Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 B 5 ' listavettvangi og norrænir módern- istar, sem margir voru einnig eld- rauðir í stjórnmálum og tengdu það framsækni í listum og litu niður á alla aðra. Þessi einstrengni og harka hafði víða afdrifaríkar afleiðingar einkum hvað varðar einstefnu í myndlist og húsagerðarlist hér á landi. íslenzk myndlist var ung eng- in íslenzk akademía til né sjón- menntadeild við Háskólann og því voru menn eðlilega opnari fyrir er- lendum áhrifum en bræðraþjóðimar. Sumir álitu það lengi styrkleika okk- ar, sem reyndist þó frekar skortur á haldfestu og jarðsambandi, sem oftar en ekki byrgði sýn og raun- hæft mat á almennar staðreyndir. Minnist ég dvalar í Gordes í suður Frans sumarið 1960, hjá einum mesta rökfræðingi Parísarskólans J.J. Deyrolle, en sá. hafði mestan áhuga á að sýna okkur nemendum sínum fornar menjar, einkum frá tímabili Rómveija sem var hinum öfgafullri í trúnni óvænt lexía. Mód- ernisminn var einfaldlega engin ný uppgötvun heldur byggðist á æva- fornum lögmálum sem voru aðlöguð nýjum tímum og nýjum hugsunar- hæti í ljósi tækniframfara. Yfirþyrmandi fáfræði á þessa þætti hér á landi komu helst fram í öfgakenndum viðbrögðum af hálfu almennings og fengu óhlutlægu málararnir að finna fyrir henni á margan hátt jafnt á sýningum sín- um, förnum vegi og á vinnustöðum. Segir Hjörleifur frá ýmsum skondn- um atvikum í því sambandi. Að sjálfsögðu er vikið að Kjarvals- staðadeilunni, en þar var engu síður hart deilt en hvað Rómarsýninguna snerti og eftirhreyturnar jafnvel sýnu alvarlegri. Það hefur lengi vaf- ist fyrir opinberum aðilum að skilja þýðingu lista, að hún er hveiju þjóð- félagi nauðsyn og sömuleiðis hefur það vafist fyrir myndlistarmönnum að standa saman, fylgja eftir rétti sínum og sýna stjórnvisku í samn- ingagerðum í landi þar sem mörkuð opinber listastefna er ekki til. Enn ræður baktjaldamakk, pólitík og hentisemi framvindunni. í bókinni eru 16 síður með 24 lit- prentuðum myndverkum Hjörleifs, sem sýna þróun listar hans frá 1949 fram að síðustu árum, sem er afar gott innlegg. Einnig er fjöldi mynda í svarthvítu sem eru þó helst til litl- ar og óskýrar sumar hveijar. Loks fylgja vel orðaðar hugleiðingar um nokkur verkanna í þeim knappa stíl sem listamaðurinn tamdi sér í rýni sinni og opnar vafalaust mörgum nýja og dýpri sýn á list hans. Bókin er vel úr garði gerð, kápa einföld og falleg. • • • III Þrjátíuogníu ára gömul kona í Mjóstræti gengur niður að Tjörn og tínir tjaðrir í poka þurrkar og límir á dóttur sína. (Höfundur: Sigtryggur Magnason) LANDSÝN ... og þarna velkjast þau í ruslinu andvana að því er virðist Askur og Embla (Höfundur: Bergsveinn Birgisson) Einn dag. . . Einn dag var hún afturgengin litla gula hænan (Höfundur: Björgvin ívar. ___________BÆKUR________________ Urð og grjót, upp í mót... Á TINDINUM. BÆKIJR Fcrðasaga EVEREST. ÍSLENDINGAR Á HÆSTA FJALLI HEIMS eftir Hörð Magnússon. Oddi hf. prent- aði. Mál og menning, 1997.167 bls. leiðb. verð 4.980 kr. í VOR lögðu þrír íslenskir ofurhug- ar upp í langa og stranga ferð á hæsta ijall jarðar, Everest, þetta fjall sem hefur alltaf verið í einhverri goð- sögulegri fjarlægð frá okkur Frónbú- um. íslenska þjóðin fylgdist í fjölmiðl- um stolt og spennt með strákunum á leiðinni upp. Hún fékk þar hugmynd um þá erfiðleika sem mættu þeim en vitanlega var ekki greint nákvæmlega frá þeim raunum sem þeir rötuðu í, ekki síst af tillitssemi við vini og vandamenn sem heima sátu. I bók þessari er sagan hins vegar sögð frá a-ö, án þess að skafið sé utan af hlut- unum. Er það í raun fyrst við lestur hennar sem maður fær einhveija til- finningu fyrir því hversu mikið afrek það hefur verið hjá þeim Birni Ólafs- syni, Einari Stefánssyni og Hallgrími Magnússyni að klífa tindinn. Það er Hörður Magnússon, bróðir Hallgríms, sem skráir söguna en hann var aðstoðarmaður í ferðinni. Með í för var einnig Jón Þór Víglundsson kvik- myndatökumaður. Í bókinni er saga ferðarinnar rakin allt frá því að hún var aðeins íjarlægur draumur þar til ijallamennimir héldu sigurreifir af stað heim. Sagt er frá íjallinu, myndun þess og umhverfí. Einnig er sagt frá þeim sem reyndu fyrstir manna að sigra þetta ógnarlega ijall og þurftu allir að láta í minni pokann þar til Edmund Hillary og Tenzing Norgay Sherpa komust á toppinn árið 1953. Þrátt fyrir að þremenningamir hafi mikla reynslu af ijallaferðum og þrátt fyrir góðan undirbúning varð ekki komið í veg fyrir þá erfiðleika sem þeim mættu í fjallinu. Mikið hafði ver- ið rætt um að erfítt yrði að kiífa efst í fjallinu, sem er 8.848 metrar, vegna þunna loftsins en raunirnar byijuðu miklu neðar. Lungnasýking setti strik í reikninginn við hæðaraðlögun hópsins en margar ferðir þurfti að fara upp og niður í íjallinu til að venjast þunna loftinu. Einar varð einna verst úti og veiktist hastarlega í þriðju búðum í um 7.500 metra hæð. Því sem kallað hafði verið slæmt kvef í íslenskum fjöl- miðlum lýsir hann þannig í bókinni: „Nóttin var sú versta sem ég hef lifað. Eg vaknaði um kvöldið klukkan hálfníu við ofsafengin hóstaköst sem drógu upp úr lungunum viðbjóðslega sýkingarleðju. Það var ekki nokkur leið að sofa, en ég dottaði þó stund og stund milli verstu hryðjanna. Seint um nóttina var ég orðinn aðframkom- inn af þreytu og náði vart andanum þegar mest gekk á. Ég gat varla hó- stað lengur vegna þreytu í magavöðv- unum en engdist um í krampakennd- um rykkjum sem enduðu með því að gömul meiðsl í baki tóku sig upp. Til þessa hafði nóttin verið hátíð hjá því sem nú tók við. í hvert sinn sem ég hóstaði var sem hnífur væri rekinn í mjóbakið á mér. Ég reyndi að halda niðri hóstanum en án árangurs. Að lokum fann ég út að með því að liggja í kuðung á hliðinni og spenna greipar undir hnésbætumar dró úr kvölunum og ég hóstaði minna.“ í kjölfar veikindanna fylgdu nagandi efasemdir um að lokatakmarkinu yrði nokkum tímann náð. Og ekki bætti það úr skák að þremenningamir höfðu þurft að skipta liði vegna þess að þeir vom komnir mislangt í hæðaraðlögun- inni. Af frásögn bókarinnar má glöggt ráða að þeir hafa sótt mikinn styrk hver til annars enda kom ekkert annað til greina en að þeir fæm allir saman upp í einu þegar til lokaátakanna kom. Það kemur raunar á óvart að í bókinni er leiðangursstjóra íslendinganna, Jon- athan Tinker, ekki borin góð sagan. Fram kemur að hann hefur átt við skapgerðarbresti að stríða og látið er liggja að því að hann hafí gert sig sek- an um dómgreindarbrest sem lá við að kostaði einn leiðangursmanna lífíð. Frásögnin af ferðinni upp á tindinn sjálfan er skemmtileg og spennandi aflestrar eins og bókin öll. Ýmislegt verður til að telja för en að lokum standa þeir keikir á kolli jarðar. Ekki skal sú saga rakin frekar hér. 1 bókinni koma fjölmargir við sögu, bæði aðrir úr leiðangri íslendinganna og menn úr öðrum leiðöngrum. Flest- ir komust upp. Sumir urðu að snúa við fullir vonbrigða og jafnvel með sært stolt. Aðrir komust upp en varla niður. Enn aðra tók Ijallið. Bókina prýða um 230 litmyndir og skýringarkort. Þröstur Helgason Vesturfaramir og örlög* þeirra BÆKUR Frædirit NÝJA-ÍSLAND Örlagasaga vesturfaranna í máli og myndum eftir Guðjón Amgrímsson. Reylqavík, Mál og menning, 1997, 334 bls. NORÐUR-Ameríka hefur haft mikið aðdráttarafl síðustu eina og hálfa öldina, að minnsta kosti fyrir marga Evrópumenn. Þetta á bæði við um Bandaríkin og Kanada. í daglegri umræðu er alltaf öðru hvoru verið að greina frá því að Bandarík- in séu mikill bræðslupottur þjóðar- brota, ijölskyldna og einstaklinga sem þangað flytjast. En þetta sama á líka við um Kanada þótt það sé ekki eins áberandi. Það þarf því engan að undra að samband ensku og annarra tungumála og uppruna- legrar þjóðmenningar og menningar Norður-Ameríku sé umræðuefni á opinberum vettvangi stöðugt í þeim heimshluta. Það er vel kunnugt að íslending- ar fóru í stórum hópum til Norður- Ameríku á síðari hluta síðustu aldar og í byijun þessarar. En mér er ekki kunnugt um að saga þessa fólks hafi verið sögð í bók ætlaðri íslenzkum almenningi á síðustu ára- tugum. Bók Guðjóns Arngrímsson- ar er því kærkomin lesning á þess- um jólabókamarkaði. í henni er sögð saga þessara landnema í Norð- ur-Ameríku og athyglinni sérstak- lega beint að Nýja-íslandi við Winnipegvatn í Kanada. Hann hefur dregið saman mikinn fróðleik um þetta efni og segir söguna á ein- földu og skýru máli og lætur land- nemana tala sjálfa í löngum ívitnun- um. Guðjón byijar á því að gera grein fyrir inn- flutningi fólks á síðustu öld til Norður-Ameríku og bendir á að það ætti ekki að koma á óvart að íslendingar hafi farið í stórum hópum til þessa svæðis því að aðr- ir Evrópumenn hafi flykkst þangað milljón- um saman. Það var sama hvort litið var til Ítalíu eða Norðurlanda, fólk hópaðist til Norður- Ameríku á þessum tíma. Skýringarnar á þessum fólksflutning- um eru svipaðar hvar sem er í Evr- ópu. Fólki fjölgaði mikið á síðustu öld og þjóðfélagsþróunin helt ekki í við mannijöldaþróunina. Á íslandi kom þetta þannig fram að undir aldamótin síðustu var búið á nánast hveiju örreytiskoti sem til var í land- inu. Menn þurfa ekki annað en skoða tóttir sumra þessara kota á norð- lenzkum heiðum núna til að sjá ástæðurnar fyrir því að fólk sótti annað. Það hefur ekki verið nokkur von til þess að lifa þar mannsæm- andi lífi og um leið og veður kólnaði og ís lagðist að landinu svalt fólk heilu hungri. Það er ekkert sérlega göfugt að lifa við hungurmörk á Islandi og ekkert sjálfsagðara en að fólk í slíkri aðstöðu leiti annað. Höfundur rekur aðdraganda ferð- anna, hvemig mormónar í raun hófu þessa búferlaflutninga, síðan fóru nokkrir íslendingar til Brasilíu og síð- an virðast fregnir um aðstæður í Norður-Ameríku hafa borizt í gegnum Lefolii verzlun á Eyrarbakka en fyrr- um starfsmaður hennar, danskur, flutti til Wisconsin árið 1865 og skrif- aði Guðmundi Thorgrimsen bréf um samfélagið þar vestra. Þessi bréf urðu til þess að kaupmaðurinn hafði milligöngu um að nokkrir ungir og efnilegir menn héldu til Vesturheims. Þar með hófst sú at- burðarás sem leiddi til þess að íslendingar fluttu til Vesturheims þúsund- um saman sum árin fram að því að heimsstyijöldin fyrri hófst árið 1914. Fyrsti stóri hópurinn hélt til Kanada 5. ágúst árið 1873 frá Akureyri. Var fyrst siglt til Edin- borgar í Skotlandi og þaðan haldið með lest til Glasgow. Frá Glasgow var siglt til Quebec. Þaðan skiptist hópurinn, sumir fóru til Ontario, aðrir til Milwaukee í Wisconsin. Það var árið 1875 að fjórir íslendingar héldu til Winnipeg til að kanna aðstæður þar fyrir landnám íslendinga. í október það ár fékkst samþykki kanadískra stjórnvalda fyrir því að sérstakt landsvæði yrði frátekið fyrir íslend- inga. Það ár um haustið hélt stór hópur vestur til Winnipeg að Nýja- íslandi. En undirbúningurinn var öðruvísi en búizt hafði verið við og þessi fyrsti vetur varð landnemun- um erfiður. Þeir kunnu ekki á þess- ar nýju aðstæður, skógarhögg var óþekkt á íslandi en það fyrsta sem landnemar þurftu að gera var að höggva skóg, þeir þurftu síðan að plægja landið og kunnu lítið til þess enda heyjuðu menn á íslandi. Það bauðst einnig vinna við lagningu þjóðbrauta. Ekki kunnu íslending- arnir til þess enda vegir óþekktir í heimalandinu. Þar að auki var tíð- arfar í Nýja-íslandi erfitt fyrstu árin. En þeir voru fljótir að læra og með tímanum komu þeir sér upp góðum jörðum og húsakosti, þeir lærðu að nýta fiskveiði á Winnipeg- vatni og ýmsir þeirra efnuðust vel þótt það tæki tíma. Guðjón lýkur bókinni á að vitna • í fyrirlestur Einars H. Kvaran um vesturferðirnar sem hann hélt í Lærða skólanum árið 1895 skömmu eftir að hann flutti til íslands en Einar hafði verið ritstjóri í Winnipeg um nokkurra ára skeið. Það er merkileg lesning og lýsir sanngjörn- um skilningi á örlögum þessa hóps íslendinga. Bókinni lýkur síðan sniðuglega á frásögn af tveimur ungum Kanadamönnum sem eru engir íslendingar þótt þeir séu komnir af íslenzkum landnemum í báðar ættir. Það eru fjöldamörg efnisatriði í þessari bók sem hér hefur ekki verið minnzt á. En það er sjálfsagt að vekja athygli á því að ljósmyndir eru skipu- lega notaðar til að auka við efni text- ans og myndir úr blöðum frá þessum árum. Það hefur tekizt vel, uppsetning « öll og umbrot er til fyrirmyndar og prentun eins og bezt verður á kosið. Texti Guðjóns er þægilegur aflestrar, vel saminn og skýr. Það er óhætt að mæla eindregið með þessari bók. Það er ekki bara að bókin frasði um merki- lega sögu heldur ætti hún að vekja áleitnar spurningar um hvemig Is- lendingar á gamla landinu hugsa um sjálfa sig og þjóðemi sitt. Lesendur mættu líka taka eftir þeim orðum Dufferins lávarðar, á bls. 162 um þegnskap við Viktoríu drottningu og rækt við eigin menningu. Ekki sá hann neina andstæðu á milli þessa tvenns eins og mönnum er tamt nú á dögum. Guðmundur Heiðar _ Frímannsson Guðjón Arngrímsson 1-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.