Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Átta íslenskir skíðamenn hafa náð lágmarki Alþjóða Ólympíunefndarinnar til þátttöku í alpagreinum á vetrarleikunum í Nagano ... sem er að vera meðal þeirra 500 bestu á heimslista FIS Staða íslenskra skíðamanna á styrkleikalista Alþjóða Svig skíðasambandsins (FIS) þann 28. október 1997 Kristinn Björnsson, Ólafsfirði Haukur Arnórsson, Ármanni Arnór Gunnarsson, ísafirði Jóhann H. Hafstein, Ármanni Sveinn Brynjólfsson, Dalvík Brynja Þorsteinsdóttir, Akureyri Theodora Mathiesen, KR Sigríður Þorláksdóttir, ísafirði Hæsti Islendingur inn á topp-500 lista: Björgvin Björgvinsson, Dalvík FIS- Sætiá stig heimsl. 13.89 26,87 28,47 60,41 49.90 53. 167. 179. 670. 462. 36,71 170. 53,57 333. 51,31 300. 57,25 611. Stórsvig FIS- Sætiá stig heimsl. 27,38 175. 40,57 422. 48,14 579. 39,92 405. 47,30 555. 45,79 222. 42,43 274. 44,68 504. ■ KEITH Burkinshaw sér um lið Aberdeen þar til nýr þjálfari verður ráðinn í staðinn fyrir Roy Aitken, sem var sagt upp í gær, en Tommy Craig, aðstoðarmaður Aitkens, var líka látinn fara. Aitken var þjálfari skoska úrvalsdeildarliðsins í tvö og hálft ár. ■ PETER Stöger, landsliðsmaður hjá Rapid Vín, var sagt upp í gær vegna deilna við þjálfara liðsins, en hann var samningsbundinn þar til í sumar. __ ■ STÖGER, sem er 31 árs og hefur leikið 56 landsleiki, gerði tvö mörk fyrir Austurríki á móti Hvíta Rúss- landi í riðlakeppni HM fyrir skömmu og átti stóran þátt í að Austurríki leikur í úrslitakeppni HM. ■ STEVE Watson, vamarmaður hjá Newcastle, var valinn í enska landsliðshópinn fyrir vináttuleikinn við Kamerún á laugardag í stað Garys Pallisters hjá Manchester United, sem meiddist í leiknum á móti Arsenal. ■ VICTOR Femandez missti þjálfarastöðu sína hjá Tenerife eftir að liðið tapaði 3:1 heima fyrir Celta Vigo í spænsku deildinni um helgina. ■ JUVENTUS og AC Milan eru að búa sig undir að bjóða um 11 millj. punda (um 1,3 milljarða kr.) í Steve McManaman hjá Liverpool, samkvæmt fréttum í ensku helgar- blöðunum. McManaman, sem á eft- ir 18 mánuði af samningi sínum, virt- ist á leið til Barcelona í sumar en spænska félagið sætti sig ekki við launakröfur miðjumannsins. ■ JÓN Benóný Reynisson setti um helgina íslandsmet í bekkpressu í +125 kg flokki á bikarmóti KRAFT sem fram fór í Garðaskóla á laugar- dag. Hann lyfti 255 kg og er það mesta þyngd sem íslendingur hefur lyft í þessari grein. ísleifur Árnason setti unglingamet í -75 kg flokki í bekkpressu, lyfti 150 kg. ■ ANTON Polster var kjörinn íþróttamaður ársins í Austurríki og Renate Götschl íþróttakona ársins en samtök íþróttafréttamanna stóðu að kjörinu. ■ POLSTER, sem er 33 ára, átti stóran þátt í að koma Austurríki í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppn- innar í knattspyrnu, sem verður í Frakklandi næsta sumar, en Götschl, sem er 22 ára, varð meist- ari í bruni í heimsbikarnum á skíðum. ■ RODNEY Eyles frá Ástralíu sigraði Peter Nicol, Skotlandi, 15:11, 15:12 og 15:12 í úrslitaleik á heimsmeistaramótinu í skvassi sem fram fór í Malasíu um helgina. ■ JONAS Björkman frá Svíþjóð sigraði Hollendinginn Jan Siemer- ink í úrslitum á opna Stokkhólms- mótinu í tennis á sunnudag. Björk- man, sem þykir mjög efnilegur, vann 3-6 7-6 6-2 6-4. Þetta var þriðji sig- ur Svíans á opnu móti og fékk hann 112 þúsund doliara í verðlaun. Hann hefur farið upp úr 69. sæti á heims- listanum í það fjórða á þessu ári. ■ MARK Calcavecchia frá Banda- ríkjunum sigraði á opna Sarazen- mótinu í golfi sem fram fór í Brasel- ton í Georgíuríki um helgina. Hann lék á 271 höggi, sem er 17 höggum undir pari vallarins. Lee Westwood, Bretlandi, varð annar á 274. VIÐSKIPT1 ú tíð er liðin að Islenskir knatt- 'w spyrnumenn séu seldir úr landi fyrir nokkra knetti. Sumir líta á íþróttir sem holla hreyfingu og leik. Og hafa auðvit- að rétt fyrir sér. Aðeins að hluta til þó, því keppnisíþróttirnar snú- ast sífellt meira um ____________ peninga og þetta tvennt er raunar gjörólíkt; keppnin er eitt og al- menningslþróttir annað og umsjón með þessu tvennu ætti jafnvel ekki að vera á sömu hendi. Á stundum virðist sem umQöllun um keppnisíþróttir, þessa helstu skemmtun almúgans víða um lönd, ætti frekar heima á viðskiptasíðum dagblaðanna en íþróttasíðum. Sú stund rennur þó vonandi aldrei upp að keppnin sjálf falli I skuggann, en fréttir af svimandi háu verð- iaunafé á hinum ýmsu mótum, kaupum og sölum leikmanna, gengi félaga á hlutabréfamarkaði, kaup- um og sölum heilu liðanna og gífur- legum Qárhæðum sem íþróttamenn þiggja I laun, fylla síður og þætti I ríkara mæli en áður. íþróttir eru geysivinsælt sjón- varpsefni og það er ekki síst því að þakka hve fjárstreymið til hreyfíngarinnar er mikið. Ekki er einungis um að ræða Ólympiuleika og heimsmeistaramót; deildar- keppni I knattspyrnu víða um lönd er mikið verðmæti með samninga við sjónarpsstöðvar f huga og þær slást orðið um sýningarréttinn. Knattspyma er skemmtun, knattspyrnumenn því skemmti- kraftar og íþróttin nú enn frekar en áður orðin hluti skemmtanaiðn- aðar heimsbyggðarinnar. Stað- reyndin er sú að rekstur knatt- spyrnuliðs er orðinn gífurlegt gróðafyrirtæki. Áberandi er hve ýmsir aðilar úr viðskiptalífí hafa á undanfömum árum tengst erlend- um knattspymufélögum á einn eða annan hátt. Margir hveijir, ef til vill allir, hafa þeir gaman af knatt- spymu en einhverjir - ef til vill allir - líta á íþróttina sem við- skipti og vilja hagnast á henni. Spennandi að fylgjast með hvort útlendingar koma að rekstri KR Og að sjálfsögðu er ekkert við það að athuga. íslenskir íþróttaáhugamenn verða sífellt meira varir við við- skiptahlið Iþróttanna; m.a. vegna frétta af tfðum ferðum íslenskra knattspymumanna úr landi upp á síðkastið. Og I síðustu viku var greint frá því að forráðamenn knattspyrnudeildar KR ættu í við- ræðum við útlendinga, sem koma hugsanlega að rekstri deiidarinn- ar. Málið er spennandi, svo ekki sé meir sagt og því ber að fagna fáist meira fjármagn inn í íþrótta- hreyfinguna en áður. Verði hægt að hlúa betur að yngri íþrótta- mönnum félaganna geta þau vænt- anlega alið upp fleiri afreksmenn og atvinnumönnunum erlendis gæti fjölgað að sama skapi. Staðreyndin er þessi: íþróttir eru viðskipti og kaup og sala íþrótta- manna er hluti þeirra viðskipta. íþróttamenn eru útflutningsvara. Einhver kann að mótmæia því að réttlætanlegt sé að taka svo til orða en staðreyndimar tala sínu máli. Og þegar siík viðskipti eru bæði „vörunni" og seijendunum hagstæð er ekkert við þau að athuga. Skapti Hallgrímsson Hver er körfuknattleikskonan KRISTÍIM JÓIMSDÓTTIR bakvörður KR-inga? Samtaka og jákvæðar KR-INGAR hafa unnið alla leiki sína í 1. deild kvenna í körfu- knattleik það sem af er keppnistímabilinu. Kristín Jónsdóttir bakvörður hefur spilað vel með KR undanfarin ár og segir að nú sé kominn tími til að vesturbæjarliðið verði meistari. Um helgina vann KR lið Grindavíkur og er nú með tíu stig eftir fimm leiki. Kristín, sem er 23 ára, er á öðru ári íviðskipta- f ræði í Háskóla íslands. Kristín byijaði að æfa körfu- knattleik 14 ára gömul með Tindastóli á Sauðárkróki. „Lífið snerist um körfu- bolta og það var VglB engm undan- Jónatansson komuleið," sagði Katrín, sem er dóttir Jóns Sig- urðssonar, fyrrum landsliðs- manns úr KR. Fósturfaðir hennar er annar landsliðsmaður I íþrótt- inni, Kári Marísson. Móðir henn- ar, Katrín Axelsdóttir, sem nú er látin, var einnig mikið í íþrótt- um - lék m.a. handbolta, körfu- bolta og fótbolta með Ármanni og KR. Tveir hálfbræður hennar eru á fullu I körfuboltanum, Arn- ar Kárason með Tindastóli og Sigurður Jónsson með KR. Hvenær byijaðir þú að spila með KR-ingum? „Ég byrjaði með KR þegar ég fluttist frá Sauðárkróki til Reykjavíkur fyrir sex árum og er enn að. Ég náði því að verða íslandsmeistari með stúlknaflokki Tindastóls og trúi ekki öðru en ég upplifi það að verða íslands- meistari með KR.“ Er körfuboltinn betri núna en áður hjá ykkur konunum? „Já, hann er miklu betri og ég held að það sé vegna þess að við æfum meira en áður. Annars er nokkur lægð yfir kvennakörfunni í heild. Það voru tíu lið í deildinni fyrir tveimur árum, en nú eru þau aðeins fímm.“ Hver er skýringin á fækkun liða í deildinni? „Ég held að það sé ekki unnið nægilega markvisst að uppbygg- ingunni í kvennakörfunni. Það eru fá verkefni og við fáum litla athygli fjölmiðla. Eins hefur landsliðið ekki haft nægilega mörg verkefni. Landsliðið hefur staðið sig vel í þeim mótum sem Morgunblaðið/Kristinn KRISTÍN Jónsdóttir ætlar aö verða íslandsmeistarl meö KR. „Viö höfum lengi þurft aö sætta okkur viö annaö sæt- ið, en það gerum vfð ekki lengur," sagöl Kristín. það hefur tekið þátt í, en það vantar fleiri landsleiki." Nú hefur KR unnið alla leiki sína til þessa. Er liðið sterkara en undanfarin ár? „Já, það er mun sterkara. Það er meiri breidd I liðinu en áður. Við fengum Hönnu Kjartansdótt- ur fyrir tímabilið og eins Elísu Vilbergsdóttur, sem var meidd í fyrra. Eins ákvað Linda Stefáns- dóttir að hætta við að hætta. Við erum líka með góðan bandarískan þjálfara sem heitir Chris Arm- strong. Hann hefur verið að gera góða hluti hjá félaginu, en hann þjálfar einnig yngri flokkana. Einnig skiptir það miklu máli að liðsandinn er mjög góður — við erum samtaka og jákvæðar í því sem við erum að gera.“ Það hlýtur að vera markmiðið hjá ykkur að vinna íslandsmeist- aratitilinn. „Já, það er ekki nokkur spurn- ing. Við höfum lengi þurft að sætta okkur við annað sætið, en það gerum við ekki lengur. Þó svo að það hafi gengið vel hjá okkur núna í upphafi móts, er það ekki nóg. Við verðum að halda áfram á sömu braut að standa okkur þegar kemur út í úrslitakeppnina. Keflvíkingar og Grindvíkingar eru með góð lið og það hefur aldrei munað miklu á okkur og þeim, þó svo að við höfum unnið þessa leiki í vetur.“ Áttu þér eitthvert markmið í körfuboltanum? „Já, það er auðvitað að verða íslandsmeistari með KR og vera áfram í landsliðshópnum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.