Morgunblaðið - 15.11.1997, Qupperneq 1
A Ð A L L R A
1997
TENNIS
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 BLAÐ
B
Sá bréfið 47
árum of seint
ROY Sutcliffe er ekki þekkt nafn í enska knatt-
spyrnuheiminum, en hefði hugsanlega getað verið
það. Ekki er loku fyrir það skotið að hann hefði
verið einn „Busby-drengjanna“ í einu frægasta
liði Englands fyrr og síðar. Ef...
Sutcliffe, þá sextán ára, undraðist mjög að heyra
ekki frekar frá forráðamönnum Manchester Un-
ited eftir að hafa verið boðið til æfinga hjá þessu
heimsfræga enska knattspyniufélagi í byrjun
sjötta áratugarins. Hann stóð sig nefnilega vel á
æfingum og var vonsvikinn að vera ekki boðið
aftur. Nú hefur hins vegar komið í yós að boðið
kom - en móðir hans gleymdi að afhenda honum
bréfið.
Sutcliffe, sem er nú er 63 ára, fann nýlega bréf-
ið frá Jimmy Murphy, aðstoðarmanni Matts Bus-
bys, þar sem honum er boðið að kom aftur. Móðir
hans, Mabel, sem nú er látin,
gleymdi að afhenda drengnum
bréfið, þannig að hann lagði
ekki knattspyrnu fyrir sig,
heldur varð verkfræðingur en
lék reyndar með áhugamanna-
liðinu Glossop FC um tíma.
Roy sagðist hafa verið held-
ur vonsvikinn fyrst eftir að
hann fann bréfið, en þegar
hann hugsaði málið betur kom
annað hljóð í strokkinn. „Hefði
mér gengið vel á æfingum þeg-
ar mér var boðið aftur hefði
ég hugsanlega verið í liðinu
1958 og látist í flugslysinu í
Miinchen," sagði hann, en flest-
ir leikmenn félagsins létust í
því slysi, þegar liðið var á
heimleið eftir leik í Evrópu-
keppninni.
Og Sutcliffe upplýsti einnig
um aðra ástæðu þess að hann
væri ánægður með að hafa
ekki vitað af boðinu: Hann er
nefnilega ákafur stuðnings-
maður Manchester City.
Konráð dansk-
ur meistari
KONRÁÐ Stefánsson, karate-
maður, varð danskur meistari
í sveitakeppni með liði sinu
Álaborg um síðustu helgi. Til
gamans má geta þess að Kon-
ráð er fertugur og fátítt að
menn á hans aldri standi í
fremstu röð í karateíþróttinni.
Konráð, sem býr nú í Dan-
mörku ásamt eiginkonu sinni
Jónínu Olsen, vann silfurverð-
laun á síðasta Islandsmóti, í -80
kg flokki.
Sampras lék vel
PETE Sampras, besti tennisleikari heims, tryggði sér í gær rétt til að
leika í undanúrslitum á ATP-mótinu í Þýskalandi, en þar keppa átta
efstu menn á heimslistanum. Sampras mætti Ástralanum Patrick Rafter,
sem sigraði á Opna bandaríska mótinu í sumar, og er skemmst frá því
að segja að sá ástralski átti aldrei möguleika. Sampras var öryggið upp-
málað og sigraði 6-4 og 6-1 í leik sem stóð yfir í aðeins eina klukkustund.
Sampras varð að sigra til að komast í undanúrslitin en þar leika auk
hans Spánverjinn Carlos Moya, Rússinn Yevegeny Kafelnikov og Jonas
Bjorkman frá Svíþjóð sem lagði Michael Chang frá Bandaríkjunum sem
er á myndinni hér að ofan.
Reuters
KNATTSPYRNA
Singh sigurviss
JOGINDER Singh er viss um sigur, hvort sem er í stökkum, köstum eða
hlaupum, á frjálsíþróttamóti öldunga sem stendur fyrir dyrum á Nýja-Sjá-
landi. Singh, sem er 105 ára, keppir nefnilega einn í sínum aldursflokki
og er iangelsti keppandi mótsins; alls taka 500 manns þátt en hann er
20 árum eldri en sá næst elsti, skv. frétt Press Association fréttastofunn-
ar á Nýja-Sjálandi.
Singh, sem er Indveiji, keppir í flokki 105 ára og eldri á Meistara-
móti Eyjaálfu í frjálsíþróttum, sem fram fer í borginni Hastings í jan-
úar. Singh, sem er Síkhi frá norðurhluta Indlands, telur sig eiga heimsmet
í langstökki í flokki 95 ára og eldri; hann stökk 4,15 metra árið 1990.
Vegabréf Singhs var afhent mótshöldurum sem sönnunargagn fyrir aldri
íþróttamannsins. Skv. því fæddist hann í Patiala 12. júní 1892.
Aldursmörk á ÓL
endurskoðuð
Nefnd Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins, sem er með
knattspyrnu á Olympíuleikum á
sinni könnu, ætlar á fundi fram-
kvæmdanefndar í París á næsta
ári að leggja fram tillögu þess
efnis að knattspyrnumenn eldri en
23 ára megi ekki keppa á Ólympíu-
leikum.
Til þessa hafa lið mátt vera með
allt að þrjá eldri leikmenn, en Al-
þjóða ólympíunefndin óskaði eftir
því á sínum tíma til að auka vin-
sældir knattspyrnunnar á
Ólympíuleikum. Andreas Herren,
talsmaður FIFA, sagði að rökin
ættu ekki lengur rétt á sér. Keppn-
in nyti mikilla vinsælda og margir
af bestu leikmöhnum heims, menn
eins og Ronaldo, væru yngri en
23 ára. „Á Ólympíuleikunum í
Atlanta notuðu Evrópuliðin ekki
eidri leikmenn,“ sagði Herren.
Á Ólympíuleikunum 2000 verða
16 lið; Gestgjafar Ástralíu, fjögur
lið frá Afríku, fjögur frá Evrópu,
tvö frá Suðui' Ameríku, tvö frá
Mið- og Norður-Ameríku og þrjú
frá Asíu en þriðja lið Asíu þarf
að keppa um réttinn við efsta lið
Eyjaálfu. Riðlakeppnin stendur
yfir frá 1. ágúst 1998 út apríl
2000. Úrslitaleikur karla verður á
ólympíuleikvanginum í Sydney en
úrslitaleikur kvenna á Sydney-
leikvanginum.
Knattspyrna er gífurlega vinsæl
á Ólympíuleikum, einkum þegar
nær dregur úrslitum en meira en
100.000 áhorfendur voru á úrslita-
leiknum í Pasadena í Kaliforníu
1984, sem var helsta ástæða þess
að Bandaríkin fengu að halda
Heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu 10 árum síðar.
KIMATTSPYRIMA / ÍTALIR OG „RÚSSNESKA RÚLLETTAN" í NAPOLÍ / B4