Morgunblaðið - 18.12.1997, Side 4

Morgunblaðið - 18.12.1997, Side 4
KNATTSPYRNA Reuters DAVID Beckham og félagar hans hjá Man. Utd. eru taldlr slgurstrang- leglr f Melstaradelld Evrópu. Hór fagnar Beckham markl í lelk. 1 Evrópudráttur EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA Leverkusen (Þýskalandi) - Real Madrid (Spáni) Juventus (Ítalíu) - Dynamo Kiev (Úkraínu) Bayem Munchen (Þýskalandi) - Dortmund (Þýskalandi) Mónakó (Frakklandi) - Manchester United (Englandi) • Leikdagar 4. og 18. mars. EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA Þjóðverja- slagur Roda JC Kerkrade (Hollandi) - Vicenza (Ítalíu) Slavía Prag (Tékklandi) - Stuttgart (Þýskalandi) AEK (Grikklandi) - Lokomotiv Moskva (Rússlandi) Real Betis (Spáni) - Chelsea (Englandi) • Leikdagar 5. og 19. mars. UEFA-KEPPNIN Ajax (Hollandi) - Spartak Moskva (Rússlandi) Inter (Ítalíu) - Schalke (Þýskalandi) Lazio (Ítalíu) - Auxerre (Frakklandi) Atletico Madrid (Spáni) - Aston Villa (Englandi) • Leikdagar 3. og 17. mars. EVRÓPUMEISTARAR Dortmund drógust á móti Bayern Miinchen í átta liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu og á Bayern fyrst heimaleik 4. mars. Dortmund tryggði sér einmitt Evrópu- meistaratitilinn á ólympiuleik- vanginum í Miinchen en Bayern, sem var Evrópumeistari þrjú ár f röð, 1974 til 1976, hafði betur í viðureign liðanna í þýsku deild- inni í Dortmund fyrr í vetur og vann 2:0. „Þá vorum við með 10 menn meidda og næst verða aðstæður allt aðrar," sagði Christian Hockenjos, fram- kvæmdastjóri Dortmund, um viðureign liðanna i Meistara- deildinni. Talsmenn þýsku liðanna voru al- mennt óánægðir með dráttinn. „Þetta verður mikill viðburður, við á móti Evrópumeisturunum og heims- meisturum félagsliða en hann kemur á röngum tíma; ég hefði frekar viljað sjá þessi lið í úrslitum," sagði Franz Beckenbauer, forseti Bayern. Gio- vanni Trapattoni, þjálfari Bayern, tók í sama streng. „Við vildum drag- ast á móti erlendu liði, þó þau séu öll sterk. Liðin þekkja hvort annað mjög vel og mikil barátta er fram- Veðbankar JUVENTUS og Manchester United eru talin sigurstrang- legs í Meistaradeild Evrópu hjá veðbönkum í London. 9-4 Juventus, Man. Utd. 9-2 Real Madrid 15- 2 Bayem Miichen 9-1 Dortmund 16- 1 Dynamo Kiev, Bayer Leverkusen 20-1 Mónakó Evrópukeppni bikarhafa: 5-2 Chelsea 3- 1 Stuttgart 7-2 Vicenza 5-1 Real Betis 10-1 AEK Aþena 14-1 Lokomotiv Moskva 16- 1 Roda 25-1 Slavia Prag UEFA-keppnin: 5-2 Inter 7-2 Atletico Madrid 4- 1 Ajax, Lazio 10-1 Auxerre 14-1 Aston Villa 16-1 Schalke 04, Spartak Moskva undan en við höfum sjálfstraustið sem þarf til að komast áfram." Lothar Mattháus, leikmaður Bayem, sagði að Dortmund hefði sýnt á sér aðra hlið í Meistaradeildinni en í þýsku deildinni, þar sem liðið er í 11. sæti. „Ég efast um að margir hjá félögunum séu ánægðir með dráttinn." Mario Basler, samheiji hans, var á öðru máli. „Ekki skiptir máli hver næsti mótherji er. Við vilj- um verða meistarar og til þess verð- um við hvort sem er að ryðja Dort- mund úr vegi. Því er þetta gott.“ Stefan Reuter, fyrirliði Dortmund, sagði lið sitt ekki óttast mótheijana. „Ekki er mikill ljómi yfir því að mæta þýsku liði en drátturinn þýðir að við eigum möguleika á að spila við erlent lið í næstu umferð.“ Nevio Scala, þjálfari liðsins, var á sama máli. „Við verðum að taka þessu. Bayem var ekki versti kosturinn í stöðunni. Ef við ætlum í úrslitin verð- um við að geta sigrað hvaða lið sem er.“ Manchester United á mikla mögu- leika á að komast í undanúrslit annað árið í röð, mætir Mónakó og á seinni leikinn heima. „Við eigum mikla möguleika en megum ekki ofmetn- ast,“ sagði Ferguson, stjóri United, en Mónakó hefur sigrað í sjö leikjum í röð og er efst í frönsku deildinni. Juventus, sem varð meistari 1996 og lék til úrslita í fyrra, mætir Dyn- amo Kiev. „Þetta er ekki drauma- drátturinn en við erum tilbúnir að mæta Juventus," sagði Olexiy Semen- enko, talsmaður Kiev, sem á seinni leikinn heima 18. mars. „Við höfum þegar sýnt að við óttumst ekki stórlið- in í evrópskri knattspymu." Bayer Leverkusen er þriðja þýska liðið í átta liða úrslitum en það tekur á móti Real Madrid 4. mars. Úrslitaliðin mætast Schalke sigraði Inter í úrslitum Evrópukeppni félagsliða í fyrra en liðin mætast í átta liða úrslitum að þessu sinni. Inter, sem er efst í ít- ölsku deildinni, hefur tvisvar orðið meistari í keppninni á líðandi áratug og Giammaria Visconte di Modrone, varaforseti félagsins, sagði að drátt- urinn væri hvetjandi fyrir liðið. „Aldrei er um hefnd að ræða í íþrótt- um en samt sem áður er drátturinn góð hvatning fyrir leikmenn okkar.“ Frakkar áttu sjö lið í keppninni til að byija með en Auxerre er eitt eftir og mætir Lazio. Ajax leikur á móti Spartak Moskva en Aston Villa og Atletico Madrid leika um sæti í undanúrslitum 3. og 17. mars. ■ AEK keypti nýlega tvo leikmenn, Líberíumann sem lék með Xanthi, liðinu sem sló AEK út úr bikar- keppninni í vetur, og Georgios Don- is, sem verið hefur hjá Blackbum í Englandi. ■ MARCELLO Salas landsliðs- maður Chile og leikmaður River Plate gengur ekki til liðs við Manch- ester United eins og Alex Fergu- son knattspymustjóri liðsins hefur vonað. Líklegast er talið að hann fari til Parma eða Lazio skipti hann um vettvang á annað borð. ■ IGOR Cvitanovic landsliðsmað- ur Króatíu og leikmaður með Kró- atíu frá Zagreb er að flytja sig um set til Real Sociedad. Þarf spænska félagið að reiða fram 245 milljónir fyrir leikmanninn og skiptist sú upp- hæð jafnt á milli Cvitanovic og króatíska félagsins. ■ CVITANOVIC er 27 ára og hef- ur leikið með Króatíu Zagreb í átta ár. Hann er markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi, hefur gert 104 mörk í deildarleikjum. Samningur hans við Real Sociedad er til þriggja ára. ■ BARCELONA hefur mikinn áhuga á að fá Steve McManaman í sínar raðir og telja að hann geti orðið lykillinn að velgengni í Evrópu- keppninni á næsta keppnistímabili. Hefur spænska félagið í hyggju að bjóða Liverpool 12 milljónir punda, um 1,4 milljarða króna fyrir McManamann. ■ TILBOÐIÐ verður ekki lagt fram fyrr en að lokinni heimsmeist- arakeppninni í Frakklandi næsta sumar. Samningur McManamans við Liverpool rennur út sumarið 1999 og vilja forráðamenn Liv- erpool að hann geri nýjan samning og verði í herbúðum félagsins út feril sinn en leikmaðurinn er 25 ára. ■ LIVERPOOL gerði honum tilboð snemma árs en því hefur ekki enn verið svarað af umboðsmanninum Simon Fuller. ■ HOWARD Kendall knatt- spymustjóri Everton verður að selja einhveija leikmenn áður en hann fær að kaupa aðra til þess að styrkja liðið í botnbaráttunni. Þetta er álit hluthafa í félaginu og er reiknað með því að Gary Speed, Duncan Ferguson og Andy Hinchcliffe verði settir á sölulista. Kendall á fund með Peter Johnson stjómar- formanni Everton á föstudaginn þar sem Kendall ætlar að leggja áherslu á að fá peninga til leikmannakaupa. ■ BERNARD Lama fyrrum mark- vörður franska landsliðsins og Paris St. Germain kemur til greina sem markvörður West Ham, en félagið leitar nú að markverði í stað Ludek Miklosko sem verður frá keppni í tvo mánuði vegna meiðsla. ■ LAMA er sagður hafa áhuga því hann hefur ekki leikið frá því á síð- ustu leiktíð eftir að sannaðist upp á hann neysla á ólöglegum fíkniefnum. Lama telur að með því að leika á Englandi aukist líkur fyrir því að hann geti endurheimt sæti sitt i franska landsliðinu. ■ RUUD Gullit knattspymustjóri Chelsea er sagður í þann mund að ganga frá kaupum á Fan Zhiyi, knattspymumanni ársins í Kína árið 1996. ■ EINS munu Arsenal, South- ampton, Crystal Palace og Nott- ingham Forrest vera að keppast um framheijann Hao Haidong, sem leikur með fyrrum Kínameisturum, Dalian Wanda. ■ BAKSLAG er komið í kaup Sheff. Wed. á Makedóníumanninum Coce Sedloski eftir að hann stóðst ekki læknisskoðun. Einnig var ósk félagsins um atvinnuleyfí hafnað. Ron Atkinson knattspyrnustjóri sagðist ekki vera búinn að gefa Sedloski upp á bátinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.