Morgunblaðið - 21.12.1997, Síða 4

Morgunblaðið - 21.12.1997, Síða 4
-+ 4 C SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 FERÐALOG MORGUNBLAÐIÐ Skíðasvædið á iöklinum bjargaði afkomu dalsins Það voru biðroðir við lyfturnor í Pitztal þó veðrið væri enn svo gott um miðjan október að sum- arblóm sáust á svölum hótels y---------------------------■—■— Wildspitze. Anna Bjarnadóttir var í hópi skíðafólksins. ^ LYFTURNAR í Pitztal eru með fyrstu skíðaljð'tunum sem Keru opnaðar í Austurríki á haustin og það er sama hvort §■■ veturinn er kominn eða ekki, y skíðafólk streymir að til að iðka vetraríþróttina. Pað var ósköp lítið við að vera í dalnum áður en göng voru boruð í gegnum Mittelberg og neðanjarðar- lest lögð upp á Pitzdalsjökul árið 1984. Flestir lifðu fram'að því af slandbúnaði og margir sóttu vinnu út fyrir dalinn. Nokkrar fjölskyldur ráku gististaði og höfðu mest að gera á sumrin. Þetta breyttist allt með til- komu skíðasvæðisins á jöklinum. Nú eru sárafáir sem tengjast ekki ferða- mannaiðnaðinum á einhvem hátt. Fljótt á litið virðist vera boðið upp á gistingu í hverju húsi. Heimamenn eru hættir að þurfa að sækja vinnu út fyrir dalinn. Alois Melmer var einn af frum- kvöðlunum. Hann opnaði Wildspitze fyrir 37 árum og nefndi hótelið eftir ^hæsta tindi Tíról sem er 3.771 metr- ar og blasir við af jöklinum. Hótelið hafði 40 rúm í upphafí en hefur nú 80. Það verður sameinað hótelinu við hliðina á næsta ári og stækkað um helming - hótelið við hliðina tilheyr- ir nú þegar Melmer-fjölskyldunni. Melmer kom fljótt upp toglyftu við hótel Wildspitze og laðaði þannig að vetrargesti. Tennisvöllur hefm- síðan bæst við, ljómandi gufubaðsaðstaða er til staðar og næsta sumar verður sundlaug byggð við hótelið. Wild- spitze liggur sæmilega við neðan- jarðarlestinni upp á jökulinn og þyk- ir eitt af bestu hótelum dalsins. Óþolandi afi Dóttir Melmers sér um rekstur- ’ínn. í kynningarbæklingi um hótelið stendur að „afí“ hjálpi enn við að þjóna gestunum. Mér fannst það af- ar viðkunnanlegt. Þangað til ég lenti í afanum. Ég mætti alsæl í morgunverð fyrsta morguninn. Það var enginn til að taka á móti mér í hlýlega skreytt- um salnum svo ég setti lykilinn minn á laust borð og ætlaði að fara að hrúga á disk af morgunverðarhlað- borðinu þegar gamall karl vatt sér að mér og spurði óvingjarnlega hvort ég væri gestur á hótelinu, hvenær ég hefði komið og hvort ég væri ein. Ég svaraði öllum spurning- unum. Hann sagði að ég mætti ekki sitja þar sem ég hafði sett lykilinn og •-j-fcak mig frekjulega inn í þröngan hliðarsal. Honum fannst ótrúlegt að ég ætlaði að sitja ein við borð og endurtók nokkrum sinnum hvort ég væri örugglega ein, hvort ég ætti enga vini. Morgunsælan í sálinni á mér var rokin út í veður og vind og ég hvæsti á móti að, já, ég væri ein og ég vildi kaffí með heitri mjólk. Kai-linum tókst að ergja mig aftur næsta morgun og ég skildi ekki af hverju honum væri ekki komið fyrir á elliheimili. Þangað til ég var kynnt fyrir AIois Melmer, frumkvöðli og af- anum á hótel Wildspitze. *; Fjallahlíðarnar í innri hluta Pitztal eru brattar og víða hætta á snjóflóð- um á veturna. Byggðin er því dreifð í mörg lítil þorp. Alls búa um 1.200 manns í þessum hluta dalsins. Það eru nokkrar skíðalyftur fyrir ofan þorp í dalnum en þær eru ekkert í samræmi við skíðasvæðið á jöklin- . Jökullinn er innst í dalnum og BLACKY hlýðir húsbóndanum þegar honum hentar. Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir HOTEL Wildspitze þykir eitt af bestu hótelunum í Pitztal. ALOIS Melmer aðstoðar Doris dóttur á morgnana á hótel Wildspitze. að kynna Tíról fyrir ferðamönnum. Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir WEBER-systurnar eru vinsælir skemmtikraftar í Pitztal. Þær syngja Tíról-lög í Tíról-búningum. Fimm syngjandi systur MARGT hefur breyst í Pitztal á undanförnum 15 árum. Ferða- mannaiðnaðurinn blómstrar og flestir eru uppteknir við að græða á honum. En fólki er þó umhugað um að halda við göml- um siðum. Kór- og annar sam- söngur gamalla Tíról-söngva er vinsæll. Weber-systurnar eru eftirsótt- ir skemmtikraftar við allskyns tækifæri. Þær eru 38, 39, 40, 43 og 47 ára og hafa sungið opin- berlega saman í ein 10 ár. Engin þeirra heitir lengur Weber. Þær eru allar giftar mönnum úr dalnum. Ein rekur fjallaskála með sínum á sumrin og önnur tekur fólk í bændagistingu. Mað- urinn hennar er framarlega í skipulagningu bændagistingar í Tíról. Ahugi á henni fer æ vax- andi. Sú fertuga (önnur frá vinstri á myndinni) var jóðlmeistari Aust- urríkis fyrir tæpum tuttugu ár- um. Systur hennar segja að hún hafi hafið „barkakýlisfimleika" af því að hún nennti ekki að læra söngtexta. skíðafólk verður að fara með rútu eða bíl til að komast í neðanjarðar- lestina sem liggur upp á hann. Það liggja engar merktar brautir niður 1 dalinn af jöklinum en skíðakennarar eða fjallaleiðsögumenn fara með gesti niður í dalinn eftir öruggum leiðum þegar snjór leyfir. Skíða- svæðið á jöklinum er ekki sérlega stórt (þrjár toglyftur og einn kláfur) en það hefur góðar, breiðar brekkur og undurfagurt útsýni. Brekkurnar eru kjörnar fyrir snjóbretti og ég naut þess að fara stóra sveiga um þær í sumarblíðu á Carving-skíðum. Fyrstur Austurríkismanna á Everest Wolfgang Nairz, fyrsti Austurrík- ismaðurinn sem kleif Everest, er frá Tíról og vinnur mikið kynningarstarf fyrir sambandsríkið. Ég hefði getað farið í loftbelgsferð með honum yfn- fjallatinda Tíról ef ég hefði haft heppnina með mér eða í skíðagöngu ef skíðaleigan hefði haft bindingai- fyrh’ skó númer 38. Hvorugt gekk. Nairz kleif Everest vorið 1978. Hann var sá tuttugasti og fimmti til að komast á toppinn, 25 árum eftir að tindurinn var fyrst klifinn. Hann hugsar með hi’yllingi til traðksins á tindinum nú og bendir á að það séu til ótrúlega mörg fjöll sem séu skemmtilegri að klífa en Everest. Ég spurði hvort hann myndi samt fara upp Everest núna ef hann hefði aldrei verið þar og hann hefði kraft til. Já,“ sagði hann. Það eru margir fallegri tindar, en Everest er hæstur í heimi.“ Fastur á klettasyllu Ég fór í reiðtúr á Haflinger-hesti til að gleyma vonbrigðunum yfir að komast ekki í ferð með Everest-far- anum. Alfred (Fredl) Eiter hefur ávallt haft áhuga á hestum og nú er hann farinn að bjóða gestum í Pitztal upp á reiðtúra eða sleðaferðir með Haflinger-hestum. íbúar dalsins eru mishrifnir af þessu uppátæki og sumir leyfa honum ekki að fara um sitt land - af hverju ætti hann að græða á því að traðka niður þeirra gras? Haflinger eru lágvaxnir eins og ís- lenskir hestar en ættaðir úr Ölpun- um. Konu Fredls hefur lengi dreymt um að eignast „íslending" og fær lík- lega íslenskan hest í fertugsafmælis- gjöf. Við fórum ekki langt. Ég naut þess jafn mikið að ríða um dalinn og að renna mér í skíðabrekkunum. Ég var þó fegin að algjör byrjandi var með í ferðinni og vildi ekki hleypa. Ég hefði annars ekki getað setið í hálfan mánuð - hesturinn var svo hastur. Það þarf að læra að sitja Haflinger rétt eins og aðra hesta. Blacky, hundur Eiter-hjónanna, var með í ferðinni. Hann hefur unnið sér það til frægðar að festast á klettasyllu og vera sóttur með þyrlu. Hann er stór og kolsvartur af Nýfundnalandsætt. Hann hlýðir hús- bóndanum þegar honum hentai- og hefur gaman af að elta fólk um fjöll- in. I vor fór hann í humátt á eftir klifurleiðangri. Hann komst hátt upp hamarinn en varð örmagna og lagð- ist á syllu til að hvíla sig. Oveður skall á, klaki safnaðist á klettinn sem er kallaður Eiswand og Blacky komst ekki leiðar sinnar. Eiter-fjöl- skyldan fékk áhyggjur af hundinum og hélt að hann hefði orðið úti þegar hann skilaði sér ekki eftir þrjá daga. En þá fréttist af honum á klettasyll- unni. Fredl hafði samband við allar björgunarsveitir í nágrenninu en þær voru uppteknar við að bjarga fólki. Austurríski herinn sagðist að- eins sækja dauð dýr með þyrlu. Að lokum fannst þyrla og Fredl sótti Blacky. Hundurinn vai’ hinn róleg- asti. Hann borðaði smávegis þegar hann kom heim en hreiðraði síðan um sig í stofusófanum í fyrsta skipti á ævinni og svaf þar í góða stund. Frekari upplýsingar um ferða- möguleika í Pitztal eða Tíról fást hjá: Tourismusverband Innerpitztal, Mandarfen, A-6481 St. Leonhard, Austurríki, sími: 00 43 5413 8216, fax: 00 43 5413 8349, heimasíða: http://www,tiscover.com/innerpitztal eða Tirol Tourist Board, Maria- Theresian-Strasse 56, A-6010 Inns- bruck, Austurríki, sími: 00 43 512 5320-0, fax: 00 43 512 5320-150, heimasíða: http://www.tis.co.at/tirol.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.