Morgunblaðið - 19.12.1997, Page 6
6 D FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Bardagahetjan Michelle Yeoh slær í gegn
Framtíðarfélagi?
Svo gæti farið, að leikkonan Michelle
Yeoh semji um að leika í fleiri myndum
um njósnarann James Bond. Yeoh
þykir standa sig svo vel í myndinni
“Tomorrow Never Dies” að alvarlega
hefur verið rætt um að finna henni sess
í syrpunni um James Bond til
frambúðar. Persóna hennar yrði þannig
sett á stall með ekki ómerkari mönnum en
Q, Felix Leiter, Emst Blofeld og síðast en
ekki síst sjálfum Jaws, sem á íslandi er
kannski betur þekktur sem hinn huggulegi
beljaki með vírtennumar.
Hún hefur verið kölluð drottning
hasarmyndanna og heima í Hong Kong er
hún fyrir löngu komin í dýrlingatölu. “Ég
sparka ansi fast og á í engum vandræðum
með að láta höggin dynja," hefiir hetjan sjálf
látið hafa eftir sér en bætir því síðan við, að
annars sé hún nú hið mesta meinleysisgrey.
Yeoh, sem einnig hefur leikið í myndum
undir nafninu Michelle Khan, er kannski
þekktust á vesturlöndum fyrir að hafa leikið
á móti samlanda sínum og kollega, Jackie
Chan, t.d. í kvikmyndinni “Supercop”. Þar
barðist hún af stöku listfengi og dró hvergi
af í glæffalegum áhættuatriðum, sem hún
framkvæmdi auðvitað öll sjálf, rétt eins og
Chan sjálfúr.
f myndinni leikur Yeoh, Wai Lin, útsendara
kínversku leyniþjónustunnar og telur hún
sjálf að hlutverkið boði byltingu fyrir Bond
myndimar. “Flestar Bond stelpumar hafa
haft um útlitið eitt að hugsa og stundum hafa
þær líka haft fyrir því að kalla “James,
hjálp!,” segir hún. “SUkt hvarflaði aldrei að
Bomban Michelle Yeoh er fullfær um
að bjarga sér sjálfl
^Creykjavík •
mér. Ég ímyndaði mér alltaf að ég væri sjálf
James Bond.”
Leikstjórinn, Roger Spotiswoode, segir
persónu Lins, frábæra leið fyrir myndimar
um James Bond til að aðlagast enn frekar
breyttum aðstæðum. “Hérna er kominn
kvenmaður, sem er fylhlega jafiioki 007. Á
sama tíma viðheldur hún kvenlegri fegurð
sinni, en er laus við þann veikleika Bonds,
að vera veikur fyrir hinu kyninu.” Hann
segist aðspurður spenntur fyrir að hafa
leikkonuna með í næstu mynd, en segir það
jafnframt fara eftir stöðu Kínverja í
alþjóðamálum; semsé hvort þeir verða góðu
eða vondu mennimar í framtíðinni.
Talið er að Yeoh eigi greiða leið að
vinsældum í kvikmyndaheiminum. Ekki
aðeins í myndaröðinni um James Bond
heldur einnig á öðrum vígstöðvum.
Leikstjórar á borð við Oliver Stone og
Quentin Tarantino gera hosur sínar grænar
fyrir henni um þessar mundir og spumingin
er aðeins hvor þeirra verður fyrri tíl að
hreppa hnossið.
Þúsundþjala-
smiður á
níræðisaldri
Tæki og tól
í ölhim
regnbogans
lituni
Ein ástsælasta persóna Bond myndanna er
án efa hugvitsmaðurinn Major Boothroyd,
betur þekktur undir nafitínu Q. Desmond
Llewlyn lék uppfinningamanninn fyrst í
myndinni “From Russia with Love” árið
1963 og hefur upp firá því leikið í öllum
myndunum, ef undan er skilin “Live and
Let Die”. Telja margir að þessi 83 ára gantíi
snillingur sé ómissandi hlutí hverrar Bond
myndar.
Svo mjög er Llewlyn tengdur persónu Q í
hugum almennings, að honum hefur reynst
þrautin þyngri að fóta sig í öðrum
hlutverkum á hvíta tjaldinu.
Desmond Llewlyn lætur sig sjaldan
vanta þegar James Bond skýtur upp
kollinum.
Paris Carver og Q eru bæði gamlir
kunningjar James Bonds en örlög
þeirra eru æði ólík. - Leikkonan Teri
Hatcher leikur Paris, eiginkonu
fjölmiðlamógúlsins Carvers í
“Tomorrow Never Dies.”