Morgunblaðið - 20.12.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.12.1997, Blaðsíða 2
2 B LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ _______________________GOLF________ Sakna félag annaog léttleikans Nokkrir íslenskir kylfingar hafa reynt fyrir sér sem atvinnumenn í íþróttinni á undanförnum árum. í vor var stofnað hlutafélag sem gerði fjög- urra ára samning við Birgi Leif Hafþórsson frá Akranesi. Hann segir í samtali við Skúla Unnar Sveinsson að fyrsta árið hafi verið allt í senn; skemmtilegt, lærdómsríkt, erfitt og á stundum einmanalegt. Hann heldur þó ótrauður áfram enda náði hann mun betri árangri en áætlanir hlutafé- lagsins gerðu ráð fyrir og hann hefur tryggt sér rétt til að keppa í evrópsku áskorendamótaröðinni. ÚRSLIT Knattspyrna Heimsálfukeppnin Undanúrslit Brasilía - Tékkland..........2:0 Romario 54., Ronaldo 83. 30.000. Ástralía - Uruguay...........1:0 Harry Kewell 91. „Gullmark" í bráðabana. 30.000. ■ Brasilía og Ástralía leika til úrslita á morgun en Tékkland og Uruguay leika um þriðja sætið. Þýskaland Dortmund - Schalke................2:2 But 26., Möller 79. - Kliouev 75., Lehmann 90. 55.000 (uppselt). Gladbach - Hertha.................4:2 Klinkert 11., Pflipsen 36., Effenberg 69., Per Pedersen 80. - Covic 5., Preetz 7. 17.000. Staðan Kaiserslautem.....19 13 3 3 39:23 42 BayemMiinchen.....19 11 5 3 40:23 38 VfB Stuttgart.....19 10 5 4 39:22 35 Schalke...........20 8 8 4 23:18 32 Bayer Leverkusen..19 8 7 4 34:22 31 Wolfsburg.........19 8 3 8 25:27 27 BorussiaDortmund...20 6 7 7 33:30 25 Hansa Rostock.....19 7 4 8 29:27 25 Duisburg..........19 7 4 8 23:25 25 Karlsmhe..........19 6 6 7 31:36 24 Gladbach..........20 5 7 8 34:38 22 1860 Munchen......19 5 6 8 22:33 21 Hamburg...........19 5 5 9 25:31 20 Bochum............19 5 5 9 23:30 20 Köln..............19 6 2 11 30:42 20 Arminia Bielefeld.19 6 1 12 23:31 19 Þrakkland Auxerre - Bordeaux.................4:2 Marseille - En Avant Guingamp......fr. Montpellier - RC Lens..............1:2 Bastia-Lyon.......................0:1 Rennes - Paris St Germain..........1:2 Cannes - Chateauroux..............fr. Strasbourg - Toulouse.............2:0 Staða efstu liða Metz...............21 12 6 3 34:18 42 PSG................21 12 5 4 34:18 41 Mónakó.............21 13 2 6 34:21 41 Marseille..........20 11 4 5 26:14 37 Lens...............21 11 4 6 30:24 37 Auxerre............21 10 3 8 36:29 33 Bordeaux...........21 8 8 5 26:24 32 Bastia.............21 7 8 6 22:17 29 Lyon...............21 9 2 10 24:24 29 Skíði Heimsbikarinn Stórsvig kvenna Deborah Compagnoni (Ítalíu).....2.18,83 (1.09,17/1.09,66) ■ Þetta var áttundi sigur hennar í röð í stórsvigi heimsbikarsins siðan 3. janúar sl. Alexandra Meissnitzer (Austurríki)..2.18,93 (1.08,79/1.10,14) Leila Piccard (Frakklandi).........2.20,02 (1.09,24/1.10,78) Stefanie Schuster (Austurríki).....2.20,37 (1.09,44/1.10,93) SonjaNef (Sviss)...................2.20,39 (1.09,57/1.10 82) Sonia Vierin (Italiu)..............2.20,55 (1.09,94/1.10,61) Andrine Flemmen (Noregi)...........2.20,72 (1.09,60/1.11,12) Ana Galindo Santolaria (Spáni).....2.21,02 (1.09,62/1.11,40) Pemilla Wiberg (Svíþjóð)...........2.21,27 (1.10,09/1.11,18) ■ Katja Seizinger, Þýskalandi, var með besta tíma eftir fyrri umferð en skíðaði út úr braut í seinni umferð. Körfuknattleikur NBA-deildin Orlando - Utah.................73:85 Dallas - Phoenix...............75:89 Seattle - Denver.............119:106 LA Clippers - Golden State.....82:78 Íshokkí NHL-deildin Washington - Florida.............0:4 Ottawa - Carolina................3:2 Philadelphia - Boston............2:2 St. Louis - New Jersey...........4:4 Calgary - Dallas.................1:2 Los Angeles - Toronto............5:2 San Jose - Vancouver.............0:0 Leikir aðfaranótt fimmtudags: Florida - NY Rangers.............2:4 NY Islanders - Buffalo...........4:0 Tampa Bay - Boston...............2:0 ■ Colorado - Detroit...........2:2 ■ Edmonton - Chicago...........0:0 Phoenix - Vancouver..............1:5 Anaheim - Toronto................2:6 TENNIS Jólamót Jólamót Tennishallarinnar og Samvinnu- ferða/Landsýnar verður haldið í Tennishöll- inni í Kópavogi á milli jóla og nýárs. Mótið hefst 27. desember og verður ekki með hefbundnu sniði. Keppnin í meistaraflokki verður nokkurs konar meistarakeppni, þannig að átta bestu tennisleikarar landsins verða teknir út og haldin er forkeppni fyrir þá sem vilja etja kappi við þá. Einnig verður keppt í öðlingaflokkum fyrir 30 til 40 ára og fyrir 40 ára og eldri auk þess sem keppt verður í bama- og unglingaflokkum og byijendaflokki. Keppni i forgjafarflokki ætti einnig að geta orðið skemmtileg því þar er keppendum gefln forgjöf og þá gæti til dæmis einhver með hæstu forgjöf lent á móti Arnari Sigurðs- syni ísiandsmeistara og byijaði þá hver lota á 40:0 fyrir háforgjafarmanninn. Hann yrði þá aðeins að skora eitt stig í lotunni til að sigra. Skráning og nánari upplýsingar era ! 564-4050. Birgir Leifur er fæddur 16. maí árið 1976 4 Akranesi þar sem hann er einnig alinn upp og hefur búið alla tíð, nema í sumar. „Þá má segja að ég hafi búið i ferðatösku,“ segir Birgir Leifur um síðastliðið sum- ar. í vor var stofnað hér á landi hluta- félag sem gerði síðan samning við kylfinginn unga út árið 2000. Birgir Leifur gerðist því atvinnumaður og spilaði í sænsku mótaröðinni í sumar og er nú kominn með rétt til að keppa í „áskorenda-mótaröðinni" (Chalange Tour) í Evrópu, sem er miklu sterk- ari mótaröð og það verður því spenn- andi að fylgjast með hvemig hann stendur sig næsta sumar. Draumurinn rættist „Það er auðvitað draumur hvers kylfíngs að gerast atvinnumaður og það var því erfítt að segja nei þegar ég fékk þetta kostaboð. Það er auðvit- að mikill heiður fyrir mig að fínna að einhveijir hafí trú á manni og ég er mjög ánægður með sumarið. Þetta er dálítið öðruvísi en að spila hér heima og mestur munurinn fínnst mér að nú er maður ekki að spila með félögunum. Núna er miklu meiri alvara í spilamennskunni, menn eru ekki að gera að gamni sínu enda samkeppnin mjög mikil og það kemur fyrir að maður spilar heilan hring án þess að tala við nokkum mann; því átti maður ekki að venjast heima,“ sagði Birgir Leifur. „Sumarið var mjög skemmtilegt. Ég keppti í Svíþjóð, Noregi, Finn- landi, Danmörku, á Englandi og Spáni þannig að þetta voru mikil ferðalög en ég á von á að næsta sumar verði ennþá erfíðara, bæði verða mótin jafnari og svo verða örugglega miklu meiri ferðalög. Ég var með samastað hjá frænku minni í Örebro í Svíþjóð, svona til að fá þvegið og straujað af mér, en næsta sumar er ætlunin að hafa samastað sunnarlega í Þýska- landi, skammt frá þeim stað sem Amar Már Ólafsson golfkennari er að vinna.“ Hefll hringur án orða Venjuleg vika hjá Birgi Leifí í fyr- rasumar var þannig að hann æfði á mánudag og þriðjudag, kom sér á keppnisstað á miðvikudegi og lék þá æfíngahring og keppti síðan á fímmtudegi, föstudegi og laugardegi. Sunnudagurinn fór svo í að koma sér til Örebro. Mótshaldarar greiða ekki kostnað kylfínganna og það er ekki gert í þessari íþrótt fyrr en menn eru orðnir heimsfrægir, þá er mönnum boðið að keppa og fá greitt fyrir. „Ég verð víst að bíða aðeins lengur eftir slíku boði, en það er að sjálfsögðu draumurinn. Það er allt í lagi að eiga sér draum, er það ekki? Ég held að fyrsta árið í þessu sé erfíðast því þá er allt svo nýtt fyrir manni og það getur verið einmanalegt að vera einn og ég saþna stundum félaganna úr golfínu. í svona mótum eru menn ekki að gera að gamni sínu, og ég sakna þess stundum að geta ekki brosað meira, verið kátari og gantast dálítið við meðspilarana. En svoleiðis gerir maður ekki í þessum mótum. Eg hef stundum leikið heilan hring án þess að segja orð! Það eru helst Englendingar og írar sem eru hressir og það er ágætt að spila með þeim. Annað fannst svolítið erfítt og það var að vera alltaf á nýjum völlum; völlum sem ég hafði aldrei séð áður.“ Venjulega notar Birgir Leifur ekki kylfusveina heldur dregur settið sitt sjálfur. Frændi hans dró þó fyrir hann á nokkrum mótum nærri Örebro í sumar og Björgvin Þorsteinsson á Spáni. „Bjöggi gamli gat ekki verið mirmi en aðrir kylfusveinar og bar pokanum alla hringina. Það var gríð- arlegK gott að hafa hann með sér því hann þekkir leikinn út og inn og gat leiðbeint mér mikið. Annars var mótið á Spáni algjört ævintýri; bæði gekk mer vel og ekki síðar vegna veðursins. Ég hefði gjam- an viljað spila tvo hringi í viðbót því mér fannst ég eiga mikið inni. Ég lék mjög jafnt alla hringina og það vant- aði alla heppni þannig að ég var viss um að það hefði komið. Maður verður að hafa smá heppni með sér til að ná langt. Þar sem þetta var í fyrsta sinn sem ég var með í svona móti vissi ég ekki hvað þurfti til að kom- ast áfram, en nú veit maður það. Annars tel ég það ágætt að hafa þó náð niðurskurðinum - það var það sem stefnt var að. Maður verður að hafa mikla trú á sjálfum sér og ég veit að ég get þetta alveg. Mér fannst oft vanta herslumuninn hjá mér í sumar. Ég lék oft í kringum parið, kannski einn til tvo undir og það er allt í lagi, en ég þarf að gera það fjóra hringi í röð. Það kemur með reynslunni, ég er alveg viss um það. Ég hef ekki haldið utanum forg- jöfína mína síðan ég gerðist atvinnu- maður, gleymdi henni um leið og ég fór út. Eg nenni ekki að haida bók- hald yfír hana, en ég skrifa alltaf niður allar tölulegar uppiýsingar, til dæmis hve margar brautir ég hitti í teighöggi, fjölda pútta og því um líkt. Eftir hvem hring skifa ég hjá mér með hvað ég hef verið í erfíðleikum. Fyrri hluta sumars sló ég betur en nokkru sinni síðan ég byijaði í golfí, en púttin gengu ekki nógu vel. Ég held samt að það hafí fyrst og fremst verið vegna þess að ég var ekki nógu nálægt holu þegar ég kom inn á flöt. Það var ansi þreytandi að eiga alltaf löng pútt. Síðari hluta sumars brást það sem ég hef alltf verið bestur í; jámahöggin. Sérstaklega var þetta áberandi í mótinu á Spáni. Ég hitti ekki nógu margar flatir en bjargaði mér með því að vippa og pútta vel. Það er algjör haugur af mönnum sem stefna á evrópsku mótaröðina og sem dæmi má nefna að 760 kylfíngar kepptu að því að vinna sér rétt til að taka þátt í úrtökumótinu á Spáni, en þaðan komust 40 að í mótaröð- inni. Ég tryggði mér rétt á að leika á Spáni á móti í Englandi og þar lék ég það besta golf sem ég hef leikið, var sjö högg undir pari á þremur hringjum." Birgir Leifur stóð sig vel í sumar og á úrtökumótinu á Spáni náði hann að komast áfram, en vegna veðurs var hætt við að leika tvo síðustu hringina þannig að ekkert verður af því að hann leiki í evrópsku mótaröð- inni í sumar, eða hvað? „Það gætu orðið einhver mót. Vegna frammistöð- unnar er maður settur í ákveðið sæti á lista og ef menn sem eru fyrir ofan mig mæta illa gæti svo farið að ég næði að leika á einhveijum mótum í evrópsku mótaröðinni. Maður verður bara að vera í startholunum og þjóta á mótsstað ef kallið kemur. Einnig er mögulegt að mér verði boðið á ein- hver mót, en það þarf að vinna skipu- lega að slíku. Mér var sagt á mótinu á Spáni að það ætti að vera mögu- legt, sérstaklega af því ég er frá Is- landi, menn eru forvitnir að sjá kylf- ing þaðan enda vita flestir afskaplega lítið um landið." Hver er munurinn á að spila í Sví- þjóð og hér heima? Eru veliimir mikiu betri? „Nei, þeir eru ekki miklu betri. Flestir eru þó betri en hér heima, en ég hef spilað á völlum sem eru miklu verri en vellimir hér. Mestur munur- inn er umgjörðin í kringum mótin, hún er eins og hjá atvinnumönnum, öll til mikillar fyrirmyndar. Maður hafði það stundum á tiifínningunni á mótum hér heima að aðalmarkmiðið væri að ná inn sem mestum pening, lítið sem ekkert var hugsað um að gera spilarana ánægða.“ Þarf aö bæta úthaldið Birgir Leifur æfír nú af kappi til að koma sér í nægilega góða æfíngu. „Ég æfi af kappi í Mætti til að kom- ast í góða líkamlega æfíngu og ná upp góðu þoli. Ég er algjörlega á núlli þar. Ég hef oftast verið í góðri æfíngu en síðustu tvö árin hafa ekki verið nógu góð og í sumar fann ég fyrir þreytu á síðustu holunum í löng- um mótum. Það á ekki að gerast og maður á í raun að geta hlaupið átján holur án þess að blása úr nös,“ segir Birgir Leifur. En hann gerir fleira í „fríinu" því á morgnana „mála ég með Hannesi frænda," segir hann. Gerður var fjögurra ára samningur við Birgi Leif þannig að hann á að geta einbeitt sér að golfínu út árið 2000. „Maður fínnur á þessum fjórum árum hvort maður getur þetta og líka hvort manni líkar þetta líf, því þetta er talsvert öðruvísi en maður á að venjast," segir kylfingurinn. Er ekki aukinn þrýstingur á þér að ná árangri. Heimta hluthafar ekki árangur? „Auðvitað er þrýstingur á manni SIGURÐUR Pétursson golfkennari hefur fylgst með Birgi Leifi í mörg ár og síðari ár hefur hann aðstoðað hann. „Hann er mjög góður kylfíngur. Hann er með ein- falda og góða hreyfíngu og sveiflan hjá honum er mjög góð. Það sem snýr að golf- kennaranum er einnig gott því Birgir Leif- ur er bæði jákvæður gagnvart leiðsögn og er fljótur að tileinka sér það sem fyrir hann er lagt. Teighögg hans eru eins löng og best gerist og þau eru ótrúlega bein. Sálfræðilega hliðin er sterk, hann er allt í senn rólegur, harður og yfírvegaður og þorir að taka áhættu þegar því er að skipta. Hann var seinheppinn í sumar því boltinn fór frekar hring á holubarminum en að detta - en það kemur allt saman," segir Sigurður um Birgi Leif. „Innst inni vonaði maður auðvitað að hann kæmist alla leið í ár, en ég held það sé betra fyrir hann að staldra aðeins við á áskorendamótunum frekar en fara beint í evrópsku mótaröðina, en þangað fer hann og ég hef sagt áður og segi enn að Birgir Leifur er það góður kylfíngur að hann nær eins langt í íþróttinni og hann sjálfur vilL Hann komst áfram úr þeim fimm úrtöku- mótum sem hann þurfti að fara í sumar og það er í rauninni ekki hægt að gera betur. Það er í rauninni ekkert að marka golfið hjá honum í sumar því hann var að læra svo margt annað. Hann var að læra að vera einn og það tekur mikinn kraft frá mönnum. Það fer mikil orka í að keyra á keppnisstað, fínna hótel og fínna golfvöll- inn og sjá um sig einn.“ Þegar Sigurður var spurður um veiku hliðar Birgis Leifs varð fátt um svör. „Tja, ég veit ekki hvað skal segja. Ef það er eitthvað þá mætti hann ef til vill vera að- eins harðari við æfingar,“ sagði golfkenn- arinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.