Morgunblaðið - 20.12.1997, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
BIRGIR Lelfur Hafþórsson er ákveðlnn í að koma sér í betri
sefingu og vera með betra úthald næsta sumar.
að standa sig og ég ætlast til þess
af sjálfum mér að ég standi mig.
Hluthafamir hafa hins vegar ekki
beitt mig neinum þrýstingi og þegar
þeir hringja í mig þá er það alltaf
mjög jákvætt. Þeir eru þá að láta
mig vita hvað þeir séu ánægðir með
árangurinn. Það er allt voðalega já-
kvætt hjá þeim og það hjálpar mér
mikið. Þeir vita hvemig golfið er og
eru því ekki að setja óþarfa þrýsting
á mig. Það er mikill heiður fyrir mig
að fá þetta tækifæri og mesti þrýst-
ingurinn er frá mér sjálfum.“
Mætti ekki í bráðabana
Móðir þín, Ella Kristín Sigurðar-
dóttir, dró nokkrum sinnum fyrir þig
hér heima, hjálpaði hún þér ekkert í
sumar?
„Jú, jú. Hún dró fyrir mig á síðari
úrtökumótinu fyrir sænsku mótaröð-
ina í vor og þá lenti ég víst í öðm
sæti. Reyndar vorum við tveir jafnir
í fyrsta til öðru sæti, en ég fór beint
heim eftir hringinn og eftir að móts-
haldarar gáfust upp við að leita að
mér á svæðinu var hinn látinn fá
verðlaunaféð. Ég var fjómm eða fimm
höggum á eftir honum fyrir síðasta
daginn og datt ekki í hug að ég
myndi ná fyrsta sæti og var bara
ánægður með að vera kominn áfram.
Ég hitti strákinn sem var jafn mér á
næsta móti og hann stökk á mig, tók
í höndina á mér og þakkaði fyrir sig
og sagði að ég væri ágætur! Þetta
hafði líka ágæt áhrif hvað kynningu
varðaði því þegar ég hringdi í móts-
haldara til að tilkinna þátttöku þá
vissu allir hver ég var: „Nú, þú sem
mættir ekki í bráðabanann!“ sögðu
þeir alltaf.“
Birgir Leifur er einn og einhleypur
og segir ömgglega ekki hlaupið að
því að finna stúlku sem hefur þolin-
mæði í að búa með kylfíngi. „Ég
held það þurfí ansi þolinmóða og
skilningsríka stúlku til að búa með
eða giftast atvinnukylfingi. Það er
samt aldrei að vita hvort það leynist
ekki ein slík einhvers staðar,“ segir
kylfíngurinn ungi og hlær við.
Margir íþróttamamenn era hjátrúa-
fullir, en Birgir Leifur segist ekki
vera það - altént ekki áberandi.
„Mér fínnst vænt um ljósgrænar bux-
ur sem ég keypti á sínum tíma í versl-
unninni Bjargi á Akranesi. Ég byija
gjaman mót í þeim enda líður mér vel
í þeim, þær em víðar að neðan og
falla dálítið niður á skóna.“
Þeir enda allir í golfinu
Birgir Leifur byijaði seint í golfínu,
var orðinn tólf ára gamall þegar „ég
fór að fara mjög reglulega á golfvöll-
inn,“ eins og hann segir. Áður hafði
hann leikið knattspymu með yngri
flokkum ÍA og handknattleik líka.
En golfíð átti vel við pilt og nú er
hann orðinn atvinnumaður. „Við vor-
um nokkrir saman í þessu og núna
em vinir mínir úr fótboltanum, til
dæmis Jóhannes Harðarson, orðnir
algjörlega sjúkir í golf og Bjami Guð-
jóns er byijaður að fikta við þetta.
Þeir enda allir í golfínu; ég er bara
aðeins á undan þeim,“ sagði Birgir
Leifur.
Skagamaðurinn ungi hefur lengst-
um notað kylfur frá Wilson, svokall-
aðar blade-kylfur, en þær em ekki
,jafnvægisstilltar“ eins og þær kylfur
sem algengastar em. Kylfumar sem
em ,jafnvægisstilltar“ eru þannig að
þær gera slæm högg heldur skárri
en þau yrðu með blaðkylfum. Birgir
Leifur var með slíkar kylfur í sumar
en hyggst skipta aftur. „Þær fyrir-
gefa meira ef maður slær illa, en ég
kann betur við gömlu blaðkylfumar
og held ég skipti aftur yfir í Wilsonin
minn. Ég held maður verði betri kylf-
ingur við að nota slík verkfæri, en
það getur tekið lengri tíma.“
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 B 3
ÍÞRÓTTIR
SKVASS
Kim Magnús sigraði í Lúxemborg
Eg hef aldrei
leikið betur
Kim Magnús Nielsen,
íslandsmeistari i
skvassi, sigraði á dögunum
á alþjóðlegu móti í Lúx-
emborg - og kom sú niður-
staða öllum í opna skjöldu.
„Okkur var ekki raðað á
styrkleikalista mótsins, og
urðum því að keppa í for-
keppni til að komast inn í
aðalmótið sjálft,“ sagði
Kim Magnús í samtali við
Morgunblaðið og átti þar við sig
og Albert Guðmundsson, hinn ís-
lenska keppandann á mótinu.
Þátttakendur voru rúmlega 40,
aðallega Belgar, Lúxemborgarar
og Þjóðveijar. Mótið, sem kallaðist
Top Squash Open, var haldið í
skvassklúbbi íslenskrar konu, Dísar
Bond. Eiginmaður hennar, David
Bond, sem er fyrrverandi atvinnu-
maður í greininni, tók þátt í mótinu
og komst í undanúrslit.
„Það kom öllum mjög á óvart
að ég ég skyldi sigra, sérstaklega
okkur Albert. Enginn taldi okkur
eiga möguleika og ég reiknaði alls
ekki með að ná svo góðum ár-
angri,“ sagði Kim Magnús. íslands-
meistarinn gerði sér lítið fyrir og
sigraði belgískan keppanda 3:1 í
fyrstu umferð, en Belgan-
um hafði verið raðað í
fyrsta sæti á styrkleikalista
mótsins fyrirfram. „Þetta
var hörkuviðureign, sem
tók einn og hálfan tíma og
var mjög jöfn þótt ég hafi
unnið 3:1.“
Kim Magnús sigraði
Fabrice Chinetti frá Lúxem-
borg í úrslitaleiknum.
„Hann hefur tvisvar komið
hingað til lands á Norðurljósamótið
en ég hafði aldrei spilað við hann.
En hann hefur í bæði skiptin kom-
ist lengra á því móti en ég,“ sagði
íslandsmeistarinn. „Ég hef tvímæla-
laust aldrei leikið betur en á þessu
móti og þetta er besti árangur sem
ég hef náð. Það er alveg ótrúleg
tilfínning að sigra á mótinu, líka
vegna þess að ég taldi mig alls
ekki eiga neina möguleika. Hafði í
mesta lagi gert mér vonir um að
vinna „pleitið“,“ sagði Kim Magnús
- en svo kalla skvassmenn upp-
reisnarkeppnina, sem þeir taka þátt
í sem tapa í fyrstu umferð aðalmóts-
ins. Albert Guðmundsson fagnaði
reyndar sigri í þeirri uppreisnar-
keppni. Sigraði danskan keppanda
í langri og strangri viðureign.
IÞROTTA- OG OLYMPIUSAMBANDIÐ
Klm
Magnús
Nlelsen
Nýtt merki afhjúpað
MERKI nýstofnaðra sameinaðra
samtaka íþróttahreyfingarinnar,
íþrótta- og Ólympíusambands ís-
lands, var afhjúpað í gær og þar
með voru merki fyrrum íþrótta-
sambands íslands og Ólympíu-
nefndar íslands aflögð. Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, og Björn Jóns-
son, hönnuður nýja merkisins hjá
íslensku auglýsingastofunni, af:
hjúpuðu merkið í húsakynnum ÍSÍ
í Laugardal.
Við sama tækifæri voru nokkr-
um einstaklingum afhentar heið-
ursviðurkenningar ÍSÍ og Óí fyrir
vel unnin störf í þágu íþróttahreyf-
ingarinnar og gat Ellert þess að
þetta væri í síðasta sinn sem gull-
merki.ÓÍ og heiðurskross ÍSÍ væru
afhent í þessari mynd.
Á myndinni vinstra megin við
nýja merkið eru Bergþór Magnús-
son, fyrrverandi formaður FH,
Lovísa Einarsdóttir, sem var í
framkvæmdastjóm ÍSÍ 1986 til
1997, Magnús Oddsson, fyrrver-
andi formaður ÍA og varaforseti
ÍSÍ 1992 til 1997, og Júlíus Haf-
stem,_ fyrrverandi formaður Óí,
HSÍ, ÍBR og ÍTR og nú formaður
Júdósambandsins, sem fengu heið-
urskross ÍSÍ. Júlíus, Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, sem var í fram-
kvæmdastjórn Óí, Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, og
Einar Einarsson, forstjóri VISA
ísland, fengu gullmerki Óí. Við
merkið standa Ellert B. Schram,
forseti ÍSÍ, og Björn Jónsson,
hönnuður merkisins. Pétur Björns-
son, forstjóri Vífilfells, átti einnig
að fá gullmerki Óí afhent í gær
en var erlendis.
Gleðileg
jól hjá
Jóhanni
JÓHANN B. Guðmundsson
úr Keflavík hefur verið í
sviðsljósinu þjá Genk í Belg-
íu undanfama daga. Um
liðna helgi lék hann með
varaliðinu, gerði eitt mark
og lagði upp tvö í 5:3 sigri
á Standard Liege. í fyrra-
kvöld kom hann inná í fyrri
hálfleik í deildabikarleik
Genk og St. Traiden. Genk
vann 5:3 í vítakeppni eftir
að staðan hafði verið 1:1 að
venjulegum leiktíma loknum
og er komið í átta liða úr-
slit. í gærkvöldi skoraði Jó-
hann þegar varaliðið tapaði
7:3 fyrir Mouscron.
Þórður Guðjónsson,
landsliðsmaður hjá Genk,
sagði að Jóhann hefði staðið
sig vel en þeir koma saman
tii íslands á morgun. Jóhann
sagði að ekkert hefði verið
rætt um framhald en hann
væri vissulega spenntur þó
hann gerði ekki ráð fyrir
neinu. „Þetta hef ur gengið
mjög vel lyá raér og mér líst
mjög vel á allt héma,“ sagði
hann í gærkvöldi.
Ronaldo enn
í efsta sæti
GREINT var frá því í gær
að brasilíski miðherjinn
Ronaldo hjá Inter á Italiu
yrði útnefndur leikmaður
ársins á mánudag í lgöri sem
franska knattspyrnublaðið
France Footballge ngst fyrir
árlega. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær völdu
lesendur tlmaritsins World
Soccer Romario knatt-
spyraumann ársins og al-
mennt er talið að Alþjóða
knattspyrnusambandið haldi
uppteknum hætti frá liðnu
ári, þegar það greinir frá
sinu kjöri.
Romario er fyrsti knatt-
spyrnumaðurinn frá Suður-
Ameríku sem kjörinn er leik-
maður ársins bjá France
Football. Júgóslavinn Pe-
drag Myatovic hjá Real
Madrid var í öðru sæti,
Frakkinn Zinedine Zidane
þjá Juventus hafnaði í þriðja
sætí, Hollendingurinn Denn-
is Bergkamp þjá Arsenai
kom næstur og Roberto Car-
los hjá Real Madrid var í
fimmta sæti í kjörinu.
’ É#ÉÉ
. ÍÍ ÍÍulfll\.:£' \ - <l
j .i- ■ZtZ.it*.. itlll ■ íraWÓ 1 y+'Vj ■ |
I
w --
Morgunblaðið/Ámi Sæberg ^