Morgunblaðið - 14.01.1998, Page 1
smi __ ^
HANDKNATTLEIKUR: FRAMARAR MEÐ BESTU SKOTNYTINGUNA / B3
Heath og
Brown í mál
við Breiðablik
BLAÐ
BANDARÍSKU handknattleiksmennirnir
Darrick Heath og Derek Brown leika ekki
meira með Breiðabliki í 1. deildarkeppninni í
handknattleik.
Þeir hafa aftur á mdti hug á málsdkn, þar
sem Breiðablik hefur ekki staðið við samninga
við þá, en þeir eru samningsbundnir Breiða-
bliki út keppnistímabilið. Lögfræðingur í Sví-
þjdð, þar sem þeir ldku áður með sænska liðinu
Skövde, sér um mál þeirra.
Geir Hallsteinsson, þjálfari Breiðabliks, mæt-
ir til leiks með ungt lið, þar sem Heath, sem
skoraði 48 mörk og Brown, sem skoraði 26
mörk, verða ekki með og fjörir leikmenn eru
meiddir, Ómar Kristinsson, Ragnar Ki’istjáns-
son, Örvar Arngrímsson og Þdrodd Ottesen.
Bikarkeppni KKÍ
Grindavík
og Keflavík
drógust
saman
í GÆRKVÖLDI var dregið í
undanúrslit í bikarkeppni
Körfuknattleikssambandsins. í
kvennaflokki leika Grindavfk
og Keflavík annars vegar og ÍS
og Skallagrímur hins vegar.
Njarðvíkingar þurfa að sækja
Isfirðinga heim f karlaflokki og
Valur og Grindavfk leika á
Hliðarenda. Leikirnir fara fram
sunnudaginn 25. jamiar.
Vonast eftir
Reuter
Gott stökk
hjá Völu
VALA Flosadöttir stökk 4,12 í
stangarstökki á mdti í Malmö á
sunnudaginn og átti gdðar til-
raunir við 4,22 m. Það er 2 sm
hærra en heimsmet unglinga
sem Vala setti á Afmælismöti ÍR
fyrir ári. Þetta er betri árangur
en Vala hafði náð á sama tíma í
fyrra - þá hafði hún hæst
stokkið fjdra metra slétta.
Árangurinn lofar gdðu hjá
Völu en framundan er einvígi
hennar og Danielu Batovu frá
Tékklandi á stdrmdti ÍR í Laug-
ardalshöfl eftir tæpar tvær vik-
ur. Síðan tekur við undirbún-
ingur fyrir Evrdpumeistaramdt
innanhúss sem fram fer í Sevilla
á Spáni í byrjun mars. Þar á
Vala Evrdpumeistaratitil að
verja.
1998 ■ MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR
SUND/HM I ASTRALIU
Ljcsi
l-œn
j-.'igr,'.
!§» i
TfWT:
heimsmeti
ALLT stefndi í að ástralska karla-
sveitin í 4x200 m skriðsundi setti
heimsmet í gærmorgun þegar
Daniel Kowalski stakk sér til
sunds við síðustu skiptingu. Þá
höfðu félagar hans, Ian Thorpe,
Grant Hackett og Michael Klim,
synt fyrstu 600 m á betri tíma en
sundmenn Samveldis sjálfstæðra
ríkja (lið íþrdttamanna frá fyrrum
Sovétríkjum) er þeir settu heims-
metið 7.11,95 mfn., á Ólympíuleik-
unum í Barcelona 1992. Þrátt fyrir
mikinn stuðning tdkst Kowalski
ekki að halda hraðanum út sundið
og tíminn, 7.12,48.
Félagarnir, sem hér að ofan
sjást bíða eftir að Kowalski komi í
mark, eru ekki af baki dottnir,
segjast ætla að gera aðra tilraun
til að setja heimsmet á Samveldis-
leikunum í sumar.
I Kristy... / B4
Efni Kínveijanna
vom hreinir hormónar
ú er kominn óvefengjanleg
staðfesting á því að efnið sem
fannst í 13 glösum í farangri kín-
versku sundkonunnar Yuan Yuan
við skoðun ástralskra tollyfirvalda
í Sydney í síðustu viku er hreint
hormónaefni, svokallað Somatrop-
in. „Þetta var hreint efni, engu
hafði verið blandað saman við
það,“ sagði Andrew Thomson,
íþróttamálaráðherra Ástralíu, í
gær. Efnið var rannsakað á rann-
sóknarstofu ástralska ríkisins við
bestu hugsanlegu aðstæður. Þar
með hefur öllum vafa í málinu ver-
ið eytt og ekkert því til fyrirstöðu
að Alþjóða sundsambandið geti
tekið málið fyrir, en fram til þessa
hafa menn þar á bæ ekki viljað
segja eða gera neitt í málinu fyrr
en óyggjandi niðurstaða lægi fyr-
ir. Sundmaðurinn og þjálfari Zhou
Zhewen fóru hins vegar heim með
skömm daginn eftir að efnin fund-
ust og fyrsta athugun benti til að
þama væri á ferð Somatropin en
ekki skjaldbökusúpa.
Ástralskir fjölmiðlar hafa mikið
fjallað um málið og þar hefur ver-
ið látið að því liggja að efnið nægði
25 íþróttamönnum í 3 vikur, en
ekkert hefur verið staðfest um
það. Reyndar eru kínverkur sund-
mennirnir á HM á milli 25 og 30
og þeir dvelja í landinu nærri
þrjár vikur svo þarna gæti alveg
eins verið um hreinar getgátur að
ræða.
Ritari Alþjóða sundsambands-
ins, Gunnar Werner, vildi ekkert
segja um þessa niðurstöðu í gær
en áður hafði hann látið hafa eftir
sér að þetta mál gæti komið fyrir
lyfjanefnd sambandsins. „Málið er
nú komið í hendur lögfræðinga og
er flókið, var efnið ætlað öllum í
liðinu eða aðeins einum úr því? Því
er prfitt að svara.“
í framhaldi af því að efnið
fannst komu fram kröfur um að
kínverska liðinu yrði vísað heim,
en Alþjóða sundsambandið ljáði
ekki máls á því. Forráðamenn kín-
versku keppendanna hafa sagt
þetta einangrað mál sem væri
bundið við tvímenningana sem
hefði verið vísað til síns heima.
Efnið hefði þjálfarinn tekið með
til þess að láta kunningja sinn í
Perth hafa.