Morgunblaðið - 20.12.1997, Qupperneq 4
Kristinn Björnsson keppir í Madonna di Campiglio á mánudag
skynsemina
ráða ferðinni
KRISTINN Björnsson, skíða-
kappl frá Ólafsfirði, tekur þátt
í þriðja heimsbikarmótinu í
•svigi í Madonna di Campiglio
á ftalíu á mánudaginn. Hann
hefur verið við œfingar í Ma-
donna frá því á miðvikudag,
en mikil snjókoma hefur verið
á svæðinu undanfarna daga.
Hann ásamt félaga sínum í
finnska landsliðinu, Mika
Marila, hefur aðeins náð ein-
um æfingadegi frá því að þeir
kepptu í Sestriere á mánu-
dagskvöld.
ValurB.
Jónatansson
skrifar
frá Itallu
Kristinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að auðvitað
hefði hann vijjað æfa meira en
hafði þó ekki miklar
áhyggjur af því.
Hann ætlar að hita
upp fyrir heimsbikar-
mótið með því að
keppa í Evrópubikarmóti í svigi St.
George í Austurríki á sunnudg.
Heldur héðan frá Madonna í dag
yfir til Austurríkis og kemur síðan
strax eftir mótið á sunnudag til að
gera sig kláran fyrir svigið í heims-
bikamum á mánudag.
„Það er ágætt að koma sér í
gang aftur með því að keppa í Evr-
ópubikarnum. Það er góð upphitun
-fyrir heimsbikarinn. Ég ætla að
reyna að komast á verðlaunapall í
Evrópubikamum eins og ég gerði í
síðustu viku. Þá hafði ég rásnúmer
24 en nú verð ég í fyrsta ráshópi,"
sagði Kristinn.
Hvernig leggst heimsbikarmótið
íþig hérí Madonna á mánudag?
„Það leggst vel í mig. Ég held að
svigbrekkan hér henti mér vel,
enda er hún nokkuð brött og eng-
inn afgerandi flati í brekkunni.
Markmiðið hjá mér verður að vera
á meðal tuttugu fyrstu. Ég kem
ekki til með að taka óþarfa áhættu,
heldur reyna að keyra af öryggi án
þess þó að gefa neitt eftir. Eg verð
að láta skynsemina ráða ferðinni.
'Það er mikilvægt að ég nái að skila
mér niður og næla í heimsbikarstig
því það léttir mér framhaldið eftir
áramót.“
Þú kepptir hér í fyrra vetur og
náðir þá mjög góðri ferð en krækt-
ir þegar fjögur hlið voru eftir í
markið. Þú þekkir því vel til hér og
ættir að vera reynslunni ríkari?
„Já, ég átti mjög góða ferð hér
en það er ekki nóg því ég verð að
komast alla leið í markið. En ég er
bjartsýnn og veit að hverju ég
geng. Það má alltaf búast við að
'skíðamenn fari út úr og það er
mjög algengt að menn kræki eins
og ég gerði í Sestriere. Það má
ekki miklu muna og aðeins spum-
ing um millímetra hvorum megin
við stöngina maður lendir. Það ger-
ist oft að ef skíðamenn eru seinir
Baldur ný-
liði í lands-
liðshópnum
BALDUR Ólafsson í KR er eini
nýliðinn í landsliðshópnum í
körfuknattleik sem Jón Kr. Gísla-
son, landsliðsþjálfari, valdi fyrir
fjögurra þjóða mótið sem verður í
Lúxemborg milli jóla og nýárs. ís-
lendingar mæta Austurríkismönn-
um 27. desember, U-22 ára liði Pól-
verja daginn eftir og heimamönn-
um mánudaginn 29. desember.
Teitur Orlygsson og Sigfus
Gizurarson gáfu ekki kost á sér og
Herbert Amarson er meiddur en
eftirtaldir leikmenn em í hópnum
(íjöldi landsleikja í sviga):
Baldur Ólafsson, KR (0), Birgir
Öm Birgisson, Keflavík (12), Eirík-
ur Önundarson, ÍR (9), Falur
Harðarson, Keflavík (71), Friðrik
Stefánsson, KFÍ (3), Guðjón Skúla-
son, Keflavík (109), Guðmundur
Bragason, Hamburg (133), Helgi
Jónas Guðfinnsson, UMFG (23),
Hermann Hauksson, KR (46), Jón
Amar Ingvarsson, Haukum (84),
Nökkvi Már Jónsson, KR (41) og
Pétur Ingvarsson, Haukum (18).
Innan við
20 á næsta
heimslista
KRISTINN Bjömsson hef-
ur færst hratt upp heimslist-
ann í svigi. Fyrir síðasta
keppnistímabil var hann
númer 116 á styrkleikalista
Alþjóða skíðasambandsins
(fis-listanum) í svigi. Fyrir
þetta tímabil var hann kom-
inn í 53. sæti. Næsti fis-listi
verður gefmn út um áramót-
in og þá má reikna með hann
verði kominn í kringum 20.
sæti í svigi, sem er frábær
áranur og undirstrikar enn
frekar framfarir hans. Hann
var með 13,89 fis-stig fyrir
tímabilið en hefur nú náð
tveimur góðum mótum, í
Park City þar sem hann
fékk 0,56 stig og í Evrópu-
bikamum þar sem hann
fékk 5,05 stig. Meðaltal
tveggja bestu mótanna gildir
við útreikning á heimslistan-
um. Hann verður því með
um 3,00 fis-stig á næsta
lista.
Til fróðleiks má geta þess
að á heimslistanum eru 4.000
bestu skíðamenn heims.
Lágmarkið fyrir þátttöku á
ólympíuleikunum í Nagano
er að vera innan við 500 á
fis-listanum.
KRISTINN Björnsson hafnaði [ öðru sætl f svlgl f Park Clty á
dögunum, sem gaf honum 80 stlg f helmsblkarkeppnlnnl.
og finna ekki rétta taktinn í braut-
inni að þeir kræki. Þetta er hluti af
þessu. Sem dæmi um það krækti
ólympíumeistarinn Thomas
Stangassinger fyrir fyrsta hliðið í
síðari umferðinni í Sestriere svo
það getur komið fyrir alla. Það er
því mikilvægt að finna taktinn
strax í fyrstu hliðunum. Ég hef
verið að keyra vel á æfingum og
skilað mér yfirleitt í gegn og ég
mun því reyna að keyra eins á
mánudaginn."
Kristinn verður með rásnúmer
28 í sviginu á mánudaginn. Hann
hefur færst aftur um þrjú sæti síð-
an í Sestriere. Það er því mikilvægt
að hann skili sér niður í Madonna
því ef hann færist aftur fyrir 30 má
búast við að hann verði með rás-
númer í kringum 40 í fyrsta heims-
bikarmótinu eftir áramót sem fram
fer í Krajnska Gora í Slóveníu 4.
janúar. Reglumar eru þær að þrjá-
tíu efstu að heimsbikarstigum rað-
ast í rásröð eftir stigum, en síðan er
farið eftir stöðu á fis-listanum og þá
skipta heimsbikarstigin ekki máli.
Kljaic hættur
hjá Wallau
KRÓATINN Velimir Kijaic,
sem tók við þjálfarastarfi
Kristjáns Arasonar hjá
Waliau-Massenheim i þýsku 1.
deildarkeppninni í handknatt-
leik, er hættur með liðið. Klja-
ic, sem var þjálfari Ólympíu-
meistara Króatíu í Atlanta,
hefur tekið við landsliðinu á
ný og jafnframt verður hann
þjálfari Baden Zagreb,
mdtheija KA í Meistaradeild
Evrópu. Hann fékk fjöguira
ára tUboð, sem hann gat ekki
hafnað. Ekki er búið að ráða
nýjan þjálfara hjá Wallau, en
reiknað er með að Martin
Schwalb, leikmaður iiðsins og
fyrrum Iandsliðsmaður
Þýskalands, taki við þjálfún
liðsins.
Gullit ekki á
förum frá
Chelsea
„ÉG átta mig ekki á þessum
orðrómi og sögusögnum. Ég
hef ailtaf sagt að ég sé tilbú-
inn að skrifa undir nýjan
samning við Cheisea," sagði
Hollendingurinn Ruud Gullit,
knattspyraustjóri Lundúna-
liðsins, en í gær voru ensku
biöðin með fréttir þess efnis
að hann væri jafnvei á förum
til Glasgow Rangers, einnig
að landsliðsþjálfarastarf
Hollands stæði honum tii boða
- einnig þjáifarastarf hjá
Feyenoord og AC Miian. „Það
er Ijóst að ég vil ekki fara og
Clielsea ætlast ekki til þess að
ég fari,“ sagði Guilit.
Guðni til
í slaginn
GUÐNI Bergsson, fyrirliði
Bolton, komst í gegnum æf-
ingu í gærraorgun, fer með
liðinu til Leeds árla i dag og
ætiar að reyna að vera með í
leik liðanna í ensku úrvals-
deiidinni eftir hádegið.
„Öklinn hélt á æfingunnni og
ég geri alit sem ég get til að
spila,“ sagði Guðni við Morg-
unblaðið. Arnar Gunnlaugsson
er líka í hópnum lijá Bolton.
KARFA
SKÍÐI/HEIMSBIKARKEPPNIN