Morgunblaðið - 14.11.1997, Blaðsíða 3
2 C FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 C 3
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
ÍÞRÓTTIR
Keflavík - KR 90:80
Laugardalshöll: Undanúrslit í Eggjabikam-
um, fimmtudaginn 13. nóvember 1997.
Gangur leiksins: 2:0, 6:3, 6:9, 9:11, 22:11,
24:19, 30:21, 37:31, 40:39, 42:42, 44:42,
44:46, 53:49, 58:53, 68:56, 73:65, 76:70,
81:73, 90:80.
Stig Keflavíkur: Dana Gingle 28, Guðjón
Skúlason 22, Falur Harðarson 12, Gunnar
Einarsson 10, Birgir Örn Birgisson 6, Hall-
dór Karlsson 6, Kristján Guðlaugsson 4,
Fannar Ólafsson 2.
Fráköst: 19 í vörn - 6 í sókn.
Stig KR: Hermann Hauksson 27, Nökkvi
Már Jónsson 14, Kevin Tucker 13, Ingvar
Ormarsson 7, Baldur Ólafsson 6, Ósvaldur
Knudsen 6, Óskar Kristjánsson 3, Marel
Guðlaugsson 2, Sigurður Jónsson 2.
Fráköst: 20 í vöm - 8 í sókn.
Dómarar: Leifur Garðarsson, Helgi Braga-
son og Sigmundur Herbertsson.
yillur: Keflavík 20 - KR 24.
Áhorfendur: 500.
UMFIM-UMFT 90:102
Laugardalshöll:
Gangur leiksins: 0:2, 11:6, 25:16, 35:21,
37:29, 41:36, 45:44, 48:44, 48:46, 52:50,
56:50, 56:59, 65:62, 66:68, 73:70, 77:78,
78:78, 80:78, 80:82, 81:86, 85:86, 88:88,
90:93, 90:102.
Stig Njarðvikinga: Petey Sessoms 32,
Teitur Orlygsson 30, Páll Kristinsson 16,
Friðrik Ragnarsson 4, Kristinn Einarsson
3, Guðjón Gylfason 2, Logi Gunnarsson 2,
Jón Júlíus Árnason 1.
Fráköst: 28 í vörn - 8 í sókn.
Stig Tindastóls: Torrey John 50, Arnar
Kárason 12, Sverrir Þór Sverrisson 12,
Láms Dagur Pálsson 9, Hinrik Gunnarsson
8, Ómar Sigmarsson 6, José Maria Narang
3, Skarphéðinn Ingason 2.
Fráköst: 21 í vörn - 9 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Kristinn
Albertsson og Jón Bender. Voru ekki eins
slakir og Njarðvíkingar vilja vera láta, en
hafa oft dæmt betur.
Villur: UMFN 27 - UMFT 27.
Áhorfendur: Ríflega 500.
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL:
Real Madrid - Maccabi (fsrael)..68:76
Alberto Angulo 15, Dejan Bodiroga 12,
Alberto Herreros 11 - Oded Katash 21,
Randy White 21, Constantin Popa 11.
3.500.
Efes (Tyrkl.) - Limoges (Frakkl.).65:64
Petar Naumoski 26, Mirsad Turkcan 18
Limoges - Hughes Occansey 16, Nenad
Markovic 12, Weis 12. 10.000.
C-RIÐILL:
Ulkerspor (Tyrkl.) 74 Hapoel (Israel)
................................74:56
Harun Erdenay 24, Michael Anderson 16 -
Radisav Curcic 16, Kenny Williams 13.
10.000.
D-RIÐILL:
Bologna (ítal.) - Cibona......77:75
Wilkins 28, Fucka 17, Chiacig 13 - Mrsic
17, Grgat 14. 5.385.
NBA-deildin
Chicago - Washington..........83:90
Boston - Denver...............96:86
Indiana - Atlanta.............86:89
Orlando - Sacramento.........89:115
Toronto - Nwe York Knicks.....70:93
Houston - Philadelphia......100:114
Phoenix - Milwaukee..........103:95
Utah - Vancouver..............93:80
Golden State - Detroit.......71:102
Íshokkí
NHL-deildin
Pittsburgh - Washington.........1:4
■Florida - NY Islanders.........2:2
NY Rangers - New Jersey.........2:3
■Dallas - Boston................3:3
Edmonton - Carlolina............6:4
■Anaheim - Montreal.............3:4
San Jose - Vancouver............2:5
Knattspyrna
Spánn
Athletic Biibao - Barcelona.....3:0
Javi Gonzalez (40.), Bittor Alkiza (50.),
Ismaei Urzaiz (72.). 45.000.
Stafa efstu liða:
Barcelona...........11 8 1 2 24:13 25
Real Madrid..........11 7 3 1 19: 7 24
CeltaVigo ..........11 7 3 1 20:10 24
Espanyol ...........11 6 4 1 20: 6 22
A.Madrid.............11 6 3 2 27:12 21
Real Sociedad........11 6 3 2 16: 8 21
í kvöld
Körfuknattleikur
1. deild karla:
Austurberg: Leiknir- Stjarnan.20
Handknattleikur
2. deild karla:
Seltj.nes: Grótta/KR_- Þór..20
ísafjörður: Hörður - Ármann.20
Fjölnishús:; Fjölnir - Selfoss.20.30
FELAGSLIF
Herrakvöld Fram
Herrakvöld Fram verður í félagsheimilinu
við Safamýri í kvöld. Húsið verður opnað
kl. 19. Ámi Gunnarsson er ræðumaður
kvöldsins og Jóhannes Kristjánsson eftir-
herma tekur upp þráðinn þar sem frá var
horfíð hjá Fram fyrir ári.
Torrey reið
baggamuninn
Setti persónulegt met; gerði 50 stig, 49% stiga UMFT
TORREY John átti sannkallaðan stórleik í Laugardalshöll í gær-
kvöldi þegarTindastóll vann Njarðvík, 102:90, eftirframlenginu.
Með sigrinum tryggði Tindastóll sér sæti í úrslitaleik Eggjabikars
ins á morgun en þar munu þeir mæta Keflvíkingum. Torrey John
gerði 49% stiga Tindastóls, 40 ívenjulegum leiktíma og bætti
tíu við í framlengingunni og lauk því ieiknum með 50 stigum og
13 fráköstum. Hann hitti úr 9 af 19 þriggja stiga skotum.
Þó svo Torrey John hafi átt stærst-
an þátt í sigri Sauðkrækinga
var hann ekki einn og samheijar
hans léku flestir
Skuli Unnar ágætlega, bæði í vörn
Sveinsson og sókn, og baráttan
skrifar var til staðar. Njarð-
víkingar byrjuðu
mjög vel og virtust um tíma vera
með leikinn í hendi sér, voru komnir
í 35:21 er fímm mínútur voru til leik-
hlés. Þá tóku Njarðvíkingar leikhlé
og það nýttu Tindastólsmenn sér til
fullnustu, komu til leiks á ný tilbúnir
í baráttuna og með hana að vopni
tókst þeim að minnka muninn fyrir
hlé og komast síðan yfír eftir sjö
mínútna leik í síðari hálfleik. Leikur-
inn var í jámum. Tíu sinnum skipt-
ust liðin á, um að hafa forystu og sjö
sinnum var jafnt á komið með þeim
og lokamínútumar í venjulegum leik-
tíma vom æsispennandi.
Er 2,45 mín. voru eftir fékk Petey
Sessoms dæmdan á sig ruðning og
fékk þar með sína fimmtu villu.
Vafasamur dómur. Njarðvík var
77:75 yfir en Torrey setti niður
þriggja stiga skot og Friðrik svarði
með tveggja stiga körfu er tvær
mínútur vom eftir. Ekkert var skor-
að eftir það fyrr en í framlengingu.
Taugarnar greinilega þandar til hins
ýtrasta því menn hittu ekki og
misstu boltann í sókninni þannig að
framlenging var staðreynd.
Sauðkrækingar komust yfir 86;81
en Njarðvík minnkaði muninn í í
eitt stig, 85:86 en þá gerði Torrey
átta stig og þá var kátt í Skagafirði
því ljóst var að Tindastóll, sem varð
Reykjavíkurmeistari í haust, var
komið í úrslit og hefur aldrei náð
eins langt í körfuknattleik.
Norðanmenn léku vel eftir dálitla
byijunarerfiðleika þar sem þeir hittu
ekkert og virtust dálítið óstyrkir.
Torrey var frábær og reyndu sam-
heijar hans að koma boltanum til
hans enda var hann í miklum ham.
Arnar, Ómar, Sverrir og Hinrik áttu
ailir ágæta spretti. Það háði þó
Tindastóli að nokkrir leikmenn virt-
ust ekki komast alveg í takt við leik-
inn og fjölmörg mjög góð færi nýtt-
ust ekki vegna einhverrar streitu
sem virtist hijá þá. Sjálfsagt aðeins
spennan yfir því að leika í Höllinni.
Hjá Njarðvíkingum átti Sessoms
ágætan leik svo og Teitur sem nú
sýndi sitt rétta andlit, en það dugði
ekki til. Páll átti einnig fínan leik.
„Þetta var sætur sigur. Við töp-
uðum fyrir Njarðvík heima í deild-
inni og þetta var því mjög gott,“
sagði Torrey John eftir leikinn. Hann
sagði að 50 stig væri met hjá sér
því mest hefði hann gert 48 stig í
leik, hér á iandi fyrir nokkrum árum.
Páll Kolbeinsson, þjálfari UMFT,
var einnig ánægður: „Þetta er í
fyrsta sinn sem við komumst svona
langt og í fyrsta sinn sem við erum
hér í Höliinni. Ég lék að vísu nokkr-
um sinnum hérna, en það er langt
síðan. Við vorum hæstánægðir með
að komast í undanúrslitin og himin-
lifandi með að komast í úrslitaleik-
inn. Torrey var alveg frábær og ég
hef sjaldan séð annað eins.“
Morgunblaðið/Ásdís
TEITUR Örlygsson, sem hér sendir boltann frá sér, og Tor-
rey John, sem er til varnar, léku báöir stórvel í gær er Tinda-
stóll lagði Njarðvíkinga f framlengdum leik.
Barcelona fékk skell
EFSTA lið spænsku deildarinnar, Barcelona, fékk skell í gærkvöldi
er það sótti Athletic Bilbao, lokatölur 3:0. Ósigurinn hleypir spennu
í deildina þar í landi þar sem aðeins munar nú einu stigi á Barcelona
í efsta sætinu og Real Madrid og Celta Vigo sem koma næst á efir
og sigruðu örugglega í sínum leikjum á miðvikudagskvöldið.
Sigurviljinn var til staðar hjá heimamönnum frá fyrstu minútu
leiksins á San Mames leikvanginum og var engin virðing borin fyr-
ir andstæðingunum. Fyrsta markið kom á 40. mínútu eftir að vörn
Barcelona var splundrað og miðherjinn Jaseba Etxeberria lagði
knöttinn fyrir fætur Joses Zigandas sem skoraði. Fimnm mínútum
eftir að flautað var til leiks í síðari hálfleik gerði Bittor Alikiza
annað markið frá markteigshorni. Á 72. mínútu var sigurinn innsigl-
aður er landsliðsmaðurinn Ismeal Urzais eftir einleik frá miðjum
eigin vallarhelmingi og upp allan völl. Rivaldo átti góð marktæki-
færi fyrir gestina en markvörður Bilbao, Imanol Exteberria, fór á
kostum.
FOLK
■ BALDUR Ólafsson leikmaður
KR fékk skurð á höfuðið snemma
í síðari hálfleik og lék ekki meira
eftir það.
■ ÓSVALDUR Knudsen lék með
KR-ingum í fyrsta skipti síðan í
Reykjavíkurmótinu. Hann kom
seint inn á og gerði tvær þriggja
stiga körfur.
■ DANA Dingle tók 11 af 19
varnarfráköstum sem leikmenn
Keflavíkur náðu í leiknum í gær-
kvöldi.
■ STEINAR Kaldal var eini leik-
maður KR sem ekki kom inn á í
leiknum við Keflavík, en Sigurð-
ur Ingimundarson þjálfari Kefla-
víkur notaði hins vegar alla sína
leikmenn.
■ BIRGIR Örn Birgisson, leik-
maður Keflavíkur, og Ingvar
Ormarsson KR-ingur voru einu
leikmennirnir sem fengu 5 villur í
leik Keflavíkur og KR.
■ GHEORGHE Muresen, hæsti
leikmaðurinn í sögu NBA - 2,31
m, sem leikur með Washington
Wizard verður frá keppni í sex
vikur, eftir að hafa meiðst á ökkla
í leik gegn Chicago Bulls.
Morgunblaðið/Ásdís
ÞAÐ war oft hart barist í fráköstunum í leik Keflavíkur og KR, en kapp er best með forsjá. Hér eru það
Kevin Tucker, Nökkvi Már Jónsson og Dana Dlngle sem reyna að handsama knöttinn.
Keflvfldngar
kunna þá list
KEFLVÍKINGAR kunna þá list að leika vel þegar mikið liggur við og
vera skrefi á undan andstæðingi sínum. Það fengu KR-ingar að finna
er félögin áttust við í undanúrslitum Eggjabikarsins í Laugardalshöll í
gærkvöldi. Eftir að hafa gefið eftir ífyrri hálfleik komu þeir ákveðnir
til leiks og léku sem ein heild í þeim síðari. Um leið innbyrtu þeir
nokkuð öruggan 10 stiga sigur og sæti f úrslitaleiknum á laugardag-
inn, lokatölur 90:80.
Margir voru þeirrar skoðunar að nú
væri tími KR-inga runninn upp
og þeir sneru taflinu sér í vil að þessu
sinni, en íslandsmeistar-
arnir voru á öðru máli.
Framan af fyrri hálfleik
léku Keflvíkingar vel og
þijár þriggja stiga körf-
ur í röð á rúmri einni mínútu þegar
rúmiega fjórðungur leiktíma hálfleiksins
var liðinn nægði til að leiðir skildu.
Ivar
Benediktsson
skrifar
Bæði lið léku maður á mann vörn og
hún gekk illa hjá leikmönnum KR sem
voru ekki nógu grimmir við að fara á
móti skyttum Keflvíkinga. í stöðunni
22:11 tóku KR-ingar leikhlé og Hrannar
Hólm þjálfari þeirra messaði yfir sínum
mönnum með þeim afleiðingum að þeir
komu skarpari til leiks á ný, Léku vörn-
ina af meiri ákveðni en áður og tóku til
við að ná hraðaupphlaupum sem skiptu
sköpum. Þá fór Hermann Hauksson á
Svæðisvörnin heppnaðist
„ÞAÐ kom kafli í fyrri hálfleik þar sem
við gáfum of mikið eftir og lékum illa
og fengum á okkur villur,“ sagði Sigurð-
ur Ingimundarson, þjálfari Kelfavíkur.
„Fljótlega í síðari hálfleik breyttum við
vöminni og sú breyting heppnaðist vel.
Svo má kannski segja að heppnin hafí
að hluta til frekar lent hjá okkur.“
Sigurður sagði ennfremur að sú
umræða að nú væri kominn tími á að
KR-ingum tækist að leggja Keflvíkinga
þar sem leikið væri upp á allt eða ekk-
ert hefði þjappað leikmönnum Keflavík-
ur saman. „Við vorum staðráðnir að
standa saman og sigra," sagði Sigurð-
ur.
Það er alltaf gaman að leika úrslita-
leiki, hvað þá dag eftir dag og víst er
að við munum leggja okkur fram á
laugardaginn."
Hðfðum undirbúið okkur
„Við vorum undir það búnir að Kefla-
víkingar gætu farið út í svæðisvörn og
höfðum farið yfír svar við henni á æf-
ingu í gær, en æfingar eru eitt og leik-
ir eru annað,“ sagði Hrannar Hólm,
þjálfari Njarðvíkinga.
Hrannar sagði að sínir menn hefðu
ekki náð að bregðast rétt við því er
Keflvíkingar skiptu yfir í svæðisvörn.
„Við vorum of staðir, þvert á það sem
gera skal gegn þessari vörn. Þá nýtt-
ist Kevin Tucker ekki sem skyldi því
hann hvarf löngum stundum.“
kostum, skoraði mikið og sinnti varnar-
hlutverki sínu vel. Smátt og smátt tókst
KR-ingum að laga stöðuna þannig að
þegar flautað var til leikhlés höfðu þeir
jafnað verðskuldað, 42:42. Við svo búið
stefndi í að tími KR væri að renna upp.
Upphafsmínútur síðari hálfleiks bentu
til þess að spenna yrði í lofti. KR-ingum
tókst um stund að ná frumkvæðinu.
Guðjón Skúlason var á öðru máli. Eftir
að hafa haft sig lítið í frammi í fyrri
hálfleik hrökk hann í gang og skoraði
14 af fyrstu 16 stigum Keflvíkinga og
fór fyrir sínum mönnum eins og sannur
fyrirliði. Þetta hleypti nýju blóði í með-
heija hans sem skiptu yfir í svæðisvörn
og við henni átti KR ekkert svar. Keflvík-
ingar héldu sínum hlut og voru sex til
átta stigum yfir síðasta stundarfjórðung-
inn. Þrátt fyrir að munurinn væri ekki
meiri virtist sigurinn aldrei í hættu.
Dana Dingle átti stórleik hjá Keflavík,
jafnt í vörn sem sókn, og áður var getið
um framgöngu Guðjóns í síðari hálfleik.
Annars var samstaðan í síðari hálfleik
aðal Keflvíkinga að þessu sinni og víst
er að þeir kunna vel við sig þegar mikið
er í húfi.
Hermann Hauksson var yfirburða-
maður hjá KR, einkum í fyrri hálfleik
er hann gerði 19 stig. Nökkvi Már Jóns-
son var einnig góður og hefði mátt nýt-
ast betur. Kevin Tucker var staður og
Ingvar Ormarsson gerði óvenjumörg
mistök sem voru dýrkeypt. Marel Guð-
laugsson olli hins vegar mestum von-
brigðum hjá KR-ingum, hitti ekkert og
skoraði aðeins tvö stig.
TENNIS
Sampras
sneri vöm
ísókn
Eftir að hafa beðið lægri hlut í
1. umferð ATP-mótsins í tenn-
is, sem er heimsmeistaramót þar
sem átta bestu tenniskarlar heims
taka þátt, sneri fremsti tennismað-
ur heims, Pete Sampras, vörn í sókn
í 2. umferð á miðvikudaginn. Þá
lagði hann Greg Rusedski i tveimur
settum, 6-4, 7-5. Nú lék Sampras
eins og hann best getur og þá eru
ekki margir sem standast honum
snúning, því fékk Bretinn Rusedski
að kynnast. Ekki var það heldur til
að hjálpa Rusedski að hann gekk
ekki heill til skógar vegna meiðsla
í hásin.
„Að leika meiddur við Sampras
er ekki það auðveldasta sem hægt
er að hugsa sér,“ sagði Rusedski.
„í gær var ég algjöriega mátt-
laus, bæði líkamlega og andlega,
en nú var þessu þveröfugt farið og
ég lék mjög öruggt,“ sagði Sampras
glaður í bragði að leik loknum.
Þetta var sjötti sigur Bandaríkja-
mannsins á Bretanum í jafnmörg-
um viðureignum og sagðist Samp-
ras ekki hafa orðið var við að
Rusedski gengi ekki heill til skóg-
BANDARÍKJAMAÐURINN
Pete Sampras er án efa besti
tennisleikari heims enda er
kappinn búinn að tryggja sér
efsta sæti á heimslistanum
fimmta árið í röð. Sampras
hefur vissar áhyggjur af fram-
tíð íþróttarinnar, segir að ekki
séu nógu margar stórstjörnur
til að halda við þeim mikla
áhuga sem verið hefur á
íþróttinni.
Meistaranum þykir fremur
einmanalegt á toppnum og
saknar gömlu góðu daganna þegar
hann atti kappi við þá Boris Bec-
ker og Andre Agassi. „Auðvitað
er maður spenntur að mæta nýjum
spilurum, en það var alltaf ákveð-
in og meiri spenna þegar maður
gekk útá völlinn með Boris eða
Andre. Slíkir viðburðir voru að-
dráttarafl, bæði fyrir áhorfendur
á mótunum sjálfum og eins fyrir
þá sem fylgdust með í sjónvarpi.
I þannig leiki kemur maður ósjálf-
rátt betur stemmdur en gegn þeim
sem maður þekkir varla,“ segir
Sampras.
Sampras, sem er 26 ára, tekur
þátt í ATP heimsmeistaramótinu
þessa dagana og er talinn líklegur
til afreka þar þrátt fyrir tap í fyrsta
leik gegn Spánveijanum Carlos
Moya, enda tókst hvorki Becker né
Agassi að tryggja sér rétt til þátt-
töku á mótinu. Þar keppa aðeins
átta efstu menn heimslistans.
Kennir í brjósti um Agassi
Sampras sagðist bæði kenna í
bijósti um Agassi og einnig líta upp
til hans. „Einhver sagði mér að
hann væri að keppa í áskorenda-
mótaröðinni! Ég dáist að honum því
ar. „Uppgjafir hans voru öflugar
að vanda og hann var mjög kvikur
á leikvellinum,“ sagði Sampras.
Rusedski hætti keppni
Rusedski, sem er fyrsti Bretinn
til að komast í þetta mót, ákvað í
gær aðjiætta keppni vegna meiðsl-
anna. í hans stað kom Thomas
Muster frá Ástralíu og byijar hann
á núlli þrátt fyrir að Rusedski væri
búinn að tapa tveimur leikjum.
Muster á því ekki möguleika á að
komast í undanúrslitin.
Michael Chang vitnaði í Bíblíuna
eftir að Rússinn Yevgeny Kafeln-
ikov hafði rassskellt hann 6-3 og
6:0. Hann sagði að í hinni helgu
bók væri sagt að menn ættu að
gleyma því sem væri að baki og
einbeita sér heldur að því sem væri
framundan.
Chang á enn möguleika á að
komast í undanúrslit, en til þess
þarf hann að leggja Svían Jonas
Björkman í dag. Björkman átti
ekki í neinum eriðleikum með að
leggja Sergi Bruguera 6-3 og 6-1
í gær.
það lítur ekki vel út fyrir hann að
leika þar, en hann ákvað að byija
á byijuninni aftur og ég dáist að
því. Hann á eftir að komast á með-
al þeirra bestu á ný því hann hefur
þetta í sér og ef það er einhver sem
menn hræðast þá er það Andre í
stuði,“ sagði Sampras, en Agassi
var á toppi heimslistans í 30 vikur
árið 1995.
Sampras segir marga unga og
efnilega tennisleikara narta í hæl-
ana á sér og nefnir hann þá Greg
Rusedski frá Bretlandi og Svíann
Jónas Björkman en þó fýrst og
fremst Ástralann Patrick Rafter.
„Ég hef leikið nokkrum sinnum við
hann og við verðum að sjá hvað
verður úr honum á næstu árum.
Hann er góður tennisleikari og hef-
ur rétta skapið í þetta. Ég myndi
veðja á hann í framtíðinni," sagði
Sampras.
Valur Fannar
með Arsenal
VALUR Fannar Gíslason, sem
lék sem lánsmaður með
Brighton í mánuð, er kominn
á ný til Arsenal. Hann hafnaði
boði Brighton, sem vildi hafa
hann áfram, og lék með vara-
liði Arsenal á móti Tottenham
á miðvikudagskvöldið - kom
inná sem varamaður í jafn-
teflisleik, 1:1. Martin Keown
skoraði mark Arsenal, en
hann hefur verið frá vegna
meiðsla að undanförnu. Hann
mun leika með aðalliði Arsen-
al gegn Coventry í deildarbik-
arkeppninni á þriðjudaginn.
Hörður Már
afturíVal
HÖRÐUR Már Magnússon,
sem lék með Leiftri á Ólafs-
firði í sumar, er genginn á ný
í raðir Valsmanna. Hörður lék
með Val áður en hann hélt
norður í fyrravor en hefur
nú ákveðið að snúa heim og
gerði tveggja ára samning við
Val, en hann hefur leikið 58
leiki með félaginu í 1. deild.
■ JÚLÍUS Jónasson og félagar
hans í St. Otmar töpuðu fyrir TV
Suhr 29:25 á útivelli á miðviku-
dagskvöldið. Þetta var fyrsti tap-
leikur St. Otmar á leiktíðinni og
er félagið nú í 2. sæti í deildinni
með 14 stig.
■ JÚLÍUS lék með TV Suhr í
fyrravetur, en það félag er í 3.
sæti með 14 stig en lakari marka-
tölu en Júlíus og félagar. Pfadi
Winterthur er í efsta sæti sviss-
nesku deildarinnar með 16 stig,
fullt hús að loknum 8 leikjum.
■ ÍSLENDINGALIÐIÐ í sænska
kvennahandknattleiknum, Eslöv,
sem Svava Sigurðardóttir og
Helga Torfadóttir leika með, sigr-
aði á miðvikudaginn HP Warta
25:15 á heimavelli. Með sigrinum
færðist Eslöw upp í 8. sæti efstu
deildar með 8 stig, en 12 lið eru í
deildinni.
■ ROD Milburn, ólympíumeistari
í 110 m grindahlaupi á Ólympíu-
leikunum í Mtínchen, lést í vik-
unni, 47 ára gamall. Hann fannst
látinn á vinnustað sínum en engin
skýring hefur enn verið gefin á láti
hans.
■ MILBRUN setti heimsmet í sig-
urhlaupi sínu í Miinchen, hljóp á
13,24 sek., og stóð það í 5 ár og
ólympíumetið stóð allt til 1984. Þá
hljóp landi hans Roger Kingdom
á 13,20 sek. Milburn vann 27 hlaup
í röð á árunum 1971 til 1972. Hann
lagði skóna á hilluna 1983.
Pétur áfram hjá Boro
PÉTUR Marteinsson, knattspyrnumaður hjá Hammarby í Sví-
þjóð, sem hefur verið að líta á aðstæður lyá enska fyrstu deild-
ar liðinu Middlesbrough verður þar eitthvað fram yfir helgi.
Ekki hefur tekist að ná sambandi við Pétur en unnusta hans,
sem er komin til Svíþjóðar, sagði í gær að hann kæmi væntan-
lega heim einhvern tíma eftir helgina.
Ekki náðist í neinn af forráðamönnum eða þjálfurum Middl-
esbrough í gær en starfsmaður á skrifstofu félagsins sagði að
Pétur hefði að sögn staðið sig nijög vel í leiknum á þriðjudag-
inn er hann lék með varaliðinu gegn Notts County. „Ég sá
ekki leikinn en þjálfarinn vill endilega fá hann í annan leik
og það er frágengið að hann verður með á mánudaginn á
móti Leicester. Þjálfarinn hlýtur að hafa áhuga á honum, ann-
ai's væri hann ekki að fá hann í annan leik,“ sagði starfsmaður-
inn.
Saknar gömlu
góðu daganna