Morgunblaðið - 09.01.1998, Side 2
2 C FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Grindavík - Valur 102:93
íþróttahúsið í Grindavík, 12. umferð DHL-
deildarinnar i körfuknattleik, fimmtudaginn
8.janúar 1998.
Gangur ieiksins: 7:2, 9:14, 24:24, 36:32
50:42, 56:50, 63:57, 77:57,98:86 102:93.
Stig Grindavíkur: Darryl J. Wilson 28,
Helgi Jónas Guðfmnsson 25, Konstantionos
Tsartsaris 25, Guðlaugur Eyjólfsson 13,
Pétur Guðmundsson 5, Bergur Hinriksson
2, Bergur Eðvarðsson 2, Rúnar F. Sævars-
son 2.
Fráköst: 31 í vöm - 21 í sókn.
Stig Vals: Warren Peeples 41, Guðmundur
Björnsson 20, RagnarÞór Jónsson 11, Berg-
ur Emilsson 10, Óskar Freyr Pétursson 4,
Guðni Hafsteinsson 3, Gunnar Zöega 2,
Hjörtur Þór Hjartarsson 2.
Fráköst: 15 í vörn - 9 í sókn.
Villur: Grindavík 13 - Valur 20.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristján
Möller.
Áhorfendur: Um 200.
IMjarðvík - Keflavík 70:71
íþróttahúsið í Njarðvík:
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 4:10, 11:12,
19:23, 19:29, 26:36, 30:38, 40:40, 45:48,
53:53, 68:63, 70:65, 70:71.
Stig Njarðvíkur: Petey Sessoms 29, Páll
Kristinsson 12, Örlygur Sturluson 10, Frið-
rik Ragnarsson 8, Teitur Örlygsson 6, Logi
Gunnarsson 4, Örvar Kristjánsson 1.
Fráköst: 28 í vöm - 8 i sókn.
Stig KefIavíkur:Guðjón Skúlason 17, Dana
Dingle 16, Sæmundur Oddsson 14, Kristján
Guðlaugsson 11, Gunnar Einarsson 6, Al-
bert Óskarsson 5, Gunnar Stefánsson 2.
Fráköst: 26 í vöm - 9 í sókn.
Dómarar: Rögnva'.dur Hreiðarsson og
Kristinn Albertsson sem dæmdu vel.
Villur: Njarðvík 15 - Keflavik 18.
Áhorfendur: Um 350.
ÍA - KR 75:62
Iþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi:
Gangur leiksins: 0:4, 6:4, 12:10, 17:13,
21:15, 27:27, 29:30, 34:36, 44:45, 50:49,
55:50, 60:52, 70:60, 75:62.
Stig í A: Damon Johnson 39, Bragi Magnús-
son 20, Sigurður Elvar Þórólfsson 6, Brynj-
ar Sigurðsson 4, Alexander Ermolinskij 3,
Dagur Þórisson 3.
Fráköst: 29 í vörn - 8 í sókn.
Stig KR: Hermann Hauksson 21, Keith
Vassell 18, Nökkvi Már Jónsson 8, Ósvald-
ur Knudsen 8, Ingvar Ormarsson 4, Marel
Guðlaugsson 2, Baldur Ólafsson 1.
Fráköst: 24 í vöm - 10 í sókn.
Dómarar: Jón Bender og Björgvin Rúnars-
son.
Villur: ÍA 24 - KR 17.
Áhorfendur: Ríflega 200.
UMFS - UMFT 80:70
íþróttahúsið í Borgamesi:
Gangur Ieiksins:2:0, 8:2, 16:11, 20:20,
29:33, 35:33, 35:35, 47:47, 58:56, 72:65,
75:68, 80:70.
Stig Skallagríms: Bernard Gamer 29,
Bragi Magnússon 25, Tómas Holton 13,
Finnur Jónsson 6, Sigmar Páll Egilsson 5,
Hlynur Bæringsson 2.
Fráköst:16 í vöm - 11 í sókn.
Stig Tindastóls: Jose Maria Naranjo 18,
Torrey John 18, Amar Kárason 14, Sverrir
Þór Sverrisson 12, Láms Dagur Pálsson
3, Óli Barðdal 2, Svavar Birgisson 2, tsak
Einarsson 1.
Fráköst: 11 í vöm - 12 I sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar
Einarsson, góðir.
ViIIur: Skallagrímur 13 - TindastóII 19.
Áhorfendur: 230.
Þór-Haukar 62:93
íþróttahöllin, Akureyri:
Gangur leiksins: 0:2, 7:20, 28:33, 35:44,
40:50, 48:71, 62:93.
Stig Þórs: Jesse Ratliff 20, Sigurður Sig-
urðsson 18, Einar Valbergsson 8, Davíð
Hreiðarsson 7, Hafsteinn Lúðvíksson 4,
Böðvar Kristjánsson 3, Þórður Steinþórsson
2.
Fráköst: 12 í vörn - 8 í sókn.
Stig Hauka: Pétur Ingvarsson 22, Sherrick
Simpson 22, Sigfús Gizurarson 15, Björg-
vin Jónsson 8, Baidvin Johnsen 6, Ingvar
Guðjónsson 5, Davíð Ásgrímsson 4, Daníel
Árnason 4, Þorvaldur Amarson 4, Leifur
Leifs 3.
Frákðst: 17 í vörn - 10 í sókn.
Villur: Þór 16 - Haukar 21.
Áhorfendur: 61.
Dómarar: Steingrimur Herbertsson og
Eggert Aðalsteinsson.
1. deild kvenna
IR-UMFG........................28:68
íþróttahús Seljaskóla, 1. deild kvenna í
körfuknattleik, fimmtudaginn 8. janúar:
Gangur leiksins: 4:6, 10:13, 14:19, 16:26,
18:33, 18:42, 20:52, 22:64, 28:68.
Stig IR: Gunnur Ósk Bjamadóttir 12, Jó-
friður Halidórsdóttir 6, Þórunn Bjarnadóttir
5, Gurðún Ama Sigurðardóttir 4, Tinna
B. Sigmundsdóttir 1.
Fráköst: 16 í vörn - 5 í sókn.
Stig UMFG: Birna Valgarðsdóttir 19, Anna
Dís Sveinsbjömsdóttir 15, Penni Peppas 15,
Rósa Ragnarsdóttir 13, Sóley Pálsdóttir 4,
Sólveig Gunnlaugsdóttir 2.
Fráköst: 25 í vöm - 13 f sókn.
Dómarar: Ámi Freyr Sigurlaugsson og
Magnús Orri Sæmundsson.
yillur: ÍR 6 - UMFG 11.
Áhorfendur: 39.
Meistaradeild Evrópu
E-riðill:
Ankara, Tyrklandi:
Telekom - Maccabi Tel Aviv.........67:79
Mirko Milicevic 15, Sergei Bazarevich 11 -
Oded Katash 20, Doron Shaeffer 18.
10.000.
Split, Króatíu:
Split-Efes Pilsen..................82:93
F-riðill:
Moskva, Rússlandi:
CSKA - PAOK........................78:48
Valery Daineko 22, Sergei Panov 17 - Pre-
drag Kinis 20, Ronald Rowan 14. 4.000.
Limoges, Frakklandi:
Limoges - Benetton.................69:68
Jerome Allen 16, Nenad Markovic 14, Grant
Gondrezick, Jose Montero 9 - Zeljko Re-
braca 26, Henry Williams 18, Andrea Nicc-
olai 9. 3.000.
G-riðill:
Ljubljana, Slóveníu:
Olimpija - Barcelona...............92:60
John Taylor 16, Dusan Hauptman 15,
Slavko Duscak 12 - Aleksandar Djordjevic
20. 3.500.
Berlín, Þýskalandi:
Alba Berlín - Pau Orthez...........66:55
Henning Hamisch 17, Wendell Alexis 16 -
Ronnie Smith 12. 6.325.
París, Frakklandi:
PSG - Kinder Bologna...............62:72
H-riðill:
Istanbúl, Tyrklandi:
Ulkerspor - Teamsystem Bologna ...83:69
Hamn Erdenay 27, Michael Anderson 20 -
Carlton Myers 15, Dominic Wilkins 14.
10.000.
Belgrad, Júgóslavlu:
Partizan - Cibona Zagreb...........70:78
Dejan Tomasevic 22, Aleksandar Cubrilo
13, Haris Brkic 11 - Veljko Mrsic 19, Gord-
an Giricek 14, Damir Mulaomerovic 13.
7.000.
NBA-deildin
Toronto - Orlando...............81:83
W ashington - Boston..........110:108
New York - New Jersey...........89:88
■Eftir framlengingu.
Miami - Chicago.................99:72
Minnesota - Phoenix.............77:92
San Antonio - Denver............96:89
Portland - Charlotte............89:91
LA Clippers-Vancouver.........110:102
Golden State - Atlanta.........86:106
LA Lakers - Milwaukee.........114:102
ÍShokkí
NHL-deildin:
Montreal - Boston.................1:2
New Jersey - Pittsburgh...........3:!
Tampa Bay - Toronto...............2:5
Dallas - Ottawa...................0:2
Edmonton - Florida................3:2
Vancouver - St Louis..............2:3
Anaheim - Buffaio.................2:3
Knattspyrna
Meistarar meistaranna:
Fyrri leikur:
Barcelona - Dortmund...........2:0
Luis Enrique Martinez 8., Rivaldo 61. vsp.
25.000.
Barcelona: Ruud Hesp; Winston Bogarde,
Albert Celedes, Michael Reiziger (Abelardo
Fernandez), Albert Ferrer; Sergi Baijuan,
Ivan de la Pena; Rivaldo (Giovanni 86.),
Luis Enrique Martinez, Luis Figo (Hristo
Stoichkov 86.); Sonny Anderson
Borussia Dortmund: Stefan Klos; Martin
Kree, Rene Schneider (Knut Reinhardt),
Manfred Binz, Jorg Heinrich; Wolfgang But
(Michael Zorc 77.), Lars Ricken, Steffan
Freund; Ibrahim Tanko (Stephane Chapuis-
at 58.), Jovan Kirovski, Harry Decheiver.
Ítalía
Fyrri leikur i undanúrslitum bikarkeppninn-
ar:
AC Milan - Inter...............5:0
Demetrio Albertini 29. vsp., Maurizio Ganz
32., Dejan Savicevic 44., Francesco Colo-
nesse 46. sjálfsmark, Steinar Nilsen 59.
36.805.
Skíði
Heimsbikarinn
Schladming, Austurríki:
Svig karla:
1. Alberto Tomba (ítalfu).......1:34.12
(46.03/48.09)
2. Thomas Sykora (Austurriki)...1:35.01
(46.90/48.11)
3. Hans Petter Buraas (Noregi)..1:35.29
(46.67/48.62)
4. Fábrizio Tescari (ítalfu)....1:35.36
(46.65/48.71)
5. Joel Chenal (Frakkl.)........1:35.49
(47.43/48.06)
6. Andrej Miklavc (Slóveníu)....1:35.50
(46.76/48.74)
7. Ole Christian Furuseth (Noregi) ...1:35.51
(47.03/48.48)
8. Jure Kosir (Slóveníu)........1:35.55
(47.25/48.30)
9. Kiminobu Kimura (Japan)......1:35.76
(47.39/48.37)
10. Siegfried Voglreiter(Austurr.)...1:35.92
(47.09/48.83 )
Staðan í sviginu
1. Sykora..........................260
2. Jagge...........................189
3. Stangassinger...................173
4. Hans-Petter Buraas..............160
5. Tomba...........................150
6. JoelChenal.................... 117
15. Kristinn Björnsson..................80
Staðan í heildarstigakeppninni:
1. Hermann Maier (Austurr.)........819
2. Stefan Eberharter (Austurr.)....508
3. Michael Von Grúnigen (Sviss)....456
4. Andreas Schifferer (Austurr.)...446
5. Kjetil Andre Aamodt (Noregi)....385
Keflavík „stal“
sigri í Njarðvík
Keflvíkingar „stálu“ sigrinum
frá Njarðvíkingum þegar lið-
in mættust í nágrannaslag í
„Ljónagryfjunni" í
Njarðvík í gær-
Btöndal kvöldi Þegar úrvals‘
skrifar deildin hófst að nýju
eftir jólafrí. Allt
virtist stefna í sigur hjá Njarðvík-
ingum sem höfðu 5 stiga forystu
70:65 þegar rúmar tvær minútur
voru til leiksloka. En þeir héldu
afar illa á spilunum á þessum síð-
ustu mínútum og máluðu sig út í
horn og misstu þannig boltann í
þrígang. Meira þurftu Keflvíkingar
ekki og Albert Oskarsson setti sig-
urkörfuna á lokasekúndunum við
mikinn fögnuð áhangenda Keflvík-
mga sem þar með sigruðu 71:70.
í hálfleik var staðan 30:38.
„Það var vitaskuld sárt að tapa
þessum leik en við gerðum okkur
seka um taktísk mistök undir lok
leiksins sem kostuðu okkur sigur-
inn,“ sagði Friðrik Rúnarsson
þjálfari. Fyrri hálfleikur var ekki
sérlega skemmtilegur á að horfa
þar sem bæði lið léku fast og mik-
ið af villum var dæmt. Þetta breytt-
ist í síðari hálfleik sem var af allt
öðrum og betri gæðaflokki. Kefl-
víkingar náðu fljótlega frumkvæð-
inu og um tíma náðu þeir 10 stiga
forystu í fyrri hálfleik.
I hálfleik munaði 8 stigum en
Njarðvíkingar komu ákveðnir til
leiks að nýju og þeir voru ekki lengi
að jafna 40:40. Eftir það skiptust
liðin á um forystuna þar til að leiks-
lokum dró. Þá náðu Njarðvíkingar
góðum kafla og allt virtist stefna
í sætan sigur sem síðan breyttist
í vonbrigði og eftir sátu Njarðvík-
ingar með sárt enni á meðan Kefl-
víkingar fögnuðu óvæntum endi.
Framganga ungu mannanna,
' Örlygs Sturlusonar og Loga Gunn-
arssonar, vakti mesta athygli og
hversu fljótt og vel þeir hafa lagað
sig að því að leika í efstu deild.
Petey Sessoms lék vel og setti 29
stig. Teitur Örlygsson var í
strangri gæslu og hann náði sér
ekki á strik fyrr en undir lok leiks-
ins. Páll Kristinsson var einnig
góður.
Ungu leikmennirnir hjá Keflvík-
ingum stálu líka senunni frá þeim
eldri að þessu sinni. Sæmundur
Oddsson átti afbragðsleik og
Gunnar Stefánsson stóð sig líka
vel. Guðjón Skúlason var að venju
stigahæstur og þeir Dana Dingle,
Kristján Guðlaugsson og Albert
Óskarsson stóðu líka fyrir sínu.
Garðar Páll
Vignisson
skrifar
Grindvíkingar áfram efstir
Það reiknuðu sennilega flestir
með auðveldum sigri heima-
manna þegar Valsmenn heimsóttu
Grindavík í gær-
kveldi. Gestirnir
voru ekki á sama
máli og spiluðu
mjög vel en heima-
menn voru of sterkir til að tapa
þessum leik. Grindvíkingar unnu
nokkuð sannfærandi sigur, 102:93,
eftir að hafa haft 20 stiga forystu
um miðjan seinni hálfleik.
Gestirnir voru mjög sprækir og
ákveðnir. Ljóst er að Valsliðið fer
að taka inn stigin enda með mjög
gott lið. Valsmenn áttu mörg góð
hraðaupphlaup í fyrri hálfleik sem
heimamönnum tókst illa að ráða
við. Heimamenn sýndust frekar
þungir en Valsmenn þeim mun
snarpari. Það var einungis fyrir
góðan leik Grikkjans í liði Grinda-
víkur, Konstantionos Tsartsaris,
að heimamenn héldu velli í fyrri
hálfleik. Það er með ólíkindum hve
erfitt það veitist andstæðingum að
skjóta nálægt körfunni með
Grikkjann fyrir framan sig. Þá
glöddu ungu mennirnir, Guðlaugur
Eyjólfsson í Grindavík og Guð-
mundur Björnsson í Val, augað
með góðum leik.
Heimamenn náðu mest 12 stiga
forskoti í fyrri hálfleik og staðan
í leikhléi var 50:42. Valsmenn neit-
uðu að gefast upp og héldu í við
heimamenn fram að miðjum seinni
hálfleik en þá kom mikil rispa hjá
heimamönnum sem náðu 20 stiga
forskoti í stöðunni, 77:57. Þetta
var of mikill munur fyrir Valsmenn
og heimamenn léku á hálfum hraða
það sem eftir lifði leiks.
Warren Peeples, erlendi leik-
maðurinn í liði Vals, átti stórleik
og spilaði samheija sína vel uppi
auk þess að skora mikið. Þá átti
Guðmundur Björnson og Bergur
Emilsson mjög góðan leik. Hjá
heimamönnum voru auk áður-
nefndra leikmanna Helgi Jónas og
Pétur mjög góðir. Darryl skilaði
sínu mjög vel að venju en hefur
þó oft spilað betur.
Skallagrímur vann Tindastól
Lið Skallagríms kom sjálfsagt
mörgum á óvart er því tókst
að vinna Tindastól í Borgarnesi
eftir jafnan og
spennandi leik,
lokatölur 80:70. I
byijun var leikurinn
dæmigerður nýárs-
leikur. Leikmenn ráðvilltir, óör-
Ingimundur
Ingimundarson
skrifar
uggir og ónákvæmir. Þetta átti
sérstaklega við um gestina. Bæði
lið voru án lykilmanna vegna
meiðsla. Meðaldur Skallagríms-
liðsins hefur aldrei verið lægri en
ungu strákarnir stóðu fyrir sínu.
Heimamenn skoruðu fyrstu stigin
en gestirnir jöfnuðu strax.
Fyrri hálfleikur var lítið fyrir
augað en baráttan í algleymingi.
Heimamenn gerðu sig seka um að
tapa oft boltanum, en gestirnir
gátu sjaldan nýtt sér þau mistök.
Fast var barist í vörninni og Bernd-
ard í liði Skallagríms hélt Torry
John alveg niðri í fyrri hálfleik.
Mest bar á Sverri Þór í liði Tinda-
stóls sem barðist af krafti frá upp-
hafi. Staðan í hálfleik var 35:33.
Gestimir jöfnuðu strax í byijun
seinni hálfleiks og er líða tók á fór
að losna meira um Jose Maria og
Torry John er skoruðu mikilvæg
stig. Þegar rúmar fimm mín. voru
eftir gerði Finnur Jónsson þriggja
stiga körfu og Tómas Holton aðra
rétt á eftir. Eftir jafnan leik og
miklar sviptingar voru heimamenn
skyndilega komnir með vænlega
stöðu, 67:61.
Það var sem örvænting. gripi
gestina, sem reyndu vafasöm skot
en fátt eitt gekk. Er mínúta var
til leiksloka kom Tómas Holton
stöðunni í 77:68. Sigmar Páll Eg-
ilsson skoraði körfu með miklu
harðfylgi er 3,9 sek voru eftir.
Fékk dæmda villu og innsiglaði
sigurinn með því að skora úr báð-
um vítunum.
í liði Skallagríms voru Bernhard
Gamer, Bragi Magnússon og Tóm-
as góðir. Sigmar og Finnur gerðu
góða hluti. Arnar Kárason, Jose
Maria, Sverrir Þór, Torry John og
Lárus Dagur báru upp lið Tinda-
stóls sem lék langt undir eðlilegri
getu.
Tómas Holton þjálfari og leik-
stjórnandi Skallagríms var að von-
um ánægður með sigurinn. „Við
æfðum vel um jólin og erum tilbún-
ir í seinni hluta mótsins. Það er
sama hveijir koma hingað, við
höfum alltaf trú á að við getum
unnið. Ungu mennirnir lögðu sig
alla fram og virðast fá aukið sjálfs-
traust þegar þeim er ætlað að
koma í stað reyndra leikmanna."
Of langt jólafríl
Hann var ekki burðugur leikur
ÍA og KR í gærkvöldi sem
lauk með 75:62 sigri heimamanna.
Bæði lið virtust
koma sein, hug-
Ottesen myndasnauð og
skrifar óhittin til leiks eftir
jólafrí og var fyrri
hálfleikurinn með þeim daprari
sem hér hafa sést. Gestirnir höfðu
30:29 yfir í leikhléi en heimamenn
voru yfir lengst af fyrri hálfleiks.
Heldur rofaði til í seinni hálfleik
en leikurinn komst þó aldrei á það
plan að verða meira en þokkalega
leikinn. Síðari hálfleikur einkennd-
ist af miklu taugastríði og var
aðdáunarvert að sjá hve vel
Skagamenn héldu það út en leik-
menn voru komnir í bullandi villu-
vandræði.
Það má segja að lið KR hafi
komið á óvart því það státar af
mörgum mjög góðum leikmönnum
sem virðast engan veginn ná sam-
an. Eins og oft áður var til-
hlökkunarefnið að sjá nýja útlend-
inginn í liði gestanna en mikil
voru vonbrigðin með Keith Vass-
ell í fyrri hálfleik. Það getur þó
ekki talist sanngjarnt að dæma
manninn af fyrsta leiknum með
nýju liði auk þess sem honum gekk
talsvert betur í síðari hálfleik og
hafði skorað 18 stig áður en yfir
lauk.
Hjá Skagamönnum var Damon
Johnson yfirburðamaður. Bjarni
Magnússon var einnig sprækur á
köflum. Hjá KR var Hermann
Hauksson bestur og Nökkvi Már
Jónsson lét aðeins finna fyrir sér
í seinni hálfleik.
Auðvelt hjá Haukum
Haukar unnu auðveldan sigur
á Þór, 93:62, á Akureyri.
Þetta var enginn tímamótaleikur,
Þórsarar langt frá
sínu besta og til
marks um slakan
skrifar soknarleik þeirra
töpuðu norðan-
menn knettinum 27 sinnum í leikn-
um, þar af 15 sinnum í fyrri hálf-
leik.
Haukar byrjuðu mun betur,
náðu mjög öruggri forystu en
Þórsarar náðu reyndar að minnka
muninn niður í fimm stig. Munur-
inn var þó níu stig í leikhléinu en
eftir hlé sögðu gestirnir bless;
kvöddu gestgjafa sína með mjög
góðum kafla og sigruðu ákaflega
sanngjarnt.
Þórsarar, sem voru á ágætis
siglingu fyrir jól, þurfa greinilega
að fara að setjast niður og hugsa
sinn gang að nýju.
Haukar voru ekki mjög gæfuleg-
ir framan af en tóku sig svo saman
í andlitinu og nældu auðveldlega í
tvö stig. Pétur Ingvarsson var besti
maður vallarins; hann lætur það
engin áhrif hafa á sig þó svo áhorf-
endur sendi honum glósur - heldur
sínu striki og var besti maður vall-
arins í gærkvöldi.
Jón Arnar Ingvarsson lék ekki með
Haukum, er farinn til Belgíu þar
sem hann hefur samið við Castors
Braine, en Pétur hélt sannarlega
uppi merki fjölskyldunnar.
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 C 3
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Golli
BIRGIR Örn Birgisson reynir hér skot að körfu Njarðvíkinga en Petey
Sessoms er til varnar.
Slæmt tap
Chicago
Allir fimm leikmenn byijunarliðs
Miami Heat skoruðu 10 stig eða
meira þegar liðið tók á móti Chicago
Bulls í fyrrinótt. Þetta dugði til að
ieggja meistarana 99:72 og er þetta
versta tap Bulls í vetur. Jamal Mas-
hburn var með 18 stig, Tim Hardaway
17 auk 13 stoðsendinga, Alorizo Mo-
urning var með 16 stig og 8 fráköst,
P.J. Brown 12 stig og átta fráköst.
Hjá Chicago var Jordan stigahæstur
með 26 stig en hann hitti úr 12 af 27
skotum sínum. Dennis Rodman gerði
10 stig og tók 17 fráköst, en þess má
geta að þetta var aðeins annað tap
Chicago í síðustu þrettán leikjum.
Phoenix Suns er komið á mikla sig-
lingu og átti ekki í vandræðum er liðið
heimsótti Minnesota, sigraði 92:77 og
var þetta áttundi sigur liðsins í síðustu
tíu leikjum. Antonio McDyess gerði 22
stig og Rex Chapman 15 en þess má
geta að gestirnir fóru á kostum í síð-
asta leikhluta því staðan var 61:61
snemma í þeim leikhluta. Þá tóku gest-
irnir sig á og skoruðu 13 stig gegn
fjórum stigum heimamanna.
Það var hörkuleikur þegar New
York Knicks tók á móti New Jersey
Nets og þurfti að framlengja til að
knýja fram úrslit. Allan Houston jafn-
aði fyrir Knicks með þriggja stiga skoti
er 7,7 sekúndur voru eftir af leiknum
og því varð að framlengja. Það var
síðan Chris Childs, fyrrverandi leik-
maður Nets, sem tryggði sigur Knicks
með ævintýralegu sniðskoti er 6,3 sek-
úndur voru eftir af framlengingunni.
Denver Nuggets náði þeim „merka“
áfanga að tapa 15. leiknum í röð er
liðið heimsótti Spurs og tapaði 96:89.
árið 1993 tapaði liðið 14 leikjum í röð.
Nuggets á metið hvað þetta varðar,
30 tapleikir ogtveir sigurleikir, ogjafn-
aði það í fyrrinótt og gæti hæglega
náð að slá það ef svo heldur fram sem
horfir.
Chris Webber gerði 30 stig og tók
10 fráköst þegar Washington hélt upp-
teknum hætti á heimavelli og sigraði.
Að þessu sinni voru gestirnir lið Boston
og urðu þeir að játa sig sigraða 110:108
þrátt fyrir stórleik Antoine Walkers
sem gerði 49 stig. Hinn 21 árs gamli
Walker jafnaði þar með stigametið í
einum leik í deildinni í vetur og jafn-
aði met Boston, Larry Bird gerði 49
stig í einum leik árið 1992.
LYFJAMAL
Tollverðirfundu 26 lyfjaglös falin ífar-
angri kínversks sundmanns í Sydney
Skjaldböku-
súpaeða
vaxtar-
hormón?
Við leit í farangri kínversku sund-
konunnar Yuan Yuan við kom-
una til Sydney í Ástralíu í gær fund-
ust 26 lyfjaglös falin í brúsum sem
vöktu athygli tollvarða. Svo virðist
sem ýmislegt bendi til þess við að
helmingur glasanna innihaldi vaxtar-
hormóna. Vamingurinn var gerður
upptækur og er nú í rannsókn hjá
sérfræðingum Alþjóða sundsam-
bandsins og tollayfirvöldum í Sydney.
Þetta mál kemur upp á versta tíma
því keppni í sundi á heimsmeistara-
mótinu hefst eftir helgi og víst að
þessi fundur mun hafa áhrif á kín-
versku sundmennina utan Iaugar sem
ofan í. Um leið rennir það stoðum
undir getgátur þess efnis að kínversk-
ir sundmenn hafí óhreint mjöl í poka-
horninu og stórgóður árangur þeirra
og heimsmet á síðustu árum séu feng-
in með hjálp ólöglegra lyfja.
Séu þetta ólögleg efni sem fundust
Þorvaldur
til Öster
ÞORVALDUR Makan Sig-
björnsson, miðheiji Leifturs,
hefur skrifað undir þriggja ára
samning við sænska liðið Óster,
þar sem hann leikur við hlið
Stefáns Þórðarsonar. Fyrir utan
þá tvo leika sjö aðrir íslenskir
knattspymumenn með sænsk-
um 1. deildarliðum - Arnór
Guðjohnsen, Hlynur Birgisson
og Gunnlaugur Jónsson með
Örebro, Pétur Marteinsson og
Pétur Björn Jónsson með
Hammarby, Birkir Kristinsson
með Norrköping og Einar
Brekkan með Vesteráas.
hjá Yan er það ekki talið síður vatn
á myliu þeirra sem vilja halda í flög-
urra ára keppnisbann yfir þeim sund-
mönnum sem verða uppvísir að notk-
un þeirra, en háværar kröfur voru á
þingi Alþjóða sundsambandsins á
dögunum að bannið yrði stytt í tvö ár.
Yuan þvertekur fyrir að eiga efnin
og segir þau vera eign þjálfara síns,
en ekkert hefur fengist upp um hvað
hann ætlaði sér að gera með þau og
af hveiju hann hafði þau ekki með
sínum eigum. Helmingur þessara 26
glasa sem fundust voru merkt sem
saltupplausn en hinn helmingurinn
er talinn vera hormónaefni, so-
matropin, ef marka má merkingar á
þeim. Það efni má nota í stað ana-
bolískra steralyfja til þess að byggja
upp vöðva. Somatropin er vaxtar-
hormón sem hefur áhrif á prótein-,
sykur- og fituupplausn í líkamanum
og getur því verið notað til að byggja
upp vöðva.
Kínveijar hafa ekkert viljað láta
hafa eftir sér um málið en kínversk-
ur blaðamaður hafði eftir forráða-
mönnum liðsins að í glösunum væri
skjaldbökusúpa.
Innflutningur á hormónalyfjum til
Ástralíu er bannaður nema með sér-
stöku leyfi frá heilbrigðisyfirvöldum
þar í landi, þannig að ljóst er að
Kínveijar sitja illa í súpunni sé það
staðreynd að þarna sé á ferðinni
hormónaefni.
„Við höfum sent efnin til rann-
sóknar og þegar niðurstaða liggur
fyrir grípum við til viðeigandi að-
gerða,“ sagði aðili hjá tollayfirvöld-
um í Sydney.
Þrátt fyrir að ekki hafi verið sann-
að enn að þetta sé hormónaefni slógu
ýmsir því föstu strax og það þlakk-
aði í Don Talbot, aðalþjálfara Ástral-
íu, en hann hefur opinberlega sakað
Kínveija um svindl.
Goldin
kemur ekki
'[ GÆR skýrðist það endan-
lega að Vladimir Goldin leik-
ur ekki meira með KA á þess-
ari leiktíð í handknattleikn-
um. Hann fór til Hvíta-Rúss-
lands nokkru fyrir jól til þess
að sinna herskyldu sem hann
hafði talið sig hafa fengið
leyfi frá fram á næsta vor.
Hins vegar vaknaði veik von
fyrir nokkru að Goldin fengi
leyfl og kæmi á ný til liðs við
KA í ársbyijun, sú von slokkn-
aði í gær. „Hann verður að
sinna herskyldunni og kemur
ekki,“ sagði Atli Hilmarsson,
þjálfari KA, í gær. „Það er
vissulega slæmt að hafa hann
ekki, en á móti kemur allir
mínir menn eru heilir nú eftir
erfið meiðsli. Þeir hafa náð
góðri stöðu í deildinni og
halda örugglega sínu striki.“
Jafntefli hjá
Wuppertal
„ÞAÐ má segja að við höfum .
verið klaufar að sigra ekki,
en að vissu leyti má einnig
segja að við höfum verið
heppnir að tapa ekki,“ sagði
Geir Sveinsson, leikmaður
Wuppertal, eftir 22:22-jafn-
tefli á heimavelli gegn Minden
í gærkvöldi í fyrsta leik 17.
umferðar þýsku 1. deildarinn-
ar í handknattleik. „Við vor-
um með forystu 18:14 upp úr
miðjum hálfleik, en misstum
leikinn niður í jafnt 20:20 en
tókst að komast yfir 22:20
áður en þeir jöfnuðu. Þegar
15 sekúndur voru til leiksloka
var dæmt leiktöf á okkur og
leikmenn Minden geystust
upp en við náðum að veijast
og halda jöfnu.“
Eftir þetta er Wuppertal í
10. sæti með 14 stig en Mind-
en er með einu stigi fleira og
er í 7. sæti en nýög jafnt er
á með nokkrum liðum um
rniðbik deildarinnar.
Geir Sveinsson, Ólafur
Stefánsson, Dmítrí Filippow
og Sjiir Tollefsen voru marka-
hæstir fajá Wuppertal, með 4
mörk hver, Ólafur gerði eitt
úr vítaksti. Stefan Schöne lék"
með Wuppertal eftir að hafa
verið lengi frá vegna meiðsla
í hásin, hann gerði 3 mörk.
ENSKA KNATTSPYRNA / SJONVARP
íslenska útvarpsfélagið
með einkarétt til 2001
Islenska útvarpsfélagið, sem rekur
Stöð 2 og Sýn, hefur tryggt sér
einkarétt á útsendingum á öllum
leikjum í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í þijú ár frá og með
komandi hausti. IÚ er með þennan
rétt á líðandi tímabili en eins og
fram hefur komið keypti fjölmiðla-
fyrirtækið Canal+ alheimsréttinn
af Knattspyrnusambandi Englands
fyrir tímabilið 1998 til 2001 með
framlengingarákvæði til 2004 og
greiddi 110 millj. punda fyrir rétt-
inn. ÍÚ er fyrsta fyrirtækið sem
tryggir sér einkarétt fyrir útsend-
ingarsvæði sitt með beinum samn-
ingum við Canal+.
„Við erum mjög ánægðir með
að þessi samningur skuli vera í
höfn,“ sagði Hreggviður Jónsson,
forstjóri IÚ, á blaðamannafundi.
„Þetta er sigur fyrir áskrifendur
okkar,“ bætti hann við en sagði að
þar sem ekki hefði enn tekist að
semja við Landsíma íslands um
dreifingu um allt land næðu ekki
allir útsendingunum - Stöð 2 næði
til um 98% landsmanna og Sýn til
um 90%. Því væri brýnt að ná samn-
ingum sem fyrst og loka hringnum
og að því væri stefnt.
í samningi ÍÚ við Canal+ fylgja
ströng ákvæði um endurnýjunar-
skilmála en samningurinn nær til
allra útsendinga, bæði í opinni og
læstri dagskrá, og bannar því alla
aðra dreifingu á leikjum í keppninni
í sjónvarpi á Íslandi.
Auk þess að sýna frá ensku úr-
valsdeildinni á líðandi tímabili er ÍÚ
með einkarétt á íslandi á leikjum
Ensku bikarkeppninnar og deilda-
bikarkeppninnar til 2000. Ennfrem-
ur sýnir fyrirtækið frá Meistara-
deild Evrópu og ítölsku knattspym-
unni. „Samningaviðræður við
Canal+ tóku mjög skamman tíma
og við lítum á samninginn sem
traustsyfirlýsingu - að við séujn
betri en aðrir - og emm stoltir af
því,“ sagði Páll Baldvin Baldvins-
son, dagskrárstjóri. Hann bætti við
að um stærsta samning fyrirtækis-
ins væri að ræða. Spurður um hvað
greitt hefði verið fyrir réttinn sagði
hann að verðið væri sanngjarnt og
eðlilegt og ekki hefði verið um veru-
lega hækkun að ræða frá fyrri
samningi en vildi að öðm leyti ekki
fara nánar út í tölur. Hins vegar
er ljóst að verið er að ræða um
tugi milljóna króna.
Til þessa hafa að jafnaði verið
þijár beinar útsendingar frá ensKa
boltanum á Stöð 2 og Sýn vikulega
en með samningnum er gert ráð
fyrir að útsendingum fjölgi enn frá
og með næsta hausti. ÍÚ fyrirhugar
að stofna sérstaka íþróttarás á ár-
inu og kemur enska knattspyrnan
til með að vega þungt í dagskrá
nýju stöðvarinnar. .