári, hefur bætt sig mikið og þar ber helst að nefna Birnu Baldursdóttur og Jó- hönnu Hreinsdóttur uppspilara sem eru lykilmenn í dag en leikmanna- hópurinn er allur nokkuð jafn og það er ávísun á gott gengi í framtíð- inni hjá KA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.