Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 2

Morgunblaðið - 15.11.1997, Side 2
2 B LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Úrslit standa í Munchen þrátt fyrir mistök ALÞJÓÐA knattspyrnusam- bandið, PIFA, staðfesti í gær að úrslit í leik 1860 Miinchen og Karlsruhe í þýsku deild- inni sem fór fram í ágúst og lauk með 2:2 jafntefli, skyldu standa þrátt fyrir mistök dómarans. Þýska sambandið hafði áður vísað frá kröfu Karlsruhe, sem vildi að úr- slitin stæðu, og ætlaði að láta liðin leika að nýju en sætti sig við niðurstöðu FIFA. 1860 Miinchen sætti sig ekki við það að jöfnunarmark Karlsruhe á 87. minútu var gert eftir að dómarinn hafði flautað á brot, en í máli FIFA kom fram og áréttað að allar ákvarðanir dómara í leik, einkum varðandi hvort mark hefði verið gert eða ekki, væru endanlegar og þeim væri ekki hægt að breyta síð- ar. „Þýska knattspyrnusam- bandið getur ekki annað en tekið þessari niðurstöðu," sagði talsmaður þess í gær. Fulltrúar viðkomandi félaga tóku í sama streng og Winfri- ed Scháfer, þjálfari Karlsru- he, bætti við að ákvörðun FIFA væri sigur fyrir alla. ÚRSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin Leikir í fyirinótt: NewJersey-Cleveland............ 74: 85 Minnesota - Washington........ 88: 91 • Eftir framlengingu. Dallas - Philadelphia........... 98:99 San Antonio - LA Lakers........100:109 • Eftir framlengingu. Seattle - Detroit.............. 95: 89 LA Clippers - Milwaukee........ 94:102 Ískokkí NHL-deildin Buffalo - Washington..............2:3 Ottawa - Detroit..................2:4 Philadelphia - Colorado............1:2 Chicago - Toronto..................1:2 St. Louis - Boston................4:2 Calagary - Carolina...............2:4 Phoenix - Montreal................2:5 Los Angeles - San Jose............6:3 UM HELGINA Handknattleikur LAUGARDAGUR Nissan-deild karla: Digranes: HK - IBV................16 1. deild kvenna: Ásgarður: Stjaman - Grótta/KR..16.30 Framhús: Fram - ÍBV............16.30 Kaplakriki: FH-Valur...........16.30 Strandgata: Haukar-Vikingur....16.30 2. deild karia: Fylkishús: Fylkir - ÍH.........16.30 Varmá: HM - Þór Ak................18 SUNNUDAGUR Borgarkeppni Evrópu: Varmá: UMFA - Runar...............20 Körfuknattleikur LAUGARDAGUR Eggjabikarkeppnin: Úrslitaleikur Höilin: Keflavík - UMFT...........15 1. deild karla: Stykkish.: Snæfell - Höttur.......20 Smárinn: Breiðablik - Hamar.......15 SUNNUDAGUR 1. deild karla: Borgames: Stafholtst. -Höttur.....14 MÁNUDAGUR 1. deild kvenna: Kennaraskóli: ÍS - KR.............20 Badminton Alþjóðlegt badmintonmót verður í TBR-hús- inu í dag og á morgum. Undanúrslit hefjat kl. 10 á morgun og úrslit kl. 13.30. ÍÞRÓTTIR KORFUKNATTLEIKUR Bandarísk stúlka til Keflvíkinga KEFLVÍKINGAR hafa samið við bandarisku stúlkuna Jenni- fer Boucek um að leika með liði þeirra 11. deild kvenna í körfuknattleik út þetta keppn- istímabil. Boucek, sem verður 24 ára þann 20. desember, er 173 sentimetra bakvörður og lék með Virginíu-háskólanum áður en hún hóf að leika i NBA-deildinni fyrir konur, en þar lék hún tíu leiki. Hún var í byrjunarliði háskólans öll árin og náði því að skora yfir 1.000 stig. Boucek kemur til landsins á þriðjudaginn og ætti að geta leikið með gegn KR laugardag- inn 22. nóvember. Boucek verð- ur önnur erlenda stúikan sem leikur hér á landi í vetur því fyrir er Penny Peppas hjá Grindavík. Páll Kolbeinsson þjálfari Tindastóls á Ijúfar minningar úr Laugardalshöll V E33Z KEFLVÍKINGAR og Tindastóls- menn mætast í úrslitum Eggja- bikarsins í körfuknattleik í Laugardalshötlinni ídag og hefst leikurinn kl. 15. Keflvík- ingar eru núverandi meistarar en ieikmenn Tindastóls hafa aldrei náð svona langt í íþrótt- inni. Keflvíkingar lögðu KR í undan- úrslitum á fimmtudaginn og Tindastóll lagði Njarðvíkinga. Báðir leikirnir voru bráðskemmtilegir og spennandi og þá sérstaklega leikur Tindastóls og UMFN. Þrátt fyrir að lið Keflavíkur og Tindastóls séu ólík, og ef til vegna þess, má búast við skemmtilegum leik í dag. Keflvíkingar hafa hefðina með sér og þó svo að miklar breytingar hafí orðið á liðinu frá þvi í fyrra má ekki gleyma að í því eru þrír landsliðsmenn með mjög mikla reynslu en aðeins einn leimanna Tindastóls hefur leikið landsleik. Keflvíkingum hefur hingað til fallið best að leika hratt og skjóta snöggt, en miðað við leikinn við KA á fimmtudaginn þá virðist heldur hafa dregið úr hraðanum frá því undanfarin ár. Sauðkrækingar vilja heldur leika hægar og leggja mesta áherslu á vörnina en sýndu þó á fimmtudag- inn að þeir geta vel leikið hratt ef því er að skipta. Torrey John var í gríðarlegu stuði á fimmtudaginn og ekki við því að búast að hann eigi annan eins leik í bráð. En á móti kemur að ólíklegt er að leik- menn eins og Arnar Kárason leiki eins ilia í sókninni og hann gerði á fimmtudag; til þess er hann allt of góður leikmaður. Liðin mættust í deildinni síðasta dag októbermánaðar og vann Tindatóll 88:79 á Sauðárkróki. Þar var skor heimamanna mun jafnara en á fimmtudaginn því fimm leik- menn gerðu 10 stig eða meira en hjá Keflvíkingum voru fjórir með tveggja stafa tölu á skortöflunni. Það er erfitt að spá hvernig leik- ALÞJÓÐLEGT badmintonmót verð- ur hér á landi um helgina í hús- næði TBR. Mótið hefst á laugardag kl. 10 og verður leikið þar til kem- ur að úrslitum í aukaflokki og und- anúrslitum í aðalflokki. Á sunnudag verða úrslit í aukaflokki og undan- úrslit í aðalflokki kl. 10 árdegis og úrsiitaleikurinn kl. 13.30. Flestir bestu badmintonspilarar landsins verða meðal keppenda auk þess sem nokkrir erlendir hafa til- kynnt þátttöku. Þar er Niels Christ- urinn í dag þróast en ef hann verð- ur hraður eru meiri líkur á að Kefl- víkingar sigri, nema einhver leik- maður Tindastóls verði „sjóðheitur" eins og Torrey John var á fimmtu- daginn - þá getur allt gerst. Verði leikurinn hins vegar hægari og minna skorað þá er líklegra að Tindastólsmenn hafi betur því þannig vilja þeir leika og þannig líður þeim best. Páll Kolbeinsson þjálfari Tinda- stóls á góðar minningar úr Höll- inni, en þar lék hann oftlega með KR á árum áður. „Það var oft gam- an að leika í Höllinni og ekki síst á móti Keflvíkingum. Síðast þegar ég lék hér, í úrslitum bikarkeppn- innar árið 1991, unnum við einmitt Keflvíkinga," segir Páll og á von á spennandi leik í dag. Hinn þjálfarinn, Sigurður Ingi- mundarson hjá Keflavík, var sigur- sælasti þjálfari síðasta tímabils en þá þreytti hann frumraun sína með lið í úrvalsdeild. Árangurinn var einstakur. Allir bikarar sem keppt var um í karlaflokki eru geymdir í Keflavík. Sigríður vara- forseti ÍSÍ SIGRÍÐUR Jónsdóttir, fyrrver- andi formaður Badmintonsam- bands íslands,_ er varaforseti íþrótta- og Olympíusambands íslands. Það var einróma sam- þykkt á fyrsta fundi fram- kvæmdastjórnar þess í vikunni. Sömuleiðis að Friðjón B. Friðjóns- son verði gjaldkeri og Benedikt Geirsson ritari. Friðjón var gjald- keri íþróttasambands íslands fyr- ir sameiningu þess og Ólympíu- nefndar, og lengi gjaldkeri Knatt- spymusambandsins á árum áður. Benedikt hefur verið formaður Skíðasambands íslands, en hættir nú þar sem hann hefur tekið sæti í framkvæmdastjórn ÍSÍ. ian Kaldau frá Danmörku efstur á lista en hann er í 11. sæti á danska styrkleikalistanum í einliðaleik. Þrír aðrir Danir mæta til leiks og Tómas Garðarsson Viborg, íslendingur sem búsettur er í Svíþjóð, mætir til leiks. Svíar hafa boðið honum að æfa með sænska landsliðinu en Broddi Kristjánsson, landsliðsþjálf- ari, vill skoða hann með það í huga að fá hann í íslenska landsliðið. Einnig verða tíu færeyskir lands- liðsmenn meðal keppenda. ÍÞRfsm FOLK ■ ATTILIO Lombardo, ítalski framheijinn sem leikur með Her- manni Hreiðarssyni hjá Crystal Palace í Englandi, meiddist á læri á æfingu með ítalska landsliðinu í gær, og verður líklega frá keppni í mánuð. ■ MIKILL áhugi er fyrir HM-leik Itala og Rússa í Napolí í dag. Hvorki fleiri né færri en 8.000 manns mættu á æfingu ítalska landsliðsins í gær, þá síðustu fyrir leikinn. B EINN þeirra stuðningsmanna ítala, sem mætti á æfinguna í gær, þoldi greinilega ekki spennuna; hann hljóp inn á völlinn og „tæ- klaði" Roberto Di Matteo, einn landsliðsmannanna. Di Matteo vissi auðvitað ekki hvaðan á sig stóð veðrið, en gesturinn var dreginn burt af vallarvörðum. B RAI fyrirliði Paris St. Germain verður líklega ekki með liði sínu gegn Bordeaux á sunnudaginn vegna meiðsla í mjöðm. Hann missti af annarri æfingunni í röð á föstu- daginn og sagði að henni lokinni að hann hefði ekki viljað taka neina áhættu með því að taka þátt. „Sjáum til á morgun," sagði Rai er hann yfirgaf æfingasvæði PSG. fl SAVIO Bartonili framherji brasilíska landsliðsins er líklega á leiðinni í herbúðir Real Madrid ef marka má frásögn spænska íþrótta- blaðsins Marca í gær. Bartonili sem 23 ára og leikmaður Flamengo í heimalandi sínu kæmi í skiptum fyrir landa sinn Ze Roberto sem færi þá til Flamengo. B BARTONILI hefur bæði brasil- ískt og ítalskt vegabréf og verðir því ekki skráður sem útlendingur á leikmannaskrá Real Mardrid. B BERTI Vogts landsliðsþjálfari Þjóðverja hyggst gefa tveimur upp- rennandi leikmönnum tækifæri í vináttulandsleiknum við S-Afríku í Dortmund í dag. Leikmennirnir sem um er að ræða eru Thomas Linke varnarmaður Schalke 04 og miðheijinn Dietmar Hamann hjá Bayren Miinchen. Er þetta einn liður þjálfaranc í að byggja upp lið fyrir úrslitakeppni HM á næsta ári. B ANGHEL Iordanescu, lands- liðsþjálfari Rúmeníu, valdi fjóra nýliða í hópinn fyrir vináttuleik við Spán í næstu viku, þar af einn 17 ára strák og annan ári eldri. „Miðju- mennirnir Alin Stoica [And- erlechtj og Catalin Munteanu [Steaua Búkarest] fá tækifæri þó þeir séu mjög ungir,“ sagði Iordan- escu, en Stoica er 18 ára og Munte- anu 17 ára. B MUNTEANU var í sviðsljósinu í liðinni viku þegar hann gerði tvö mörk á móti franska liðinu Bastia og átti stóran þátt í að Steaua er komið í 3. umferð Evrópukeppni bikarhafa. B DENIS Pankratov sundmaður frá Rússiandi og tvöfaldur ólymp- íumeistari í flugsundi á síðustu Ólympíuleikum keppir ekki á heims- meistaramótinu í sundi sem fram fer í Perth í Ástralíu í janúar nk. Ástæðan er þreyta og óánægja með árangurinn á þessu ári. Talsmaður sundmannsins neitaði hins vegar sögusögnum um að ólympíumeist- arinn hyggðist hætta keppni í sundi. BADMINTON / ALÞJOÐLEGT MOT Þrír Danir mæta til leiks Afturelding þarffi Möguli Bergsveinn Bergsveinsson markvörður Aftureldingar og íslenska landsliðsins er nú að etja kappi við norsk félagslið í Evrópukeppninni í handknattleik í fjórða sinn. Er hann lék með FH mætti hann Fredriksborg Sky og Stavangri og nú eftir að hann gekk til liðs við Aftureldingu fyrir íjórum árum hafa Drammen og Runar bæst í hópinn. Þá hefur hann nokkrum sinnum leikið með íslenska landsliðinu gegn því norska. „Ég tel möguleika á að komst áfram vera góðan, en ég held að við verðum að hleypa leiknum aðeins upp til þess að ná frumkvæðinu. Leikmenn Runar eru góðir en með lítið hjarta,“ segir Bergsveinn og telur Runar ekki vera eins sterkt og Dramm- en sem Afturelding lagði á heimvelli með fímm marka mun fyrir tveimur árum. Þá steinlá Afturelding reyndar á útivelli. „Ég veit að úrslitin munu mikið ráðst á hvort ég og vömin náum okkur á strik. Sóknarmenn Runar að undanskilinni örv- hentu skyttunni eru ekki hávaxnir og hornamennimir em mjög færir. Ég mæti hins vegar óhræddur til leiks og staðráðinn í að gera mun betur en ytra. Það er einnig stórt atriði fyrir okkur að fá öflugan stuðn- ing frá áhorfendum, þeir geta verið eitt aðalvopn okkar í leiknum." Leika kerfisbundið „Með skynsamlegum sóknarleik og grimmum sóknarleik þar sem markvarslan fylgir með eigum við mjög góða mögu- leika, en við verðum einnig að fá fullt hús áhorfenda til þess að styðja við bakið á okkur,“ sagði Gunnar Andrésson, fyrirliði Mosfellinga. Hann var meiddur í fyrri leikn-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.