Morgunblaðið - 14.01.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.01.1998, Qupperneq 4
 Wí'% 3 -í V. ISS (8 , S'os- -X KÖRFUKNATTLEIKUR / STJÖRNULEIKUR Benedikt byijaði á að velja Helga Hinn árlegi stjömuleikur í körfuknattleiknum verður á laugardaginn í Laugardalshöll. I gær völdu þjálfarar liðanna leik- ynannahópa sína. Benedikt Guð- inundsson, þjálfari Grindvíkinga, og Einar Einarsson, þjálfari Hauka. Þjálfaramh- völdu 12 manna lið og tvo til vara og máttu aðeins hafa þrjá erlenda leikmenn í liði sínu, en leikmenn af Evrópska efnahagssvæðinu teljast ekki er- lendir leikmann. Þjálfaramir völdu til skiptis, Benedikt fyrst, þá Einar og svo koll af kolli og hafði hvor um sig fimm mínútur til að velja. Eftir að valinu lauk vora þjálfaramir spurðir hvemig stæði á því að Todd Triplett úr Val og Pétur Ingvarsson úr Haukum væra ekki í liðinu. Sögðust þeir vilja hafa er- lendu leikmennina stóra til að geta nýtt íslensku bakverðina og Pétur er meiddur. Liðin fara hér á eftir í þeirri röð sem þjálfaramir völdu, fyrst lið Benedikts. Helgi Jónas Guðfinnsson, Grinda- vík K. Tsartsaris, Grindavík Jonas Teitur Örlygsson, Njarðvík Hermann Hauksson, KR Sherrick Simpson, Haukum Eiríkm- Önundarson, ÍR PáO Kristinsson, Njarðvík Ólafur Jón Ormsson, KFI Pétur Guðmundsson, Grindavík Nökkvi Már Jónsson, KR Torrey John, Tindastóli Petey Sessoms, Njarðvík Til vara valdi hann Marcos Salas, KFI og Hafsteinn Lúðvíks- son, Þór Lið Einars: Darryl Wilson, Grindavík Damon Johnson, Akranesi Falur Harðarson, Keflavík Guðjón Skúlason, Keflavík Baldur Ólafsson, KR Bjami Magnússon, Akranesi Friðrik Stefánsson, KfT Sverrir Þór Sverrisson, Tindastóli David Bevis, KFÍ Sigfús Gizurarson, Haukum Ingvar Onnarsson, KR Arnar Kárason, Tindastóli Til vara valdi hann Tómas Holton, Skallagiími og Ingvar Guðjónsson, Haukum. Morgunblaðið/Golli DARRYL Wilson úr Grindavík var fyrsti maðurinn sem Einar Ein- arsson valdi í Stjörnulið sitt. SUND / HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í ÁSTRALÍU Kristy Kowal kom, sá og sigraði Tom Dolan og Kristy Kowal unnu ein gullverðlaun hvort í gær og tryggðu Bandaríkjamönn- um efsta sætið á verðlaunatöflu mótsins að loknum öðram degi ^pundkeppninnar. Dolan sem er ríkjandi Ólympíu- og heimsmeist- ari í 400 m fjórsundi varði titil sinn örugglega á sama tíma og ungling- urinn Kwoal vann eftir æsispenn- andi keppni í 100 m bringusundi kvenna. Kowal komst ekki í banda- ríska liðið fyrir Ólympíuleikana í Atlanta 1996 og hlaut nú uppreisn æra. Ekki er hægt að segja að úrslit í 200 m skriðsundi kvenna hafi kom- ið mörgum á óvart en þar kom Claudia Poll frá Costa Rica fyrst í mark og bætti einum gullverðlaun- um við í verðlaunasafn sitt. Hún sigraði einnig í greininni á síðustu Ólympíuleikum. I fjórðu og síðustu grein dagsins kom ástralska sveitin íyrst í mark í 4x200 m skriðsundi karla á öðram besta tíma sem náðst hefur frá upphafi, 7.12,48 mín. - rúmum 3 sek. á undan hol- lensku sveitinni er varð önnur. Mikil spenna ríkti við sundlaug- arbakkann í Perth er 100 m bringusund kvenna stóð yfir því keppnin um verðlaunin var hörð. Bandaríkjamaðurinn Kowal og heimamaðurinn Helen Denman, Lauren Van Oosten frá Kanada og Ungverjinn Agnes Kovas vora svo gott sem hnífjafnar. Kowal vann á sjónarmun, kom í mark á 1.08,42 mín. en Denman önnur á 1.08,51. Ekki munaði nema 2/100 úr sek- úndu á Oosten er hreppti þriðja sætið og Evrópumeistaranum Kovacs í fjórða sæti, tími kanadísku stúlkunnar, 1.08,66. Þegar úrsltin lágu fyrir kom í ljós að ekki var nema 74/100 úr sek- úndu munur á sigurvegaranum og þeim er varð að gera sér 8. sætið að góðu. „Enginn vissi hver ég var er ég kom til keppninnar,“ sagði Kowal. „Eftir þetta sund þekkja mig allir. Gullverðlaunin eru hápunktur lífs míns, þau bæta upp vonbrigði mín á Ólympíuleikunum 1996.“ Dolan náði forystu í 400 fjór- sundi í öðram hluta keppninnar, baksundinu, og eftir það lék aldrei vafi á að hann næði að verja heims- meistaratitilinn sem hann vann í Róm 1994. Evrópumeistarinn Marcel Wouda frá Hollandi varð að gera sér annað sætið að góðu. „Draumurinn var annað gull og ég gerði það sem þurfti til að hann mætti rætast,“ sagði Dolan sem er aðeins fjórði bandaríski sundmað- urinn sem nær að verja heims- meistaratitil. „Eg synti upp á stolt- ið því eftir að hafa hafnað í fjórða sæti heimslistans í greininni á síð- asta ári vora margir efíns um getu mína,“ bætti Dolan. Poll sýndi og sannaði í 200 m skriðsundi að enginn stenst henni snúning um þesar mundir. Heims- meistarinn frá því í Róm, Þjóðverj- inn Franziska van Almsick, hefur ekki jafnað sig eftir mótorhjólaslys á síðasta ári og komst ekki í úrslit. Frammistaða kínversku stúlkn- anna olli vonbrigðum og komst engin þeirra í úrslitin. En Ólymp- íumeistarinn mætti til leiks í góðri æfingu og vann öragglega. „Ég hafði það á tilfinningunni frá upp- hafi að ég myndi sigra og eftir 25 m var ég viss,“ sagði Poll sem var nærri því sekúndu á undan Mart- inu Moravcova er varð í öðra sæti. Tími Poll 1.58,90 mín., en silfur- verðlaunahafi síðasta Evrópumóts mældist á tímanum 1.59,61. ■ Úrslit / B2 ■ KRISTJÁN Jónsson, fyrram landsliðsmaður í knattspymu, sem lék með sænska liðinu Elfsborg, hefur gengið til liðs við sitt gamla félag - Þrótt. Kristján hóf knatt- spymuferil sinn hjá liðinu, en gekk síðan til liðs við Fram, þar sem hann lék í átta ár áður en hann fór til Svíþjóðar. ■ DANSKI miðvallarleikmaðurinn Moretn Nielsen gekk á mánudaginn til liðs við franska liðið Stassborg en hann hefur leikið með FC Kaup- mannahöfn. Frakkar keyptu kapp- ann fyrir 32 milljónir króna. ■ DANSKI landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Stig Töfting, gekk um helgina til liðs við þýska liðið Duis- burg. Hann lék með AGF í Árósum þ_ar til í sumar að hann skipti yfir í Óðinsvéum. Ekki var getið um kaupverðið á pilti. ■ STUTTGART hefur keypt Mitko Stojkovski, landsliðsmann frá Ma- kedóníu, frá Oviedo á Spáni. Hann gerði samning til ársins 2001 og mun taka stöðu vinstri bakvarðar- ins Torsten Legat sem er meiddur. ■ CHELSEA og Ajax era líkleg til að keppa um að fá danska landsliðs- manninn Brian Laudrup til sín, en hann er leikmaður með Glasgow Rangers. Laudrup myndi væntan- lega fá um þrjár millj. ísl. kr. í viku- laun. ■ TVEIR leikmenn Tottenham, Derren Anderton og Les Ferdin- and, fóra til Þýskaiands í sl. viku, til að láta Hans Miiiler-Wolfhart, lækni Jiirgen Klinsmann, skoða meiðsli sín og í gær héldu þrír aðrir leikmenn liðsins til Þýskalands - Chris Armstrong, Allan Nielsen og Steffen Iversen til að láta kanna meiðsli sín. ■ LIVERPOOL er tilbúið að fá Kashavar Tskhadadze, fyrirliða landsliðs Georgíu, til æfinga. Tsk- hadadze er 29 ára varnarleikmaðm-, sem leikur með rússneska liðinu Al- ania Vladikavkaz. Hann er metinn á eina millj. punda. ■ JIM Smith, knattspymustjóri Derby, er tilbúinn að greiða tvær millj. punda fyrir franska miðvall- arleikmanninn Didier Lang sem leikur með Sporting Lissabon. ■ NORÐUR-írar hafa áhuga á að fá Terry Venables sem næsta landsliðsþjálfara. Nokkrir þjálfarar hafa hafnað boði N-íra, eins og Joe Royle, Ron Atkinson og Bruce Ri- och. ■ BRYAN Hamilton, sem var rek- inn sem þjálfari Norður-írlands, hafnaði í gær tilboði um að gerast tæknilegur ráðgjafí norður-írska landsliðsins. ■ EMERSON, vandræðamaðurinn frá Brasilíu, sem hefur verið í her- búðum Middlesbrough, er á föram frá liðinu - til Tenerife á Spáni, sem er tilbúið að greiða fjórar millj. punda fyrir hann. ■ ÞÆR fréttir bárust frá Liver- pool í gær að Robbie Fowler færi fram á að fá um sex millj. ísl. kr. í vikulaun ef hann skrifaði undir fimm ára samning við liðið. ■ MARK Bosnich, markvörður Aston Villa og Ástralíu, var út- nefndur knattspyrnumaður ársins 1997 í Eyjaálfu í gær. Hann er fyrsti markvörðurinn til að vera út- nefndur. ■ STEFAN Effenberg, fyrrum landsliðsmaður Þýskalands, sem leikur með Mönchengladbach, seg- ist ekki vera á fórum til Tottenham, en þær fréttir hafa borist út að Lundúnaliðið væri að kaupa hann á fjórar millj. punda. „Ég hef lesið um þessar sögusagnir í blöðum,“ sagði Effenberg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.