Morgunblaðið - 09.01.1998, Side 4

Morgunblaðið - 09.01.1998, Side 4
SKÍÐI / HEIMSBIKARKEPPNIN Arnór ekki með ARNÓR Gunnarsson frá ísa- fírði átti að keppa í heimsbik- armótinu í svigi í Schladming í Austurríki f gær, en þegar til kom fékk hann ekki að vera með. Ástæðan var sú að skráning hans hafði ekki borist frá SKÍ til mótshald- ara í tæka tíð. Kristinn Svanbergsson, framkvæmdastjóri Skíðasam- bandsins, sendi skráningu Arnórs í súnbréf til móts- haldara á þriðjudag og hringdi sfðan strax á eftir tii áð fá það staðfest að bréfið hefði borist. Þegar dregið var um rásröð keppenda í fyrrakvöld kom í Ijós að nafn hans var ekki á listauum yfir keppendur á mótinu. Christi- an Leitner þjálfari gerði strax athugasemd við það en skráning hans fannst ekki. ,JÞeir í mótstjórninni sögðu að skráningin hefði ekki komið inn á borð til þeirra fyrr en rétt. fyrir mótið í gær og þá hefði það verið of seint því þá var biíið að draga um rásröð keppenda. Ég skii þetta klúður ekki og sendi bréf til þeirra strax í gær og óskaði eftir að þeir sendu okkur afsökunarbeiðni vegna þessa,“ sagði framkvæmda- stjóri SKÍ. Reuter ALBERTO Tomba hafði mikla yfirburði f svigi heimsbikarsins sem fram fðr f flóðljósum f Schladming f Austurrfki í gærkvöldi. Hann var með besta tímann f báðum umferðum og vann þar með fyrsta sigurinn í vetur og jafnframt 49. sigur sinn í heimsbikamum. Tomba stóð við stóru orðin Alberto Tomba kom eins og stormsveipur til Schladming og stal sennunni í svigi heimsbik- arsins í gær, eins og hann hafði lofað daginn áður. Hann var með besta brautartímann í báðum um- ferðum og sýndi að hann er kom- inn í góða æfingu og verður að teljast til alls líklegur á Ólympíu- leikunum í Nagano í næsta mán- uði. Þetta var fyrsti sigur hans í vetur og má segja að hann hafi komið á góðum tíma. Glaumgosinn Tomba kann vel við sig í sviðsljósinu, enda komu um þrjátíu þúsund áhorfendur til að fylgjast með keppninni. Hann er ávallt bestur undir slíkum kringumstæðum. Síðasti sigur hans í heimsbikarnum var einmitt í sömu brekku, Planai-brautinni, í Schladming fyrir ári. Hann var tæpri sekúndu á undan Austur- ríkismanninum Thomasi Sykora. Norðmaðurinn ungi Hans-Petter Buraas náði þriðja sæti eins og hann gerði líka í Sestriere í des- ember. „Ég þurfti verulega að hafa fyrir sigrinum,“ sagði hinn 31 árs gamli Itali sem var að vinna 49. heimsbikarmótið á ferlinum. „Sigurinn hér í fyrra var mun auðveldari fyrir mig. Ég var mjög þreyttur enda brautirnar erfiðar. Ef brekkurnar eru eins vel undir- búnar og þessi get ég alltaf náð góðum árangri. Það var einnig mikið álag á mér því ég fékk harða keppni frá hinum strákun- um og eins bjuggust flestir áhorf- endur við að ég sigraði. Það er oft erfitt að standa undir væntingum en ég er orðinn vanur því. Ég æfði mjög vel í sumar og það er að skila sér núna í góðum ár- angri,“ sagði Tomba sem var heimsbikarmeistari 1995. Besti árangur hans í svigi í vetur fyrir mótið í gær var fjórða sætið í Sestriere, en þar var einnig keppt í flóðljósum. „Ég elska að keppa í flóðljósum." „Hann [Tomba] er kominn aft- ur er það eina sem ég get sagt,“ sagði Thomas Sykora, sem varð annar. Hann var með sjötta tím- ann í fyrri umferð en keyrði sig upp í annað sætið í síðari umferð- inni. „Ég er ánægður með úrslitin en þarf greinilega að fara keyra meira í fyrri umferð," sagði Sykora sem vann fimm svigmót síðasta keppnistímabil. Næstu heimsbikarmót verða í Schladming á laugardag og sunnudag. Þá verður tvívegis keppt í stórsvigi. Alberto Tomba Fæddur; 19. desember 1966 í Lazzaro di Savenna á Ítalíu. Hæð: 1,82 m. Þyngd: 93 kg. Sigrar í heimsbikarnum: 49 alls. Svig: (34 talsins) - Sestriere (1988, ‘91, ‘92, ‘94, ‘95), Madonna (‘88, ‘89, ‘96), Kranjska Gora (‘88, ‘92, ‘96), Bad Kleinkirchheim (‘88), Áre (‘88), Oppdal (‘88), Waterville (‘90), Geilo (‘90), Salen (‘90), Park City (‘92), Kitzbiihel (‘92, ‘95), Wengen (‘92, ‘95), Crans Montana (‘92), Garmisch (‘93, ‘94, ‘95), Stoneham (‘94), Chamonix (‘94), Tignes (‘95) Lech I (‘95), Lech II (‘95), Flachau (‘96), Schladming (‘97, ‘98).Stórsvig: (15) - Sestriere (‘88), Alta Badia (‘88, ‘91, ‘92, ‘95), Saas Fee (‘88), Kranjska Gora (‘91, ‘95), Lillehammer (‘91), Aspen (‘91), Waterville (‘91), Park City (‘92), Crans Montana (‘92), Adelboden (‘95), Bormio (‘95). Aðrir sigrar: Hann er sigursælasti alpagreinamaður allra tíma á Ólympíuleikum. Hann sigraði I svigi og stórsvigi á Ólympíuleikunum í Calgary 1988. í stórsvigi á Ólympíuleikunum í Albertville 1992 og nældi í silfrið í sviginu. Tveimur árum síðar vann hann einnig silfurverðlaun á leikunum í Lillehammer. Hann varð heimsmeistari í svigi og stórsvigi í Sierra Nevada á Spáni 1996. Hann á einnig tvenn bronsverðlaun í svigi og stórsvigi frá HM 1987 og 1997. Norðmenn unnu tvöfalt NORÐMENN sigruðu bæði í kvenna- og karlaflokki í heimsbik- armótinu í skíðagöngu sem fram fór í Ramsau í Austurríki í gær. Ólymp- íumeistarinn Thomas Alsgárd sigr- aði í 15 km göngu karla með hefð- bundinni aðferð og Marit Mikkels- plass í 10 km göngu kvenna. Alsgárd var 0,9 sekúndum á und- an Finnanum Mika Myllyla, sem er heimsmeistari í 50 km göngu. Þetta var aðeins annar sigur Alsgárds frá því hann varð Ólympíumeistari í 30 km göngu með frjálsri aðferð 1994. „Ég er mjög ánægður að hafa loks sigrað í göngu með hefðbundinni aðferð. Nú veit ég að ég get jafnvel unnið Bjöm Dæhlie," sagði sigur- vegarinn. Dæhlie tók ekki þátt í mótinu vegna flensu. FOLK ■ ÍA hefiir samið til fveggja ára við knattspyrnumanninn Sigurð Ragnar Eyjólfsson, sem leikið hef- ur með Þrótti undanfarið. Sigurð- ur Ragnar er við háskólanám í Bandaríkjunum og var skömmu fyrir jól valinn í A-úrvalslið ársins, fyrstur Islendinga. ■ ÍTALSKI landsliðsmaðurinn Nicola Berti fær góð laun hjá Tottenham, eða kr. 1,8 millj. ísl. kr. í vasann á viku. ■ TOTTENHAM hætti í gær við að kaupa Andy Hinchcliffe frá Everton á þrjár millj. punda, en ganga átti frá kaupunum í gær. í læknisskoðun komu í Ijós meiðsli á hásin Hinchcliffe. ■ CURTIS Fleming, landsliðs- maður írlands, mun ekki leika næstu vikumar með Middles- brough. Hann fór í botlangaskurð í gær. ■ GRAEME Souness, þjálfari Ben- fica, vill fá Ian Wright, marka- skorarann mikla hjá Arsenal, til liðs við sig - býður honum fjögurra ára samning. ■ ARSENE Weng-er, knattspymu- stjóri Arsenal, sagði Souness að Wright væri ekki til sölu - að hann vildi að Wright myndi enda keppn- isferil sinn hjá Arsenal. ■ GORDON Strachan, knatt- spymustjóri Coventry, er ánægður með að lið Bayem Miinchen komi til Highfield Road og leiki þar vin- áttuleik 27. janúar. ■ GEORGE Grahant, knatt- spymustjóri Leeds, vill enn styrkja vöm sína með því að fá Neil Ruddock, vamarleikmann Liver- pool til liðs við liðið. ■ TOMMY Johnson, sóknarleik- maður Celtic, hefur verið lánaður til Crystal Palace út þetta keppnis- tímabil. ■ FLESTIR veðja á að Liverpool verði deildarbikarmeistari. Staðan hjá veðbönkum er þannig að Liver- pool er með 7-4, Arsenal 9-4, Chel- sea 11-4, Middlesbrough 8-1. ■ ROLLAND Courbis, þjálfari MarseiUe, tilkynnti í gær að liðið láti Fabrizio Ravanelli ekki fara til AC Milan, sem vildi fá Ravanelli til að hlaupa í skarðið fyrir George Weah, sem verður frá vegna meiðsla í tvo mánuði. ■ ÞÝSKI þjálfarinn Udo Lattek hafnaði í gær boði um að gerast landsliðsþjálfari Iran. ■ ÞÝSKA liðið 1860 Miinchen tryggði sér í gær búlgarska lands- liðsmanninn Hristo Yovov, sem lék með Levski Sofía, skrifaði undir þriggja ára samning. ■ BANDARÍSKl landsliðsmaður- inn Eric Wynalda, miðherji, hafn- aði boði frá Kaiserslautem í gær. Forráðamenn liðsins vonuðust til að Wynalda, 28 ára, vildi koma á ný til Þýskalands, en hann hafði áður leildð með Saarbriicken og Boch- um, þar sem Þórður Guðjónsson lék með honum. ■ WYNALDA, sem leikur með San Jose í Kalifomíu, sagðist verða heima fram að HM í Frakklandi, þannig að hann gæti tekið þátt í undirbúningi bandarfska landsliðs- ins af fullum krafti. Bandankin leika í riðli með Þýskalandi, íran og Júgóslavíu í HM. ■ ALEX Ferguson, knattspymu- stjóri Man. Utd., hefur nú augastað á Matt Jansen, 20 ára miðherja hjá Cariisle. ■ CARL Leahum, miðherji Charlton, er kominn tíl Wimbledon, sem borgaði 300 þús. pund fyrir hann. Joe Kinnaer, knattspymustjóri liðsins, sagði í gær að hann myndi kaupa tvo aðra leikmenn til liðsins á næstu dögum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.