Morgunblaðið - 06.12.1997, Qupperneq 4
KNATTSPYRNA
KORFUKNATTLEIKUR/NBA
Nelson fagnaði mest
Dallas Mavericks hefur ekki
gengið mjög vel í NBA-deild-
inni í körfuknattleik, en var þó ekki
í vandræðum með að vinna New
York 105:91 á heimavelli sínum í
fyrri nótt. Don Nelson, þjálfari Ma-
vericks, var manna ánægðastur og
fagnaði mest allra því hann var
rekinn sem þjálfari New York í
fyrra. Hubert Davis, fyrrum leik-
maður New York, gerði 16 af 20
stigum á síðustu 14 mín. leiksins
fyrir Mavericks. Michael Finley
var með 27 stig og Khalid Reeves
24.
Houston vann Atlanta 94:87 og
var þetta sjöundi sigur liðsins í röð.
Kevin Willis setti persónulegt stiga-
meti á tímabili, gerði 31 stig. Hann
hitti úr 15 af 21 skoti sínu utan af
velli og tók auk þess 11 fráköst.
Terrell Brandon átti góðan leik
fyrir Milwauee Bucks sem vann
Charlotte 102:92. Hann gerði 24
stig og átti 11 stoðsendingar og náði
boltanum fjórum sinnum. Ray Allen
setti niður 22 stig, Tyrone Hill 18 og
Ervin Johnson og Glenn Robinson
voru með 16 stig hvor.
Chris Webber var með 26 stig og
14 fráköst fyrir Washington sem
vann Sacramento Kings, 118:96.
Juwan Howard gerði 22 stig og átti
sjö stoðsendingar og Rod
Strickland 16 fyrir Washington.
Mitch Richmond var stigahæstur í
liði Sacramento með 26 stig.
Táningurinn Maurice Taylor
gerði 17 stig og setti persónulegt
stigamet er LA Clippers vann San
Antonio Spurs á heimavelli 100:96
eftir framlengdan leik. Eric Piat-
kowski setti einnig persónulegt
stigamet með því að gera 24 stig og
Lorenzen Wright sömuleiðis, gerði
17 stig og tók auk þess níu fráköst.
Þetta var aðeins annar sigur liðsins
í síðustu 13 leikjum. David Robin-
son var stigahæstur í liði gestanna
með 25 stig og tók auk þess 12 frá-
köst.
Nýliðar Kaiserslautem komu á
óvart í fyrstu umferð þýsku
deildarinnar og unnu meistara Ba-
yem 1:0 í Munchen í ágúst. í gær-
kvöldi gerðu þeir betur á heima-
velli, unnu Bayem 2:0 og eru með
sjö stiga forystu á meistarana.
Carsten Jancker skoraði fyrir
Bayem á 20. mínútu eftir gott spil
en hann var rangstæður og mark-
ið því ekki dæmt gilt. Heimamenn
náðu forystu á 45. mínútu, þegar
Dietmar Hamann, sem var í bar-
áttu við Andreas Buck um bolt-
ann, gerði sjálfsmark eftir hom-
spymu frá vinstri. Marian Hristov
innsiglaði sigurinn eftir gagnsókn
fimm mínútum fyrir leikslok, fékk
boltann frá Buck, sem hafði leikið
ÚRSLIT
Handknattleikur
HM kvenna
A-riðill
Sindelfmgen, Þýskalandi:
Austurríki - Angðla.................29:22
Þýskaland - Pólland.................29:19
Japan - Brasilía....................25:21
■ Þýskaland og Austurríki eru með sex
stig eftir þrjá leiki en tvö efstu lið í hverjum
riðii fara áfram í átta liða úrslit.
B-riðill
Saarbruckep, Þýskalandi:
Noregur - Úsbekistan..............44:13
Króatia - Frakkland...............21:20
Kanada - Hvíta-Rússland...........13:30
■ Noregur og Króatía eru með sex stig
eftir þrjá leiki.
c-riam
Suður- Kórea - Uruguay............35:11
Rúmenía - Ungverjaland............26:30
Alsír - Fílabeinsströndin.........20:21
■ Suður-Kórea og Ungverjaland eru með
sex stig eftir þrjá leiki.
D-riðiIl
Danmörk - Slóvenía................37:24
Rússland - Makedónía..............22:19
Tékkland - Kína...................30:25
■ Danmörk og Rússland eru með 6 stig
eftir þrjá leiki.
Bikarkeppni karla
16 liða úrslit
Selfoss - Fram........................23:37
ÍR-b - Afturelding....................20:29
Höness
hrokafullur
ULI Höness, framkvæmda-
stjóri Bayern Miinchen, gerði
lítið úr Otto Rehhagel, þjálf-
ara Kaiserslautern, fyrir leik
liðanna í þýsku deildinni í
gærkvöldi en Rehhagel var
látinn fara frá Bayern í fyrra.
„Otto Rehhagel er rétti
þjálfarinn fyrir mörg lið víða
um heim en ekki fyrir lið í
heimsklassa,“ sagði Höness.
„Otto er fyrsta flokks þjálfari
þar sem liann fær allt upp í
hendurnar frá vallarstarfs-
mönnum til forseta, en það er
ekki mögulegt í borg eins og
Miinchen.“
Rehhagel er einn af sigur-
sælustu þjálfurum Þýskalands.
Hann þjálfaði Werder Bremen
1981 til 1995 og undir hans
stjórn varð liðið tvisvar Þýska-
landsmeistari og Evrópumeist-
ari bikarhafa 1992. Rehhagel
var látinn taka pokann sinn
Ijórum dögum fyrir úrslitaleik
Bayern og Bordeaux í Evrópu-
keppni félagsliða og Bayern
fagnaði sigri. Hann fór til Ka-
iserslautem, kom Iiðinu upp
og á toppinn en aldrei fyrr
hafa nýliðar verið efstir í 1.
deild þegar keppnin er hálfn-
uð. „Því miður er hann ekki
rétti maðurinn fyrir Miinchen,
Madrid eða Tórínó en hann
getur gengið í Kaiserslautera
eða Bremen,“ sagði Höness.
ÍMÓmR
FOLK
■ GHEORGHE Hagi, fyrirliði
rúmenska landsliðsins, ætlar að
leggja landsliðsskóna á hilluna eftir
heimsmeistarakeppnina í Frakk-
landi í sumar. Hann er 32 ára og
hefur leikið með landsliðinu í 18 ár.
Hann hefur gert 32 mörk í 107
landsleikjum.
■ BEBETO og Romario verða í
fremstu víglínu í liði Brasilíu sem
mætir Suður-Afríku í vináttuleik í
Jóhannesarborg á morgun. Þetta
verður í fyrsta sinn sem þeir leika
saman í brasilíska landsliðinu síðan
Brasilía vann Ítalíu í úrslitaleiknum
á HM í Bandaríkjunum 1994.
■ BRASILÍA er nú að undirbúa
sig fyrir heimsálfukeppnina sem
hefst í Saudi-Arabíu í næstu viku.
Nokkrii' lykilmanna landsliðsins
verða ekki með á móti Suður-Afríku
á sunnudaginn. Þeirra á meðal eru
Cafu (Roma), Juninho (Atletico Ma-
drid), Leonardo (AC Milan), Ri-
valdo (Barcelona), Roberto Carlos
(Real Madrid) og Ronaldo (Inter
Milan).
■ HRISTO Boaev, landsliðsþjálf-
ari Búlgara, sagðist sannfærður um
að lið hans kæmist upp úr D-riðlin-
um sem er talinn einn sterkasti riðill
HM keppninnar í Frakklandi. Hin
liðin þrjú eru Spánn, ólympíumeist-
arar Nígeríu og Paraguay. „Við
mætum óhræddir og ég er viss um
að við komumst áfram,“ sagði Bo-
nev.
■ MEÐAN leikmenn Manchester
United borða kvöldmatinn í dag
geta þeir verið með sex stiga forskot
í ensku deildinni. En til þess þurfa
þeir að vinna Liverpool í dag, en
leikurinn hefst kl. 11.15 á Anfield.
Liverpool hefur ekki riðið feitum
hesti frá viðureignum liðanna und-
anfarin ár og hefur ekki unnið
United í deildarkeppninni síðan í
desember 1995.
■ LTVERPOOL leikur án Paul
Ince í dag, en hann tekur út leik-
bann. Það mun því mikið mæða á Ja-
mie Redknapp á miðjunni. Robbie
Fowler er laus úr leikbanni og og
verður með. Það verður spurning
hvort það verður Karlheinz Riedle
eða táningurinn Michael Owen, sem
verður með honum frammi.
■ UNITED verður án Gary Pall-
isters sem er meiddur og Paul Scho-
les, sem tekur út leikbann. Andy
Cole, sem var útnefndur leikmaður
nóvembermánaðar ásamt Kevin Da-
vis, Southampton, verður að öllum
lfldndum í fremstu víglínu enda ver-
ið drjúgur fyrir liðið í síðustu leikj-
um.
■ REAL Madrid hefur keypt
brasilíska framherjann Savio
Bartonili írá Flamengo. Kaupverðið
er talið nema um 250 milljónum
króna. Savio er væntanlegur til
Spánar fljótlega til að gangast undir
læknisskoðun.
OTTO Rehhagel, þjálfari Kaiserslautern, hafði ástæðu til að fagna í gærkvöldi.
Otto fagnaði aftur
upp hægri kantinn og að vítateigs-
horninu áður en hann gaf fyrir
markið.
„Þeir sóttu stíft á okkur í seinni
hálfleik en fyrir vikið opnuðust
svæði sem veitti okkur tækifæri
eins og það sem við skoruðum úr,“
sagði Otto Rehhagel, þjálfari nýlið-
anna. „Mínir menn börðust vel og
ekkert er eins spennandi og það að
þurfa að halda forystu."
Stemmningin var gríðarleg hjá
38.000 áhorfendum og lögðu þeir
sitt af mörkum. „Við vorum
óheppnir að fá á okkur fyrra mark-
ið en það var vendipunkturinn,“
sagði Giovanni Trapattoni, þjálfari
Bayem. „í seinni hálfleik urðum
við æ taugaóstyrkari eftir því sem
á leið leikinn." Um baráttuna um
titilinn sagði ítalski þjálfarinn:
„Kaiserslautem er sterkt en mikið
er eftir og margt getur gerst. Þetta
er ekki búið.“
Ólafur í góðum félagsskap
ÓLAFUR Stefánsson, Wuppertal, er í fjórða sæti yfir markahæstu
leikmenn þýsku 1. deildarinnar í handknattleik að loknum tíu umferð-
um. Hann hefur gert 71 mark, þar af 26 úr vítaköstum. Stefan
Stoecklin, Frakkinn í liði Minden, er markahæstur með 81 mark.
Kóreumaðurinn Kim Yoon hjá Gummersbach er með 73 og Júgósla-
vinn Nenad Perunicic í liði Kiel með 72 mörk. Næstir á eftir Ólafi eru
Marc Baumgartner, Lemgo og Talant Duishebaew, Nettelsted, sem
hafa gert 67 mörk hvor.
Sjónvarps-
þáttur um
Kristján
KRISTJÁN Halldórsson, sem
þjálfar handknatt leikslið Lar-
vikur í Noregi, var hér á
landi í vikunni. Hann var
meðal áhorfenda á leik
Stjörnunnar og Víkings í
Garðabænum á miðvikudag,
þar sem grannt fylgst með
honum - því með honum í Fór
var tveggja manna norskt
upptökulið frá frönsku sjón-
varpsstöðinni Canai Plus.
Franska stöðin hefur einka-
leyfí á útsendingum frá efstu
deild norska kvennahandboit-
ans og ætlar að sýna í Noregi
* þátt um Kristján. Hluti þátt-
arins er tekinn upp hér á
landi. Liðs Kristjáns í Nor-
egi hefur ekki tapað í sfðustu
32 leikjum í deild og bikar.